Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
Fréttir
Hlutabréfakaup fyrir áramótin:
Besta ávöxtunin
hjá Búnaðarbanka
20,0% 26,5% 19,0% 28,0%
15,4% 16,6%
7,3% 1,8% 1,S% 1,7% 1,5% Ekki til
Ávöxtun hlutabréfasjóða
1 des 1998
sl -12 mán
sl - 3 ár
8,0%
UJ
-1,5%
-4,?/.
SVÍ
-C C c ‘x_ C c ‘C 3 . «° *= V. 3 xO -C M—- £Z C C M— £Z C C ‘x. 3 «0 'O . M— -C c c ‘x_ 3 -C c M— Í_ -C 0 « ro
*o )Q ’<7T '0> 'O 'Up-o 03 c H— ~ '£> *o </> ~o 45 £ 'O — U X— £2 3 cu «0 Almenn éfasjóði ■%<o </> \0 il </> x*r '— \d> <nJO OO (O 0> T3 >, c 0 JS »0 'O <7T V- '03 líT' ’i— 3 *o )0 <7T </> 03 C ts
£1 42 ^ 3 O JO .O > 12 3 03
3 ÍZ 03 4-> 03 -t-1 y> c
3 X 3 3 '(/) o> CÚ
X X X </)
Hlutabréfakaup almennings
standa nú sem hæst og hjá öllum
bönkum og verðbréfafyrirtækjum
og var dagurinn i gær mjög anna-
samur. Áhugi almennings hefur
aukist verulega á þvi að fjárfesta í
hlutabréfum undamfarið, enda til
mikils að vinna. Bæði hefur ávöxt-
un undanfarin ár verið góð á hluta-
bréfum, misgóð að vísu. Af hluta-
bréfasjóðum hefur ávöxtun verið
best í hlutabréfasjóði Búnaðarbank-
ans eða að meðaltali 8% sl. tvö ár og
á því tímabili orðið hæst 14,63%.
Áhugaverðasta gulrótin er þó sá
skattaafsláttur sem kaupendum
hlutabréfa er veittur. Leggja átti
hann niður á þessu ári en sam-
kvæmt ákvörðun ríkisstjómarinnar
hefur hann verið framlengdur. Hann
er að vísu bundinn því skilyrði að
fólk verður að eiga hlutabréfm yfír
fimm áramót. Að öðrum kosti verður
fólk í raun krafið um endurgreiðslu
afsláttarins. Á hinn bóginn er öllum
frjálst að kaupa og selja bréf þrátt
fyrir þessa kvöð. Aðeins verður að
gæta þess að mismunur kaupverðs
og söluverðs fari ekki undir tilsett
Hlutabréfakaup Hjón
Keypt hlutabréf 267.000
Skattaafsláttur 63.000
5% ávöxtun 76.350
Hagnaöur á ári 76.350
isca
mörk. Vegna slæmra villna í þeim
gröfum sem birtust með frétt blaðs-
ins í gær um hlutabréfakaup um ára-
mótin em þau birt efnislega á ný. I
grafinu undir fyrirsögninni hluta-
bréfakaup sést að sá skattaafsláttur
sem hjón eiga kost á er um 63 þús-
und krónur í beinhörðum peningum
og helmingi lægri upphæð fyrir ein-
stakling, þegar skattprósentan hefur
verið tekin með í reikninginn.
Með fréttinni í gær birtist rangt
graf um ávöxtun nokkurra hluta-
bréfasjóða og ekki var tekið fram
yfir hvaða tímabil það náði. Á með-
fylgjandi grafi yfir ávöxtun nokk-
urra hlutabréfasjóða sést aö ávöxtun
á yfirstandandi ári hefur verið
nokkra rýrari en meðaltal næstu
þriggja ára þar á undan. Ástæða þess
er að hlutabréf í sjávarútvegsfyrir-
tækjum og fyrirtækjum honum
tengdum hafa fallið á árinu. Þá féllu
hlutabréf í Jámblendifélaginu um-
talsvert. Það fall vegur nokkuð þungt
i rýrari ávöxtun stórra hlutabréfa-
sjóða, eins og t.d. Auðlindar. Þá er
rétt að endurtaka að ávöxtun hluta-
bréfasjóðs Búnaðarbankans hf. var
best á árinu sem er að líða þegar
ávöxtun hlutabréfasjóða er borin
saman. Á undanfórnum tveimur
árum hefur hún best orðið 14,63% en
meðalávöxtim síðustu tveggja ára
var 8%, en ekki 0,0% eins og hefði
mátt ráða af grafinu í gær. -SÁ
Talar í útvarp frá níu til fimm
Sverrir og Júlíus faðir hans við
hljóðnemann. DV-mynd GVA
„Þetta er enginn vandi ef maður
hefur eitthvað til að tala um. Ég held
að fólk sé búið að fá nóg af stöðugri
tónlist," segir Sverrir Júlíusson sem
eitt sinn starfaði á bensínstöð en tal-
ar nú í útvarp meira og minna allan
sólarhringinn. Hljóðneminn heitir
útvarpsstöðin sem Sverrir rekur
ásamt fóður sínum og senda þeir ein-
göngu út kristilegt efni úr ýmsum
áttum.
„Við höfum verið í loftinu í einn
og hálfan mánuð á FM 107 en sjö er
einmitt heilög tala: Seven is the
number of heaven," segir Sverrir.
„Við fáum efni frá Krossinum, Frels-
inu og einnig Þjóðkirkjunni. Send-
um út messur tvisvar um helgar. Þá
erum við með fjórtán íhuganir eftir
herra Sigurbjörn Einarsson sem
gera stormandi lukku.“
Sverrir situr við hljóðnemann
með Biblíuna í hendi frá níu til
fimm alla daga. Um nætur er dag-
skrá dagsins síðan endurflutt. Eftir
áramót stefnir Sverrir að því að
senda út allan sólarhringinn á Inter-
netinu og einnig þjónar hann her-
mönnum á Keflavíkurflugvelli. Aug-
lýsingadeildin samanstendur af hon-
um sjálfum og föður hans:
„Við gerðum það gott fyrir jólin.
Fengum góða viðskiptavina eins og
Alaska, Bilko í Kópavogi, Setberg og
bensínstöð Esso við Ægissíðu. Við
litum framtíðina björtum augum og
megi guð vera með ykkur öllum,“
segir Sverrir Júliusson.
-EIR
Happdrætti Háskólans:
Vann níu milljónir
„Ég fékk sjokk, öðruvísi get ég
ekki lýst þessu,“ sagði bílamálari og
þriggja barna faðir í Árbænum í sam-
tali við DV skömmu eftir að hann
hafði unnið tæpar níu milljónir í
Happdrætti Háskólans. „Ég hringdi í
konuna en hún trúði mér ekki.“
Bílamálarinn sem ekki vill láta
nafn sins getið, hringsnerist
nokkrum sinnum á stofugólfinu
heima áður en hann náði áttum. Svo
\AjHim(kuc(cms/ei/iur á'ýœm/ár&ÁvöM
Cfy
Hljómsveitin Hálft í hvoru með Eyjólfi Kristjánssyni leikur fyrir dansi
- Hattar - knöll - snarl - stuð og fjör.
Miðaverð aðeins 1.500,- Húsið opnað kl. 24.00.
Forsala aðgöngumiða hafin á Kaffi Reykjavík.
Fagnaðu áramótunum þar sem fólkið og fjörið er.
AVÍK'Í
R.ESTAU RANT
rauk hann út í banka:
„Ég fjárfesti í fullum skammti af
verðbréfum vegna skattaafsláttarins
um áramótin og fékk fina fyrir-
greiðslu í bankanum þó ég væri ekki
með eyri á mér. Bankinn veit alveg til
í að lána mér eftir að ég hafði sagt
útibússtjóranum tíðindin. Hann
óskaði mér til hamingju og lánaði
mér 260 þúsund. Svo keypti ég
kampavín."
Vinningurinn kom á besta tíma
fyrir bílamálarann og eiginkonu
hans sem vinnur hjá póstinum.
Þau vom nýbúin að stækka við sig
íbúðina og lausaskuldimar famar
að síga í.
„Við ætlum að borga allar skuldir
og leggja síðan fimm milljónir í
ávöxtun. Þetta verður nýtt og betra
líf,“ sagði bilamálarinn sem sér fram
á síkáta framtíð. Hann segist vera
heppinn; hafi til dæmis unnið sumar-
leyfisferðina í ár hjá íþróttafélaginu
Fylki í Árbæ: Ferð til Dublin. Svo
þarf að endumýja bílaflotann. Eins
og allir góðir bílaáhugamenn á bíla-
málarinn tvo bíla:
„Ég á einn Subam og einn
Chrysler en þeir em komnir til ára
sinna. Ég ætla að fá mér nýjan bíl og
þá helst fjóhjóladrifmn."
- Jeppa?
„Já, ætli ég fái mér ekki jeppa,“
sagði bílamálarinn og milljónamær-
ingurinn í Árbænum. -EIR
Arftaki Svavars
Innan Alþýðubandalagsins eru
vaxandi líkur á að Ámi Þór Sigurðs-
son, aðstoðarmaður borgarstjóra,
mvmi gefa kost á sér í prófkjör sam-
fylkingarinnar í Reykjavík sem hald-
ið verður í janúar,
með eða án Kvenna-
lista. Ef Svavar
Gestsson fer í próf-
kjörið mun Ámi láta
sér nægja að sækj-
ast eftir þriðja sæti
Alþýðubandalags-
ins og færast upp í
ömggt sæti þegar
Svavar snýr sér til
annarra starfa sem talið er að
verði snemma á kjörtímabilinu. Fari
hins vegar svo aö Svavar ákveði að
verða ekki við þrýstingi félaga sinna
um áframhaldandi þingmennsku
mun Árai Þór slást viö Bryndísi
Hlöðversdóttur um efsta sæti Al-
þýðubandalagsins. Er talið að með
stuðningi manna á borð við Svavar
og Guðrúnu Ágústsdóttur séu góðar
líkur á því að Ámi vinni slaginn...
Valgerður ráðherra
Norðlenskir framsóknarmenn telja
að prófkjörsbarátta Jakobs Bjöms-
sonar, fýrrv. bæjarstjóra, hafi ekki
náð því flugi sem hann vonaðist til.
Fylgismenn Valgerðar Sverrisdótt-
ur eru öruggir með
sig og álíta sigur Val-
gerðar gulltryggan. í
innstu röðum Fram-
sóknar staðhæfa
menn að Halldór
Ásgrímsson vilji
ekki bíða með
breytingar á ríkis-
stjórn lengur en
nauðsyn er og skipta
Guðmundi Bjamasyni út og gera
Valgerði að umhverfisráðherra. Páll
Pétursson mun þá sjá um landbúnað-
arráðuneytið fram að kosningum.
Þetta mun hins vegar mæta andstööu
í þingflokknum, þar sem Siv Frið-
leifsdóttir, sem styrkti stöðu sína í
varaformannskjörinu á flokksþing-
inu, mun berjast gegn því...
Kennitölusöfnun
Það hefur ekki beinlínis verið frið-
samlegt í kring um Ástþór Magnús-
son og samtök hans, Frið 2000, und-
anfarið. Hefur Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins,
komið nokkuð við
sögu í þessum ófriði.
Um það leyti sem
menn héldu að það
mál væri úr sög-
unni kom óvænt
framhald frá Ást-
þóri. Hann býður
sig fram í próf-
kjöri flokksins
fyrir alþingiskosn-
ingamar. og býður 4000 krónur fyrir
hvert atkvæði. Spyrja menn nú eðli-
lega hvort kennitölusöfnun muni
einkenna prófkjörsslaginn hjá fram-
sókn í Reykjavík...
Skýrmæltir
Þjóðverji nokkur, mikill tslandsvin-
ur, tók sig til og lærði íslensku. Lagði
hann sérstaka rækt við framburðinn
og árangurinn slíkur að það var eins
og Arthur Björgvin sjálfur væri
mættur. Sá þýski
ákvað að kynnast bet-
ur landi og þjóð og
fékk i því skyni far
með vöraflutninga-
bílstjóra. Á leiðinni
ræddu þeir lands-
ins gagn og nauð-
synjar og gekk það
áfallalaust. Eitt
stóð þó í honum. Bílstjórinn var
alltaf aö umla „abbla" eða eitthvað
álíka. Þýskur vildi komast til botns í
þessu umli og tók hluta samtalsins
upp á snældu. Lagðist hann yfir upp-
tökuna með íslenskum þegar í bæinn
var komið. „Abblið" stóð i mönnum í
fyrstu en eftir vangaveltur kom í ljós
að bilstjórinn var einfaidlega að segja
„það er nefnilega það“...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is