Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Síða 18
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 JU"V
18
dagur í lífi
Regnhlífar í stöflum
í#iiiji breytingar
it ý(
Listahátíðardagur númer eitt í lífi Þórunnar Sigurðardóttur:
„Fyrsta morgunverkið: Veður-
stofan. Veðurútlitið er allgott. Ég
sé ekki betur en það rigni, þegar
ég horfi út um gluggann. „Þið gæt-
uð lent á milli lægða ef þið eru
heppin,“ segir veðurfræðingurinn
til að hugga mig.
Ég tek sparifötin og treð þeim í
poka og skunda niður á listahátíð.
Fax frá Mexíkó. Búið að bjarga
bráðabirgðavisa til Bandaríkjanna
fyrir indíánakonurnar frá Chi-
apas. Sendiráðin í Reykjavík hafa
reynst listahátíð haukur í horni,
og haldi einhver að þar sitji menn
auðum höndum hafa þeir að
minnsta kosti ekkj gert það síð-
ustu vikur. Biðröð við miðasöl-
una. Það lítur út fyrir að það verði
uppselt á meirihluta hátíðarinnar
og það er sannarlega ánægjulegt.
Victoria Chaplin er á simsvaran-
um. Hún er búin að fá flugmiðana
með DHL, sem við héldum að
hefðu lent í vitlausu húsi í Paris.
Öryggið á oddinn
Næst er að skunda niður í Hafn-
arhús. Allur undirbúningur er á
fullu. Kolla og Lóa (Kolbrún og
Ólöf) hafa vakað nótt og dag yfir
undirbúningi opnunarinnar.
Regnhlífar í stöflum bíða við hús-
gaflinn og breitt hefur verið yfir
sætin ef það skyldi rigna áður en
að opnun kemur. Signý fram-
kvæmdastjóri merkir sætin og
Kristín sýningarstjóri prófar
hljóðnemann.
Farið yfir öryggisatriðin enn
einu sinni varðandi drottning-
una. Enginn veit hversu margir
koma og því er erfitt að meta
hversu ströng gæslan þarf að
í nógu er að snúast þessa dagana hjá Þórunni Sigurðardóttur, formanni framkvæmdastjórnar Listahátíðar í
Reykjavík. Hún lýsir fyrir okkur hluta af opnunardegi hátíðarinnar. DV-mynd E.ÓI.
vera. Við förum eftir ákvörðun-
unum lögreglu og öryggisvarða
drottningar varðandi öryggisat-
riðin. Það er því miður ekki hægt
að segja frá þeim í þessum pistli,
en þau hafa reynst mim flóknari
en maður hélt, sérstaklega þar
sem drottning er innan inn al-
menning. Öryggisverðimir fara á
imdan og eftir hvar sem hún fer
og íslenska lögreglan einnig.
Blaðamenn og ljósmyndarar fá
sérstaka passa og fá ekki að
mynda nema á fyrirfram ákveðn-
um augnablikum. Allir reyna að
aðlagast þessum reglum en auð-
vitað eru þær brotnar mjúklega
einstaka sinnum.
Skipt um föt í bílnum
Krakkamir í Myndlistarskólan-
um em byrjuð að mála stéttina,
því vonir standa til að drottning
gangi yfir Hafnarsvæðið, þ.e. ef
veður leyfir. Drottning býður til
hádegisverðar í snekkjunni og ég
skipti um föt í bílnum, hitti eigin-
manninn og skunda um borð. Það
er ekki við hæfi að gera lítið úr
hefðarsiðum annarra þjóða, en ég
veit ekki hvort ég á að hlæja eða
gráta, þegar sjóliðarnir mæta mér
við landganginn með hermanna-
kveðju, blása í pípur og kalla síð-
an nafnið mitt upp þegar ég er
kynnt fyrir drottningu með afar
formlegum hætti, þótt ég hafi hitt
hana bæði í gær og fyrradag.
Drottning slæm í fæti
Það er komin sól og hiti þegar
gengið er frá borði og mikill
mannfjöldi hefur safnast á hafnar-
bakkann. Sem betur fer gengur
drottning kajann, þótt hún sé
slæm í fætinum. Hin örstutta opn-
unarathöfn í portinu hefst með sól
og blíðu, en endar í grenjandi
hagléli. Þetta datt engum í hug.
Amlimahópurinn, sem aldrei hef-
ur séð snjó, hvað þá hagl, er skelf-
ingu lostinn. Þau treysta sér ekki
til að fara á stultumar, enda er
það stórhættulegt. Einhver heldur
því fram að þau hafi dansað regn-
dans á svölunum og menn hafa
gaman af þessari ótrúlegu uppá-
komu.
Á eftir frétti ég að þau hafi samt
skemmt undir skyggninu og vakið
gífúrlega hrifningu, eins og alls
staðar, þar sem þau hafa komið
fram. Enn er dagurinn aðeins
hálfnaður, en plássið á þessari
síðu því miður búið. Svo lengri
verður þessi frásögn ekki.“
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrír getraun nr. 462 eru:
1. verölaun:
Baldur Vilhelmsson,
Vatnsfjörður,
401 ísafjörður.
2. verölaun:
Jóhann Víglundsson,
Völvufelli 38,
111 Reykjavík.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Aö tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsvekjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að
verðmæti kr. 3.490.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 464
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík