Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1998, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1998, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjérnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Fijálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Taka ber á landníðingum Hálendi íslands er perla, viðkvæm perla, og því ber að umgangast það sem slíkt. Hálendið er dýrmæt sam- eiginleg auðlind. Þangað sækja ferðamenn, innlendir sem erlendir, upplifun og endurnæringu. Því er hryggi- legt að sjá viðkvæmu landsvæði misþyrmt eins og gerð- ist um nýliðna helgi. Viðhorf landsmanna til umhverfismála er allt annað en áður var. Þekkt er að áður óku menn víða eins og bílar komust, óháð vegarslóðum. Það er breytt og var ekki vanþörf á. Sár eftir ógætilegan akstur utan vega og slóða eru jafnvel áratugi að jafna sig. Uppgræðslan tek- ur langan tíma, ef á annað borð er hægt að bæta skemmdirnar. Umhverfisspjöll þau sem útlendir ferðamenn á þung- um fjallabíl oUu vekja menn tU umhugsunar. Fólkið ók út fýrir slóða og kolfesti 7-8 tonna þungan bU sinn í hverasvæði við KerlingarfjöU. Lögregla þurfti að kaUa út björgunarsveit tU aðstoðar enda var eitt hjól bUsins sokkið í hver. Björgunarmenn unnu gott starf og tókst að losa bUinn en eftir sitja sárin og skemmdirnar í hinu viðkvæma landi. Staðarhaldari í KerlingarfjöUum er að vonum ósátt- ur og segir Ult að þurfa að horfa upp á þetta. Þá er bUl- inn var laus hafi ekkert annað verið að gera en óska skemmdarvörgunum góðrar ferðar. Viðurlög séu engin. Því sleppi sökudólgarnir án aðgerða yfirvalda og án sekta. Þetta er sorglegt, segir staðarhaldarinn. Reikna verður með því að íslendingar viti hvernig umgangast á landið. Spurningin er hvort erlendir gest- ir okkar vita það. Oft virðist landið auglýst ytra þannig að fólk haldi að það megi aka hvar sem er. Staðarhald- arinn í KerlingarfjöUum segir lögreglu hafa greint sér frá því að þegar menn komi með bUa tU landsins fái þeir pappíra í hendur um bann við akstri utan vega. í ofangreindu tUviki virðist misbrestur hafa orðið á því þar sem bUlinn kom með skipi en fólkið með flugvél. Þar er því brotalöm í kerfinu. Mönnum finnst að vonum grátlegt að horfa upp á landníðslu, jaj&ivel þótt af gáleysi hafi verið, og að menn komist upp með það bótalaust. Aðrir gætu þá leikið sama leik. Sem betur fer eru þó heimUdir í lög- um tU aðgerða. Þær heimUdir verður að nýta þótt ekki væri nema öðrum tU viðvörunar. Jafnframt verður að sjá tU þess að útlendir ferðamenn, sem leggja í hálend- isferðir á eigin bUum, fái upplýsingar um akstur þar. í lögum um náttúruvernd segir að öUum sé skylt að sýna varúð svo að náttúru landsins sé ekki spUlt að þarflausu. SpjöU á náttúru landsins, sem framin eru með ólögmætum hætti af ásetningi eða gáleysi, varða refsingu, segir í lögunum. í sömu lögum segir að um- hverfisráðherra skuli, að fenginni tUlögu Náttúru- vemdar ríkisins, setja reglugerð, meðal annars um akstur utan vega. Þar segir og að þar sem hætta sé á náttúruspjöUum sé akstur utan vega og merktra slóða óheimUl. RefsiheimUdin er því tU staðar og henni ber að beita og mun hafa verið beitt í einhverjum tUvikum. Þó kann að vanta í regiugerð sektarákvæði og úr því verður að bæta. Ekki verður við það unað að menn spUli þjóðar- gersemum og komist upp með það bótalaust. Mestu varðar þó að brýna fýrir öUum sem um land- ið fara að umgangast það með gát. Þá lenda þeir síður í svipuðum ógöngum og erlendu ferðamennirnir í Kerl- ingarfjöUum. Jónas Haraldsson Forsaga málsins varpar Ijósi á þá staöreynd aö sjómannaafslátturinn er í eðli sínu niöurgreiösla á útgerðar- kostnaöi," segir Geir m.a. í grein sinni. Sjómanna- afslátturinn þá staðreynd að sjó- mannaafslátturinn er í eðli sínu niður- greiðsla á útgerðar- kostnaði. Ailt bendir til þess að hefði hann ekki komið til sögunnar væri launakostnaður út- gerðarinnar hærri en hann er nú. Ég er sammála Snjólfi Ólafssyni um að eðli- legast sé að útgerðin beri sjálf þennan kostnað en ekki skattgreiðendur enda hefur hagur út- gerðar sem betur fer „Að mínum dómi er eðlilegasta leiðin til að afnema afsláttinn sú að útgerðin taki þennan kostnað á sig þannig að heildarkjör sjó■ manna verði óbreytt. Skynsam- legt væri að slík breyting gengi yfír á nokkrum árum þannig að röskun yrði sem minnst.“ Kjallarinn Geir H. Haarde fjármálaráöherra Snjólfur Ólafsson prófessor beindi til mín fyrirspurn um sjómannaafsláttinn í DV nýlega. Mér er ánægja að skýra við- horf mín til þess máls í fáum orðum. Til upprifjunar er rétt að geta þess að umræddur afsláttur sjómanna frá skatti á rætur að rekja til skorts á sjómönnum og harðvítugra kjara- deilna á árum áður. Uppruna sjómannaaf- sláttarins má rekja allt aftur til ársins 1954 þegar lögleidd voru ákvæði um hlífðarfata- frádrátt og fæðisfrá- drátt lögskráðra fiski- manna. Þessi skattívilnun hefur síðan tekið nokkrum breytingum í tímans rás til þess fyrirkomulags sem í dag gildir og miðast við dagaíjölda á sjó. Hygg ég að allar breyt- ingar á þessu kerfi, aðrar en hreinar tæknilegar breytingar, hafi verið knúnar í gegn í tengsl- mn við kjaradeilur og hugsaðar sem framlag af ríkisins hálfu til að leysa ágreining milli útvegsmanna og sjómanna. Niöurgreiösla á útgeröar- kostnaði Forsaga málsins varpar ljósi á almennt braggast verulega frá því þetta kerfi var innleitt. Nú á dögum held ég að fáum dytti í hug að leysa kjaradeilur með sérákvæðum í lögum um lægri skatta fyrir tiltekna starfs- hópa. Mjög vafasamt er að slík ráðstöfun stæðist jafnræðisregl- una sem formlega var tekin í stjórnarskrá árið 1995. Hins vegar hefur þetta kerfi verið við lýði ára- tugum saman sem hluti af heildar- kjörum sjómanna og þar með má segja að komin sé viss hefð fyrir þessum skattafslætti. Eðlilegast aö semja um breytingar Að mínum dómi er eðlilegasta leiðin til aö afhema afsláttinn sú að útgerðin taki þennan kostnað á sig þannig að heildarkjör sjó- manna verði óbreytt. Skynsamlegt væri að slík breyting gengi yfir á nokkrum árum þannig að röskun yrði sem minnst. Þannig var farið að árið 1996 þegar lögfest var sam- ræming tryggingagjalds milli at- vinnugreina í þrepum allt til ársins 2000. Um þetta tel ég að allir aðilar máisins verði að semja og eflaust má fara ýmsar leiðir í þessu efni. Snjólfur Ólafsson segist í grein sinni ekki minnast þess að Friðrik Sophusson, forveri minn, hafi nokkru sinni fært nein rök fyrir sjómannaaf- slættinum. Það hygg ég að sé rétt enda reyndi hann að fá honum breytt. í frumvarpi um breytingar á skattalögum á ár- inu 1992 gerði hann tilraun til að fá þessu kerfi breytt og spara ríkissjóði hundruð milljóna en náði ekki árangri vegna and- stöðu meðal þingmanna úr öllum flokkum. Ég tel einnig, í ljósi þess- arar reynslu, hyggilegra að reynt sé að semja um þetta mál milli að- ila þótt löggjafinn hafi að sjálf- sögðu síðasta oröið. Geir H. Haarde Skoðanir annarra Þjóðarvilji og sáttarleið „Niðurstöður skoðanakönnunar sem Gallup hefur gert um afstöðu fólks til kvótakerfisins koma ekki á óvart. Samkvæmt þessari nýju könnun eru yfir 80% þeirra sem spurðir voru ósáttir við kvótakerfið og rúmlega 69% vilja breyta því... Viðhorf þingmanna og útgerðarmanna hefur smátt og smátt verið að breytast. Þetta hefur m.a. komið fram í málflutningi Einars K. Guðfmnssonar, alþingismanns Sjálfstæöis- flokks í Vestfjarðakjördæmi ... Vilji fólksins í land- inu er skýr. Nú hlýtur verkefnið að vera að finna sáttaleið, sem tekur miö af þessum sterka þjóðar- vilja, en virðir jafnframt réttmæta hagsmuni útgerö- armanna." Úr forystugrein Mbl. 25. júlí. Velðileyfagjaldið „Það er búið að rugla þjóðina, sem á allt sitt und- ir sjávarútvegi, svo mikið að það væri hægt aðfá hana til að samþykkja nánast hvað sem er. Ég er sannfærður um að ekki nema litill hluti þjóðarinnar gerir sér grein fyrir því um hvað er veriö að tala. Umræðan er þannig að örfáir menn eru að fá þann stimpil á bakið að þeir eru sagðir sægreifar, en væri auðlindaskattur lagður á myndi það koma illa við mörg byggðarlög á landinu sem og sjómenn og fisk- vinnslufólk. Síðan kæmi þessi skattheimta á endan- um í bakið á þjóðinni sjálfri." Sverrir Leósson í Degi 25. júlí. Göngin - ekkert afrek lengur „Það var kannski afrek á sinni tíð, fyrir um fjöru- tíu árum, að sprengja göngin gegnum Stráka við Siglufjörð, á þeim tíma sem verkkunnátta til sllks var ekki í landinu. Nú er hún til. Búin að vera lengi til. Það er alltaf verið að sprengja göng, það er orð- inn hvunndagsviðburður. Að ekki sé talað um út- lönd. Það er búið að bora undir Ermarsund, allar helstu borgir Evrópu eru útboraðar af neðanjarðar- brautum ... Göng undir Hvalfjörð eru ekki annað en rökrétt framhald á því sem löngu var byrjað á, sami straumur niður í sama svelg ... Hvalfjarðargöng boða í engu breytt hugarfar, einungis mögnun þess sama bíladellu- og struns- hugarfars sem fyrir var.“ Eyvindur Erlendsson í Lesbók Mbl. 25. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.