Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1998, Qupperneq 18
18
MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 1998
Hestar
DV
Grýlukertin bráðnuðu í
Eyjafjarðarsólinni
Þegar hestamenn lásufyrstu veöurspár fyrir landsmótiö
fengu menn grýlukerti á nefið ogfyrstu dagana virtust spár
œtla aö rœtast. Á þriöjudegi hellirigndi, á miövikudegi var
rok og kuldi. Útlendingar sem bjuggu í tjöldum vöknuðu eina
nóttina er kuldaboli leit inn í tjaldiö hjá þeim og frostrósir
sáust aö utan. Eftir þaö batnaöi veöriö og varð Ijómandi gott
undir lokin. Dagskráin var rúmgóö og stóöst mjög vel og gaf
fólki tœkifœri á aö hittast og rœöa málin. Spár um topphross
rœttust aö mestu þó svo aö nokkrir knapar hafi orðið fyrir
vonbrigöum meö útkomuna hjá sér.
Hvort framfarir hafi oröiö miklarfrá landsmótinu á Hellu
er álitamál. Breiddin er meiri og nokkur topphross vöktu
mikla athygli, ekki endilega þau sem stóðu efst heldur og önn-
ur vígaleg ganghross.
Þegar upp er staöiö verða þau efst í minningunni.
Meirihluti kynbótahrossa
hækkaði verulega
„Þaö er tilfínning mín að kynbóta-
hross hafi lækkað á fyrsta degi á
landsmótum en hækkað síðar í yfir-
litssýningu," segir Kristinn Hugason
kynbótahrossadómari.
Það gekk eftir því meirihlutinn
lækkaði í fyrstu dómum á landsmót-
inu á Melgerðismelum en á yfirlitssýn-
ingu rifu þau sig upp og þegar upp er
staðið hækkuðu 54 af þeim 98 hrossum
sem mættu í dóm, 14 stóðu í stað og 11
lækkuðu.
Einungis 6 af þeim 104 hrossum sem
áttu þátttökurétt mættu ekki. 2 sáust
ekki á staðnum en hin 4 kepptu í öðr-
um greinum.
Töluvert var um sætaskipti en flest
þeirra hrossa sem komu í efsta sæti
héldu sínu sæti.
Ailir efstu stóðhestamir héldu sínu
sæti, Hamur frá Þóroddstöðum í 6 v.
flokknum, Númi frá Þóroddsstöðum í
5 v. flokki og Hrafn frá Garðabæ í 4 v.
flokknum, og hjá hryssunum varð ein-
ungis breyting hjá 5 v. hryssunum en
þar skaust Þoka frá Hólum i toppsæt-
ið.
í 6 v. flokknum hélt Vigdís frá Feti
sinu sæti og stallsystir hennar, Lokka-
dís frá Feti, varð önnur og í 4 v.
ílokknum var Bella frá Kirkjubæ efst
sem fyrr.
Framfarir milli móta voru hlutfalls-
lega bestar hjá yngstu hryssunum sem
sést á því að átta þeirra
hækkuðu en einungis
tvær lækkuðu og fóru
þrjár þeirra yfir 8,00 í
aðaleinkunn.
Ef litið er á lands-
mótslágmörk sést að 51
hryssa náði lands-
mótslágmarki í sínum
flokki en 9 fóru undir
mörkin og 31 stóðhestur
náði landsmótslágmarki
en 7 fóru undir.
Hross Hækkuðu Jafn Lækkuðu Samtals
6 v. hryssur 17 8 12 37
5 v. hryssur 8 0 5 13
4 v. hryssur 8 0 2 10
Samtals 33 8 19 60
6 v. graddar 7 3 5 15
5 v. graddar 7 1 5 11
4 v. graddra 7 2 3 12
Samtals 21 6 11 38
Kynbótahross með
afkvæmum
Heiðursverðlaunastóðhestar
1. Stígandi frá Sauðárkróki
Faðir: Þáttur frá Kirkjubæ.
Móðir: Ösp frá Sauðárkróki.
124 stig fyrir 64 dæmd afkvæmi.
1. verðlauna stóðhestar
1. Kraflar frá Miðsitju
Faðir: Hervar frá Sauðárkróki.
Móðir: Krafla frá Sauðárkróki.
131 stig fyrir 21 dæmt afkvæmi.
2. Oddur frá Selfossi
Faðir: Kjarval frá Sauðárkróki.
Móðir: Leira frá Þingdal.
127 stig fyrir 19 dæmd afkvæmi.
3. Svartur frá Unalæk
Faðir: Hrafn frá Holtsmúla.
Móðir: Sera frá Eyjólfsstöðum.
124 stig fyrir 25 dæmd afkvæmi.
5. Baldur frá Bakka
Faðir: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði.
Móðir: Sandra frá Bakka.
123 stig fyrir 34 dæmd afkvæmi.
6. Sólon frá Hóli
Faðir: Náttfari frá Ytra-Dalsgerði.
Móðir: Blesa frá Möðrufelli.
122 stig fyrir 22 dæmd afkvæmi.
7. Hektor frá Akureyri
Faðir: Hervar frá Sauðárkróki.
Móðir: Tinna frá Akureyri.
121 stig fyrir 23 dæmd afkvæmi.
8. Hjörtur frá Tjöm
Faðir: Kjarval frá Sauðárkróki.
Móðir: Fiðla frá Snartarstöðum.
127 stig fyrir 16 dæmd afkvæmi.
4. Toppur frá Eyjólfsstööum
Faðir: Dreyri frá Álfsnesi.
Móðir: Snegla frá Tjöm
120 stig fyrir 26 dæmd afkvæmi.
Heiðursverðlaunahryssur
1. Krafla frá Sauðárkróki
Faðir: Gustur frá Sauðárkróki.
Móðir: Perla frá Reykjum.
123 stig fyrir 5 dæmd afkvæmi.
2. Sandra frá Bakka
Faöir: Hrafn frá Holtsmúla.
Móðir: Hetja frá Páfastöðum.
122 stig fyrir 7 dæmd afkvæmi.
3. Gyðja frá Gerðum
Faðir: Ófeigur frá Flugumýri.
Móðir: Tinna frá Kópavogi.
122 stig fyrir 6 dæmd afkvæmi.
4. Kolbrá frá Kjamholtum
Faöir: Hrafn frá Holtsmúla.
Móðir: Glókolla frá Kjamholtum.
122 stig fyrir 6 dæmd afkvæmi.
Davíð Matthíasson, öruggur sigurvegari í
ungmennaflokki á Prata.
Hryssan Kringla frá Kringlumýri og Sigurður Sigurðarson gerðu góða ferð úr Mosfellsbæ og sigruðu í töltkeppninni
og B-flokki gæðinga. Dv-myndir E.J.
Sviptingar —
vonbrigði — gleði
Gæðingakeppni landsmótsins bauð
upp á litróf tilfinninga.
Vonbrigði að detta út í fyrstu um-
ferð, gleði að komast inn, vonbrigði
að detta út í annarri umferð og áfram
var haldið.
Eftir forkeppni, þar sem fjórir gæð-
ingar vom sýndir í einu á brautinni,
stóðu einungis 20 gæðingar eftir og
fóru þeir í milliriðil.
Þar fékk hver hestur að spreyta sig
einn í brautinni og voru þar valdir
þeir tíu bestu í úrslit.
Töluverðar sviptingar voru miHi
forkeppninnar og miHiriðilsins og
komst einungis í úrslit 31 gæðingur af
þeim 50 sem skipuðu tíu efstu sætin i
hverjum flokki.
Mest voru afTóllin í bamaflokki en
þar duttu 5 gæðingar út. Það út af fyr-
ir sig þarf að skoða betur.
Vonbrigði Fáksmanna voru mikil í
B-flokki en þeir misstu þrjá gæðinga
út úr tíu efstu sætunum eftir keppni í
miUiriðli, þar af Valíant, sem stóð
efstur á Hvítasunnukappreiðum Fáks
í vor. Valíant hefur verið meiddur og
gat ekki beitt sér sem skyldi.
í B-flokknum voru sviptingarnar
einnig á toppnum en þar hirti stóð-
hesturinn Þokki frá Bjamanesi verð-
launin fyrir efsta sætið eftir keppni í
miUiriðli af 1. verðlauna hryssunni
Kringlu frá Kringlumýri en í úrslitum
náði Kringla efsta sætinu aftur. Hún
sigraði því á tveimur vígstöðum á
landsmótinu en kvöldið áður sigruðu
Kringla og Sigurður Sigurðarson í
tölti.
Töluvert hefur verið spurt um
hryssuna, hvort hún sé til sölu og
vafasamur fréttaflutningur tiltók að
boðnar hefðu veriö í hana 15 miUjón-
ir. Þessu neitaði eigandinn og sagði
engar tölur hafa verið nefndar.
í A-flokknum var Galsi í efsta sæti
á öUum þremur dómstigum. Senni-
lega hefur keppni í A-flokki ekki ver-
ið jafnari og sterkari á landsmóti en
hver þeirra gæðinga sem var sýndur
var glæsUegm- fuHtrúi síns félags.
í ungknapaflokkunum var um
sætaskipti að ræða nema í ungmenna-
flokki en þar stóð sem öruggur sigur-
vegari Prati og Davíð Matthíasson.
Mikil keppni var í úrslitum í ung-
mennaflokki og duttu af skeifm-
tveggja keppenda. Annar þeirra, Sig-
urðm HaUdórsson, fékk ásetuverð-
laun.
í unglingaflokki kom veltuhestm-
inn Manni frá Vestri-Leirárgörðum á
óvart. Hann var í 2. sæti eftir for-
keppni en 1. sæti í miUiriðli og því
sæti hélt hann aUa leið.
Manni lenti í miklu umferðarslysi
á leiðinni á mótstað og fór kerran með
honum margar veltur.
Knapi á honum var Karen L. Mart-
einsdóttir. Hún fékk einnig ásetuverð-
laun sem voru gefm í minningu Ei-
ríks Guðmundssonar sem lést í vor en
Daniel I. Smárason hlaut prúð-
mennskuverðlaun í unglingaflokki.
í barnaflokki voru knapar með góð
hross. Börnum er i sjálfsvald sett
hvort þau sýna brokk eða tölt í úrsUt-
um en öU sýndu tölt sem er framfór
frá síðasta landsmóti. Sonja L. Þóris-
dóttir, sem varð að hætta keppni eftir
að hryssan hennar, Öld, veiktist, fékk
ásetuverðlaun í barnaflokki sem eru
sárabót.
Athygli vakti hve margir stóðhest-
ar kepptu í gæðingakeppninni.
Að minnsta kosti 47 hestar, sem
hafa verið leiddir í dóm sem stóðhest-
ar, voru þátttakendur og komust 8
þeirra í úrslit, þar af 6 í A-flokki.
128 hryssur væru skráðar í aUa
flokka gæðingakeppninnar, margar
með 1. verðlaun. Það er athyglisvert
að engin þeirra komst í úrslit í A-
flokki og einungis ein í B-flokki.
Ásetuverðlaun FT hlutu Leó G.
Amarson og Atli Guðmundsson.
Hryssurnar Vigdís og Lokkadís frá Feti voru í toppsætunum i flokki 6 vetra
hryssna og Hylling frá Korpúlfsstöðum í 3. sæti. Knapar eru frá vinstri: Er-
lingur Erlingsson, Guðmundur Björgvinsson og Guðmundur Einarsson.