Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Hugarfar í umferðirmi Fyrstu fimm mánuði þessa árs hafa tólf manns beðið bana í bílslysum hér á landi. Dauðaslysin í umferðinni nú, áður en árið er hálfnað, eru tveimur fleiri en allt árið 1996 og slaga þegar hátt í fjölda dauðaslysa alls árs- ins í fyrra. Þá létust 15 manns í umferðarslysum. Ótald- ir eru þeir sem slasast hafa á tímabilinu og stríða við af- leiðingar þess í lengri eða skemmri tíma. Tölurnar eru ógnvekjandi og hljóta að vekja menn til umhugsunar. Framkvæmdastjóri Umferðarráðs sagði í viðtali að dauðaslysum í umferðinni hefði fækkað undanfarin ár en núna virtist þróunin vera að snúast við. Slysafjöld- inn sé langt yfir því sem verið hefur og mun meiri en undanfarin þrjú til fjögur ár miðað við árstíma. Einfaldar lausnir til fækkunar slysum í umferðinni eru ekki til. Ýmsir þættir koma þar við sögu. Það hefur þó sýnt sig að hægt er að fækka slysunum með áróðri, hertum reglum og því að fylgja reglunum eftir. Einkum er þó þörf á hugarfarsbreytingu. Það er mikill ábyrgðar- hluti að stjórna ökutæki og kallar á stöðuga árvekni. Bílar eru nauðsynleg samgöngutæki en ekki leikföng. Að mati Umferðarráðs koma sömu atriði við sögu í mörgum umferðarslysum. Allt of algengt er að fólk not- ar ekki bílbelti. Sú er meðal annars raunin í nokkrum dauðaslysa þessa árs. Um það þarf ekki að deila að belt- in bjarga. Mörg dæmi eru þess að fólk í beltum gengur lítt eða ekki sárt frá slysi meðan sá óbundni kembir ekki hærur. Bílbeltanotkun er lögbundin. Eftirlit er þó takmarkað og viðurlögum lítt beitt. Mestu skiptir þó hugarfar fólks. Það að fara alls ekki af stað í bíl óbund- inn. Gildir þá einu hvar setið er í bíbium. Enginn bíl- stjóri ætti að fara af stað óbundinn eða með óbundna farþega. Ölvunarakstur kemur oft við sögu. Á honum ber að taka hart enda vítavert athæfi. í nýrri reglugerð, sem kynnt var á dögunum, eru hert viðurlög við akstri und- ir áhrifum áfengis. Hér kemur hugarfar enn við sögu. Áfengi og akstur fara ekki saman. Þetta þarf að innræta fólki sem og það að fara ekki í bíl með ökumanni sem neytt hefur áfengis. Framkvæmdastjóri Umferðarráðs bendir einnig á slælegan búnað ökutækja og tekur sérstaklega fram að lélegir hjólbarðar séu algengir. Bíla skal skoða árlega eða taka úr umferð ella. Þá ber lögreglu að fylgjast með ástandi ökutækjanna. Ábyrgðin er þó fyrst og fremst eiganda bílsins og bílstjóra. Hann ber ábyrgð á sjálfum sér og öðrum í umferðinni. Því snýr ástand bílsins fyrst og fremst að þeim sem á hann og/eða notar. Stjórntæki, stýri og hemlabúnaður verða að vera í lagi sem og hjól- barðar. Enn og aftur er spurt um hugarfar í umferðinni. Síöast en ekki síst kemur hraði við sögu í umferðar- slysum. Slysin verða alvarlegri eftir því sem hraðinn er meiri. Það verður því aldrei nógsamlega brýnt fyrir ökumönnum að miða hraða við aðstæður. í áðurnefndri reglugerð um viðurlög við brotum á umferðarlögum er harðar tekið á hraðakstri. Sektargjöld hafa verið hækk- uð og ökumenn eru sviptir ökuréttindum á minni hraða en áður var. Gildir það jafnt í þéttbýli sem dreifbýli. Verði nýjar reglur og eftirfylgni þeirra til þess að fækka slysum þá er vel. Hraðakstur í þéttbýli er ekki verjandi. Vera kann að huga þurfi að hraðamörkum á greiðfærum „fjölakgreinabrautum" þar sem raunhraði er yfir sektarmörkum. Þar, eins og annars staðar, gild- ir þó að vera með hugann við aksturinn, aka eftir að- stæðum og reglum og sýna öðrum tillitssemi. Jónas Haraldsson Danir eru öðru hverju að greiða atkvæði um nýja áfanga í Evrópusamrunanum. Nú síðast féllust þeir á Amsterdamsam- komulagið. Sú þjóðaratkvæða- greiðsla leiðir það sama í ljós og þær tvær sem efnt var til um Maaastrichtsamninginn: Danir eru klofhir í herðar niður í Evr- ópumálum. 44-50% þeirra eru annaðhvort beinlínis andvig að- ild Dana að Evrópusambandinu eða vilja ekki stíga lengra i átt til yfirþjóðlegs Evrópustórveld- is, en 50-56% þeirra samþykkja það ferli. Fyrir hverja þjóðcu-atkvæða- greiðslu sameinast flestir stjórnmálaforingjar, fjölmiðla- menn, verklýðsforingjar og stór- forstjórar í einum feiknaöflug- um kór. Kórinn syngur þá buslubæn að ef Danir felli næsta samning muni þeim út- skúfað úr samfélagi Evrópu- þjóða, þeir muni verða áhrifa- lausir og einangraðir, missa af síðasta strætisvagni á framfara- braut og lífskjör þeirra versna. Mesta furða reyndar hve margir andæfa þessum volduga hörm- ungakór með atkvæði sínu. Nauðhyggja gegn lýðræði Andstaðan er vitanlega af ýmsu tagi. Hún getur bæði kom- ið frá þeim vinstrimönnum sem finnst að stórfyrirtæki ráði öllu Teiknimyndahetjurnar kafteinn Evró, Evrópa og úlfurinn Lúpó leggja af staö til aö berjast fyrir nýjum gjaldmiöli. Efasemdir um Evrópusambandið í ES og svo frá ysta hægri. Kannski verður það mörgum drýgst til andstöðu, að þeim sýnist Evrópusamruninn sækja fram á kostnað lýðræðis. Það sé smám saman verið að flytja allar ákvarð- anir sem máli skipta til yfírþjóð- legra stofnana sem eru óralangt frá kjósendum í hverju landi. Auk þess sem Danir vita að ekki er von á öðru en áhrif smáþjóða í stofn- unum ES muni fara rýrnandi með væntanlegri stækkun þess. Dæmi sé ég um þetta í viðtali við áður háttsettan embættismann í danska utanríkisráðuneytinu. Hann var á sínum tíma einn þeirra sem unnu að undirbúningi inngöngu Dana í ES og telur að það hafi verið rétt að stefna að sameiginlegum innra markaði. En nú finnst honum nóg komið af Evrópusamruna, enda hafi skrifræðismenn og tæknikratar sölsað undir sig pólitíkina og reyni að keyra nýja heimsveldishug- sjón ofan í kok almennings með þeim formerkjum „að það er engin leið önnur“. Þar með verði lýðræðið skopstæling af sjálfu sér, þvi að valkostir eru útilok- aðir. Eða eins og sagt var við Dani þegar Maastricht- samkomulagið var á döf- inni: þið megið segja nei, greyin, en þið verðið látnir greiða atkvæði þar til þið kjósið rétt. Óvissa og nýjar umbúöir Tvískipting Dana í Evrópumálum er líka tengd þvi hve mjög þeim fækkar sem treysta á spá- dóma um stjórn- mál og efnahag. Sé einhver nógu for- vitinn til að fá sér lærða bók um Evr- ópusambandið og framtíö þess er eins víst að hann lendi í þoku og reyk. í einni nýlegri af þessu tagi segir t.d.: Hin leyndardómsfulla nýja skipan mála í Evrópu mun í meginatriðum verða til góðs. Hún getur og gengið til baka, en ekki endilega, hnignunar- hneigðir gætu vikið fyrir at- burðum eða nýrri og skap- andi forystu. Með öðrum orðum: hvað þá verður veit nú enginn. Og því er brugðið á önnur ráð og einfaldari. Efa- hyggja um Evr- ópusamrunann er orðin svo sterk orðin í ES, að þeir í Brussel hafa ákveðið að búa til teiknimyndahetju, Kaftein Evró, til að berja hana niður. Kafteinn Evró er í fylgd laglegrar hjálpar- stúlku, Evrópu, og þeim fylgir úlf- urinn Lúpó í geipilegri baráttu við þann illa doktor Vider sem ætlar sér að sundra Evrópu og ríkja einn upp frá því. Fyrirtækið sem hannar þessar hetjur segir: „Við höfum komist að því að Evrópa er fín vara en í vondum umbúðum. Fólki finnst Evrópusambandið eitthvað óáþreifanlegt og skrifræð- islegt. Kafteinn Evró er tilraun til að fá almenning til að samsama sig því.“ Ámi Bergmann „Kannski veröur þaö mörgum drýgst til andstööu aö þeim sýn- ist Evrópusamruninn sækja fram á kostnaö lýöræöis. Þaö sé smám saman veriö aö flytja all- ar ákvaröanir sem máli skipta til yfírþjóölegra stofnana sem eru óralangt frá kjósendum í hverju landi. “ Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur Skoðanir annarra Greið braut „Meginniðurstaða sveitarstjórnarkosninganna er aö sameining jafnaðar- og félagshyggjufólks er orðin að veruleika. Gamaldags hugmyndir um sérframboð A-flokkanna heyra sögunni til. Brautin er greið. Það verður sameiginlegt framboð jafnaðar- og félags- hyggjufólks í næstu alþingiskosningum." Þorvarður Tjörvi Ólafsson í Mbl. 4. júní. Hver er þrjóturinn? „í umræðum um Landsbankann og Lind að und- anfórnu hefur gjarnan verið spurt hver sé þrjótur- inn. Miklir fjármunir hafa tapast en það liggur jafn- framt fyrir að í embætti þessara fyrirtækja hafa menn verið skipaðir pólitískt og menn hljóta að spyrja sig. Var umboð þeirra að hámarka hagnað eða gæta pólitískra hagsmuna? Kann að vera að í þessum tilfellum hafi stjórnendur fyrirtækjanna staðið sig sem skyldi, þ.e. veitt flokksgæðingum hag- kvæm lán sem síðan hafa verið endurgoldin flokkun- um með ríflegum framlögum, hylmt yfir skuldir flokksmálgagna og gert „sínum mönnum" kleift að rétta vinsamlegum aðilum hjálparhönd?" Viðskiptablaðið 3.-9. júní Evrópska myntin „En þegar Sverrir Hermannsson sagði fjölmiðlum að hann hefði lengi haft áhuga á evrópsku myntinni EMU og farið út til að kynna sér hana kom hann raunar upp um eigin þekkingarskort. Hann heldur bersýnilega að Evrópumyntin heiti EMU. En það er nafn á Myntbandalagi Evrópu. Myntin sjálf heitir hins vegar euro.“ Hannes Hólmsteinn Gissurarson í Mbl. 4. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.