Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Side 58
70 Qfmæli LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 JJV Arni Finnsson Ami Finnsson, Grandavegi 7, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Árni fæddist á Akureyri og ólst upp í Reykjavík og á Akureyri. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1978, var við enskunám í London veturinn 1979, flutti til Gautaborgar næsta haust og nam Alþjóðasam- skipti og stjórnmálafræði við Gauta- borgarháskóla 1980-83 og við há- skólann í Lundi 1988-89. Árni hóf störf fyrir umhverfis- vemdarsamtökin Greenpeace 1987 og starfaði fyrir þau til 1996. Vorið 1996 fluttist Ámi ásamt fjöl- skyldu sinni heim til íslands og hef- ur starfað sjálfstætt að náttúru- verndarmálum síðan. Árni vann ýmis trúnaðarstörf fyr- ir félög íslendinga í Svíþjóð. Hann sat í stjórn félags íslenskra náms- manna í Gautaborg og nágrenni, FINGON, var SÍNE-fúll- trúi 1983-84, sat í stjórn samtaka íslendinga á Norðurlöndum, SIDS, 1985-87 auk ýmissa ann- arra starfa. Árni var einn af stofnfélögum Náttúruverndarsamtaka íslands i mai 1997 og situr í stjórn samtakanna. Árni hefur ritað fjölda blaðagreina um umhverf- is- og náttúruvemdarmál í íslensk og erlend blöð og tímarit. Fjölskylda Árni hóf sambúð árið 1984 með Hrafnhildi Arnkelsdóttur, f. 7.5. 1961, tölfræðingi og forstöðumanni Kjararannsóknamefndar. Þau gengu í hjónaband 29.12. 1990. For- eldrar Hrafnhildar eru Arnkell Jónas Einarsson, vegaeftirlitsmað- ur, sem nú er látinn og Elín Ágústa Jóhannes- dóttir, iðnverkakona í Reykjavík. Dóttir Árna og Hrafn- hildar er Karitas Sumati f. 26.9. 1994. Bróðir Árna er Magn- ús Einar Finnsson, f. 21.7. 1959, tæknifulltrúi hjá Hita- og vatnsveitu Akur- eyrar, kvæntur Jóhönnu Erlu Birgisdóttur skrif- stofumanni og em böm þeirra Arnaldur Birgir, Andri Freyr og Sigrún María. Hálfsystkini Árna, samfeðra, böm Helgu K. Einarsdóttur bóka- safnsfræðings, era Einar Torfl Finnsson, f. 13.8. 1965, leiðsögumað- ur og framkvæmdastjóri, í sambúð með Ingibjörgu Guðjónsdóttur, leið- sögumanni og þjóðfræðinema; Hjör- leifur Finnsson, f. 28.3. 1969, sem er við framhaldsnám í heimspeki í Berlín; Glóey Finnsdóttir, f. 29.10. 1970, laganemi, í sambúð með Charles Goemans verkamanni. Foreldrar Árna eru Finnur Torfi Hjörleifsson, f. 7.11. 1936, héraðs- dómari og rithöfundur í Hafnar- firði, og Hulda Árnadóttir, f. 3.10. 1934, handavinnukennari á Akur- eyri. Unnusta Finns Torfa er Elín B. Magnúsdóttir, forstöðukona Dvalar- heimilis aldraðra í Borgarnesi. Ætt Foreldrar Finns Torfa vora Hjör- leifur Guðmundsson pípulagninga- maður og Gunnjóna Sigrún Jóns- dóttir, að Sólvöllum í Önundarfirði. Foreldrcir Huldu voru Árni Ólafs- son bæjarstarfsmaður og Valgerður Rósinkarsdóttir húsfreyja, Kjarna við Eyjafjörö og síðar á Akureyri. Árni Finnsson. Brynhildur J. Bjarnarson Brynhildur J. Bjarnar- son ellilifeyrisþegi, Klapp- arstíg 5 A, Reykjavík, er sjötug í dag. Starfsferill Brynhildur fæddist í Kötluholti i Fróðárhreppi á Snæfellsnesi en ólst upp í Reykjavík. Á sumrin var hún hins vegar til dvalar á Snæfellsnesinu. Hún stundaði nám við Ingi- marsskólann í Reykjavík og lauk þaðan gagnfræðaprófl. BrynhUdur stundaði húsmóðurstarf en auk þess hefur hún verið starfsmaður hjá Pósti og síma um árabU og til síðustu áramóta. Fjölskylda Eiginmaður BrynhUd- ar er Guðmundur Bjamason, f. 27.3. 1927, rafvirkjameistari. Hann er sonur Bjarna Bjama- sonar, vélstjóra í Reykjavík, og Elínar Guðmundsdóttur húsmóður en þau Brynhildur Bjarnarson. era bæði látin. Böm BrynhUdar og Guðmundar eru Sturla Rafn, f. 22.10. 1950, raf- magnstæknifræðingur í Reykjavík, kvæntur Eyrúnu I. Gísladóttur og eru böm þeirra Gísli Örn, Snorri Björn og Guðrún Jóhanna; Ingi- björg, f. 26.1. 1952, húsmóðir i Reykjavík, gift Bergþóri Guðjóns- syni og era böm þeirra Brynhildur, Helga sem er látin og Guðmundur Orri; Elín, f. 6.4. 1955, húsmóðir í Reykjavík, var gift Pétri W. Jack sem lést 1983 og eru böm þeirra ír- is Blómlaug, Fjóla Burkney og HrafnhUdur Día auk dóttur Elínar, Fannýjar MjaUar Pétursdóttur; Haf- steinn, f. 15.8. 1957, verkfræðingur í Reykjavík, en kona hans er Soffia Káradóttir; Jón Bjarni, f. 12.3. 1962, kvikmyndagerðarmaður. Hálfbræður Brynhildar eru Bjöm Bjarnarson, f. 14.5.1918, d. 25.2.1996, búnaðarráðunautur í Reykjavík; Baldvin Bjarnarson, f. 30.8. 1920, d. 1970, málarameistari. Foreldrar Brynhildar voru Jón Bjarnarson, bóndi og siðar verslunarmaður í Reykjavík, og Ingibjörg Bjarnadótt- ir, starfsmaður við Þvottahús Landspítalans. Brynhildur er heiman. Helga Þórdís Tryggvadóttir Helga Þórdís Tryggvadóttir, gangastúlka við Hjúkrunarheimilið Garðvang í Garði, Skólabraut 7, Garði, er sextug i dag. Starfsferill Helga fæddist á Bjamarstöðum í Garði og ólst þar upp. Hún fór í vist og stundaði barnagæslu á ýmsum stöðum á hverju sumri frá sex ára aldri og fram að fermingu. Á ung- lingsáranum var hún í sUdarsölt- un, fiskvinnslu og stundaði fleiri störf sem til féllu. Helga hefur nú stundað ræstingar á skrifstofu Gerðahrepps sl. átján ár og hefur starfað við Hjúkrunar- heimlið Garðvang frá 1980. Helga hefur sinnt trúnaðarstörf- um fyrir Gerðahrepp, sat í barna- vemdarnefnd hreppsins um skeið og situr nú í tónlistarskólanefnd Gerðahrepps. Hún er heiðursfélagi Knattspyrnufélagsins Víðis og hefur tekið virkan þátt í starfi kvenfélags- ins Gefnar í Garði frá 1954. Fjölskylda Helga giftist 23.3. 1957 Eyjólfi Gislasyni, f. 28.4. 1934, öryggisverði í Leifsstöð. Hann er sonur Gísla Matthíasar Sigurðssonar, bónda að Miðhúsum í Garði, og Ingibjargar Þorgerðar Guðmundsdóttur hús- freyju. Böm Helgu og Eyjólfs era Gísli Matthías Eyjólfsson, f. 26.1. 1955, sölustjóri í Keflavík, kvæntur Ólaf- íu Ólafsdóttur, starfsmanni hjá Flugleiðum, og eiga þau ijögur böm; Magnús Eyjólfsson, f. 12.1. 1957, hlaðmaður hjá Flugleiðum, búsettur í Keflavík, kvæntur Ástrúnu Sigur- björnsdóttur og eiga þau þrjú börn; Kristín Eyjólfsdóttir, f. 27.1. 1958, starfsmaður við íþróttamiðstöðina í Garði, búsett í Garði, gift Hólmberg Magnússyni, hlaðmanni hjá Flug- leiðum, og eiga þau fjögur böm; Gunnar Bjöm Eyjólfsson, f. 1.2. 1960, vélvirki, búsettur á HvolsveUi, kvæntur Agnesi Ragnarsdóttur, starfsmanni hjá Sláturfé- lagi Suðurlands, og eiga þau tvö börn; Ingibjörg Þorgerður Eyjólfsdóttir, f. 3.7. 1960, verslunar- stjóri í Leifsstöð, búsett í Garði, gift Erni VU- mundarsyni, hlaðmanni hjá Flugleiðum, og eiga þau sjö böm; Kristbjörg Eyjólfsdóttir, f. 17.9. 1966, stuðningsfulltrúi við Gerðaskóla, búsett í Garði, gift Arnari Magn- ússyni vélstjóra og eiga þau þrjú böm; Guðrún Eyjólfsdóttir Brennan, f. 20.2. 1968, hárgreiðslukona, búsett i Banda- ríkjunum, gift Sean Brennan sem starfar við húsabyggingar og eiga þau þrjú börn; Eygló Eyjólfsdóttir, f. 9.1. 1971, starfsmaður hjá varnarlið- inu, búsett í Keflavík, gift Jóni Örv- ari Arasyni, verkstjóra í mötuneyti hjá varnarliðinu, og eiga þau ijögur böm. Systkini Helgu era Ein- ar Tryggvason, f. 25.5. 1933, d. 29.11. 1998; Tobías Tryggvason, f. 1.7. 1935, d. 22.6. 1978; Ásta Sigurlaug Tryggvadóttir, f. 7.7. 1939, d. 25.9. 1982; Kristín Tryggvadóttir, búsett á Þinghóli á HvolsveUi; Bjamveig, f. 12.3. 1941; Tryggvi Björn Tryggva- son, f. 22.3. 1957, smiður í Keflavík; Ólafur Tryggva- son, f. 27.12. 1944, verka- maður í Garði. Foreldrar Helgu voru Tryggvi Kr. Einarsson, f. 23.11.1914, d. 21.4. 1989, sjómaður og smiður á Bjarnarstöðum í Garði, og Björg Guðlaugsdóttir, f. 2.11. 1913, d. 27.6. 1978, húsfreyja. Helga Þórdís og Eyjólfur taka á móti gestum í samkomuhúsinu Garði laugardaginn 28.3. frá kl. 17.00-21.00. Helga Þórdís Tryggvadóttir. Guðjón Haraldsson Guðjón Haraldsson verktaki, Markholti 14, Mosfellsbæ, verður sextugur á morgun. Starfsferill Guðjón fæddist á Hólmavík og ólst þar upp og í Skjólunum í Reykjavík. Hann hefur þó lengst af átt heima í Mosfellsbæ. Guðjón var lengi starfsmaður á Álafossi. Guðjón festi síðan kaup á trakt- orsgröfu og tók þá að sér ýmis verk- efni en hefur síðan lengst af rekið eigið verktakafyrirtæki. Fjölskylda Eiginkona Guðjóns er Nicoline Herdís Schjet- ne, f. 27.9. 1942, húsmóð- ir. Hún er dóttir Leif Schjetne, vélstjóra í Tromsö í Noregi, og k.h., Helgu Ström Schjetne húsmóður sem var ís- lensk. Börn Guðjóns og Nicoline eru Helga Guð- jónsdóttir, f. 25.12. 1959, bréfberi í Mosfellsbæ, gift Geir H. Geirssyni og eiga þau fjögur börn; Marta Gunnlaug Guðjóns- dóttir, f. 28.11. 1960, starfs- maður hjá Hagkaupi, bú- sett í Mosfellsbæ, en mað- ur hennar er Kristján Guðbrandsson; Haraldur H. Guðjónsson, f. 28.8. 1962, verktaki í Mosfells- bæ, en hann á eina dóttur; Herdís Guðjónsdóttir, f. I. 10. 1964, landpóstur, bú- sett á Kjalarnesi, gift Jóni Stefánssyni og eiga þau þrjá syni; Leifur Guðjóns- son, f. 10.2. 1972, starfsmaður hjá Landssímanum. Guðjón Haraldsson. Guðjón átti ellefu systkini en tvö þeirra eru látin. Systkini hans: Lára, húsmóðir í Mosfellsbæ; Hilm- ar, i Reykjavík; Ragnar, í Grundar- firði; Kolfínna, í Reykjavík; Frið- þjófur, í Mosfellsbæ; Guðmundur, í Keflavík; Helga, í Mosfellsbæ; Garð- ar, í Garðabæ; Jón Sveinbjörn, í Mosfellsbæ. Foreldrar Guðjóns: Haraldur Haf- steinn Guðjónsson, f. 11.3. 1913, og Marta Gunnlaug Guðmundsdóttir, f. 6.7. 1917, húsmóðir. Guðjón er á Kanaríeyjum á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 28. mars 85 ára Sigríður Kristjánsdóttir, Hvammi, Húsavík. 75 ára Ingvar G. Oddsson, Kirkjuvegi ld, Keflavík. Svavar Kristinsson, Hvanneyrarbraut 50, Sigluflrði. 70 ára Einar Valmundsson, Suðurbyggð 10, Akureyri. Gunnar M. Steinsen, Vesturbergi 19, Reykjavík. Heiður Jóhannesdóttir, Ægisgötu 8, Akureyri. Hrafnkell Helgason, læknabústað á Vífilsstöðum, Garðabæ. Inga Andrésdóttir, Kársnesbraut 53, Kópavogi. Sigfús Jónsson, Vesturbrún 10, Reykjavík. Þórdís Todda Guðmundsdóttir, Skaftahlíð 13, Reykjavík. 60 ára Fjóla Filippía Jónsdóttir, Torfufelli 15, Reykjavík. Hansína Ósk Lárusdóttir, Urðarbakka 28, Reykjavík. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Háhlíð 7, Akureyri. 50 ára Halldór Jónasson, Hvassaleiti 44, Reykjavík. 40 ára Ásta Margrét Jóhannsdóttir, Dalseli 17, Reykjavík. Guðrún Ingólfsdóttir, Tjarnarbrú 1, Höfn. Guðrún S. Thorsteinsson, Safamýri 27, Reykjavík. Heimir Ingvason, Grenivöllum 14, Akureyri. Marteinn Gunnarsson, Sveighúsum 7, Reykjavík. Regína Bemdsen, Skólavörðustíg 6b, Reykjavík. Sigríður Ragna Þorvaldsdóttir, Óttuhæð 6, Garðabæ. staðgreiðslu- og greiðslukorta- afsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smáauglýsingar rsCT 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.