Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1998, Blaðsíða 5
24 MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1998 MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1998 25 Iþróttir Iþróttir Tveir ieikmenn austurríska liðsins slaka á eftir ferðalag á mótorhjólum í Frakkiandi í gær. Reuter Paul Ince, sem er í enska liðinu, nýtur lífsins milli leikja á HM í Frakklandi. Skyldi Ince brosa í kvöld eftir leikinn gegn Rúmenum? Reuter Prinsar og annað fyrirfólk kemur á leikina á HM. Hér er Felipe Spánarprins, Jean Fournet-Fayard, heiðursforseti FIFA, og Joao Havelange, fyrrverandi forseti FIFA. Reuter Hér er mexíkósk kona aö biöja fyrir liöi sínu en hún haföi áður klætt listaverk af meistaranum sjálfum í landsliðsbúninginn. Fáklæddir leikmenn norska liðsins virðast ekki hafa miklar áhyggjur af næsta leik gegn Brössum ef marka má þessa mynd. Þjálfari írans, Talebi, til vinstri, og Sampson, þjalfari bandaríska liðsins, áttust við í sögulegum ieik í gærkvöid. Reuter Ólæti brutust út fyrir leik Þjóðverja og Júgga t gær og hér sést þýsk bulla kasta hlut að frönsku lögreglunni. Reuter Brasilíumennirnir Ronaldo og Rivaldo gantast á æfingu Brassa um helgina er þeir bjuggu sig undir leikinn gegn Noregi á morgun. Símamynd Reuter Það getur verið sárt að leika knattspyrnu. Hér er það Mexíkóinn Hernandez sem meiddist gegn Belgum um helgina Reuter Tveir leikmenn franska liðsins skokka í skógi en meö þeim á myndinni er franskur skokkari sem varö á vegi þeirra. Reuter Colin Calderwood er mættur á ný á æfingar skoska liðsins með höndina í gifsi eftir uppskurð í Skotlandi. Reuter Deschamps, fyrirliði Frakka, tekur lífinu með ró á milli leikja í Frakklandi enda þátttakan í 16 liöa úrslitum tryggö. Reuter Það mun mikið mæða á Paul Scholes í enska liðinu í kvöld en hér heldur hann á heiminum í hendi sér. Reuter T. ‘í> Hollendingar eru kátir eftir storsigurinn gegn Suður-Kóreu og þessum stuðningsmanni leiddist ekki. Reuter íranskur áhorfandi bíöur hér á meðan lögreglan skoöar farangur hans fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum í gærkvöld. Aðdáendur liöanna á HM eru oft fjörugir og hér sýna nokkrir á sér skrautlegan bakhlutann. Reuter Júgóslavneskur stuðningsmaður hvetur menn sína í leiknum gegn Þjóöverjum í gær. Reuter Faustino Asprilla er kominn heim til Kól- umbíu og ætlar að fylgjast þar með leikjunum á HM í sjónvarpinu. Asprilla badst opinber- lega afsökunar á gagnrýni sinni á þjálfara Kólumbíu og vonaðist eftir að vera tekinn aftur í sátt eftir að hafa verið rekinn frá lið- inu. Stœrsta blaðið í Túnis, La Presse, sagði um helg- ina að fyrir löngu hefði átt að reka Henri Kasperczak, þjálfara Tún- is. Blaðið sagði að lið Túnis kynni ekki lengur að leika sóknarknattspyrnu og taka áhættu í leik sín- um. Kasparczak verður ekki næsti þjálfarinn sem rek- inn veröur á HM. Hann samdi nýverið við 1. deild- ar liðið Bastia í Frakk- iandi. Þrir stjórnarmenn í knattspymusambandi Sádi-Arabíu stjórna liði Sádi-Arabíu gegn Suður- Afríku í kjölfar brott- reksturs þjálfara liösins. Forráöamenn sambands- ins eru afar hissa á slöku ásigkomulagi leikmanna og hafa þeir skipað sér- staka rannsóknarnefnd til að komast að orsök- unum. Andoni Zubizarreta lék í marki Spánar í 125. skipti gegn Paragvæ. -SK FIFA-bossarnir vilja öllu ráða Heimsmeistarakeppnin sem nú stendur yfir í Frakklandi hefur fyrir margra hluta sakir verið áhugaverð. Margir leikir hafa verið vel leiknir og skemmtilegir en aðrir daprir eins og gengur. Starfshættir dómara á mótinu hafa verið mikið til umræðu og hafa dómararnir þurft að starfa við vægast sagt ömurlegar aðstæður. Forráðamenn Alþjóða knattspyrnusambands- ins, FIFA, með forsetann Sepp Blatter frá Sviss í broddi fylkingar, hafa verið að leggja linum- ar fyrir dómcirana frá því hún byrjaði og verð- ur afskiptasemi þeirra að teljast með ólíkind- um. Fyrir HM var ákveðið að dómarar skyldu “taka hart á brotum aftan frá og gefa i grófum tilfellum rautt spjald fyrir slík brot. Síðan byrj- aði keppnin. Lítið var um umrædd brot og fá rauð spjöld litu dagsins ljós. Þá kvaddi Blatter sér hljóðs og hundskammaði dómarana. Og skilaboðin voru skýr. Ef þið farið ekki eftir þvi sem ég segi verðið þið sendir heim með fyrstu vél. Var einhver að tala um rugl í dómaramál- um í alþjóðlegum handknattleik? Það var eins og við manninn mælt. Dómar- amir þorðu ekki annað en fara eftir því sem forsetinn sagði og nú vora rauð spjöld á lofti í hverjum leik og oft í sumum þeirra. Það er illa komið fyrir iþrótt þegar forseti alþjóðasam- bandsins situr í hásætinu og ætlar einn að ráða því hvernig dómarar vinna störf sín á vellinum. Erfitt að gera þessum herrum til hæfis Ákveðnar reglur gilda í knattspyrnunni og eftir þeim eiga dómarar að fara, ekki ropi forsetans þennan og hinn daginn. Minna þessir mafiutilburðir á stjórnar- hættina hjá Alþjóða hand- , knattleikssambandinu og era þeir ekki til eftirbreytni. Vonandi á þessi undarlega af- skiptasemi Blatters ekki eftir að eyðileggja heimsmeistarakeppnina en svo gæti þó vel farið. Michel Platini tók þátt í því að gagnrýna dómarana með Blatter félaga sínum. Eftir mikla spjaldasýningu dómaranna sá Platini enn ástæðu til að gagnrýna dómarana og nú voru þeir alltof ákafir að sýna spjöldin. Það er greinilega erfitt að gera þessum háu herrum til hæfis. FIFA-bossamir vilja öllu ráða og telja sig yfir allt og alla hafna. Þeir skynja ekki óvin- sældir sínar, telja sig stórbrotna forystumenn og vita ekki að um allan heim hlæja knatt- spyrnuunnendur sig máttlausa yfir heimskulegum yfirlýsingum þeirra samfara hreint ótrúlegu grobbi. Spánn og Japan hafa komið mest á óvart Mörg liðanna á HM era enn að slípa leik sinn og meiðsl og leikbönn hafa sett strik i reikn- inginn hjá öðrum. Ekki er það vafi i mínum huga að lið Spánar er það lið sem komið hefur mest á óvart í Frakklandi. Og þá auðvitað fyrir þær sakir að geta ekki nokkurn skapaðan hlut það sem af er. Margir sparksérfræðingar spáðu Spánverjum heimsmeistaratitlinum fyrir keppnina en þær raddir eru þagnaðar. Það er með ólíkindum hve lið Spánar hefur verið slakt og í raun alveg steingelt. Leikmenn hafa ekki einu sinni sýnt baráttuþrek. Lið Japans hefur komið mér mikið á óvart. Leikmenn liðsins eru mjög snöggir og flinkir og lið Japans hefur verið í mikilli framför. Lið- ið tapaði óverðskuldað fytrir Króötum og ekk- ert lið getur lengur bókað sigur gegn Japönum. Skipulagsleysi og glæpamenn settu svip á miöasöluna í Frakklandi Miðasalan fyrir þessa heimsmeistarakeppni hefur verið tilefni rifrildis og þrætu. Virðist skipulagið varðandi þá hluti hafa farið gersam- lega úr skorðum. Einnig hafa franskir glæpamenn farið illa með þúsundir manna og selt þeim miða sem ekki vora svo til þegar til Frakklands var kom- ið. Fram undan era vonandi skemmtilegir leik- ir og stutt í að menn fari að spá verulega í hverjir verði heimsmeistarar. Nígería?, Frakk- land?, England? Eða jafnvel Brasilia? -SK Zubizarreta, markvörður Spánverja, var gagnrýndur harðlega eftir tap Spán- vetja gegn Nígeríu- mönnum og blöð á Spáni kröfðust þess að hann yrði tekinn úr lið- inu. Síðan hélt hann marki Spánverja hreinu gegn Parag- væ og varði oft meistaralega. „Zubizarreta er einn besti markvörður heims í dag,“ sagði Jose Luis Chilavert, markvörður Paragvæ, eftir leikinn. Peter Shilton, markvörður Englands til margra ára, lék 125 leiki fyrir England en sá markvörður sem leikið hefur flesta landsleiki allra er Thomas Ravanelli en hann lék 143 leiki fyrir Svía. Chilavert, markvörður Paragvæ, er einn skrautleg- asti markvörður sem sést hef- ur á knattspymuvelli. Hann tekur oft aukaspyrnur fyrir lið sitt rétt utan viö vítateig andstæðinganna og hefur á ferlinum skorað 40 mörk, þar af 4 með landsliði Paragvæ. Takist Chilavert að skora úr aukaspyrnu á HM veröur hann fyrsti markvörðurinn í sögu keppninnar til að vinna slíkt afrek. Hann tók eina aukaspyrnu gegn Spánverj- um en skaut í varnarvegg Spánverja. Leikmennirnir sem leika á HM eiga sér einkum tvo drauma. Annar er aö fá tæki- færi til að leika í heimsmeist- arakeppni og hinn draumur- inn er að vinna keppnina og verða heimsmeistari. Leikmenn enska landsliösins á HM hafa verið meö söng- keppni sín á milli sem felst í því að syngja sem flest lög á sem skemmstum tíma. Margir þeirra eru mun betri á knatt- spymuvellinum en Tony Adams hefur forystuna sem stendur. -SK Japanskir stuönings- menn hafa verið áberandi í Frakklandi enda mjög fjölmennir, um 30 þúsund talsins. Um 15 þúsund Japanar keyptu miða á leiki sins liðs í Frakklandi en er þeir komu þangað gripu þeir í tómt, fengu aldrei miðana. í gœr tókst að útvega nokkrum þúsundum Jap- ana miða á uppsprengdu verði en flestir þeirra horföu á sína menn tapa fyrir Króatíu á risastór- um sjónvarpsskjá. Forráðamenn FIFA héldu áfram að þusa í dómurum HM i gær og hvetja þá til að gefa fleiri rauð spjöld en hingað til. Virðist afskiptasemi þeirra engan endi ætla að taka og hafa fjölmargir þjálfarar liða á HM gagn- rýnt þessa afskiptasemi harðlega. Talið er að Brasilíumenn muni blása til stórsóknar gegn Norðmönnum á morgun. Þjálfari liðsins hyggst hvíla nokkra lykilmenn og stilla upp miklu sókn- arliði enda skiptir leikur- inn engu máli fyrir Brassa sem þegar eru komnir áft-am í 16 liða úr- slit. Forráðamenn þýska liðs- ins fóru fram á það við þýsku landa- mæra-lögregluna að hún hleypti engum þekktum óeirða- seggjum til I<Yakk- lands í gær á leik Þýskalands og Júgóslav- íu. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.