Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 28
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö t DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1998 Akureyri: Uppsagnir DV, Akureyri: Um 50 hjúkrunarfræðingar á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri hafa sagt upp störfum sínum vegna óá- , j^nægju með að ekki hefur verið samið við þær um nýtt launakerfí. Hjúkrunarfræðingarnir sem sagt hafa upp munu vera nálægt þriðjung- ur hjúkrunarfræðinga við sjúkrahús- ið. í kjarasamningum á síðasta ári var um það samið að nýju launakerfi inn- an sjúkrahússins yrði komið á, en samningar um það hafa ekki náðst þrátt fyrir talsverða yfirlegu. -gk Sverrir á Vísi Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, verður í Spjallinu á Vísir.is klukkan 16 í dag. Sverrir hefur sannar- lega verið í kastljósinu undanfarið, fyrst vegna Landsbanka- og Lindarmála en síðan Sverrir Her- sem forgöngumaður mannsson. um stoinun stjórnmála- flokks sem gegn kvóta- kerfinu. Slóðin á Vísi er www.visir.is á Netinu og síðan í Spjallið. -hlh Jarðskjálftafræðingar á Veðurstofu íslands fara yfir stöðu mála í gærkvöid. Þeir sjást hér skoða jarðskjálftarita sem sýnir jarðhræringarnar. Einar Kjartansson bendir á skjáinn og Gunnar Guðmundsson, Ragnar Stefánsson og Páll Halldórsson fylgjast spenntir með. DV-mynd Hilmar Þór Herráð Sverr- is fundaði „Mér líst vel á Sverri. Ég er þó ekki á leið i framboð," segir Guðmundur G. Þórarinsson, fyrr- verandi alþingismaður framsóknarmanna. Guðmundur sat i gær- morgun fund með Sverri Hermannssyni þar sem m.a. voru rædd framboðsmál. Fundurinn var eins konar herráðsfundur nánustu stuðnings- manna Sverris. Auk Guðmundar sátu hann Jón Sigurðsson, fyrr- verandi forstjóri Járn- blendiverksmiðjunnar, Helgi Þórðarson verk- fræðingur, Matthías Bjamason, fyrrverandi alþingismaður, Valdi- mar Jóhannesson og Bárður Halldórsson frá Samtökum um þjóðareign. Guðmundur G. Þórarinsson vildi sem minnst tjá sig um umræðuefni á fundinum en sagði að flestum ætti að vera kunn andstaða sín við framsalið í kvótakerfinu. -rt Helgarblað DV: *Á tímamótum í helgarblaði DV er birt viðtal við Árna Sigfússon og Bryndísi Guð- mundsdóttur, eiginkonu hans. Rætt var við þau um pólitík, nýafstaðnar kosningar, framtíðina og margt fleira. Við kynnumst söngkonunni kyn- þokkafullu í Carmen Negra, hinni ensku Caron Barnes-Berg. Sagt er frá verðlaununum sem DV fékk í Amsterdam í gær fyrir auglýsinga- herferð blaðsins, í erlendu frétta- ljósi er fjallaö um brotthvarf Geri úr Kryddpíunum og af innlendum vettvangi er velt upp pólitískri ^töðu Sverris Hermannssonar, jafnt i' fortíð sem framtíð. -sm/bjb Öflugur jaröskjálfti skók Suðvesturland: Hélt að þetta væri stóri skjálftinn - Hvergeröingar hlupu út þegar skjálftinn gekk yfir „Það leikur allt á reiðiskjálfti enn þá,“ sagði Eva Hreinsdóttir í Hvera- gerði þegar blaðamaður hafði sam- band við hana þegar klukkan var skammt gengin í ellefu í gærkvöld. Skjálfti upp á u.þ.b. 5,3 á Richter gekk yfir suðvesturhornið kl. 21.43 í gær- kvöld og voru áhrif hans mest í Hveragerði þar sem rafmagnið fór af bænum í skamma stund og hlutir hrundu úr hillum. Upptök hans eru talin vera undir Hellisheiði og skóku eftirskjálftar suðvesturhornið lengi eftir að stóri skjálftinn reið yfir. Þrír stórir í röð Líklegt er að þetta sé lokahnykkur í skjálftahrinu sem gengið hefur yfir suðvesturhornið og hefur átt upptök sín á Hengilssvæðinu og nágrenni. Skjálfti upp á 4,8 á Richter skók Suð- urland og höfuðborgarsvæðið um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Að sögn Dót hrundi úr hillum í Hveragerði í gærkvöld og fólk var felmtri siegið. Hér er Sigurlína Hreinsdóttir með bækur sem hrundu úr hillum. DV-mynd EH Evu var seinni skjálftinn mun öflugri en sá fyrri. Að lokum má nefna að eft- irskjálíti upp á 4,5 á Richter fannst greinOega í Hveragerði og á höfúð- borgarsvæðinu um eOefuleytið. Hún segist hafa brugðist við eins og margir aðrir bæjarbúar, hún hljóp út úr húsi, og segir að margir hafi verið skelkaðir. „Ég var að lesa í rúminu þegar drunurnar byijuðu og aOt byrjað að hristast. Ég hljóp út eins og margir aðrir,“ segir Eva. Hún segir að engar teljandi skemmdir hafi orðið á húsi hennar. „Einhverjar styttur duttu niður en það er ekkert sem skiptir rnáli." Hún segir að það hafi vakið athygli manna að fýlar sem halda tO í Hamr- inum upp við hlíðina fyrir ofan bæ- inn hafi ekki haggast við skjálftann sem varð um sjöleytið í gærkvöld. „Nú sést hvergi fugl, það er eins og hann hafi forðað sér við seinni skjálftann. Fólk óttaslegið „Ég sat bara frosin á meðan skjálftinn gekk yfir og beið þess sem verða vildi. Það hrundi allt dót hjá mér úr hillum og skápum og er bara aOt á gólfinu. Ég átti von á því að þetta væri sá stóri. Ég brást við eins og margir aðrir bæjarbúar og hljöp út. Mér fannst fólk vera óttaslegið og undrandi að sjá enda var þetta afar snarpur skjálfti," segir Sigurlína. „Það er ekki vitað til þess að nein- ar skemmdir hafi orðið á húsum. Einhverjar skemmdir urðu þó á lausamunum," segir Guömundur Baldursson, varaformaður almanna- varnanefndar Hveragerðis. „Það hafa verið stöðugir eftir- skjálftar í nótt og í morgun. Sá stærsti var 3,5 á Richter klukkan 5.40 í morgun. Sá var mjög sunnar- lega á svæðinu. Það má búast við stöðugum eftirskjálftum áfram í dag. Það er ómögulegt að segja hversu öflugir þeir skjálftar geta orðið,“ segir Einar Kjartansson jarðskjálfta- fræðingur. -JHÞ/RR Veðrið á morgun: Skýjað og víða rigning Á morgun er gert ráð fyrir austlægri golu. Það verður skýjað og víða dálítil rigning, einkum sunnan tO. Hiti verður á bOinu 2 tO 12 stig, mildast suðvestan- og vestanlands. Veðrið í dag er á bls. 45.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.