Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Blaðsíða 36
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í'síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1998
H valQ arðargöngin:
Öllum finnst
þetta dýrt
Verði heildarkostnaður reiknað-
i pir við ferð manns á eigin bíl um
Hvalfjarðargöng báðar leiðir mun
slíkt ekki verða ódýrara en fyrir
þann sem nú lætur Akraborgina
sigla með sig og bílinn fram og til
baka. Slíkt kostar nú 2.800 krónur.
„Það finnst öllum þetta dýrt þegar
þeir heyra (ganga)verðið,“ sagði
starfsmaður Akraborgar í morgun.
Fari maður með rútubíl fram og
til baka eftir að göngin verða opnuð
mun kostnaðurinn að líkindum
verða um 50 prósent af því sem það
kostar fyrir manninn sem fer á bíl
um göngin, samkvæmt upplýsingum
DV í morgun. Verði rútuferðin mið-
uð við ferð einstaklinga með Akra-
borginni í dag - 700 krónur hvora
ieið - verður kostnaðurinn sá sami.
*** Samkvæmt upplýsingum BSÍ í
morgun kostar rútuferð fýrir mann-
inn 900 krónur upp á Akranes í dag.
Þar var jafnframt sagt að eftir að
göngin yrðu opnuð stæði til af hálfu
sérleyfishafa að lækka verðið niður
í 700 krónur - það hefði hins vegar
ekki fengist staðfest ennþá. Verði
þetta raunin, samtals 1.400 krónur
báðar leiðir, þýðir það 50 prósent af
kostnaði við að fara á bíl - 2.000
krónur í göngin að viðbættum
heildarkostnaði sem ekki fer undir
^SOO krónur með öllu. -Ótt
Hátíðahöld
1. maí
Að venju efna verkalýðsfélögin í
Reykjavík, Bandalag ríkis og bæja,
Iðnnemasambandið og Kennara-
sambandið til kröfugöngu og hátíða-
halda á morgun, frídegi verka-
manna, 1. maí. Að þessu sinni verð-
ur safnast saman á Skólavörðuholt-
inu framan við Hallgrímskirkju, en
ekki við Hlemm vegna framkvæmd-
anna á Laugavegi.
Gangan leggur af stað kl. 14.05 og
, ieika Lúörasveit verkalýðsins og
"í“,?uðrasveitin Svanur fyrir henni.
Útifundur hefst á Ingólfstorgi kl.
14.30. -Sól
DV kemur næst út laugardaginn
2. mai. Vegna 1. maí, gætu einhverj-
ar tafir orðið á dreifingu DV á laug-
ardag.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
kvöld til kl. 22.
Opið á morgun, 1. maí frá kl.
13-17.
Opið verður laugardaginn 2. maí
-feá kl. 9-14.
Síminn er 550 5000.
VERÐUR RA
KVÍABRYGGJA í
FIRÐINUM?
Hin umtalaða flotkví kom loks til Hafnarfjarðar í gærkvöld eftir 30 daga hrakninga um höfin.
bát. Tvö varðskip drógu hana um 300 sjómflna leið og komu með hana til hafnar í gærkvöld
við erfiðar aðstæður.
Sem kunnugt er slitnaði flotkvfln tvívegis frá breskum dráttar-
Fimm varðskipsmenn eyddu þremur nóttum um borð í kvínni
DV-mynd S
Nýlega dæmdur Reykvíkingur ákæröur í ofbeldismáli:
Réðst inn á gistiher-
bergi með spörkum
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur 22 ára Reykvíkingi
fyrir stórfellda líkamsárás á jafn-
aldra sinn í gistiherbergi í Bolung-
arvík i júlí á síðasta ári. Fjórum
mánuðum eftir að umrædd árás átti
sér stað, í nóvember síðastliðinn,
var sami maður dæmdur fyrir hús-
brot og likamsárás í mars á sama
ári þegar hann og félagar hans
héldu ungum manni nauðugum í
margar klukkustundir í Rimahverfi
í Grafarvogi. Rannsókn á árásinni
úr Bolungarvík var þá ekki lokið.
Maðurinn er nú ákærður fyrir að
hafa farið inn á herbergi gistihúsnæð-
is í Aðalstræti í Bolungarvík í júlí sið-
astliðnum. Þar er honum gefið að sök
að hafa sparkað og slegið margsinnis
til manns sem þar dvaldi.
Aíleiðingamar urðu þær að fómar-
lambið hlaut nefbrot, brotna tönn,
skurð á augabrún, skurð eftir kinn-
beini við munnvik, mar í kringum
augu, bólgu í kringum annað augað,
skrámur á vanga niður á háls og höku
og skrámu á öxl og upphandlegg.
Annar maður er ákærður fyrir
hlutdeildarbrot. Honum er gefið að
sök að hafa vísað manninum á vist-
arverur fómarlambsins i gistihús-
næðinu og ruðst með honum inn á
herbergið, vitandi að ákærði var í
árásarhug.
Lögmaður fórnarlambsins gerir
þær kröfur í málinu að árásarmað-
urinn greiði skjólstæðingi sínum
330 þúsund krónur í skaðabætur
auk málskostnaðar. -Ótt
Hún bíður eft-
ir hlutverki
Málamiðlunartillagan á dagskrá
í upphafi þingfundar í morgun
var leitað afbrigða til að taka
málamiðlunartillögu umhverfis-
ráðherra í deilunni um skiptingu
hálendisins á dagskrá. Leita þurfti
þessara afbrigða vegna þeirrar
reglu að mál sem koma fram á
þingi sex mánuðum eftir að þing
er sett verða að bíða næsta þings.
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, sagði í morgun í samtali
við DV að málamiðlunartillagan
hefði verið lögð fram til kynningar
og ráðherrann ekki ætlast til að
það yrði formlega tekið á dagskrá
þingsins. Stjórnarandstaðan hafi
hins vegar krafist þess. Þegar af-
brigða er leitað er það gert með
því að greidd eru atkvæði um
ályktunartillögu um það að Al-
þingi taki tiltekið mál á dagskrá.
Þetta var gert í upphafi þingfund-
ar í morgun.
-SÁ
Veðrið á morgun:
Skýjað en
úrkomulítið
O — >
/
V 5
A morgun verður vestangola
eða -kaldi, smáskúrir um vestan-
vert landið, annars skýjað að
mestu en úrkomulítið. Hiti verð-
ur 2 til 12 stig, hlýjast austan-
lands.
V
8
8
Veöriö í dag er á bls. 61.
V "
30%
Verölækku n
á Nissan
varahlutum
Ingvar
H g-=j Helgason hf.
~ ~ = Sævarhöföa 2
y
Þetta er hún Mjallhvít frá Geld-
ingaholti í Gnúpverjahreppi sem
bíður þess í ofvæni að verða stjarna
með Victoríu Chaplin í frönsku
sirkussýningunni á Listahátíð í
Reykjavik. Vegna heilbrigðisreglu-
gerðar mega Victoría og Jean
Baptiste Thierre ekki flytja dýrin
sín til landsins og þurfa að ráða ís-
lensk dýr í þeirra stað: kanínur,
dúfur, gæsir og endur, og sóttu fjöl-
mörg dýr um hlutverk hjá þeim.
Mjallhvít er ekta sirkuskanína, stór
og hvít, og var ráðin undir eins.
Hún verður bæði dregin upp úr
hatti og látin hverfa.
Victoría og Jean Baptiste sýna
töfrabrögð og látbragðsleik, hjóla á
risahjólum og sýna loftfimleika sem
aldrei hafa sést fyrr á sviði Þjóðleik-
hússins í nærri hálfrar aldar sögu
þess.
: