Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaöur og Otgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEiNSSON t Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritsýórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiósla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RiTSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar flölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. Hrollvekja framtíðarinnar Hver hefði trúað að við náttúruparadísina ísland ættu menn eftir að mæla meira magn af eiturefnum á borð við PCB en annars staðar í heiminum? Enginn. í dag er það þó bláköld staðreynd. Kippist einhver við? Enginn. Fyrir nokkrum árum settu erlendir vísindamenn fram kenningu um að norðurhjarinn væri eins konar kuldagildra sem drægi til sín sérstök eiturefni sem nefnast lífræn, þrávirk efni. Undir þennan efnahóp heyra til dæmis PCB-efnin og skordýraeitrið DDT. Samkvæmt kenningunni áttu þessi efni að safnast upp á köldum hafsvæðum og menga smám saman lífkeðjuna í höfunum. Grá er öll kenning. í fyrstu lögðu því fáir trúnað á enn eina heimsendaspána. Allra síst þar sem hún varðaði hinn ómengaða norðurhjara. íbúar norðursins hafa ekki efni á að efast lengur. Á skömmum tíma hafa hrannast upp rannsóknir sem leiða í ljós vaxandi uppsöfnun eiturefna í norðurhöfum. Allar rannsóknir sem íslendingar sjálfir hafa gert hníga að sama ósi. Lífríkið í sjónum við ísland er þrælmengað af efnum á borð við PCB og DDT. Nær öll dýr sem tengjast lífríki hafanna umhverfis okkur virðast bera í sér mikið magn þessara efna. Því ofar sem þau eru í fæðukeðjunni, því mengaðri eru þau. Ástæðan felst í því að þessi efni eru - eins og nafn þeirra speglar - þrávirk. Það þýðir að meltingarkerfi dýra geta ekki brotið þau niðurví fæðukeðjunni, þar sem rándýr étur bráð og er síðan sjálft étið af öðru dýri, safnast þau upp. Hið óhugnanlega við uppsöfnun eitursins í kringum ísland felst í því að mengunin er ekki af okkar eigin völdum. Við getum engu breytt í okkar eigin fari og athöfnum til að draga úr henni. Við getum ekkert nema farið bónarveg að þeim þjóðum sem enn nota efnin. Jafnvel það dugar ekki. Mikið magn af efnunum er enn að fmna í grennd við uppruna sinn, löndin og höfin sem heyra til hinum iðnvædda hluta heims. Eðlisfræðilegir eiginleikar þeirra munu smám saman flytja þau í kuldagildru hinna köldu heimskauta. í þessu birtist partur af hrollvekju framtíðarinnar. Eitrið er líklegt tH að halda áfram að safnast fyrir í norðurhöfum löngu eftir að menn verða hættir að nota þau. Hið endanlega fórnarlamb verður lífríki hafanna. í fjarlægri framtíð verða afleiðingamar uggvænlegar. í DV hefur með litlum árangri þráfaldlega verið vakin athygli á þessari óheiHavænlegu þróun. Blaðið hefur samviskusamlega greint frá rannsóknum á bolvíska ísbirninum, íslenskum fálkum og nú síðast skerfirska æðarfuglinum. AUar sýna þær sömu niðurstöðu. í þessum dýrum er að finna meira magn af lífrænum, þrávirkum eiturefnum en sums staðar annars staðar á norðurhjaranum. Það hefur vakið litla athygli utan þröngs hóps. íslendingar hafa hrósað sér af því að enn þá er minna af eitrinu í íslenskum fiski en öðrum. Það er rétt. En þó mælist hér þriðjungi meira af efnunum í brjóstamjólk kvenna en í löndum sem eru þó miklu iðnvæddari og mengaðri. Af hverju? Af því þær borða meiri fisk en aðrar mæður. Æ fleiri rannsóknir sýna að magnið sem áður var talið hættu- laust er eigi að síður hættulegt. Hvernig bregðast markaðimir við þegar það kemst á vitorð heimsins? Skiptir það máli? Við verðum öU komin undir græna torfu. SyndafaUið kemur ekki fyrr en eftir okkar dag. Össur Skarphéðinsson . „Hinir gamalkunnu hættir virðast vera uppi enn, aö kaupa dýra bíla fremur en leggja inn fjármuni til ávöxtunar," segir Jón m.a. í greininni. A5 finna eða finna ekki fyrir góðærinu ■—— ........... spár þar um. Þetta er Kiallarinii afar mikiivægt. At- njaiiai lllll vinnuleysi er böl fyrir þá sem verða fyrir því, og það setur fjármál fjölskyldna úr skorðum og það þýðir mikil út- gjöld fyrir samfélagið. Atvinna hefur farið vaxandi vegna aukinna fjárfestinga sem stafa af aukinni bjartsýni fyrir- tækja og því að þau hafa starfsgrundvöll. Önnur ástæða fyrir þessu er aukinn áhugi , , erlendra fjárfesta á fjár- Jon Kristjansson festingum alþingismaður á íslandi. Annað þýðingarmikið „Hættumerkin í efnahagslífínu núna eru þensla. Halli á við- skiptajöfnuði er verulegur og fer vaxandi, ekki síst vegna aukins innflutnings. “ Samkvæmt einni af hinum fjölmörgu skoðanakönnunum sem fylgja nútíma- samfélagi er upp- lýst að 49% lands- manna telja sig finna fyrir „góðær- inu“ eins og það er kallað. Þessar tölur eru nokkuð athygl- isverðar. Þær þýða, ef marka má könnun- ina, að um helm- ingur landsmanna viðurkennir að hafa fundið fyrir batnandi hag. Helmingurinn seg- ir það ekki vera, en hins vegar kann það að vera svo að einhver hluti þeirra kunni mál- tækið að það er enginn búmaður nema að berja sér.“ Hitt er svo alveg ljóst að margir standa höllum fæti efnahagslega og aukinn kaupmáttur að meðal- tali verður ekki til þess að endar nái saman. Ástæður fyrir því geta verið margvíslegar. Þær geta verið skuldasöfnun, lág laun, atvinnu- leysi um lengri eða skemmri tíma eða veikindi, svo nokkrar séu nefndar. Atvinna, veröbólga, þensla Eitt það þýðingarmesta í efna- hagsþróuninni er að atvinna hef- ur aukist og atvinnuleysi hefur af þeim ástæðum minnkað umfram atriði er að kostnaðarhækkanir í atvinnulífinu hafa ekki farið út í verðlagið í þeim mæli að verð- bólga hafi vaxið. Þetta er gífurlega þýðingarmikið því ekkert er verra fyrir þann hóp sem verst stendur hvað lífskjör snertir en að missa verðbólguna úr böndunum. Það verður að vera fyrsta og síðasta boðorðið í efnahagsstjórnun að haga málum á þann veg að halda niðri verðbólgu. Hættumerkin í efnahagslífinu núna eru þensla. Halli á viðskipta- jöfnuði er verulegur og fer vax- andi, ekki síst vegna aukins inn- flutnings. Hluti þeirrar aukningar er íjárfestingarvörur, en fjárfest- ing var í lægð, en hefur nú tekið við sér. Stór hluti er hins vegar vegna aukinnar einkaneyslu, svo sem í bílum og heimilistækjum og öðrum neysluvörum. Hinir gamal- kunnu hættir virðast vera uppi enn, að kaupa dýra bíla fremur en leggja inn fjármuni til ávöxtunar. Það hlýtur að vera verkefni lána- stofnana og stjórnvalda um þessar mundir að finna leiðir til þess að örva sparnað hjá þeim sem eru af- lögufærir. Það stuðlar að stöðug- leika sem er öllum nauðsynlegur, ekki síst þeim sem verr eru stadd- ir. Þá er það brýnt verkefni nú að haga ríkisfjármálum á þann veg að auknar tekjur ríkissjóðs vegna mikilla umsvifa í samfélaginu nýt- ist til þess að greiða niður skuldir. Fyrir skuldsettan ríkissjóð eykur engin ein aðgerð meira getu hans til frambúðar til þess að standa undir auknum velferðarútgjöld- um. Niðurgreiðsla skulda losar um fjármagn sem fer að öðrum kosti í vaxtagreiðslur. Fólk eöa hagtölur Við stjómmálamenn erum stundum ásakaðir fyrir það að tala fremur um efhahagsmál og hagtöl- ur en fólk og velferð þess. Því er að svara að ekki verður hjá þessu komist. Stöðugleiki skapar at- vinnu og lága verðbólgu og skapar skilyrði fyrir aukinn kaupmátt. Allt þetta er forsenda fyrir því að auka það hlutfall þjóðarinnar sem viðurkennir að hafa fundið fyrir umskiptum i efnahagsmálum sem ganga undir nafninu „góðæri“ í daglegu tali. Jón Kristjánsson Skoðanir annarra Stórhugur kostar peninga „Það er hámenntað fólk sem vinnur að ferðamál- um erlendis og við megum ekki dragast aftur úr. Hins vegar finnst mér stundum að vanti meiri stór- hug og framsýni í ferðamálum hjá þeim sem eru að taka við í þessu boðhlaupi um ferðamanninn ... Stöðugt þarf að finna upp á nýjum áherslum til að standast samkeppnina sem er gífurlega hörð og fer harðnandi. Margir vinna mjög vel á mörgum sviðum en mér finnst að það mætti gera enn betur. En stór- hugur kostar peninga og það er t.d. mjög alvarlegt mál fyrir íslenska ferðaþjónustu ef ekki fer að birta í rekstri Flugleiða. Við erum mjög háðir því að vel gangi þar.“ Birgir Þorgilsson í Mbl. 26. júlí. Óvirðing við fánann „Mér finnst það dálítið tillitsleysi að hann sé að fljóta upp eins og annað sprek. Þeir sem vilja mót- mæla geta gert það og notað fánann en þeir verða að sýna honum þá virðingu sem ætlast er til. Ég er á móti því að fánar séu brenndir í mótmælaskyni og einnig að þeir séu látnir sökkva í vatn og fljóta síð- an upp síðar.“ Gunnar Eyjólfsson í Degi 28. júlí. Gagnslaus mótspyrna „Sameining vinstrimanna, fyrst með sameiginlegu framboði, siðar í sameiginlegan flokk, er óumflýjan- leg. Alltaf hljóta einhverjir að veita mótspyrnu, en það er nú þegar ljóst að hún er gagnslaus, sameining vinstrimanna er þegar orðin að raunveruleika. Næstu kosningar gætu orðið hvort heldur sem er vatn á myllu andstæðinga eða fylgjenda sameining- arinnar. Standi fylgið í stað koma fram raddir um að sameiginlegt framboð hafi ekki skilað neinu, en það tekur tíma að koma fólki í skilning um að framboð- ið sé raunhæfur kostur.“ Daníel Freyr Jónsson í Mbl. 28. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.