Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 Fréttir Kvennalistinn á krossgötum A5 hrökkva eða stökkva - Svavar bitbein innan samfylkingarinnar Frá fundi kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í fyrrakvöld. DV-mynd Teitur Kvennalistinn stendur nú frammi fyrir því að ákveða hvort hann tekur þátt í samíylkingu A-flokkanna og býður fram með þeim í Reykjavik og á Reykjanesi eða ekki. Ekki þykir lík- legt að kvennalistakonur hafhi þátt- töku enda myndi það þýða það eitt að listinn dæmdi sig úr leik fyrir kosn- ingamar í vor. Tímamót urðu í fyrra- kvöld þegar kjördæmisráð Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík samþykkti að prófkjör yrði haldið til uppröðunar á sameiginlegan lista samfylkingar- innar. Jafnframt var skorað á Kvennalistann að ganga formlega til liðs við samfylkinguna. Kjördæmisráðið vísaði frá tillögu frá Bryndísi Hlöðversdóttur og Helga Hjörvar um að prófkjörið yrði opið milli flokkahólfa með sama hætti og báðir A-flokkamir hafa samþykkt í Reykjaneskjördæmi. Þessu var hafn- að. Reykvíkingar sem taka þátt í próf- kjörinu verða því að greiða einum flokki atkvæði og velja síðan milli frambjóðenda þess flokks. Hver flokk- ur á þannig að fá minnst tvo menn í átta efstu sæti listans samkvæmt eins konar forgjöf. Kvennalista boðið með Samfylkingarsinnar binda nú vonir við að Kvennalistinn gangi nú til liðs við samfylkinguna á ný. I ljósi fylgistalna i könnunum að undan- fornu veiti væntanlegri samfylkingu ekki af öllu sinu í þeirri von að ná kjörfylgi sem máli skipti. Þeir alþýðu- bandalagsmenn sem samþykkir vom tillögu Bryndísar og Helga um opið flokkaprófkjör töldu að opnunin myndi verða til þess að auka áhuga kjósenda á samfylkingunni. Þeir hefðu kosið á milli hólfa í prófkjöri R- listans 1998 en mættu það ekki innan samfylkingarinnar. Það hlyti að horfa einkennilega við fólki, ekki síst með hliðsjón af því að Reyknesingar geta kosið milli flokkahólfa. Rökin fyrir þessum girðingum milli flokkahólfanna eru ekki augljós. I viðræðum við flokksmenn heyrast þær raddir að opnun skapi hættu á bandalögum milli flokka. Aðrir telja að þó svo færi þá sé það varla verra en bandalög milli einstakra flokks- manna og slags- mál um sæti inn- an flokkanna sem skilji eftir sig sár- indi og simdr- ungu. Svo virðist sem samþykkt kjördæm- isráðs Alþýðubandalagsins í fyrra- kvöld sé málamiðlun mdli þeirra sjón- armiða annars vegar að hafa ekkert prófkjör heldur uppstillingu og hins vegar að hafa galopið prófkjör með engum girðingum. Stuðningsmenn þess að Svavar Gestsson skipi efsta sætið á lista samfylkingar- innar í Reykja- vík hafa aðhyllst fyrmefndu sjón- armiðin eins og DV hefur áður greint frá. Svo virðist vera að Svavar sé orðinn nokkurs konar bitbein tveggja fylk- inga eða öllu heldur kynslóða innan Alþýðubandalagsins og innan samfylk- ingarflokkanna í heild. Bæði Alþýðu- flokki og Kvennalista þykir það ekki mjög aðlaðandi tilhugsun að hann fái efsta sætið rétt sisvona og sömu skoð- unar eru margir af hans eigin flokks- mönnum í yngri kantinum sem telja það að markmið samfylkingar sé ekki fyrst og fremst það að tryggja einstök- um mönnum tiltekin sæti. Jóhanna eða Össur Stuðningsmönnum Svavars hugn- ast hins vegar lítt að verði niðurstað- an sú að Jóhanna Sigurðardóttir bjóði sig fram í jafnaðarmannahólfinu þá þýði það slag um efsta sætið í jafhað- armannahólfmu milli hennar og Öss- urar Skarphéðinssonar. Samkvæmt þeirri jöfnunarreglu sem beita á þá skal sá flokkur sem flest atkvæði fær í prófkjörinu fá efsta sætið og jafnvel það þriðja líka. Ef síðan slagurinn í al- þýðubandalagshólfinu stæði á milli Svavars og Bryndísar Hlöðversdóttur þá gæti svo farið að Bryndís yrði hlut- skarpari og hvar yrði Svavar þá staddur í hinni pólitísku tilveru? Sterkar sögusagnir eru nú í gangi um það að Svavar hyggist jafnvel draga sig í hlé og bjóða sig ekki fram. Það sem nefnt er til stuðnings þessari sögusögn er að Svavar hefði aldrei samþykkt neins konar fyrirkomulag við uppstillingu á lista sem ekki tryggði Alþýðubandalaginu og honum sjálfum fyrsta sætið. Á móti þessari sögusögn mælir það að Svavar hefur sagt við marga samflokksmenn sina að hann sé frekar hlynntur því en hitt að hafa opið milli flokka í prófkjöri. Að vísu mun hann hafa talað gegn því á kjördæmisráðsfundinum á þeim for- sendum að búið væri að gera sam- komulag um annað fyrirkomulag. Reyndar hafnaði Kvennalistinn því skömmu fyrir jól auk þess sem óvíst er að Jóhanna Sigurðardóttir kæri sig um að fá úthlutað ijórða sætinu eins og talað var um. í ljósi sterks persónu- fylgis run þessar mundir vilji hún frekar taka prófkjörsslag. Prófkjör myndi vafalaust fleyta henni hærra en svo. -SÁ Fréttaljós Stefán Ásgrímsson Þegar það gerist Nýlega er búið að skrifa undir tímamótasamning milli ríkis og kvikmynda- gerðarmanna um nýja og hærri styrki úr ríkissjóði til handa kvikmyndagerð. Það hlýtur að vera mat stjórnvalda að íslenskir kvikmyndagerðarmenn eigi betra skilið heldur en þær hundruð milljóna sem runnið hafa úr Kvikmynda- sjóði fram að þessu og nú skal bæta nokkur hundruð- um milljóna við, til viðbót- ar, til að þessi listgrein fái notið sín. Enda segja áköf- ustu áhugamenn um kvik- myndagerð að ekki sé til betri útflutningsvara og það gerir virðisaukinn! íslenskur almenningur, sem borgar brúsann, fékk sýnishorn af þessari ört vaxandi útflutningsstarf- semi yfir jólahátíðarnar þegar tvær kvikmyndir voru sýndar i sjónvarpinu. Dagfari missti af Dómsdegi en það kom ekki að sök því mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Þegar það gerist, var í sönn áhrifamikil og listræn þar sem höfundur fékk útrás fyrir sköpunargáfu sina og hugarheim. Hann var allur fyrir neðan mitti, enda segir listgagnrýnandi DV að skoða beri myndina að neðan. Það gerðu sjónvarpsáhorfendur svo sann- arlega, enda ekki gefið færi á öðru sjónarhorni. Þetta var stuttmynd en samt voru sum atriðin löng og dramatísk, eins og þegar fólkið gekk til og frá og aðalleikendurnir sýndu svipbreytingar Vvijh/J sem kröfðust góðs tima og höfundur hefur það eftir Svíum, sem sennilega munu vera æstir í að kaupa þessa mynd, að verkið sé feminískt. Þetta var fjölskyldumynd þar sem allir gátu notið þess að virða fyrir sér getnaðarliminn á graðfolanum af íhygli og hrossaræktarmaðurinn fékk það ókeypis hjá konunni í myndinni eftir að hafa beitt þeim föstu handtökum sem þarf, þegar það gerist. Það var hrífandi erótísk stemning í þessari mynd, þar sem Unnur Steins lærði hin fostu handtök án svipbrigða, þar sem Pálmi Gestsson tók sér góðan tíma til að miða byssunni og þegar strákurinn Steinar Torfi reyndi að komast á bak. Þetta var sönn list og hún á svo sannarlega erindi til útlanda og réttlætir fullkomlega hækkaða styrki til þeirra manna sem lifa fyrir listina og hafa ekki efni á því sjálfir að framleiða listræn- ar, erótískar og feminískar kvikmyndir, nema al- menningur borgi þeim fyrir að fróa sér og sínum hvötum fyrir framan þjóðina á annan í jólum. Og ef einhver er að amast út í þessa fram- leiðslu og tímir ekki að taka þátt í að borga þá er það einfaldlega vegna þess að hann hefur ekkert vit á list og ekkert vit á útflutningi og hefm- ekkert vit á því hvernig almannafé er best varið. Þegar það gerist að þegar það gerist varpar ljósi á gildi íslenskra kvikmynda er runnið upp augnablikið þegar það gerist. Hvað? Jú, styrkirnir hækkuðu! Dagfari Stuttar fréttir i>v Upplýsingavefur í dag kl. 16.30 verður upplýsinga- vefúr ríkisskatt- stjóra opnaður al- menningi undir heitinu RSK.is. Geir H. Haarde flármálaráðherra mun formlega opna upplýsingavef- inn. Hækkun útsvars Um 70% Reykvíkinga eru ósátt við hækkun útsvars i borginni sam- kvæmt skoðanakönnun Gallups. Hækkunin nýtur þó stuðnings kjós- enda R-listans. Tæplega fjórðungur aðspurðra sagðist ekki hafa vitað af hækkuninni. Sjónvarpið greindi frá. Fá ekki myndir Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, segist ekki sjá ástæðu til að afhenda ungum sósialistum Ijós- myndir sem lögreglan tók af þeim er þeir mótmæltu fyrir framan banda- ríska sendirráðið vegna loftárása Bandarikjamanna og Breta á írak 18. desember. Morgunblaðið greindi frá. Ársfundur vélstjóra Ársfundur vélstjóra á fiskiskip- um, sem var haldinn í fyrradag, ályktar að Vélstjórafélag íslands beini þeim tilmælum til Alþingis að tryggt verði með lögum að vélstjórar á fiskiskipum njóti greiðslna í styrktar- og sjúkrasjóð Vélstjórafé- lags íslands á jafnréttisgrundvelli við launþega í landi. Bannar notkun orðs Samkeppnisstofnun bannar Lyfiu notkun orðsins „eðal“ í auglýsing- um á ginseng frá Gintec og krefst þess að i auglýsingum og á umbúð- um vörunnar komi fram að varan er unnin úr rótarendum. Barnafólk í gildru Bamafólk getur orðið fast í lág- launagildru því mögulegt yfirvinnu- kaup rýrnar um 60% áður en það kemst í budduna. Dagur greindi frá. Vandi fatlaðra Hátt í einn millj- arð króna kostar á ári aö leysa úr brýnum vanda fatl- aðra sem eru á biðlistum í höfuð- borginni og Reykja- nesi. Félagsmála- ráðherra gerir ráð fyrir að málefni fatlaðra verði að fullu komin til sveitarfélaga eftir tvö ár. Ríkisút- varpið greindi frá. Fyrir Alþingi Til greina kemur að Landssímahús- ið við Austurvöll verði nýtt fyrir hluta starfsemi Alþingis en í fjárlögum 1999 er þinginu heimilað að kaupa eða leigja húsnæði í nágrenni Alþingis- hússins og taka til þess nauðsynleg lán. Ríkisútvarpið greindi frá. Lánasamningur Fyrir skömmu var gengið frá lánasamningi milli Landsbanka ís- lands hf. og íslenskra aðalverktaka hf. og dótturfélaga þess að fjárhæð allt að tveimur milljörðum króna. Eins og fram hefúr komið var ný- lega gengið frá samningi um kaup íslenskra aðalverktaka hf. á 80% hlut í Rekstrarfélaginu hf. og Regin hf. Lánafyrirgreiðslan sem hér um ræðir er bæði til fjármögnunar þeirra kaupa og einnig til frekari viðskipta á fasteignamarkaði. Vill kaupa Nýsköpunarsjóð- ur á í viðræðum við Kvikmyndasam- steypu Friðriks Þórs Friörikssonar kvik- myndagerðarmanns um kaup á allt aö górðungshlut i fyrir- tækinu. Dagur greindi frá. Aflinn í ár Fiskistofa hefur tekið saman afla- tölur ársins 1998. Aflinn á þessu ári er umtalsvert minni en í fyrra eöa 1.430.000 tonn á móti 1.920.000 tonn- um i fyrra. Munurinn er tæplega 500.000 tonn. Ástæðan skýrist af mun minni loðnuafla en á móti kem- ur að þorskaflinn nú er meiri en undanfarm ár, 240.000 tonn á móti rúmum 200.000 í fyrra. Ríkisútvarp- ið greindi frá. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.