Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Page 41
Einl.áklæði
kr. 124.700,
Unglingaskipti CISV eru einstök ffsreynsla þar sem
íslenskum unglingum gefst tækifæri á ab búa á
heimilum í Lúxemborg í 2 vikur og fá til sín vin
þaðan til íslands í jafn langan tíma. Fararstjórar
sjá um meginhluta dagskrárinnar, leiki, skobunar-
ferbir, sund, útilegu, tónlist og margt fleira, en
krakkarnir taka einnig þátt í daglegu heimilislífi.
Vegna forfalla er laust pláss fyrir
12-13 ára krakka í unglingaskipti
til Lúxemborqar í sumar
Alþjóðlegar sumarbúbir barna
CISV á íslandi
Nánari upplýsingar og umsóknir:
Sigríbur S: 567 1833
jónVíbis S: 581 4810
Heimasíöa: http://www.apple.i5/cisv
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998
A t W
3HI12
49
Sjókajakferðir:
Nýr og spennandi farkostur
Sjókajakferðir hafa verið að ryðja
sér rúms hér á landi undanfarin ár
og þykja afar spennandi farkostur.
Ferðaskrifstofan Ultima Thule er
ein nokkurra aðila sem hafa lagt
mikla áherslu á sjókajakaferðir. Að
sögn Óskars Helga Guðjónssonar
hjá Ultima Thule eru sjókajaksigl-
ingar eitthvað sem allir geta og
fæstir sem sigla hafa prófað kajak
áður.
„Margir koma og prófa styttri
ferðir í nágrenni Reykjavíkur. Við
erum með ferðir á Álftanesi og í
Nauthólsvík. Við bjóðum fólki
einnig að halda fjöruteiti að lokinni
siglingu og það hefur færst mjög í
vöxt að starfsmannafélög eða félaga-
hópar fori í stutta kajakferð og
haldi svo veislu í fjörunni að sigl-
ingu lokinni. Þá setjum við gjama
upp tjald og kveikjum varðeld allt
eftir því hvað fólk vill,“ segir Óskar.
Allur farangur með
Boðið er upp á lengri sjókajak-
ferðir á Jökulfjöröum og Horn-
ströndum en þá er farið frá ísafirði.
Einnig eru sjókajakferðir á Breiða-
firði og er þá hægt að fara bæði frá
Stykkishólmi og Flókalundi. Óskar
Helgi segir vana leiðsögumenn
ávallt með í ferðunum. „Við leggj-
um áherslu á að leiðsögumennimir
hafi reynslu af ferðalögum og eins
að þeir séu reyndir kajaksiglarar og
eigi gott með að leiðbeina fólki.
Hingað til hafa þessar ferðir gengið
eins og í sögu.“
Það er talsverður munur á sjókaj-
ak og þeim bátum sem menn nota á
ám. Sjókajakamir eru stærri og era
hannaðir til ferðalaga. í hverjum
bát er til dæmis farangursrými sem
tekur tvo bakpoka og i sjókajaka-
ferð er fátt skilið eftir heima vegna
þess að það er of þungt, öfugt við
gönguferðir þar sem menn verða að
stilla farangri sínum mjög í hóf.
Allir geta lært á og siglt sjókajökum.
Kostir sjókajakferða eru greini-
lega nokkrir og segir Óskar slíkar
siglingar frábæra leið til að skoða
náttúru landsins frá nýju sjónar-
horni. Það sé hvergi meira dýralíf
en við strendur landsins; fuglar, sel-
ir, hvalir, refir verði til
dæmis á vegi kajaksigl-
arans. Getur það betra
verið?
Þessir kajaksiglarar
láta ekki átta vindstig
á sig fá. Myndin er
tekin á Breiðafirði.
FRABÆRT UR\SML
DÍegO hornsófi m/rúmi
Lonaon hornsófi
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SIMI 553 7100
8oo 7000 -svarar spurningum þínum um símann
taLhóLf
Er
eias
og venjulegur
símsvdri?„
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ SIMANS
800
7000
SIMINN
GJALDFRJÁLST ÞJÓNUSTUNU2VIER
OPID VIRKA DAGA ÍCL. 08-22 OG UM HELGAR KL. 10-17.
Ferðafélagsmenn efna að sjálfsögðu til Þórsmerkurferðar um hvítasunnuna
og verður gist í Skagfjörösskála sem endranær.
Ferðafélag íslands:
Eyjasiglingar og jökla-
göngur á hvítasunnu
Ferðafélag íslands efnir til nokk-
urra ferða um hvítasunnuna sem er
um næstu helgi. Að venju verður
farið í Þórsmörk og segja forráða-
menn félagsins að þar sé um að
ræða ferð sem hentar allri fjölskyld-
unni.
Hvað aðrar ferðir snertir þá verð-
ur farið í Öræfasveit og er ætlunin
að ganga á Öræfajökul, hæsta fjall
landsins. Gist verður á Hofi og í
ferðinni verður boðið upp á æfingu
í meðferð brodda og ísaxa áður en
lagt er upp, en þeir sem ekki eiga
slíkan búnað geta fengið hann lán-
aðan gegn vægu gjaldi. Auk göng-
unnar á jökulinn verða möguleikar
á öðrum gönguferðum og jafnvel
verður farið út í Ingólfshöfða ef tími
leyfir. Lagt verðm’ upp í ferðina á
fóstudagskvöld.
Á laugardagsmorgun hefst ferð á
Snæfellsnes og í þessari ferð er
einnig stefnt að því að ganga á jök-
ul. Auk þess verða farnar skoðunar-
ferðir um Nesið og strax á laugar-
deginum verður boðið upp á ferð
undir leiðsögn Skúla Alexanders-
sonar, fyrrverandi alþingismanns,
sem gjörþekkir þessar slóðir. Á ann-
an í hvítasunnu verður farið í
Bjarnarhöfn og boðið verður upp á
siglingu frá Stykkishólmi út í
Breiðafjarðareyjar.' Ferðalangar
munu gista á Lýsuhóli í Staðarsveit,
en á staðnum er bæði sundlaug og
heitur pottur.
í fótspor Konrads Maurers
Ferðafélagið hyggst fylgja slóð
þýska lagaprófessorsins og fræði-
mannsins Konrads Maurers um
hvítasunnuhelgina en hann ferðað-
ist um ísland á fyrri hluta 19. aldar
og gaf út heljarmikla ferðabók um
landið árið 1858. Farið verður um
Borgarfjörð, Hrútafjörð og Dali og
siglt um Breiðafjörð út í Flatey und-
ir styrkri leiðsögn dr. Árna Bjöms-
sonar. Gist verður í svefnpoka-
plássi.
Ferðafélagið efnir einnig til
styttri ferða um hvítasunnuna og
má nefna gönguferð á sunnudegin-
um um Geitafell og Selvogsheiði og
á annan dag hvítasunnu verður
strandganga um Húshólma og
Krísuvíkurberg.