Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1998, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1998, Síða 29
Flækjufótur Mummi Siggi Lísa og Láki Andrés önd Gissur gullrass Hvutti Hrollu: ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1998 33 fí (Ö N U cö u Myndasögur Leikhús Laxveiðin: Staðan er ekki slæm „Sumarið það sem af er hefur ver- ið einkennilegt, vatnsleysi og snjó- leysi til fjalla en laxinn kom og það í þó nokkrum mæli í margar veiði- ár. Og sumarið er alls ekki búið, besti tíminn er eftir,“ sagði veiði- maður sem rennir mikið og hefur veitt marga laxa í sumar og hann bætti við: „Ég held að þetta sumar í veiðinni eigi eftir að taka sprett núna í ágúst og september. Sjáðu Umsjón Gunnar Bender laxveiðiár sem eru háðar vatni, eins og í Dölunum. Þegar fer að rigna þá kemur laxinn svo um munar. Hann hellist inn á hverju flóði. Þó hann verði þaraleginn, það er bara betra. Slagurinn um toppsætið verður á milli Norðurár í Borgar- firði, Blöndu og Rangánna. Það er erfitt að sjá hvaða veiðiá hefur þettá,“ sagði veiðimaður enn frem- ur. Á milli 12 og 13 laxar Núna þegar næstum tveir mánuð- ir eru liðnir síðan fyrstu veiðiárnar opnuðu fyrir veiðimönnum er stað- an alls ekki slæm, þrátt fyrir mikla þurrka og snjóleysi á fjöllum. Lax- arnir úr veiðiánum öllum eru orðn- ir á milli 12 og 13 þúsund á þessari stundu. Veiðin er eitthvað 20% meiri núna en á sama tíma í fyrra. Bestu árnar hafa gefið næstum 1500 laxa og bæta við sig á hverjum degi. Ef maður kíkir á línuna eru tvær veiðiár sem hafa heldur betur bætt sig á milli ára og það eru Elliðaárn- ar og Miðfjarðará, ár sem hafa ver- ið í sannkölluðum dvala síðustu árin og gefið frekar lítið af flski. Ellliðaárnar, sem hafa reyndar lent í ýmsu hin seinni ár, eru allar að koma til. Veiðimenn sem DV ræddi við sögðu mikið vera af fiski í ánni en hann tæki frekar illa. Kílaveikin, sem setti allt á annan endann í Elliðaánum, virðist vera farin í bili og kemur vonandi ekki aftur. Hennar verður ekki sárt saknað, það er á hreinu. Miöfjarðará er líka öll að koma til og það er gott, veiðin er miklu betri núna. Það munar einhverjum hund- ruðum á milli ára. Falllegar bleikjur. Vænir laxar sveima um árnar En sumarið er ekki búið og veiði- menn eiga eftir að renni lengi enn þá. Laxveiðimarkaðurinn hefur verið i hálfgerðu sjokki lengst af sumri en virðist ailur vera að koma til. Er það af hinu góðu því hinn almenni veiðimaður borgar sitt veiðileyfl og hefúr alltaf gert það. Hann er von- andi ekki karlinn sem eyöir pening- um annarra, það þarf að koma skýrt fram. Staðan er ekki slæm núna, þaö er ööru nær, góður tími er eftir í veið- inni og vænir laxar sveima um árn- ar. Og þeir eiga eftir að taka þegar fram líða stundir. Þeirra tími mun koma. MiöQaröará: Hefur gefið 550 laxa - staðan í nokkrum ám Við skulum kíkja á stöðuna í nokkrum veiðiám. Laxá í Kjós hef- ur gefið 555 laxa, Grímsá í Borgar- firði um 700 laxa og Þverá er komin með 1350 laxa. Laxá í Aðaldal var að rjúfa 1000 laxa múrinn og Laxá á Ásum er komin með 500 laxa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.