Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 36
V I K I N G A LWTI vmna i j ii , /. > ■ i „fynrJíL ib-i íki.j FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ1998 íslensk erfðagreining: Skrifstofustjóri heilbrigðisráðu- neytis í sigtinu „íslensk erfðagreining er mjög spennandi fyrirtæki, en hvort hún er eitthvað sérstaklega inni í mynd- inni get ég ekki svarað þér,“ sagði Kristján Erlendsson, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, þegar DV spurði hvort hann væri á leiðinni til starfa hjá íslenskri erfðagrein- ingu svo sem blaðið hefur heimildir fyrir. Aðspurður neitaði Kristján þvi ekki að fyrirtækið hefði rætt við hann. Kristján segist enn fremur ekkert hafa með málefni ÍE að gera í heil- brigðisráðuneytinu. „Ég er skrif- stofustjóri sjúkrahúsmála og ÍE fell- ur ekki undir þann málaflokk. Þá fellur hið svonefnda gagnagrunns- ^rumvarp ekki undir mitt verksvið." Tölvunefnd hefur bannað tíma- bundið vinnslu rannsóknargagna hjá ÍE þar sem fyrirtækið hefur ekki sinnt fyrirmælum um vemd persónuupplýsinga. -kjart ísafjaröarbær: Málefnasamning ur undirritaður Gleðin var við völd í Kópavogslauginni í blíðviðrinu í gær þegar þessir krakkar fögnuðu þvi að vera komnir í sum- arfrí. DV-mynd Teitur Síldarsmugan: Stærsti farm- ur íslands- sögunnar DV, Eskifiröi: Stærsta nótaskip íslendinga, Hólmaborg SU-11, er væntanlegt með stærsta síldarfarm sem komið hefur verið með að landi í íslands- sögunni, fullfermi 2600-2700 tonn. Skipið kemur til Eskifjarðar um 6- leytið i fyrramálið. Talnaglöggir menn segja að hér sé trúlega um heimsmet að ræða hvað varðar síld- armagn sem eitt skip hefur komið með að landi. Hásetahluturinn eftir ujJíJu/jjjdjí Jan Mayen Veiöisvæöi jslenskrá báta á síögstu dögum Foreldrar stúlkunnar frá Akranesi sem stúlkur réðust á: Krefjast millj- ónabóta vegna heilaskaða - ekki taldar líkur á að stúlkan geti sótt skóla á ný Málefnasamningur nýs meiri- ‘*uta bæjarstjórnar Ísaíjarðarbæjar var undirritaður í blankandi logni í garðinum Skrúð við Dýrafjörð upp úr klukkan 22 í gærkvöldi. Meiri- hlutinn sam- anstendur af fjór- um fulltrúum Sjálf- stæðisflokks og einum fulltrúa Framsóknarflokks en í minnihluta sitja fjórir fulltrúar K-lista. í málefnasamningi, sem tekur gildi 7. júní, er gert ráð fyrir að Halldór Halldórsson, framkvæmda- ^jóri Fjórðungssambands Vestfirð- ' Tnga og bæjarstjóraefni D-lista, verði ráðinn bæjar- stjóri frá og með sunnudeginum 7. júní. Forseti bæjar- stjórnar fyrsta og þriðja árið verður Bima Lárusdóttir, oddviti D-lista, en sjálfstæðismenn fá auk þess fyrsta varaforseta allt kjörtímabilið. Guðni Geir Jó- hannesson af B-lista verður forseti bæjarstjómar annað og fjórða árið. Formaður bæjarráðs verður að sama skapi ár í senn af hvomm 'ífeta. -HKr. Lögfræðingur er að vinna að því að stefna fjórum stúlkum frá Akra- nesi til greiðslu milljónaskaðabóta fyrir að hafa orðið valdar að örorku 16 ára stúlku í janúar 1996. Hér verður um að ræða sér dómsmál, einkamál, þar sem skaða- og miska- bóta verður krafist. Stúlkumar vora á sinum tíma allar dæmdar í refsimáli. Eftir því sem DV kemst næst mun áætluð stefnuupphæð nema á milli 8 og 9 milljónum króna. Bótaupp- hæðin mun m.a. verða miðuð við það hve illa stúlkunni hefur vegnað í skóla á síðustu misserum. Hún hefur t.d. ekki getað stundað nám með viðunandi árangri í Fjölbrauta- skólanum á Akranesi. Hún fór einnig í skóla á Austurlandi en þar varð árangur stúlkunnar í bókleg- um fógum heldur ekki sem skyldi. Fjölskyldan er nú flutt til Reykja- víkur. Faðir stúlkunnar sagði í samtali við DV í gær að örorkumat dóttur- innar væri um 50-60 prósent varan- leg örorka. Erfiðleikar með minni og skipulag era þeir tveir megin- þættir sem stúlkan hefur átt við að etja. Faðirinn segist telja að dóttir hans muni ekki eiga möguleika á því aftur að fara í skóla. Ekki liggur fyrir enn þá hvort málinu verður stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur eða Héraðsdóm Vesturlands. -Ótt 6 daga veiðiferð er um 330 þúsund krónur. Síldin fékkst í Jan Mayen-lögsög- unni, um 45 sjómílur utan við ís- lensku lögsöguna, og er um 305 sjó- mílna sigling til Eskifjarðar. Skipstjóri er aflaklóin Þorsteinn Kristjánsson og sagði hann að mik- ið væri af síld og ef hún gæfi færi á sér þá væri hægt að fá feiknaköst. Enda hefðu margir lent í því að rífa. Vandinn væri hins vegar sá að hún stæði of djúpt. Guðrún Þorkelsdótt- ir hefur veitt allan sinn kvóta og er nú á landleið með fullfermi eftir örfáa tíma á miðunum -Regína Hálendislögin: Tölvupóstur dynur á for- setanum Bylgja af tölvupósti og faxskeytum er tekin að berast skrifstofu forseta íslands þar sem skorað er á forseta að staðfesta ekki nýsamþykkt sveit- arstjómarlög með undirskrift sinni. Búist er við að þessi skriða eigi eftir að magnast í dag og næstu daga. Að sögn Vigdísar Bjamadóttur, skrifstofustjóra á skrifstofú forseta- embættisins, hafa hundrað skeyta borist. Textinn á flestum þeirra sé svipaður, áskoran til forseta um að undirrita ekki lögin. -SÁ Veðrið á morgun: Hlýjast suðvestan- lands Á morgun verður fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Smá- skúrir eða slydduél verða við norður- og austurströndina, sums staðar síðdegisskúrir sunn- anlands en léttskýjað vestan- lands. Hiti verður á bilinu 2 til 13 stig, hlýjast suðvestanlands. Veðrið í dag er á bls. 53. Guðni Jóhann- esson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.