Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Side 39
LAUGARDAGUR 23. MAI 1998
Þeir Grímur Helgi Gíslason og Sveinn Orri Bragason skipta með sér hlutverki Snúðs í leikritinu Bróðir minn Ijóns-
hjarta. Þeir félagar eru ánægðir með það úrvalslið leikara sem verða með þeim í sýningunni. Þeir segjast vera með
sömu taktana í hlutverkinu, og það sé bara betra að vera tveir um hituna. DV-mynd E.ÓI.
Tveir drengir valdir í Bróðir minn Ijónshjarta:
Erum með sömu taktana
- segja Grímur Helgi og Sveinn Orri sem fara með hlutverk Snúðs
Þjóðleikhúsið hefur haflð æfíngar
á barnaleikritinu Bróðir minn ljóns-
hjarta sem gert er eftir sögu Astrid
Lindgren. Efnt var til áheyrnarprófs
vegna hlutverks Snúðs, yngri bróð-
urins í leikritinu, og mættu alls 56 í
prófið. Af þeim voru tveir drengir
valdir til að fara með hlutverkið og
munu þeir skiptast á að leika á sýn-
ingunum i vetm-.
DV mætti á fyrsta samlestur leik-
aranna í gær, og það var ekki hjá
því komist að hrífast af þessum
ungu leikurum sem léku af mikifli
innlifun þó svo að þeir væru aðeins
að lesa i gegnum hlutverkið. Við
fengum tvímenningcma til að setjast
niður og rabba við okkur í stutta
stund.
Það eru þeir Grímur Helgi Gísla-
son, 12 ára, og Sveinn Orri Braga-
son, 11 ára, sem hrepptu hnossið og
hafa vakið óskipta aðdáun samleik-
ara sinna fyrir frammistöðu sina og
skemmtilega framkomu. Grimur
Helgi er heldur betur sviðsvanur -
hefur leikið í Bugsy Malone í allan
vetur - en Sveinn Orri er nýliðinn í
hópnum, þó að þess verði nú ekki
vart í fyrstu atrennu.
Góðir meðleikarar
Þeir eru sammála um að fyrsti
samlesturinn hafi verið skemmti-
legur en segja blaðamanni að þeir
hafl i raun verið búnir að lesa hand-
ritið yfir einu sinni áður með
bræðrum sínum, Jónatani ljóns-
hjarta, eða þeim Hilmi snæ Guðna-
syni og Atla Rafni Sigurðarsyni sem
deila með sér hlutverki hins hug-
rakka stórabróður.
„Þaö er ofsalega gaman að sjá alla
þessa góðu leikara. Við erum byij-
endur og það er gaman að eiga að
leika með þeim,“ segir Grímur
Helgi.
Þeir voru líka ánægðir með sam-
lesturinn, þó að þeir hafi ruglast
svolítið á línunum hafi allir tekið
því vel og þeir fengið að byrja aftur.
Grímur Helgi er að sjálfsögðu
spurður hvort hann sé kominn með
leikarabakteríuna þar sem hann er
nú að leika annað árið í röð?
„Ég veit það ekki. Jú, mér finnst
rosalega gaman að leika, og mig hef-
ur alltaf langað til að vera einhver
leikari, að vera á sviði og vera
söngvari eða eitthvað. En samt er
líka annað sem heillar mann, eins
og að vera fótboltamaður. Ég er bú-
inn að vera í fótbolta síöan ég var
sex ára, þess vegna er það líka
draumurinn. En það getur alveg
gerst aö ég léti plata mig út í þetta,“
segir Grímur Helgi.
-En þú, Sveinn?
„Dálítið áður en ég fór i þessa
prufu þá var ég búin að ákveða að
ég ætlaði að verða leikari þegar ég
yrði stór,“ segir Sveinn Orri. „Svo
fann ég þessa auglýsingu, og hugs-
aði já - en gaman, og fór í prufuna."
-Og finnst þér þú hafa tekið rétta
ákvörðun?
„Já, það finnst mér,“ svarar
Sveinn.
„Þeir tóku allavega rétta ákvörð-
un með að velja þig,“ skýtur Grím-
ur Helgi að, og Sveinn fer svolítið
hjá sér við þessi hrósyrði frá félaga
sínum.
Gott að vera tveir um
hlutverkið
- Nú eru þið báðir með sama hlut-
verkið. Finnst ykkur vera mikill
munur á því hvemig þið takið á því
þegar þið hlustið á hvor annan lesa
þetta yfir?
„Nei, bara pínulítið," segir
Sveinn Orri.
„Við errnn með alveg sömu takt-
ana. Það er bara röddin sem er
öðruvísi," segir. Grímur Helgi.
„Já, það em bara svona smáat-
riði,“ samsinnir Sveinn Orri.
„Það er gaman að vera tveir í
þessu,“ segir Grímur Helgi. „Ef
hinn er að leika þá getur maður far-
ið að horfa á sýninguna út i sal og
séð hvemig hún er.“
Þeir Sveinn Orri og Grímur Helgi
em mjög ánægðir með að fá sum-
arfrí, en æfingar liggja niðri frá 20.
júní-24. ágúst. Og þeir kvíða því
ekki aö vera að leika með skólan-
um. Grímur Helgi segist hafa tekið
mjög góð próf í vor þó svo að hann
hafi verið að leika í Bugsy Malone.
„Þetta er bara eins og hver önnur
vinna,“ segir Grímur.
„Þetta er flka bara um helgar,"
bætir Sveinn við.
En Grímur Helgi segir að þetta
verði kannski strembið ef að Bugsy
verður tekið aftur til sýninga í
haust.
En strákamir era mjög spenntir
fyrir leikritinu og þeim finnnst
þetta rosalega skemmtilegt ævin-
týri.
„Ég er sérstaklega spenntur fyrir
þessu af því að pabbi minn hafði les-
ið þessa bók fyrir mig þegar ég var
lítill, og þetta var ein af uppáhalds-
bókunum mínum,“ segir Sveinn
Orri.
-En hvort fmnst þeim skemmti-
legri persóna, Jónatan ljónshjarta
eöa Snúður, litli bróðir hans?
„Það er mjög erfitt að gera upp á
milli þeirra. Þeir hafa báðir sínar
veiku hliðar og sínar sterku hliðar,“
segir Sveinn.
„Já, Jónatan er alltaf svo hress og
góður með hlutina. Hann veit hvað
gerist og er svo öraggur með fram-
tíðina. En Snúður fær svona að vita
þetta hjá eldri bróðumum,“ segir
Grímur.
„Já, næstum eins og fyrirmyndar-
bróðir,“ bætir Sveinn við.
„Já, hann er svo öruggur með
sig,“ segir Grímur.
Og þessir ungu leikarar era ekki
í vafa um að leikritið eigi eftir að
slá í gegn, þetta sé mjög mikið æv-
intýri, skrítin saga og mjög spenn-
andi sem eigi að höfða til flestra. Og
fræðandi fyrir þá sem eru eitthvað
að hugsa um hvað gerist ef maður
deyr. Þaö er mjög forvitnilegt að
vita að maður getur farið til Nangi-
jala, eða hvað sem nýi heimurinn
heitir, og taka þátt í ævintýrinu.
„Þetta er mjög gaman fyrir litla
krakka. Þetta er bara fyrir alla ald-
urshópa. Þetta er fúllorðinsleikrit
líka,“ segja þeir að lokum.
-Sól.
47
...
I
Kaupverð 1.200.000 kr.
Samningstími 36 mánuðir
Greitt á mánuði
í 36 skipti
Eftirstöðvar
eftir 36 mán.
tónlist&rkcsna
Með því að velja bílasamning Lýsingar þarftu ekki
að greiða bílinn upp á nokkrum árum eins og tiðkast
í hefðbundnum bílaviðskiptum. Þú velur, innan vissra
marka, hverjar mánaðargreiðslurnar verða og
ákveður hver eftirstöðvagreiðslan á samningnum
verður eftir 1 2 - 48 mánuði.
Þegar að eftirstöðvunum kemur geturðu skipt upp
í nýjan bíl og haldið áfram að greiða lágar mánaðar-
greiðslur eða framlengt samningnum og verið áfram
á sama bílnum.
Dæmið gengur upp með
bílasamningi Lýsingar.
Öll
bilaurnboðin bióða
upp á bílasamning
Lvsingar og ve,t
Mn'’'
Kaupverð 1.700.000 kr. Samningstimi 48 mánuðir
Innborgun Greitt á mánuði í 48 skipti Eftirstöðvar eftir 48 mán.
340.000 36.087 O
340.000 . 25.864 485.000
340.000 19.806 825.000
Láttu dæmið
ganga upp
240.000
240.000
240.000
32.263
20.579
1 4.640
O
428.000
668.000
LÝSINQ HF. • SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 533 1500 • FAX 533 1505
Lýsing býður nú viðskiptavinum sínum að greiða
afborganir með beingreiðslum sem lækka
innheimtukostnað og auka þægindin.