Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Blaðsíða 38
LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 JLí"V
50 %ig!ingar
8. bekkur Álftamýrarskóla fræðist um starfsemi Rauða krnss íslands:
málið varða
Svisslendingurinn Henry Dunant
stofnaði Rauða krossinn árið 1863
til að hjúkra særðum hermönnum.
Henry Dunant fékk friðarverðlaun
Nóbels árið 1901. Rauði krossinn
starfar nú í 145 löndum en höfuð-
stöðvar hans eru í Genf í Sviss. Al-
þjóðasamband Rauða kross félaga,
sem var stofnað 1919, er samband
landsfélaga Rauða krossins, Al-
þjóðaráð Rauða krossins, sem stofn-
að var árið 1863, er aðskilin stofnun.
Hjá henni vinna eingöngu Sviss-
lendingar en stofnunin er kostuð af
aðildarrikjum Genfarsáttmálans en
nýtur auk þess verulegs stuðnings
frá svissneska ríkinu. Stofnanirnar
starfa saman að margvíslegum
verkefnum en jafnframt skipta þær
með sér verkum. Alþjóðaráð Rauða
krossins hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1917, 1944 og 1963.
Stofnað 1924
RKÍ var stofnaður árið 1924 að
frumkvæði nokkurra lækna. Hann
starfar nú í 50 deildum um land allt
og eru félagar um 19.000. Rauða-
kross húsið, sem er við Tjarnargötu
35, er einkum fyrir 18 ára og yngri.
Þar er þrenns konar starifsemi:
Trúnaðarsíminn (800-5151), athvarf,
ráðgjafarþjónusta.
Þegar krakkar hringja í trúnaðar-
símann er það yfirleitt vegna þess
að þeir eiga við vandamál að stríða.
Til dæmis getur það verið einelti,
heimilisofbeldi eða þeir hafa engan
til að tala við. Krakkar sem koma í
athvarfið hafa oft orðið fyrir heimil-
isofbeldi og krakkar sem koma í
ráðgjafaþjónustuna hafa oft orðið
fyrir einelti, barsmíðum eða þeim
finnst þeir hafa brugðist öllum.
Rauði kross íslands er með margs
konar starfsemi hér á landi. í deild-
inni í Garðabæ er til dæmis safnað
fötum og þau flokkuð. Þeim er skipt
í þrjá flokka: bamafot, kvenmanns-
fot, ónýt fót og hlífðarfót. Þess er
eindregið farið á leit að ekki séu
gefnir undirkjólar, nælonsokkar né
föt úr leðri. Föt úr leðri draga að sér
lýs og rottur og undirkjólar og
nælonsokkar nýtast ekki þeim
svæðum sem fotin eru send til. Sölu-
tuminn sem er á Landspítalanum
er rekinn af kvennadeild Reykjavik-
urdeildar RKÍ. Um það bil 50 konur
skiptast á um að afgreiða þar.
Vin, athvarf fyrir geðfatlaða, er
rekin á vegum RKÍ. Það er til húsa
á Hverfisgötu 47 í Reykjavík og er
opið mánudaga til fóstudaga frá kl.
9.30- 16.30. Þangað koma gestir á
Þórunn Helga.
eigin forsendum. Þeir sem veita
starfseminni forstöðu vilja gjarnan
fá alla þá í heimsókn sem þurfa á
aðstoð að halda vegna geðfotlunar
og eru opnir fyrir óskum og hug-
myndum.
í Múlabæ er félagsmiðstöð fyrir
eldri borgara. Þar er föndur- og
setustofa, hárgreiðslustofa, lestrar-
stofa, kórstarfsemi, skrifstofur,
reykhom, búð og fleira.
Meðal annarra verkefna má
nefna rekstur Rauða kross-hússins,
Sjúkrahótelið við Rauðarárstíg,
fræðslu í skyndihjálpög ýmsu öðra,
aðstoð við flóttamenn, neyðarvarn-
ir, sjúkraflutninga, félagslega að-
stoð og fleira. Allir þeir sem starfa á
vegum RKÍ eru sjálfboðaliðar og
þiggja ekki nein laun fyrir vinnu
sína.
í ofangreindri þemaviku gafst
nemendum Álftamýrarskóla tæki-
færi til að læra skyndihjálp undir
umsjón starfsmanna RKÍ. Kennt var
hvemig bregðast á við á slysstað. Sá
sem kemur að slysi þarf að taka
málin í sínar hendur, tryggja öryggi
á slysstað, fá yfirsýn yfir slysið og
tilkynna það.
Neyðarsíminn er: 112
Sá sem kemur að slysi þarf að
geta metið ástand slasaðra, athuga
meðvitund,
öndun og púls. Helstu ástæður
fyrir meðvitundarleysi era heila-
hristingur, yfirlið, heilablóðfall,
lost, köfnun, drakknun, sykursýki,
of mikil áreynsla, öndunarsjúkdóm-
ar og vímuefni.
Ef komið er að manneskju sem
misst hefur meðvitund þarf að opna
öndunarveginn, leggja manneskj-
una í læsta hliðarlegu og fylgjast
með öndun.
Púls á fulloröinni manneskju á aö
vera 60-80 slög á mínútu en á barni
100-120 slög. Ef framkvæma þarf
hjartahnoð er nauðsynlegt að kunna
réttar aðferðir. Ef um fullorðna
manneskju er að ræða þarf að blása
tvisvar sinnum í öndunarveg mann-
eskjunnar og þrýsta fimmtán sinn-
um í röð á miðjan brjóstkassann.
Þetta er svo endurtekið meðan beð-
ið er eftir sjúkraliðum. Ef bam á í
hlut er blásið einu sinni yfir nef og
munn og þrýst fimm sinnum á
brjóstkassann og þetta síðan endur-
tekið.
RKÍ er mannúðarhreyfing sem
vinnur stórmerkilegt starf og mann-
bætandi. Það er skylda okkar allra
að styrkja og styðja þessa starfsemi
eftir fóngum. Það má gera með ýms-
um hætti, til dæmis með fjárfram-
lögum eða sjálfboðastarfi. Mestu
máli skiptir að allir láti sig starf-
semina sem mestu máli skipta okk-
ur öllum til heilla.
-Þórunn Helga
Rauði krossinn:
Er ekki stofnun
Þórunn Helga, Anna Rut og María Kristín skiluöu allar mjög góöum verkefnum eftir heimsókn 8. bekkjar Álftamýrarskóla
til Rauöa krossins. DV birtir hér ritgeröir stelpnanna þar sem þær segja frá heimsókninni. Meö þeim á myndinni er
Aöalheiöur Ósk Guöbjörnsdóttir, forstööumaöur ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauöa kross íslands. DV-mynd E.Ói.
Vitum nú mun meira
Dagana 10.-12. febrúar var þema-
vika í Álftamýrarskóla. 8. bekkur
fór í heimsókn til Rauða krossins og
kynntist starfsemi hans. Bekkjun-
um var skipt í 3 hópa. Hópur 1 byrj-
aði á að fara í kynningu þriðjudag-
inn 10. febrúar. Hann fór í Rauða
krosshúsið kl. 9 með strætó. Þar tók
kona á móti honum sem heitir Edda
Hrafnhildur. Hún sagði frá Rauða-
krosshúsinu, Tjarnargötu 35, neyð-
arathvarfinu fyrir heimilislaus
böm, trúnaðarsímanum og ráðgjöf-
inni. Eftir það fengu krakkamir sér
að borða og þá tók maður við þeim
sem heitir Konni. Hann sýndi þeim
myndband (teiknimynd) með grand-
vallaratriðum Rauða krossins og
Rauða hálfmánans. Hann sagði
þeim hvað merkin táknuðu (Rauði
krossinn og hálfmáninn) en þau era
tákn um hlutleysi og njóta friðhelg-
is á átakasvæðum. Eftir það fóra
þau og fengu sér að borða. Svo fóra
þau til konu sem heitir Aðalheiður
og hún sagði þeim frá alls konar
hópum, t.d. hópi sem fer í sumar-
búðir í útlöndum, skyndihjálpar-
María Kristín.
hópi o.fl. Tvær stelpur komu og
voru með leikrit um kynsjúkdóma.
Stöðva blæðingu
Miðvikudaginn 11. febrúar var
hópur 1 í skólanum í skyndihjálp.
Hann lærði hvemig eiga að bregð-
ast við slysum, tilkynna slys og
stöðva blæðingu. Krakkarnir lærðu
um orsakir meðvitundarleysis og
hvað gera ætti þegar einhver missir
meðvitund. Konan sem var með
krökkunum, Kristín, kom með
dúkku og áttu þeir að lífga hana við
með hjartahnoði og munn við munn
aðferðinni.
Fimmtudaginn 12. febrúar fór
hópur 1 í sjálfboðavinnu niður í
Rauða kross-hús. Honum var skipt í
fjóra hópa. Fyrsti hópurinn átti að
fara í sölubúð Rauða krossins á
Landspítalanum, annar fór í Vin, at-
hvarf fyrir geðfatlaða, þriðji hópur-
inn fór I fataflokkun í Garðabæ að
flokka íot og sá fjórði fór í Múlabæ,
heimsóknarþjónustu fyrir aldraða.
Þannig fengum við að kynnast því
hvað sjálfboðaliðamir gera.
Þessir dagar voru mjög skemmti-
legir, við kynntumst starfi Rauða
krossins og vitum nú meira um
skyndihjálp.
-María Kristín
Mikill fjöldi fólks um allan heim
eru sjálfboðaliðar í Rauða krossin-
um. Rauði krossinn er fyrir alla þá
sem við erfiðleika eiga að stríða og
þurfa húsaskjól. Rauði krossinn er
ekki stofnun heldur kemur fólk
þangað sjálft því það telur sig þurfa
á hjálp að halda. Hægt er að hringja
í svokallaðan trúnaðarsíma Rauða
krossins og þangað hringir maður
ef maður vill segja frá vandamálun-
um sínum í gegnum síma frekar en
að koma í viðtal og ræða þau undir
fjórum augum. Einnig getur maður
rætt vandamál vina sinna eða for-
eldra. Nafnleynd er ætíð haldiö og
því þarf enginn að komast að því að
maður hafi leitað til Rauða kross-
ins.
í Rauða krossinum er margt hægt
að gera og félagslíf þar er fjölbreytt.
T.d. era ýmis námskeið og leikhóp-
ar sem kynna hina ýmsu sjúkdóma
og viðbrögð fólks við þeim. Til er
hópur á vegum Rauða krossins sem
nefnist URKÍ. Sá hópur er aðallega
fyrir ungt fólk. Það fer í ferðalög og
margt fleira. Einnig læra URKÍ-fé-
lagar mikið um skyndihjálp. í sjálf-
boðastörfum á vegum Rauða kross-
ins er ýmist farið á elliheimili,
heimili fyrir geðfatlaða, Kvennaat-
hvarfið eða spítala. Einnig er hægt
að hjálpa til við fataflokkun.
Saga Rauða krossins
Fyrir mörgum áram siðan var
maður sem hét Henry Dunat. Hann
var mjög auðugur maður. Hann var
uppi á þeim tíma sem orrustan við
Soferino var háð. Margir menn
særðust i þeirri orrastu og gátu þvi
lítið barist. Þeim mönnum vildi
Henry Dunat hjálpa. Hann sótti all-
ar konur í nærliggjandi bæ og lét
þær hjálpa sér við að hlúa að særðu
hermönnunum. Henry Dunat var
svissneskur og merki svissneska
fánans er rauður bakgrunnur og
hvítur kross. Merki Rauða krossins
er hvítur bakgrunnur og rauður
kross.
Einnig er til merki er nefnist
Rauði hálfmáninn. Rauði hálfmán-
inn er notaður á sama hátt og Rauði
krossinn og sömu störf era unnin
þar.
Sjálfboðastarf 8. bekkjar Við lögð-
Anna Rut.
um af stað upp í Þverholt 15 sem er
bækistöð ungmennafélagsins URKÍ
um níuleytið. Þar var okkur skipt í
nokkra hópa og svo var lagt af stað.
Minn hópur heimsótti Múlabæ.
Múlabær er nokkurs konar félags-
miðstöð fyrir eldra fólk. Fólkið er
sótt um hádegið og keyrt heim
seinna um daginn. I Múlabæ er m.a.
fóndurherbergi, fótsnyrtistofa, hár-
greiðslustofa, matsalur, hvildarher-
bergi og íþróttasalur. Einnig er her-
bergi í Múlabæ þar sem lesið er upp
úr blöðunum. Múlabær er staður
fyrir bæði eldra fólk og svo einnig
fyrir fólk sem að einhverju leyti er
veikburða. Hjúkrunarfræðingur er
á staðnum og sinnir þar hinum
ýmsu störfum eins og allt hitt starfs-
fólkið. Múlabær er í Ármúla og
þangað er allt eldra fólk velkomið.
Staðurinn er mjög hlýlegur, rétt
eins og fólkið.
Lykilorð Rauða krossins eru ein-
ing, mannúð, hlutleysi, óhlut-
drægni, alheimshreyfing, sjálfstæði
og sjálfboðin þjónusta.
Þegar slys verða er oft hringt í
Neyðarlínuna því hún er þekkt fyr-
ir það að vera fljót að bregðast við.
Hver hringir?
Hvar gerðist slysið?
Hvað gerðist?
Þetta á að segja og nauðsynlegt er
að endurtaka þetta.
-Anna Rut