Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Page 51
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998
Bæjarfulltrúar í Björgvin ætluðu að spilla opnunardagskrá listahátiðar:
Guggnuðu á úrslitastundu
- fegin að ég heyrði ekki sönginn, segir Bergljót
DV, Ósló:
„Ég er í það minnsta fegin að ég
heyrði ekki sönginn,“ segir Bergljót
Jónsdóttir, listahátíðarstjóri í
Björgvin í Noregi, um þær mála-
lyktir að heimaríkir bæjarbúar
sungu þjóðsönginn sinn úti og inni,
fyrir og eftir opnunardagskrá hátíð-
arinnar í fyrradag. Konungshjónin
heyrðu sönginn en sjálf opnunar-
dagskráin var flutt eins og Bergljót
hafði skipulagt hana.
Þetta stóð þó tæpar en menn
höfðu gert ráð fyrir. Fulltrúar allra
stjórnmálaflokka í bæjarstjómiimi
höfðu fyrir opnunina komið sér
saman um að standa upp þegar bæj-
arstjórinn, Ingmar Ljotnes, hefði
flutt ræðu sína og syngja sönginn.
Þegar á hólminn var komið guggn-
uðu þó bæjarfulltrúarnir og enginn
stóð upp.
í Björgvin eru menn ekki á eitt
sáttir um hvort líta beri svo á að
söngurinn umdeildi hafi verið flutt-
ur við opnunina. í Bergens Avisen
er sagt að bæjarbúum hafi orðið að
ósk sinni og þeim hafi tekist að
flytja sönginn sinn fyrir konung og
drottningu þrátt fyrir tilraunir ís-
lendingsins Bergljótar Jónsdóttur
til að koma í veg fyrir það. Aðrir
telja að Bergljótu hafi tekist það
sem hún ætlaði sér: Að fella þjóð-
sönginn út úr opnunardagskránni.
Raunar er það svo að staðarblöð-
in tvö, Bergens Avisen og Bergens
Tidende, eru komin í hár saman
vegna Bergljótar. Bergens Avisen
hefúr mjög horn í síðu Bergljótar en
Bergens Tidende hleður á hana lofi.
Bergens Avisen vill sem kunnugt er
senda Bergljótu heim til íslands en
á Bergens Tidende er helst að skilja
að hún hafi markað þáttaskil í sögu
bæjarins.
í enn einum leiðaranum um Berg-
ljótu segir Bergens Tidende að hún
hafi „opnað listaglugga Björgvinjar
móti umheiminum" og „bjargað
listahátíðinni frá því að verða þjóð-
rembu og afdalahætti að bráð.“ Þá
segir að Bergljót sé verðugur arftaki
tónskáldins Édwards Griegs sem
hafi „gefið dauðann og djöfulinn í
þjóðrembuna" þegar hann var fyrir
réttum 100 árum gagnrýndur fyrir
að fá útlenda hljómsveit til að spila
á listahátíð í Björgvin. -GK
Stal byssu
og var
handtekinn
Lögregla, handtók mann'á miðí
vikudag vegna innbrots í sumar-
bústað fyrir skömmu.
Maðurinn var handtekinn í
heimahúsi í Reykjavík. Hann stal
byssu úr sumarbústaðnum og
fannst hún í fórum hans þegar
hann var handtekin. Maðurinn
hefur nokkrum sinnum komið við
sögu lögreglu áður.
-RR
Stakk af frá
matnum
Maður stakk af frá fjögur þús-
und króna reikningi á matsölustað
í Reykjavík á miðvikudag. Maður-
inn hafði þó ekki klárað allan mat-
inn sinn þegar hann lét sig hverfa.
Starfsfólk lét lögreglu vita og gat
gefið greinargóða lýsingu á mann-
inum. Lögregla handtók manninn
skömmu síðar. í fórum hans fund-
ust ýmsir hlutir sem taldir eru
þýfi auk stolinna greiðslukorta.
Maðurinn átti eftir óafgreiddan
dóm og var tafarlaust settur í afl-
plánun.
-RR
Börnin á Patreksfirði kippa sér ekki upp við sveitarstjórnarkosningarnar sem eiga hug hinna fullorðnu. Pegar DV var þar á ferö léku þau sér í snú snú og
öðrum leikjum sem gengiö hafa frá kynslóö til kynslóðar. Hvort A-, B- eða C-listi veröur ofan á skiptir þau engu.
DV-mynd GVA
Ný símaskrá
komin
Símaskráin 1998 er komin út og
tekur gildi næstkomandi fimmtu-
dag. Viðskiptavinir fá skrána af-
henta á öllum afgreiðslustöðum ís-
landspósts og í þjónustumiðstöðv-
um Landssímans í Reykjavík.
Ekki verða sendir út sérstakir af-
hendingarseðlar eins og verið hef-
ur undanfarin ár.
Símaskráin kemur út í 220 þús-
und eintökum. Skrá í kartonkápu
í einu bindi er afhent án endur-
gjalds. Símaskráin verður æ þykk-
ari með ári hverju og þess vegna
verða harðspjaldaskrárnar í ár
bæði fáanlegar í einu bindi fyrir
þá sem það vilja og í tveimur bind-
um sem skiptast í númer á lands-
byggðinni annars vegar og hins
vegar númer á höfuðborgarsvæð-
inu. Harðspjaldaskrá í einu bindi
mun kosta 190 krónur og harð-
spjaldaskrá í tveimur bindum 380
krónur.
Forsvarsmenn Landssímans telja aö nýjungar eins og skráning veffanga
og netfanga í símaskrana munu auka upplýsingagildi símaskrárinnar
enn frekar.
Afstaöa til Árna og Ingibjargar eftir flokkum:
Óákveðnir orðnir
óákveðnari
Þegar afstaða reykvískra kjós-
enda til borgarstjóraefna R- og D-
lista er skoðuð eftir því hvað þeir
ætla að kjósa kemur enn og aftur
í ljós hvað Ingibjörg Sólrún nýtur
mikils traust sinna flokksmanna.
Óákveðnir kjósendur eru enn óá-
kveðnari en áður gagnvart Árna
og Ingibjörgu og 10 prósent sjálf-
stæðismanna vilja Ingibjörgu
frekar en Árna í stól borgarstjóra.
Þessar niðurstöður má lesa úr
skoðana-
könnun DV
sem gerð í
fyrrakvöld á
fylgi fram-
boðanna í
Reykavík.
Um
prósent
kjósenda
Sjálfstæðis-
flokksins
vilja Árna
sem borgar-
stjóra, 10
prósent
þeirra vilja
Ingibjörgu og 5 prósent gera ekki
upp á milli þeirra. Þetta er svipuð
niðurstaða og í síðustu könnun
fyrir viku.
98 prósent kjósenda Reykjavík-
urlistans vilja Ingibjörgu áfram
sem borgarstjóra, 1,2 prósent vilja
Árna og 0,8 prósent eru óákveðin.
Sem fyrr eru flestir innan raða
óákveðinna, og þeirra sem gáfu
ekki upp hvað þeir myndu kjósa,
einnig óákveðnir hvort borgar-
stjóraefnið þeir vilja, eða 55,1 pró-
sent. Tæp 37 prósent óákveðinna
vilja Ingibjörgu og 8,1 prósent
Árna. Bæði fá þau minna per-
sónufylgi hjá óákveðnum miðað
við síðustu könnun.
Greining á kjósendum H- og L-
lista telst ekki marktæk sökum
lítils fylgis listanna. Þó má nefna
að flestir liðsmanna L-lista virð-
ast hrifnari af Ingibjörgu.
-bjb
Afstaða til Árna og Ingibjargar eftir flokkum
|: Árni SN ingibjörg |§| Óákv./sv. ekki
\psa
21.5‘98
85
OAKV/SV. EKKI