Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 S Neytendur Veiðistangir fyrir börnin Sjálfsagt er marga veiðimenn far- ið að klæja í fingurna eftir því að renna fyrir lax eða silung. En stang- veiði er ekki bara íþrótt hinna full- orðnu heldur hafa börn og unglingar líka gaman af að spreyta sig i ám og vötnum. Neytendasíða DV fór á stúfana og kannaði verð á veiðistöngum fyrir börn og unglinga. Kannað var verð hjá níu fyrir- tækjum á höfuðborgarsvæðinu. Þau eru: Útilif, Á stöðinni, Leikbær, Ell- ingsen, Veiðibúð Lalla, Olís, Skelj- ungur, Esso og Veiðimaðurinn. í flestum tilfellum var um ein- hvers konar pakka að ræða sem innihélt ýmislegt sem þarf til stang- veiða. Skýrt skal tekið fram að hér er einungis um verðkönnun en ekki gæðakönnun að ræða. Danskar stangir Ódýrasta stöngin í könnuninni fékkst í Leikbæ. Sú stöng sem heitir Vinnysport, er dönsk og kostar 1350 krónur. Stönginni fylgir hjól og önglar. Næst í verðröðinni kemur Esso með stöng sem heitir Silstar. Sú stöng kostar 1620 krónur og er með hjóli, önglum, línu og flotholti. Einnig er hægt að fá stöng frá Silst- ar sem er útdraganleg og kostar hún þá 1950 krónur. Útdraganlega stöng- in er einnig með hjóli, línu, önglum og flotholti. Esso býður einnig enskar stangir sem heita því skáldlega nafni Sha- kespeare. Þær stangir kosta 1830 krónur og þeim fylgir hjól. Spúnn og önglar Þar á eftir kemur verslunin Á stöðinni með stangir sem kosta 1890 og 2490 krónur. Ódýrari stöngin er með hjóli, öngli, spúmnn og flotholti og sú dýrari er með sama fylgibún- aði en hana er hægt að draga út. Skeljungur býður eina gerð af sænskum Abu-stöngum á 1930 krón- ur. Þeim fylgir hjól, lína og önglar. Verslunin Á stöðinni býður síðan sams konar Abu-stöng, einnig á 1930 krónur. Opin og lokuö hjól Útilíf býður tvær gerðir af Abu- stöngum á 1990 krónur og 4950 krón- ur. Ódýrari stönginni fylgir hjól, lína, spúnn og flotholt. Dýrari stöngin er útdraganleg og með svokölluðu opnu hjóli sem hent- ar þeim sem lengra eru komnir. Ölís býðm- sænskar stangir sem - sumariö er komið meö sól í heiði og aukinni útiveru heita Fladen á 2265 krónur. Þeim fylgir hjól og lína. Veiðibúð Lalla býður þrjár gerðir af sænskum Abu-stöngum á 2400, 5800 og 6100 krónur. Öllum stöngun- um fylgir hjól og lína og liggur verð- munurinn aðallega í mismunandi hjólum. Útdraganlegar stangir Veiðimaðurinn býður stangir sem heita Berkley á 2500 krónur. Þær stangir henta yngstu veiöimönnun- um og þeim fylgir hjól og lína. Ellingsen býður stangir sem heita Mitchell á 2592 krónur og stangir sem heita Fladen á sama verði. Mitchell- stöngunum fylgir hjól, lína og spúnn. Fladen-stangimar eru út- draganlegar og þeim fylgir hjól og spúnn. Skáldlegar stangir Útilíf býður einnig stangir kennd- ar við stórskáldið Shakespeare. Veiðistangir fyrir börn 8.000 kr. Og Stangveiði er holl íþrótt sem sameinar útiveru og skemmtun. Shakespeare-stöngin sem Útilíf selur kostar 2950 krónur. Henni fylgir hjól, lína, flotholt og alls kyns beitur. Veiðimaðurinn býð- ur fjórar gerðir af sænskum Abu-stöngum á 3350, 4970, 5390 og 7980 krónur. Ódýrustu stönginni fylgir hjól og lína, sú næstódýrasta er svipuð þeirri ódýrustu nema að því leyti að hana er hægt að draga út. Næstdýr- ustu stönginni fylgir lína og öflugra hjól en þeirri ódýrustu og dýrasta stöngin er flugustöng með diskabr- emsuhjóli, línu og undirlínu. Lestina reka siðan Veiðibúð Lalla og Olís. Veiðibúð Lalla býður Daiwa-stang- ir með hjóli og línu á 3900 krónur og Olís býður Mitchell-stangir með góðu hjóli og línu á 4950 krónur. -glm Dollar Pund Mark Eimskip Flugleiðir Olíufélagið Skeljungur Tæknival Síldarvinnslan 1345 2500 2000 1072,04 117,22 40,23 Stig M 1500 1000 1 ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ 2 ORYGGIS- LOFTPUÐUM Baleno Wagon GLX 4X4: 4 1.595.000 kr. il Baleno Wagon GLX: SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. SUZUKI BALENO WAGON GLX OG GLX 4X4 Góður í ferðalagið Baleno Wagon er einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri, hagkvæmur i rekstri og hefur allt að 1.377 lítra farangursrými. Baleno Wagon gerir ferðalagið enn ánægjulegra. 'suzukf APL OG ^ökYGOlJ SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„ Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. fsafjörður: Bílagarður ehf„ Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.