Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Side 26
26 ^iglingar
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998
Fylgst með ungum Vopnfirðingi á Akureyri, Guðrúnu Dís Emilsdóttur:
Það eru ekki mörg ungmenni sem
nýta daginn svo til fulls að engu má
við bæta. Á Akureyri hitti Helgar-
blað DV samt fyrir eina stúlku sem
er svo sannarlega með plönin á
hreinu. Guðrún Dís Emilsdóttir er
18 ára Vopnfirðingur sem búsett er
kvöld í viku og á sunnudagskvöld-
um er hún með rólegan og þægileg-
an þátt.
Frostrásin er mjög að sækja í sig
veðrið og hefur komið vel út úr
skoðanakönnunum undanfarið. Við
birtum hérna nokkrar myndir af
Söngurinn er hennar hugðarefni.
Hún hefur verið í hijómsveitum og
einnig lært söng. Spilaði meira að
segja á Vopnaskaki sem er þjóðhá-
tíö Vopnfirðinga.
Guðrúnu Dís sem segja meira um
hana en mörg orð. Hún er ung og
þróttmikil stelpa sem á án efa eftir
að ná langt á lifsleiðinni.
Myndir og texti: Hilmar Þór
Gunna Dís í herberginu sínu. Hún hefur leigt síðan hún fluttist frá Vopnafirði
16 ára gömul.
á Akureyri. Þrátt fyrir að vera í
fullu námi þá er Gunna Dís með
margt á prjónunum. Hún hefur lært
söng til langs tíma og hefur þegar
lokið þremur stigum í náminu. Hún
hefur áform um að nema sönginn
frekar og hyggst jafnvel fara til Eng-
lands árið 2000 og syngja sig inn í
hjörtu þarlendra.
Gunna Dís er í námi í Mennta-
skólanum á Akureyri og stefnir á að
ljúka stúdentsprófi árið 2000. Hún
er komin í „eins konar“ sambúð, en
hún byrjaði að leigja með tveimur
strákum. Svo þróaðist það út í sam-
band með öðrum þeirra.
Gunna Dís er einnig á fullu á út-
varpstöðinni Frostrásinni sem dag-
skrárgerðarmaður. Þar er hún tvö
Gunna þykir efnilegur útvarpsmað-
ur. Enda með mikla hlustun þegar
hún er í loftinu.
Wmi/ ’ ' v
TB v\s#il ... í tflH
Námið tekur sinn tíma og er Guðrún staðráðin í að útskrifast um aldamótin
2000.
hinhliðin
Eyjapeyinn Steingrímur Jóhannesson skoraði fyrsta markið í Landssímadeildinni
Vil ekki sjá pastarusl
»
Steingrímur Jóhannesson fagn-
ar hér marki sínu gegn Þrótti,
því fyrsta í Landssímadeildinnl í
sumar. DV-mynd BG
Fótboltinn er farinn að rúlla á
fullu. Efsta deild karla, Landssíma-
deildin, hófst sl. mánudagskvöld
meö leik íslandsmeistaranna úr
Eyjum og nýliðanna frísku í
Þrótti. Úrslitin urðu sann-
gjöm, 3-3. Fyrsta mark
• mótsins skoraði Eyjapey-
inn Steingrímur Jóhannes-
son og af því tilefni feng-
um við hann til að sýna á
sér hina hliðina.
Fullt nafn: Steingrímur Jó-
hannesson.
Fæðingardagur og ár: 14. júní
1973.
Maki: Jóna Dís Kristjáns-
dóttir.
Böm: Kristjana Maria, 8
mánaða.
Bifreið: Engin, nota fæt-
uma þeim mun meira.
Starf: Vinn viö rafmagn í
Geisla.
Laun: Léleg, því ég er að læra.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Já, ég fékk einu sinni
25 þúsund í Happdrætti Háskólans.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Borða góðan mat og tala
við skemmtilegt fólk, nú, svo er
gaman að leika við Kristjönu Mar-
íu.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Fara upp á land daginn fyrir
leik, mér finnst ekkert gaman í
Reykjavík ef konan og dóttirin em
ekki með.
Uppáhaldsmatur: AUur matur
góður en vil ekki sjá pastarusl né
gular baunir.
Uppáhaldsdrykkur: Drekk mik-
ið af kók og appelsíní.
Hvaða íþróttamaður stendiu-
fremstur í dag? Þórður Guðjóns-
son og svo snókerspilarinn Krist-
ján Helgason.
Uppáhaldstímarit: Finnst mjög
gaman að lesa slúðurblöð.
Hver er faUegasta kona sem
þú hefur séö (fyrir utan maka)?
Þær eru margar fallegar, t.d. Julia
Roberts og svo er nú dóttir mín
alltaf að veröa faliegri og fallegri.
Ertu hlynntur eða andvígur
rikisstjórninni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Phil Collins.
Uppáhaldsleikari: Steve Martin
og Siggi Sigurjóns.
Uppáhaldsleikkona: Julia Ro-
berts.
Uppáhaldssöngvari: Egill Ólafs-
son og Phil Collins.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Er lítið fyrir pólitík, annars er
Sverrir Hermannsson aö gera góða
hluti.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Homer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Horfi
helst á íþróttir og svo þætti eins og
New York-löggur og Frasier.
Uppáhaldsmatsölustaður/veit-
ingahús: Lanterna í Eyjum.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Enga sérstaka, les mjög lítiö
af bókum.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? Hlusta yfirleitt á FM 95.7.
Uppáhaldsútvarpsmaður? Eng-
inn sérstakur, vil helst heyra góða
tónlist.
Hverja sjónvarpsstöðina horf-
ir þú mest á? Ég veit það ekki, ég
skipti svo mikið á milli rása eftir
því hvað er í imbanum.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Sigurður E. Richter í Nýjasta
tækni og vísindi.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur/krá: Enginn sérstakur eftir að
Hvítasunnusöfnuðurinn keypti
Höllina í Eyjum.
Uppáhaldsfélag I íþróttum?
Það eru Everton í enska boltanum
og Atlanta Hawks í NBA.
Stefiiir þú að einhveiju sér-
stöku f framtfðinni? Já, að koma
mér og fjölskyldu minni vel fyrir
og lifa lífinu brosandi, því þá geng-
ur allt vel.
Hvað ætlar þú að gera í sum-
arfríinu? Mig langar að ferðast
innanlands og heimsækja frænd-
fólk úti á landi en hef eflaust engan
tíma til þess út af fótboltanum.