Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 Utlönd Stuttar fréttir r>v Fjórir ferðamenn létu lífið við frelsun gísla í Jemen: Bretar voru and- vígir aðgeröunum Bill og Hillary í frí saman í dag Bill Clinton Bandaríkjaforseti og fjolskylda hans halda i frí til Suður-Karólínu í dag. Þar ætla þau að kveðja árið sem er að líða og hefur reynst þeim erfitt og fagna nýju og vonandi betra ári. Forsetafjölskyldan hefur nokk- ur undanfarin ár dvalið í Hilton Head og tekið þátt i svokallaðri Endurreisnarhelgi. Þar koma saman nokkur hundruð málsmet- andi manna og kvenna í banda- rísku þjóðlífi til að skemmta sér, fræðast og ræða saman á heim- spekilegum nótum. Clinton heldur svo til Was- hington á nýársdag. Viku síðar er búist við að réttarhöldin yfir hon- um vegna Lewinsky-málsins hefj- ist í öldungadeild þingsins. Móðir áttbur- anna ferðbúin Móðir áttburanna sem fæddust í Houston í Texas á dögunum hef- ur náð sér nægilega vel til að geta farið heim, að því er læknar sögðu í gær. Þá stóðust sjö bam- anna sem enn lifa mikilvæg próf sem gerð voru á þeim. Prófin leiddu í Ijós aö þau voru ekki heilasködduð. Þrátt fyrir þessi góðu tíðindi eru bömin enn á gjörgæsludeild. Þrjú þeirra eru enn í öndunarvél en hin fjögur geta andað upp á eigin spýtur. Móðirin fer heim í dag. Hún og maöur hennar munu ræða við fréttamenn áður. UPPBOÐ Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins aö Stillholti 16-18, Akranesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Jaðarsbraut 35, miðhæð, Akranesi, þingl. eig. Guðni Jónsson og Ingveldur M. Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur Húsbréfa- deild Húsnæðisstofnunar og Sýslumaður- inn á Akranesi, fimmtudaginn 7. janúar 1999 kl. 11.00. Vallarbraut 1, hluti 03.04, Akranesi, þingl. eig. Sigríður Ólafsdóttir og Einar Vignir Einarsson, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður ríkisins, Húsbréfadeild Hús- næðisstofnunar, Kreditkort hf. og Sýslu- maðurinn á Akranesi, fimmtudaginn 7. janúar 1999 kl. 11.00. Bresk stjómvöld höfðu beðið Jemena um að beita ekki hervaldi til að frelsa sextán erlenda ferða- menn sem höfðu verið teknir í gísl- ingu. Björgunaraðgerðimar urðu til þess að fjórir gíslanna týndu lifi, þrír Bretar og einn Ástrali. „Breski sendiherrann bað jem- ensk yfirvöld um að gripa ekki til hemaðaraðgerða gegn mannræn- ingjunum," sagði Alexander Down- er, utanríkisráðherra Ástralíu, við fréttamenn í morgun. Gíslamir fjórir, tveir karlar og tvær konur, létu lífið þegar jem- enskar öryggissveitir réðust til at- lögu gegn bækistöðvum baráttu- samtaka harðlínumúslima sem tóku ferðamennina í gislingu á mánudag. Mannræningjarnir fóru fram á að yfirvöld létu félaga þeirra Efnahagsglæpir kostuðu Rúss- land sem svarar um 70 milljörðum islenskra króna á árinu sem er að líða. í flestum tilfellum áttu spilltir sem handteknir voru fyrir stuttu lausa. Að minnsta kosti tveir aðrir ferðamenn, annar þeirra bandarísk- ur, særðust í átökunum að sögn jemenskra yfirvalda. Þá féllu þrír mannræningjanna og þrír særðust. Talið er að mannræningjarnir sem sluppu lifandi frá áhlaupinu séu í haldi yflrvalda. „Félagar í róttækum hryðju- verkaflokki, sem höfðu rænt fjölda breskra, bandarískra og ástralskra ferðamanna í Abyan-héraði, drápu þrjá gísla sinna siðdegis og ætluðu sér að drepa þá sem eftir voru,“ sagði í yfirlýsingu sem Reuters- fréttastofunni barst frá stjómvöld- um í Jemen í gærkvöld. „Þessar aðgerðir urðu til þess að öryggissveitir gerðu áhlaup á bæki- embættismenn aðild að glæpunum. Það er mat Juríjs Skuratovs, ríkis- saksóknara Rússlands, að þetta sé ein af aðalástæðunum fyrir fjár- hagsvandanum í Rússlandi. Fjár- lagahallinn í ár er sem svarar um 500 milljörðum íslenskra króna. Rússland er eitt af tíu spilltustu löndum í heimi. Mikhail Katjsjev, aðstoðarríkissaksóknari Rússlands, sagði á fundi í fyrradag með lög- mönnum, saksóknurunum og lög- reglu að á milli 40 og 50 prósent brúttóþjóðarframleiðslunnar kæmu frá svartri efnahagsstarfsemi. Katjsjev bætti því við að um helm- ingur einkabanka landsins og um 40 prósent ríkisfyrirtækja væra undir stjórn glæpahópa. Efnahagsafbrot era einkum algeng í olíu-, gas-, kola- og málmiðnaðinum. „Ef okkur tekst ekki að stöðva svarta efnahagsstarfsemi og skapa siðmenntaðan markað getum við strokað út það markmið okkar að koma á velmegun í Rússlandi," sagði Skuratov. Efnahagsástandið í Rússlandi er verra nú en nokkru sinni eftir hrun stöðvamar til að koma í veg fyrir frekara blóðbað. Hinir gíslarnir voru frelsaðir." Þá kom fram í yfirlýsingunni að fjórði gíslinn hefði látist síðar í sjúkrahúsi af völdum sára sinna. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, sagðist ekki vera viss um að staðhæfingar jemenskra yfirvalda um að ráðist hefði verið gegn mann- ræningjunum eftir að þeir byrjuðu að drepa gísla sína væru réttar. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, lýsti yfir djúpri hryggð sinni yfir atburðunum. Hann sagði að breskum þegnum væri nú ráðið frá því að ferðast til Jemens nema brýn nauðsyn krefðist þess og að allir Bretar sem væra í landinu væra hvattir til að hafa sig á brott hið fyrsta. hverfa Júríj Skuratov, ríkissaksóknari Rússlands. Símamynd Reuter Sovétríkjanna. Gengið var fellt í ágúst síðastliðnum og afborganir af lánum voru stöðvaðar. Erlendir lán- ardrottnar hafa stöðvað efnahagsað- stoð sína við Rússland. Kosningar á Grænlandi Jonathan Motzfeldt, formaður grænlensku heimastjórnarinnar, boðaði I gær til þingkosninga 16. febrúar næstkomandi. Elizabeth í framboð Elizabeth Dole, eiginkona Ro- berts Dole, fyrrverandi forseta- frambjóöanda í Bandaríkjunum, íhugar að bjóða sig fram til forseta- kosninga árið 2000. Meiri ríkisafskipti John Prescott, aðstoðarforsætis- ráðherra Bretlands, boðaði í gær meiri afskipti rík- isins af efnahags- málum í kjölfar afsagnar ráðherr- ans Peters Mand- elsons. Mandelson var arkitekt nú- tímavæðingar breska Verkamannaflokksins. Prescott var aldrei hrifinn af stefnu Mandelsons og leyndi því ekki. Sameinuð eftir 80 ár Bresk systkini, sem voru aðskil- in í fyrri heimsstyijöldinni eftir að þau misstu foreldra sína, hafa nú sameinast á ný. Systkinin era 85 og 84 ára. Þorpsbúar í vígahug Hundruð vopnaðra íbúa í Acehhéraði í Indónesíu réðust á hermenn sem voru í fríi og drápu sjö þeirra. Neitað um sakaruppgjöf Norodom Sihanouk, konungur Kambódíu, sagði í morgun að hann myndi ekki veita fyrrverandi leið- togum rauðu khmeranna sakar- uppgjöf. Laus við krabbameinið Hussein Jórdaníukonungi er batnað af eitlakrabbameininu sem hann hefur þjáðst af. Hefur konung- urinn nú verið út- skrifaður af sjúkrahúsinu í Rochester í Minnesota þar sem hann var lagður inn 14. júlí síðastliðinn. Það var bróðir konungsins sem skýrði í gær frá bata hans. Fimm drepnir í Kosovo Fimm menn, allir af albönsku bergi brotnir að því er talið er, vora drepnir í nýjum átökum í Kosovohéraði í gær. Að sögn al- þjóölegra eftirlitsmanna er mikil spenna í héraðinu. írakar skutu fyrst Bandaríska landvamaráðuneyt- ið hefur gert opinbera myndbands- upptöku sem á að sanna að írakar urðu fyrri til að skjóta í átökunum yfir flugbannssvæðinu í norður- hluta íraks á mánudag. Netanyahu í basli Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, er í vandræðum með ráðherra sína. Einn hefur til- kynnt að hann ætli að bjóða sig fram gegn forsætisráðherranum í kosningunum í vor og tveir til við- bótar hafa gefið til kynna að þeir muni hætta aö styðja hann. Sæðið úr Anwar Efnafræðingxu' á vegum ríkis- stjómar Malasíu sagöi fyrir rétti í morgun að kyn- vessar sem fúnd- ust á dýnu væru úr Anwar Ibra- him, brottreknum fjármálaráðherra landsins, og eigin- konu fyrrverandi einkaritara hans. Einnig fundust vessar úr öðrum karlmanni og tveimur öðrum konum. Anwar hef- ur vísaö á bug öllum ásökunum um spillingu og samkynhneigð. Móðir Starrs látin Móðir Kenneths Starrs, sérlegs saksóknara í hneykslismálum Hvíta hússins, lést á heimili sínu í Texas á sunnudag. Hún var 91 árs. Um áramót er venjan aö verslunareigendur telji birgðir sínar. Sú hefö nær greinilega líka til dýragaröa. Að minnsta kosti voru starfsmenn Hagenbeck-dýragarösins í Hamborg í óöaönn aö telja dýrin sín og mæla í gær þegar Ijós- myndari Reuters kom í heimsókn. Hér má sjá Dirk Stutzki mæla tennurnar á rostungnum Laföi Antje. Hagenbeck- dýragarðurinn er 150 ára og í einkaeign. Þar eru á þriöja þúsund dýr af 359 tegundum. Efnahagsglæpir í Rússlandi: Tugir milljarða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.