Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Síða 37
JjV LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998
%ðta! 45
Meira en búist var við
í fyrra kom hingað hópur sem
hafði aldrei neitt samband við mig
og fór hundóánægður heim. Þau
vissu ekkert hvað þau áttu að gera
og gagnrýndu allt. Ef íslendingar
vilja njóta þess að koma til Parísar
verða þeir að taka við henni af auð-
mýkt. Þeir þurfa að beygja sig að
lögmálum borgarinnar og gefa sér
tíma til að átta sig á henni. Ég hef
tekið eftir þvi að þeir sem fara í
flestar ferðirnar sem í boði eru fara
langánægðastir heim. En ég býð
ekki aðeins upp á ferðir, ég reyni
líka aö uppfylla þarfir sem flestra.
Þær eru misjafnar eftir aldri og
áhugamálum hvers og eins. Starfs-
fólk Flugleiða og ég höfum því út-
búið fjölrit með upplýsingum og
heimilisfóngum um staði sem ég
bæti við eftir þörfum. Fólk segir
mér jafnvel frá því ef það hefur far-
ið á einhverja staði sem ég veit
ekki um, eins og diskótekin sem
unga fólkið vill fara á eða ný kaffi-
hús.“
Flestir sem einhvern tíma koma
til ókunnugrar borgar hafa óljósar
hugmyndir um ákveðna staði sem
þeir vilja sjá en vita svo kannski
ekki hvað er merkilegt við þá,
hvert á að horfa eða hvað annað er
hægt að skoða. í slíkum tilfellum er
leiðsögumaðurinn ómissandi.
Hann geymir lykilinn sem er ekki
svo lítils virði I borg eins og París
sem opnar sig hreint ekki sjálf, eða
hvað?
Kynnisferðin
undirstöðuatriði
„Hún opnar sig í það minnsta
ekki auðveldlega og þess vegna er
kynnisferðin undirstöðuatriði. Hún
tekur þrjár til fjórar klukkustund-
ur og í henni fer ég yfir sögu borg-
arinnar og skipulag en inn í frá-
sögnina flétta ég upplýsingar um
praktíska hluti. Einu sinni eftir
kynnisferð sagði við mig maður
sem var búinn að koma fimm sinn-
um til Parísar að nú væri hann
loksins farinn að átta sig á borg-
inni. Það er alveg ótrúlegt hvað
margir verða hissa þegar þeir sjá
hvað París er í raun og veru stór-
kostleg. Þeir höfðu hreint ekki bú-
ist við svona miklu.
En það er heldur ekki sama
hvernig París er sýnd. Ég legg
áherslu á allar sjónvíddimar, eins
og til dæmis frá Louvre að Sigur-
boganum og Trocaderó að Herskól-
anum og hvernig Signa skiptir
borginni í tvennt - hægri og vinstri
bakkann. Þegar fólk er búið að sjá
hvernig borgin er skipulögð áttar
það sig miklu betur á öllum að-
stæðum og sér um leið að það er
vonlaust að ætla sér að sjá allt á
einni viku hvað þá þremur dögum.
En þrátt fyrir það hve takmarkað
er hægt að sjá á skömmum tíma
eru einmitt styttri ferðirnar vin-
sælastar.“
Versalir koma á óvart
- Hvað vekur helst áhuga ís-
lenskra ferðalanga?
„Þeir hafa áhuga á öllu mögu-
legu. Sumt er þó vinsælla en ann-
að. Það hafa langflestir áhuga á að
fara til Versala. Og þeir koma öll-
um jafnmikið á óvart.“
- Ég hjó eftir því í ferð sem ég
fór þangað með þér að ástæða
frönsku byltingarinnar verður
mönnum skyndilega augljós þeg-
ar þeir koma að höllinni. En
tengjast vaxandi vinsældir Par-
ísarferðanna og áhugi á söfnum
og sögustöðum ekki auknum
áhuga íslenskra ferðamanna á
að kynna sér menningu þess
lands sem þeir heimsækja?
Leiðsögumaðurinn með greinarhöfundi á Concorde í kynnisferðarstoppi þar
sem íslensku ferðamennirnir fá að virða fyrir sér sjónvíddina upp aö Sigur-
boganum.
„Það bendir ýmis-
legt til þess. En svo
spilar það auðvitað
inn í að allar þær
ferðir sem ég býð upp
á tengjast menningu á
einn eða anna hátt.
Minn áhugi á túrism-
anum byggist á þess-
um möguleika, að
tengja hann menning-
unni. Ég hef því alltaf
reynt að koma henni
að eftir því sem við á.
Mest spennandi
finnst mér að geta far-
ið með fólk þangað
sem atburðirnir gerð-
ust og gera þá lifandi.
Það er allt öðruvísi að
lesa um atburði en
heyra sagt frá þeim
nákvæmlega þar sem
þeir áttu sér stað. Ver-
salir eru eitt skýrasta
dæmið því fæstir hafa
gert sér í hugarlund
hversu mikið flæmi
höllin og þá ekki síður
garðurinn er. Þetta er
rétt eins og með mál-
verkið. Þú verður ekki
fyrir sömu áhrifum
þegar þú skoðar mynd
af því í bók og þegar
þú sérð það á safni.“
Laufey aö störfum í rútunni þar sem hún upplýsir ferðamenn um allt sem viökemur París;
söguna, menninguna og íbúana.
Ekki bara
landslag
Það er óhætt að
segja að hér í París,
og reyndar víðar í
Frakklandi, þyrmi oft
yfir mann af návist
sögunnar. Þessi upp-
lifun er kannski enn-
þá sterkari komi mað-
ur frá íslandi þar sem
sagan er öll í bókum.
Hér verður hún bók-
staflega áþreifanleg
og fortíðin færist nær.
En það er einmitt
þessi upplifun sem
þýski heimspekingur-
inn Walter Benjamin
kallar áru.
„Á íslandi eru erlendu ferða-
mennirnir alltaf að leita að bygg-
ingum en þar sem þær eru ekki til
staðar þarftu að gera söguna lif-
andi út frá holtum og hæðum. En
það er um leið einmitt þessi skort-
ur á mannvirkjum sem eykur ná-
lægðina við upphafið, náttúruna
og sköpun jarðar sem útlendingum
finnst svo frábær á íslandi. Við
þurfum því að gæta þess að varð-
veita auðnina í óbyggðunum. Þó
hef ég oft rekið mig á að ferða-
menn koma ekki bara til íslands til
að horfa á landslag. Þá langar líka
til að komast í snertingu við menn-
inguna í byggð, fara á tónleika og
skoða söfn.
Mér hefur einu sinni tekist að
sameina þetta tvennt. Þá var ég
beðin um að skipuleggja ferð há-
menntaðs og forríks fólks til ís-
lands. Hvatinn að ferðinni var að
koma til landsins til að sjá lista-
verk Richards Serra úti í Viðey en
í leiðinni vildu þau auðvitað skoða
söfn, hitta listamenn og sjá eitt-
hvað af landinu. Þetta var algjör
draumaferð fyrir mig af því að
þarna tókst mér að sameina þetta
tvennt, ferðamennskuna og list-
fræðina. Ég fæ sjálf miklu meira út
úr því að standa fyrir framan hóp
fólks og miðla þekkingu minni en
sitja heima við skrifborð og rita
greinar. Það er ástæðan fyrir því
að ég hef hallað mér sífellt meira
að leiðsögninni, hún veitir mér
sjálfri svo óskaplega mikið. Ég
held hins vegar að við íslendingar
gerum okkur ekki alltaf grein fyrir
því hvaða aðdráttarafl listir og
menning geta haft á ferðamenn
sem koma til íslands. Framboð og
eftirspurn eftir svokölluðum
menningarferðum er alltaf að
aukast og stundum eru þessar ferð-
ir mjög sérhæfðar. Ferðalög geta
verið tækifæri til að bæta við sig
þekkingu sem eykur víðsýni ef þau
eru hæfilega skipulögð. Sjálf væri
ég alveg til í að fara með íslend-
inga út á land í Frakklandi því þótt
París sé yndisleg þá hefur Frakk-
land upp á svo margt að bjóða sem
íslendingar hafa ekki uppgötvað
ennþá,“ segir Laufey Helgadóttir í
París.
Margrét Elísabet Ólafsdóttir
Baleno Wagon er einstaklega
rúmgóður og þægilegur í
akstri, hagkvæmur í rekstri
og hefur allt að 1.377
lítra farangursrými.
Baleno Wagon gerir
ferðalagið enn ánægjulegra.
C?T Tn/T TTS'T
O U jLj U IVl BALENO WAGON GLX OG GLX 4X4
Baleno Wagon GLX 4X4:
1.595.000 kr.
Góður í ferðalagið
Baleno Wagon GLX:
1.445.000 kr.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hí, Laufásgötu 9, simi 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf.( Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf.,
Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00.
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
ALLIR
SUZUKI 8ÍLAR
ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS-
LOFTPUÐUM.
SUZUKI
AEL OG
ÖRYGGI