Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 13 Fréttir Akureyri verði 30-40 þúsund manna borg: Gerum mun meiri kröfur en gerðar hafa verið - segir Ásgeir Magnússon, verðandi formaður bæjarráðs DV, Akureyri: „Það sem Sigurgeir segir er ná- kvæmlega það sem við töluðum um í kosningabaráttunni, að við þurf- um að reisa flagg þessa bæjar hærra en gert hefur verið og gera þurfi kröfur um mun öflugri þátt- töku ríkisvaldsins um aukna þátt- töku í ýmsum sameiginlegum verk- efnum sem geta auðveldlega verið staðsett á Akureyri en ekki annars staðar á landsbyggðinni,“ segir Ás- geir Magnússon, oddviti Akureyr- arlistans og verðandi formaður bæj- arráðs um þær hugmyndir Sigur- geirs Sigurðssonar, bæjarstjóra á Seltjamamesi, að á næstu 10-15 árum verði Akureyri byggð upp sem 30-40 þúsund manna borg og þar með alvörumótvægi við höfuð- borgarsvæðið, en þessa hugmynd viðraði Sigurgeir í viðtali við DV sl. laugardag. Ásgeir, sem jafnframt er for- stöðumaður skrifstofu atvinnulífs- ins á Akureyri, bendir á að uppbyggingin í samfélaginu á undanfórnum ámm hafl verið þannig að öll þjónusta sem eigi að „dekka“ landið allt sé staðsett á einum stað, í Reykjavík. „Ef við erum að horfa á Akureyri sem þjónustumið- stöð á landsbyggðinni þá er staðreyndin hins vegar sú að þjónustan hér er hlutfalls- lega ekkert meiri en t.d. í þéttbýliskjörnunum á Mið- Austurlandi. Hér er afskap- lega lítil þjónusta sem er fyrir land- ið allt. Aukningin í umsvifum þessa svæðis og uppbygging þess kemur til með að tengjast þessum þáttum í æ ríkara mæli. Ef ekki má staðsetja slíka þjónustu annars staðar en á höfuöborgarsvæðinu þá auðvitað siglum við öll þangað. Ég held hins vegar að miklir möguleikar séu í stöðunni og nú fáiun við vonandi tækifæri til að taka hressilega á þessum málum og snúa þróuninni við.“ - Það hefur oft og lengi verið tal- að í þessum dúr en minna verið framkvæmt. Hvemig eiga menn að snúa sér í því að vinna af alvöru í málunum? „Það er engin ein „patentlausn" til á því. Við á landsbyggðinni höfum hins vegar einblínt um of á framleiðsluþættina, frekar en að horfa til þess sem snýr að þjónustunni, og þama eru hlutir sem við eigum að geta tekið á með öðmm hætti en hingað til. Það er líka spuming hvort augu stjómvalda opnast ekki fyrir því að það er hægt að setja ýmsa starf- semi niður á öðrum stöðum en á höfuðborgarsvæðinu." - Mun ný bæjarstjóm á Akureyri beita sér af alefli í málinu, t.d. með því að fara fram á viðræður við rík- isvaldið um hvað gera skuli og hvemig? „Það er alveg ljóst að við komum til með að gera mun meiri kröfur í þessum efnum en gert hefur verið. Við höfum aðstöðu og möguleika sem hvergi eru fyrir hendi annars staðar á landsbyggðinni,“ segir Ásgeir. Hann segir raunhæft að tala um 30-40 þúsund manna borg á Akureyri. „Við þurfum að ná þessari stöðu en hversu hratt það það getur gerst þori ég ekki að fullyrða neitt um.“ -gk Villta vestrið í Þjóðleikhúsið DV, Akureyri: „Það er óneitanlega kominn ferðafiðringur í okkur,“ segir Helga Ágústsdóttir hjá Frey- vangsleikhúsinu í Eyjafjarðar- sveit en Freyvangsleikhúsið yfir- tekur stóra sviðið i Þjóðleikhús- inu á sunnudagskvöld og sýnir þar leik- og söngleikinn Velkomin í Villta vestrið eftir Ingibjörgu Hjartardóttm-. Þetta er í annað skiptið á fjór- um áram sem Freyvangsleikhús- ið hlýtur útnefningu fyrir athygl- isverðustu sýningu áhugamanna- leikhúss í landinu og þá viður- kenningu að fá að sýna í Þjóðleik- húsinu, en 1995 sýndi Freyvangs- leikhúsið þar Kvennaskólaævin- týrið. Sýningar Freyvangsleikhúss- ins á Villta vestrinu eru orðnar 20 talsins og hafa fengið geysigóð- ar viðtökur. í kvöld, kl. 20.30, verður allra síðasta sýningin norðan heiða og því síðustu for- vöð fyrir Norðlendinga að sjá Villta vestrið í sínum heimahög- um. -gk Ásgeir Magnús- son, verðandi forseti bæjar- ráðs á Akureyri. DV-mynd gk. BIFREIÐASTILLINGAR NIC0LAI Bamaskór úr leðri, með innleggi, St. 20-25 Verö 3.990 sraáskór sérverslun m/barnaskó f bláu húsi við Fákafen Toyota Corolla 1300 '95,5 g„ 5 d„ grár, ek. 42 þús. km. Verð 1.010 þús. Renault TWIngo 1200 '94, 5 g„ 3 d„ rauður, ek. 65 þús. km. Verð 590 þús. QM Blazer VG '85,5 g„ 3 d„ hvítur. Verð 320 þús. MMC Lancer stw 1800 '91, 5 g„ 5 d„ rauður, ek. 100 þús. km. Verð 790 þús. Hyundal Etantra 1800 '94, ssk„ 4 d„ grár, ek. 71 þús. km. Verð 890 þús. Hyundal Sonata 2000 '92, ssk„ 4 d„ grár, ek. 115 þús. km. Verð 790 þús. Lada Sport 1700 '95, 5 g„ 3 d. hvítur, ek. 52 þús. km. Verð 490 þús. Renault Clio 1400 '97, 5 g„ 3 d„ hvítur ek. 60 þús. km. Verð 890 þús. Hyundal Elantra QT1800 '95, ssk„ 4 d„ grænn, ek. 71 þús. km. Verð 940 þús. Bílaián til allt að 60 mánaða Visa-Euro-raðgreiðslur til allt að 36 mánaða. Suzukl Swlft QX 1300 '96, 5 g„ 5 d„ rauður, ek. 19 þús. km. Verð 790 þús. Hyundal Accent LS1300 '96,5 g„ 5 d„ grænn, ek. 27 þús. km. Verð 840 þús. Land Rover Defender 110,2500 '97, 5 g„ 5 d„ svartur, ek. 12 þús. km. Verð 3.900 þús. Reanult Cllo, Vsk. 1200 '97, 5 g„ 3 d„ hvítur, ek. 12 þús. km. Verð 970 þús. Renault 19 RT1800 '93, ssk„ 4 d„ blár, ek. 45 þús. km. Verð 890 þús. Hyundal Pony SE1300 ‘94 5 g„ 5 d„ rauður, ek. 73 þús. km. Verð 570 þús. idal coupé1600 97, jr, ek. 16 þus. km. 1.290 þús. Land Rover Dlscovery 2500 '98, 5 g„ 5 d„ blár, ek. 5 þús. km. Verð 2.720 þús. Renault Laguna 2000 '96, ssk 5 d„ grár, ek. 33 þús. km. Verð 1.590 þús. Toyota Corolla 1300 '94,5 g„ 5 d„ rauður, ek. 70 þús. km. Verð 870 þús. Toyota Corolla 1300 '94,5 g„ 5 d„ rauður, ek. 70 þús. km. Verð 870 þús. VW Jetta CL 1600 '92, 5 g„ 4 d„ rauður, ek. 83 þús. km. Verð 690 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.