Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 Fréttir Stuttar fréttir dv Deilt um bækur Goethe-stofnunarinnar: í saggakjallara segir sendiráöunautur í þýska sendiráðinu WW1 TK“ WIO vmi: Sendiráöunautur þýska sendiráösins neitar því aö bækur Goethe-stofnunarinnar liggi undir skemmdum. Bækurnar eru geymdar í þessu húsi viö Lindargötu. DV-mynd Teitur Ekki Það er ekki rétt að bækumar liggi undir skemmdum í sagga- kompu. Reykjavíkurborg geymir þær í herbergjum. Þar er ekki raki heldur þurrt. Bækumar verða gerð- ar aðgengilegar almenningi síðar í sumar eða haust," segir Barbara Nagano, sendiráðunautur í sendi- ráði Þýskalands, í samtali við DV í gær. DV bar undir sendiráðunautinn ummæli í kjallaragrein eftir Sigurð A. Magnússon rithöfund um bóka- safn Goethe-stofnunarinnar sem lögð var niður fyrr í sumar. í grein- inni fullyrðir Sigurður að sjö þús- und verðmætar bækur Goethe- stofnunarinnar liggi undir skemmd- um í rakri bráðabirgðageymslu í eigu Reykjavíkurborgar. Þangað hafi bækumar verið settar eftir að boði Hins íslenska bókmenntafélags um að varðveita bækumar hafði verið hafnað. Sigurður segir að eftir að stofnun- in hafði verið lögð niður hafi hópur þýskukennara tekið sig til og stofn- að svonefnt „Hollvinafélag þýska menningarsetursins á íslandi" í því skyni að ná til sín bókasafninu og einhverju af fjármagninu sem áður rann til Goethe-stofnunarinnar. Hann segir að þeim ágætu „Holl- vinum“ hafi þannig tekist að næla sér í 70.000 mörk, eða 2,8 milljónir króna sem muni vera ætlunin að Allt að 12 íbúðir og íbúðarhús era til sölu á Svalbarðseyri um þessar mundir. Eitt einbýlishús, stórt ein- býlishús með bílskúr, var selt ný- lega og mun hafa farið á um átta milljónir króna. Ámi K. Bjamason, sveitarstjóri Svalbarðsstrandar- hrepps, telur ekki að flótti sé brost- inn í hóp íbúanna á staðnum. Frem- ur sé um það að ræða að fólk vilji breyta til og fá sér hentugra hús- næði. Það sé því yfirleitt ekki að nota til að reka hér einhvers konar þýska menningarstarfsemi, sem þeir séu alls ófærir um. Sigurður fer hugsa sér til hreyfmgs heldur fyrst og fremst til breytinga í húsnæðis- málum. Fjarlægðin frá Akureyri, sem er aðeins um 12 km, skipti tæp- ast máli fyrir fólk sem sækir vinnu þangað, enda svipuð vegalengd og er milli ystu úthverfa Reykjavíkur og miðbæjarins. Ámi K. Bjamason sveitarstjóri seg- ir að margar eignanna hafl verið lengi skráðar í sölu. Það eigi einkum við um litlar íbúðir og óhentugar fyrir hörðum orðum um félagsskapinn „Hollvinina" og lætur í veðri vaka að þeirra eini tilgangur sé að næla bamafjölskyldur. Önnur líkleg skýr- ing á hinum hlutfallslega mikla fjölda íbúða sem er til sölu sé sú að fólk sé í rauninni að kanna verðgildi eigna sinna og sé ekki tilbúið að láta þær af hendi fyrir undirverð. Það sé staðfest- ing þess aö það sé ekki að flytjast á brott. íbúar Svalbarðseyrar búi við mjög góða þjónustu hvað varðar t.d. leikskóla og bamagæslu og njóti auk þess kostanna við það að búa lítils háttar afsíðis við þéttbýlið. -SÁ sér í fyrrnefnd 70.000 mörk árlega og vinni á bak við tjöldin að því að fá samningsbundinn rétt til að taka að sér hlutverk Goethe-stofnunar- innar hér á landi en til þess séu þeir með öllu vanhæflr. Hann telur að sendiráðið eigi að bíða með alla samninga fram yfir kosningar í Þýskalandi og að vinda verði bráð- an bug að því að bjarga bókasafninu „áður en allt er komið í söggugt óefni.“ Barbara Nagano sagði að sendi- ráðið hefði greinilega aðra skoðun á hæfi forystumanna Hollvinafélags þýska menningarsetursins á íslandi en kæmi fram í grein Sigurðar A. Magnússonar. Það væri hins vegar ljóst að flöldi fólks væri óánægður með að Goethe-stofnuninni á íslandi hefði verið lokað og reyndi með ýmsu móti að hafa áhrif á þýsk stjórnvöld að endurskoða þá ákvörðun. Vera kynni að grein Sig- urðar væri af þeim toga. Ekki náðist í talsmann Hollvina- félagsins í gær. -SÁ Meiri loðna Loðnuveiði hefúr verið treg þar til í fyrrinótt að hún tók að gefa sig skár. Öll skip á miðunum norður af landinu fengu 100-200 tonna köst. Margir skipstjórar á loðnu- skipum hafa gert hlé á veiðunum fram yflr næstu helgi að minnsta kosti. Einhverjir þeirra era þegar famir að huga að kolmunna- eða makrílveiðum. Ágreiningur um lyf Ellert Schram, forseta ÍSÍ og Ólympíusam- bandsins, og Birgi Guðjóns- son, formann heilbrigðisráðs samtakanna, greinir á um rýmkun lyfjalaga íþróttahreyflngar- innar. Birgir telur spumingu hvort refsa eigi íþróttamönnum fyrir að nota efni sem ekki bæta árangur þeirra I keppni, svo sem marijúana. Ellert er þessu ósammála. Góðafköst Sérútbúinn hraðamælinga- og áfengismælingabiil ríkislögreglu- stjóra hefur frá því í júní verið not- aður tO þess að taka 33 sýni úr öku- mönnum víða um land. Tólf af þess- um 33 reyndust undir mörkum en 21 var sviptur ökuleyfi. Ökumenn mega búast við miklum viðbúnaði lögreglu um verslunarmannahelg- ina og mun þessi sérútbúni bíll leika stórt hlutverk í aðgerðum hennar. Niðurskurður í bígerð ísl. jámblendifélagið undirbýr að skera niður framleiðsluna komi til þess að Landsvirkjun mmnki um- framorku við verksmiðjuna eins og boðað hefúr verið. Búist er við að verksmiðjan missi allt að 25% þeirr- ar orku sem þarf til að knýja báða ofiia hennar á fullum afköstum. Landsvirkjun græðir Viðskiptavefúr Vísis greinir frá því aö hagnaður Landsvirkjunar á fyrri helmingi ársins hafl verið 1.306 milljónir króna. 40 haatta 40 af 120 ljósmæðrum á kvenna- deild Landspítala hætta störfum um helgina ef fram fer sem horfir. Textavarp RÚV sagði frá. Brenndist í flugvél Farþegi í Atlantaflugvél á leið frá Spáni brenndist á höndum í eldi sem kviknaði í handtösku í farang- urshólfi í farþegarými vélarinnar. Flugvélin skemmdist ekki. RÚV sagði frá. Rollurnar reknar burt ÖUu búfé verður smalað af þjóð- vegi nr. eitt í Ámes-, Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslum fyrir verslun- armannahelgina um næstu helgi. Lögregluyfirvöld hvetja vegfarendur til að tilkynna um lausagöngu búljár og hvetur bændur og aðra til að loka hliðum sem farið er um. Engan sjómannaafslátt Geir H. Haar- de fjármálaráð- herra telur í grein í DV að út- gerðarmenn eigi að bera kostnað af skattaafslætti tO sjómanna en ekki aðrir skatt- greiðendur. Afslátturinn nemur hundruðum mOljóna króna á ári. Meira af flórgoða Flórgoðastofhinn við Mývatn hef- ur vaxið um 80% síðan í fyrra að sögn RÚV. í fyrra voru taldir 283 fuglar en nú um 500. Akstursbraut Áhugamenn um akstursíþróttir og -öryggi hafa látið teikna fjölnota aksturssvæði í KapeUuhrauni þar sem ökumenn gætu æft akstur, bæði atvinnumenn, nemendur og keppn- ismenn. Kostnaður við framkvæmd- ina er áætlaður vera um 200 mUijón- ir króna. -SÁ Með opna buxnaklauf Sagt er að forseti Bandaríkjanna sé valdamesti maður jarðkringlunnar. Hann stjómar tvö hundruð miUjóna manna þjóð og úr Hvíta húsinu getur for- setinn sagt mönnum fyrir verkum hvar sem er í heiminum. Hann ræður yflr mesta vopnabúri veraldar og orð hans vega þungt í hvert skipti sem hann opnar munninn. Verra er hins vegar þegar forsetinn opn- ar buxnaklaufina og nú era Bandaríkja- menn staðráðnir i því að hrekja forseta sinn frá völdum fyrir það eitt að vera með opna buxnaklauf. Það er greinilega lítO stoð I því að ráða yfir öUum heiminum ef forsetanum verður það á að segja ekki rétt tU um það hvenær hann hefur opnað buxnaklaufina og hverjir vora viðstaddir. Nú liggur það að vísu engan veginn fyr- ir hvort eða hvenær forsetinn gerði það síðast. Það er að segja með annarri en HiU- ary. Þær era jú margar sem telja sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni hjá þess- um brosmOda og töfrandi Bandaríkjafor- seta og telja það sér frekar tO tekna. For- setinn taldi það sér og til tekna, þangað tO að stelpukind sem var í starfskynningu í Hvíta húsinu fór að kjafta frá og Clinton greyið gat auðvitað ekki beinlínis játað upp á sig sökina og skrökvaði lítið eitt um það hvenær og hvort hann hefði opnað buxnaklaufina. Síöan era liðnir margir mánuðir, kannske heUt ár og Bandaríkjamenn era búnir að hund- elta forseta sinn aUar götur síðan með sérstökum saksóknara settan tO höfuðs forsetanum og nú era lífverðimir dregnir fyrir rétt og forsetinn sjálfur tO að sannreyna hvort hann hafi log- ið af sér stúlkuna eða stúlkan logið upp á sig samforunum. Heimsfréttunum ber saman um að þetta geti orðið Clinton að faUi enda virðist þeim meira í mun að hafa í Hvíta húsinu einhvem guðsgelding, sem aldrei drýgir hór, heldur en ungan og heUbrigðan sjarmör sem tekur það alvarlega þegar stúlkur koma í starfskynningu. Völdunum getur hann sem sagt tapað fyr- ir að hafa gamnað sér með stúlku þegar ekk- ert annað var að gera á skrifstofunni i Hvíta húsinu. Og ekki einu sinni það, heldur er honum fundið það tU foráttu að hafa neitað kynmökum við stúlkuna. Með öðrum orðum: hann varð að segja frá því í heyranda hljóði út yfir aUa heims- byggðina, hvernig hann opnaði buxnaklauf- ina og hvenær og með hverjum. Af því að hann neitar að upplýsa það sem stúlkan hef- ur upplýst, er hann sagður lygari og loddari og ekki verðugur þess að vera forseti. Það er í lagi að fikta við buxnaklaufina og fikta við stúklukindina en það er ekki í lagi ef hann viU ekki segja frá því. Og tO hvers eru þá öU völdin og heimsyf- irráðin, þegar Clinton forseti verður auð- mýktur og útskúfaður fyrir það eitt að hafa opnað ofurlítið buxnaklaufina, án þess að vilja segja frá því hvernig það gerðist? Dagfari Svalbarðseyri: 8-12 íbúðir til sölu í 200 manna þorpi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.