Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1998, Side 10
10
MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 1998
Fréttir
Kynningarfundur um virkjanir og stóriðju:
Mestu möguleikarn-
ir á Austfjöröum
- sagöi Finnur Ingólfsson iönaöarráðherra
DV, Egilsstaðir:
í ræðu Finns Ingólfssonar iðnað-
arráðherra á fundi sem haldinn var
á Egilsstöðum fyrir nokkru kom
fram að langmestir virkjunarmögu-
leikar eru á Austurlandi eða 9100
gigawattstundir. Þessa orku er hag-
kvæmast að nýta austanlands m.a.
vegna þess hve dýrt er að flytja ork-
una yfir hálendið. Fundurinn var
upphafið að kynningu á virkjunum
og stóriðju á Austurlandi en enn er
ekki séð hvort af virkjunum verður.
Aðrir frummælendur voru Hafl-
dór Ásgrímsson utanríkisráðherra,
Andrés Svanbjömsson, yfirverk-
fræðingur MIL, Helgi Bjarnason,
sóknir fyrir stóriðju á Reyðarfirði
eru langt komnar og lengra en sam-
svarandi rannsóknir á Keilisnesi.
Sú rannsókn er óháð því um hvers
konar stóriðju er að ræða. Ákvörð-
un um álver á Reyðarfirði verður þó
ekki tekin fyrr en á næsta ári. Hins
vegar er búið að taka ákvörðun um
staðsetningu stóriðjuvers og verður
það norðanmegin fjarðarins, rétt
utan við bæinn Sómastaðagerði.
Fyrirspumir voru leyfðar úr sal
og létu margir heimamenn í ljós
ótta við landröskun á hálendinu
norðan Vatnajökuls. Skarphéðinn
Þórisson nefndi m.a. tvö svæði sem
mikilvæg væru fyrir dýralíf á svæð-
inu. Annars vegar Eyjabakkar, sem
Frá fundinum í Valaskjálf á Egilsstöðum.
deildarstjóri umhverfisdeildar
Landsvirkjunar, Elísabet Benedikts-
dóttir, forstöðumaður Byggðast. á
Austurlandi, Anna Dóra Sæþórs-
dóttir landfræðingur, Skarphéðinn
Þórisson, líffræðingur á Egilsstöð-
um, og Þorvaldur Jóhannsson, for-
maður OSSA. Auk þess fengu fund-
armenn afhent erindi frá Magnúsi
Oddssyni ferðamálastjóra sem ekki
gat komið.
Fljótsdalsvirkjun árið 2003
Helgi Bjamason upplýsti að unnt
yrði að taka Fljótsdcdsvirkjun með
stíflu við Eyjabakka í notkun árið
2003. Virkjun í Jökulsá á Dal með
stíflu við Kárahnjúka yrði hugsan-
lega komin í gagniö árið 2010. Á
fundinum kom einnig fram að rann-
er fellistaður heiðagæsar, en um
10-12 þúsund fuglar hafa þar aðset-
ur meðan þeir eru i sárum. Hins
vegar aðalburðarsvæði hreindýra
sem færi undir vatn við Hálslón.
Skarphéðinn skoraði á ráðamenn
að fara sér hægar og sérstaklega
standa betur að kynningu á öllum
þeim þáttum sem snúa að breyting-
um á landi og vötnum.
Þá má geta þess að skeyti barst
frá ferðaskrifstofunni Ultima Thule
sem verið hefur með ferðir á fyrir-
huguðu virkjunarsvæði. í skeytinu
sagði að ef þarna yrðu stórvirkjanir
sem breyttu svipmóti lands þá
myndi skrifstofan leita fyrir sér
annars staðar að ósnortnu landi fyr-
ir sínar ferðir.
SB
Unnið hefur verið að hleðslu garðsins frá Ingólfsgarði að Laugarnesi í alls
tíu ár. Nú sér fyrir endann á verkinu en stefnt er að því að Ijúka því síðar í
þessum mánuði. Á myndinni má sjá vinnuvél sem lýkur við síðustu 500
metra garðsins. .HB
Nauðungarsala á lausafé
Eftir kröfu Hestamannafélagsins Fáks verða eftirtalin hross seld
nauðungarsölu, sem veröur haldin þriöjudaginn 21. júlí 1998, kl.
10.00, að Víðivöllum í Víðidal:
Rauður hestur, tveggja vetra; brún meri, tveggja vetra rauð meri; þriggja til fjögurra
vetra.
Greiðsla við hamarshögg.
SýSLUMAÐURINN í REYKAVÍK.
I>V
Messufólk við Knappstaðakirkju.
DV-myndir Örn
Knappstaðakirkj a:
Fjölmenni við
messuna
DV, Fljótum:
Talsverður fjöldi fólks var við
messu í Knappstaðakirkju í Fljótum
um síðustu helgi en þá var þar hin
hefðbundna sumarmessa. Knapp-
Hestamenn fjölmenntu og komu ríðandi til kirkju.
staðakirkja er ekki sóknarkirkja en
hópur áhugafólks hefur annast
kirkjuna síðustu ár, endurbætt og
lagað og eftir þær framkvæmdir
hefur verið messað þar a.m.k. einu
sinni á sumri.
Að þessu sinni önnuðust tveir
prestar guðsþjónustuna, þeir Bragi
Ingibergsson, sóknarprestur Sigl-
firðinga og Fljótamanna, og Gísli
Gunnarsson, sóknarprestur í
Glaumbæ, sem áður þjónaði í Fljót-
um um árabil.
Undanfarið hefur skapast sú
venja að hestamenn fjölmenni á
gæðingum sínum til messunnar og
svo var einnig nú og hafa líklega
aldrei fleiri farið ríðandi frá kirkju
að athöfn lokinni. í þeim hópi voru
báðir prestamir ásamt organistan-
um, Stefáni Gíslasyni, enn fremur
dönsk fjölskylda sem dvaldi hér í
sveitinni um tveggja vikna skeið og
stundaði hestamennsku.
Má segja að messudagurinn hafi
heppnast mjög vel því veður var
eins og best verður á kosið sem er
mikilvægt því kirkjan rúmar að
jafnaði aðeins hluta þess fólks sem
kemur til messunnar. Eins og oftast
áður var drukkið kirkjukaffi undir
berum himni þar sem hinn þykki
kirkjugarðsveggur er notaður sem
borð undir kræsingamar. -ÖÞ
Messað í Möðrudal
DV, Eskifirði:
Messað hefur verið undanfarin
ár í kirkjimni í Möðrudal á Fjöllum
einu sinni á ári og þá oftast i júlí
en þá er minnst hætta á snjókomu.
Kirkjan í Möðrudal er í einkaeign
afkomenda Jóns Stefánssonar sem
byggði kirkjuna í minningu eigin-
konu sinnar, Þórunnar Guðríðar
Vilhjálmsdóttur, sem lést árið 1944.
Kirkjan var vigð í október 1949
og hefur verið messað í henni einu
sinni á ári I nokkra áratugi. Nú á
dögunum var fermingarathöfn í
kirkjunni, ungur afkomandi Jóns
Stefánssonar, Andri Reyr Haralds-
son, var fermdur. Prestur var séra
Baldur Gautur Baldursson sem ný-
tekinn er við prestakallinu og var
þetta fyrsta messa hans í kirkjunni
í Möðrudal.
Altaristaflan í kirkjunni hefur
vakið mikla athygli alla tíð og
leggja ferðamenn oft lykkju á leið
sína til að sjá hana. Jón Stefánsson
gerði hana. Hann var faðir Stefáns
Stórvals frá Möðrudal sem lést fyr-
ir skömmu. -ÞH Frá messunni í Möðrudalskirkju. DV-mynd Þórarinn