Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Blaðsíða 58
70
Qfmæli
LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 JJV
Arni Finnsson
Ami Finnsson, Grandavegi 7,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Árni fæddist á Akureyri og ólst
upp í Reykjavík og á Akureyri.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1978, var við enskunám í London
veturinn 1979, flutti til Gautaborgar
næsta haust og nam Alþjóðasam-
skipti og stjórnmálafræði við Gauta-
borgarháskóla 1980-83 og við há-
skólann í Lundi 1988-89.
Árni hóf störf fyrir umhverfis-
vemdarsamtökin Greenpeace 1987
og starfaði fyrir þau til 1996.
Vorið 1996 fluttist Ámi ásamt fjöl-
skyldu sinni heim til íslands og hef-
ur starfað sjálfstætt að náttúru-
verndarmálum síðan.
Árni vann ýmis trúnaðarstörf fyr-
ir félög íslendinga í Svíþjóð. Hann
sat í stjórn félags íslenskra náms-
manna í Gautaborg og nágrenni,
FINGON, var SÍNE-fúll-
trúi 1983-84, sat í stjórn
samtaka íslendinga á
Norðurlöndum, SIDS,
1985-87 auk ýmissa ann-
arra starfa. Árni var
einn af stofnfélögum
Náttúruverndarsamtaka
íslands i mai 1997 og situr
í stjórn samtakanna.
Árni hefur ritað fjölda
blaðagreina um umhverf-
is- og náttúruvemdarmál
í íslensk og erlend blöð og
tímarit.
Fjölskylda
Árni hóf sambúð árið 1984 með
Hrafnhildi Arnkelsdóttur, f. 7.5.
1961, tölfræðingi og forstöðumanni
Kjararannsóknamefndar. Þau
gengu í hjónaband 29.12. 1990. For-
eldrar Hrafnhildar eru Arnkell
Jónas Einarsson, vegaeftirlitsmað-
ur, sem nú er látinn og
Elín Ágústa Jóhannes-
dóttir, iðnverkakona í
Reykjavík.
Dóttir Árna og Hrafn-
hildar er Karitas Sumati
f. 26.9. 1994.
Bróðir Árna er Magn-
ús Einar Finnsson, f. 21.7.
1959, tæknifulltrúi hjá
Hita- og vatnsveitu Akur-
eyrar, kvæntur Jóhönnu
Erlu Birgisdóttur skrif-
stofumanni og em böm
þeirra Arnaldur Birgir,
Andri Freyr og Sigrún María.
Hálfsystkini Árna, samfeðra,
böm Helgu K. Einarsdóttur bóka-
safnsfræðings, era Einar Torfl
Finnsson, f. 13.8. 1965, leiðsögumað-
ur og framkvæmdastjóri, í sambúð
með Ingibjörgu Guðjónsdóttur, leið-
sögumanni og þjóðfræðinema; Hjör-
leifur Finnsson, f. 28.3. 1969, sem er
við framhaldsnám í heimspeki í
Berlín; Glóey Finnsdóttir, f. 29.10.
1970, laganemi, í sambúð með
Charles Goemans verkamanni.
Foreldrar Árna eru Finnur Torfi
Hjörleifsson, f. 7.11. 1936, héraðs-
dómari og rithöfundur í Hafnar-
firði, og Hulda Árnadóttir, f. 3.10.
1934, handavinnukennari á Akur-
eyri.
Unnusta Finns Torfa er Elín B.
Magnúsdóttir, forstöðukona Dvalar-
heimilis aldraðra í Borgarnesi.
Ætt
Foreldrar Finns Torfa vora Hjör-
leifur Guðmundsson pípulagninga-
maður og Gunnjóna Sigrún Jóns-
dóttir, að Sólvöllum í Önundarfirði.
Foreldrcir Huldu voru Árni Ólafs-
son bæjarstarfsmaður og Valgerður
Rósinkarsdóttir húsfreyja, Kjarna
við Eyjafjörö og síðar á Akureyri.
Árni Finnsson.
Brynhildur J. Bjarnarson
Brynhildur J. Bjarnar-
son ellilifeyrisþegi, Klapp-
arstíg 5 A, Reykjavík, er
sjötug í dag.
Starfsferill
Brynhildur fæddist í
Kötluholti i Fróðárhreppi
á Snæfellsnesi en ólst upp
í Reykjavík. Á sumrin var
hún hins vegar til dvalar á
Snæfellsnesinu. Hún
stundaði nám við Ingi-
marsskólann í Reykjavík
og lauk þaðan
gagnfræðaprófl.
BrynhUdur stundaði
húsmóðurstarf en auk
þess hefur hún verið
starfsmaður hjá Pósti og
síma um árabU og til
síðustu áramóta.
Fjölskylda
Eiginmaður BrynhUd-
ar er Guðmundur
Bjamason, f. 27.3. 1927,
rafvirkjameistari. Hann
er sonur Bjarna Bjama-
sonar, vélstjóra í
Reykjavík, og Elínar
Guðmundsdóttur húsmóður en þau
Brynhildur
Bjarnarson.
era bæði látin.
Böm BrynhUdar og Guðmundar
eru Sturla Rafn, f. 22.10. 1950, raf-
magnstæknifræðingur í Reykjavík,
kvæntur Eyrúnu I. Gísladóttur og
eru böm þeirra Gísli Örn, Snorri
Björn og Guðrún Jóhanna; Ingi-
björg, f. 26.1. 1952, húsmóðir i
Reykjavík, gift Bergþóri Guðjóns-
syni og era böm þeirra Brynhildur,
Helga sem er látin og Guðmundur
Orri; Elín, f. 6.4. 1955, húsmóðir í
Reykjavík, var gift Pétri W. Jack
sem lést 1983 og eru böm þeirra ír-
is Blómlaug, Fjóla Burkney og
HrafnhUdur Día auk dóttur Elínar,
Fannýjar MjaUar Pétursdóttur; Haf-
steinn, f. 15.8. 1957, verkfræðingur í
Reykjavík, en kona hans er Soffia
Káradóttir; Jón Bjarni, f. 12.3. 1962,
kvikmyndagerðarmaður.
Hálfbræður Brynhildar eru Bjöm
Bjarnarson, f. 14.5.1918, d. 25.2.1996,
búnaðarráðunautur í Reykjavík;
Baldvin Bjarnarson, f. 30.8. 1920, d.
1970, málarameistari. Foreldrar
Brynhildar voru Jón Bjarnarson,
bóndi og siðar verslunarmaður í
Reykjavík, og Ingibjörg Bjarnadótt-
ir, starfsmaður við Þvottahús
Landspítalans. Brynhildur er
heiman.
Helga Þórdís Tryggvadóttir
Helga Þórdís Tryggvadóttir,
gangastúlka við Hjúkrunarheimilið
Garðvang í Garði, Skólabraut 7,
Garði, er sextug i dag.
Starfsferill
Helga fæddist á Bjamarstöðum í
Garði og ólst þar upp. Hún fór í vist
og stundaði barnagæslu á ýmsum
stöðum á hverju sumri frá sex ára
aldri og fram að fermingu. Á ung-
lingsáranum var hún í sUdarsölt-
un, fiskvinnslu og stundaði fleiri
störf sem til féllu.
Helga hefur nú stundað ræstingar
á skrifstofu Gerðahrepps sl. átján ár
og hefur starfað við Hjúkrunar-
heimlið Garðvang frá 1980.
Helga hefur sinnt trúnaðarstörf-
um fyrir Gerðahrepp, sat í barna-
vemdarnefnd hreppsins um skeið
og situr nú í tónlistarskólanefnd
Gerðahrepps. Hún er heiðursfélagi
Knattspyrnufélagsins Víðis og hefur
tekið virkan þátt í starfi kvenfélags-
ins Gefnar í Garði frá 1954.
Fjölskylda
Helga giftist 23.3. 1957 Eyjólfi
Gislasyni, f. 28.4. 1934, öryggisverði
í Leifsstöð. Hann er sonur Gísla
Matthíasar Sigurðssonar, bónda að
Miðhúsum í Garði, og Ingibjargar
Þorgerðar Guðmundsdóttur hús-
freyju.
Böm Helgu og Eyjólfs era Gísli
Matthías Eyjólfsson, f. 26.1. 1955,
sölustjóri í Keflavík, kvæntur Ólaf-
íu Ólafsdóttur, starfsmanni hjá
Flugleiðum, og eiga þau ijögur böm;
Magnús Eyjólfsson, f. 12.1. 1957,
hlaðmaður hjá Flugleiðum, búsettur
í Keflavík, kvæntur Ástrúnu Sigur-
björnsdóttur og eiga þau þrjú börn;
Kristín Eyjólfsdóttir, f. 27.1. 1958,
starfsmaður við íþróttamiðstöðina í
Garði, búsett í Garði, gift Hólmberg
Magnússyni, hlaðmanni hjá Flug-
leiðum, og eiga þau fjögur böm;
Gunnar Bjöm Eyjólfsson, f. 1.2.
1960, vélvirki, búsettur á HvolsveUi,
kvæntur Agnesi Ragnarsdóttur,
starfsmanni hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands, og eiga
þau tvö börn; Ingibjörg
Þorgerður Eyjólfsdóttir,
f. 3.7. 1960, verslunar-
stjóri í Leifsstöð, búsett í
Garði, gift Erni VU-
mundarsyni, hlaðmanni
hjá Flugleiðum, og eiga
þau sjö böm; Kristbjörg
Eyjólfsdóttir, f. 17.9.
1966, stuðningsfulltrúi
við Gerðaskóla, búsett í
Garði, gift Arnari Magn-
ússyni vélstjóra og eiga
þau þrjú böm; Guðrún
Eyjólfsdóttir Brennan, f. 20.2. 1968,
hárgreiðslukona, búsett i Banda-
ríkjunum, gift Sean Brennan sem
starfar við húsabyggingar og eiga
þau þrjú börn; Eygló Eyjólfsdóttir, f.
9.1. 1971, starfsmaður hjá varnarlið-
inu, búsett í Keflavík, gift Jóni Örv-
ari Arasyni, verkstjóra í mötuneyti
hjá varnarliðinu, og eiga þau ijögur
böm.
Systkini Helgu era Ein-
ar Tryggvason, f. 25.5.
1933, d. 29.11. 1998; Tobías
Tryggvason, f. 1.7. 1935, d.
22.6. 1978; Ásta Sigurlaug
Tryggvadóttir, f. 7.7. 1939,
d. 25.9. 1982; Kristín
Tryggvadóttir, búsett á
Þinghóli á HvolsveUi;
Bjamveig, f. 12.3. 1941;
Tryggvi Björn Tryggva-
son, f. 22.3. 1957, smiður í
Keflavík; Ólafur Tryggva-
son, f. 27.12. 1944, verka-
maður í Garði.
Foreldrar Helgu voru
Tryggvi Kr. Einarsson, f. 23.11.1914,
d. 21.4. 1989, sjómaður og smiður á
Bjarnarstöðum í Garði, og Björg
Guðlaugsdóttir, f. 2.11. 1913, d. 27.6.
1978, húsfreyja.
Helga Þórdís og Eyjólfur taka á
móti gestum í samkomuhúsinu
Garði laugardaginn 28.3. frá kl.
17.00-21.00.
Helga Þórdís
Tryggvadóttir.
Guðjón Haraldsson
Guðjón Haraldsson verktaki,
Markholti 14, Mosfellsbæ, verður
sextugur á morgun.
Starfsferill
Guðjón fæddist á Hólmavík og
ólst þar upp og í Skjólunum í
Reykjavík. Hann hefur þó lengst af
átt heima í Mosfellsbæ.
Guðjón var lengi starfsmaður á
Álafossi.
Guðjón festi síðan kaup á trakt-
orsgröfu og tók þá að sér ýmis verk-
efni en hefur síðan lengst af rekið
eigið verktakafyrirtæki.
Fjölskylda
Eiginkona Guðjóns er
Nicoline Herdís Schjet-
ne, f. 27.9. 1942, húsmóð-
ir. Hún er dóttir Leif
Schjetne, vélstjóra í
Tromsö í Noregi, og k.h.,
Helgu Ström Schjetne
húsmóður sem var ís-
lensk.
Börn Guðjóns og
Nicoline eru Helga Guð-
jónsdóttir, f. 25.12. 1959,
bréfberi í Mosfellsbæ, gift Geir H.
Geirssyni og eiga þau fjögur börn;
Marta Gunnlaug Guðjóns-
dóttir, f. 28.11. 1960, starfs-
maður hjá Hagkaupi, bú-
sett í Mosfellsbæ, en mað-
ur hennar er Kristján
Guðbrandsson; Haraldur
H. Guðjónsson, f. 28.8.
1962, verktaki í Mosfells-
bæ, en hann á eina dóttur;
Herdís Guðjónsdóttir, f.
I. 10. 1964, landpóstur, bú-
sett á Kjalarnesi, gift Jóni
Stefánssyni og eiga þau
þrjá syni; Leifur Guðjóns-
son, f. 10.2. 1972, starfsmaður hjá
Landssímanum.
Guðjón Haraldsson.
Guðjón átti ellefu systkini en tvö
þeirra eru látin. Systkini hans:
Lára, húsmóðir í Mosfellsbæ; Hilm-
ar, i Reykjavík; Ragnar, í Grundar-
firði; Kolfínna, í Reykjavík; Frið-
þjófur, í Mosfellsbæ; Guðmundur, í
Keflavík; Helga, í Mosfellsbæ; Garð-
ar, í Garðabæ; Jón Sveinbjörn, í
Mosfellsbæ.
Foreldrar Guðjóns: Haraldur Haf-
steinn Guðjónsson, f. 11.3. 1913, og
Marta Gunnlaug Guðmundsdóttir, f.
6.7. 1917, húsmóðir.
Guðjón er á Kanaríeyjum á
afmælisdaginn.
Til hamingju
með afmælið
28. mars
85 ára
Sigríður Kristjánsdóttir,
Hvammi, Húsavík.
75 ára
Ingvar G. Oddsson,
Kirkjuvegi ld, Keflavík.
Svavar Kristinsson,
Hvanneyrarbraut 50,
Sigluflrði.
70 ára
Einar Valmundsson,
Suðurbyggð 10, Akureyri.
Gunnar M. Steinsen,
Vesturbergi 19, Reykjavík.
Heiður Jóhannesdóttir,
Ægisgötu 8, Akureyri.
Hrafnkell Helgason,
læknabústað á Vífilsstöðum,
Garðabæ.
Inga Andrésdóttir,
Kársnesbraut 53, Kópavogi.
Sigfús Jónsson,
Vesturbrún 10, Reykjavík.
Þórdís Todda
Guðmundsdóttir,
Skaftahlíð 13, Reykjavík.
60 ára
Fjóla Filippía Jónsdóttir,
Torfufelli 15, Reykjavík.
Hansína Ósk Lárusdóttir,
Urðarbakka 28, Reykjavík.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Háhlíð 7, Akureyri.
50 ára
Halldór Jónasson,
Hvassaleiti 44, Reykjavík.
40 ára
Ásta Margrét
Jóhannsdóttir,
Dalseli 17, Reykjavík.
Guðrún Ingólfsdóttir,
Tjarnarbrú 1, Höfn.
Guðrún S. Thorsteinsson,
Safamýri 27, Reykjavík.
Heimir Ingvason,
Grenivöllum 14, Akureyri.
Marteinn Gunnarsson,
Sveighúsum 7, Reykjavík.
Regína Bemdsen,
Skólavörðustíg 6b, Reykjavík.
Sigríður Ragna
Þorvaldsdóttir,
Óttuhæð 6, Garðabæ.
staðgreiðslu-
og greiðslukorta-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
rsCT
550 5000