Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 13 Fréttir Sameining hluta KEA og Sölufélags A-Húnvetninga: Vildum helst sam- eina öll kaup- félög frá Borgar- nesi til Egilsstaða - segir Þórarinn E. Sveinsson, aöstoöarkaupfélagsstjóri KEA DV, Akureyri: „Það sem menn vildu helst sjá er sameining allra kaupfélaganna, al- veg frá Borgamesi austur um til Eg- ilsstaða, og margir hafa enn ekki af- skrifað þann möguleika enn þá. Enn sem komið er eru það hins vegar bara Húnvetningar sem hafa tekið þessu jákvætt," segir Þórarinn E. Sveinsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga, um hugsan- lega sameiningu kaupfélaga á lands- byggðinni. Þórarinn segir að nú standi yfir vinna varðandi sameiningu afurða- framleiðslu Kaupfélags Eyfirðinga og Sölufélags A-Húnvetninga en sölufélagið sér um ákveðna þætti í starfsemi Kaupfélags A-Húnvetn- inga og er reyndar rekið sem sjálf- stæð eining. „Menn eru að reikna og vinna áætlanir um hvemig þessi sameiginlegi rekstur kemur til með að líta út og tíminn fram að aðal- fundum félaganna verður nýttur til að skoða þetta og undirbúa málið. Með sameiningu sjá menn ýmsa kosti, s.s. betri nýtingu á yfirstjóm- un og hagræðingu á öllum sviðum og í framtíðinni gáfulegri fjárfest- ingarstefnu sem fylgir því að það séu ekki allir að vinna sömu verkin. Þetta er auðvitað ferli sem menn hafa séð fyrir sér í nokkum tíma og það sem öðru fremur ýtir undir þetta er ekki hvað síst betri sam- göngur," segir Þórarinn. Það vekur óneitanlega athygli að Kaupfélag Skagfirðinga, sem er á svæðinu á milli þeirra tveggja aðila sem nú hyggjast sameinast, er ekki með í þessari sameiningu. Yfir- stjórn Kaupfélags Skagfirðinga mun ekki hafa sýnt málinu áhuga en þó em innan þess menn sem hafa virkilegar áhyggjur af þvi að KS skuli ekki vera með og telja að það þjóni ekki hagsmunum þeirra til Þórarinn E. Sveinsson, aðstoðar- kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfirð- inga. framtiðar. Það er t.d., bent á að ef mjólkurflutningar muni eiga sér stað milli Akureyrar og Blönduóss sé ekið í gegnum stórt landbúnaðar- hérað í Skagafirði og svo kunni að fara að einhverjir bændur þar sjái sér hag í því að versla við KEA og Sölufélag Húnvetninga. Fyrir liggur að um eins konar verkaskiptingu verði að ræða í hinu sameinaða félagi og hefur verið nefnt sem dæmi að auka vinnslu á mjólk á Akureyri og kjötvinnslu á Blönduósi þar sem er mjög gott sauðfjársláturhús. „Það verður auð- vitað einhver verkaskipting. Þetta snýst um að hagræða verkunum á milli fyrirtækja þannig að kostnað- ur náist niður við framleiðsluna og það hlýtur að leiða til tilflutnings bæði á mjólk og kjöti á milli staða,“ segir Þórarinn. -gk 20 prósenta samdráttur í hrossaútflutningi: Svíar vilja vindótt hross Um tvö þúsund hross verða flutt úr á árinu sem nú er brátt á enda. Er það fimmtungssamdrátt- ur frá fyrra ári. „Þetta er samt ótrúlega góður árangur, miðað við allt sem á gekk,“ sagði Hulda Geirsdóttir hjá Félagi hrossabænda. „Hrossa- sóttin stöðvaði allt í fjóra mánuði þannig að við getum vel við unað.“ Mestur samdráttur er á Þýska- landsmarkaði en Svíar skjótast nú upp í fyrsta sætið sem stærstu ■kaupendur íslenska hestsins í fyrsta sinn. „Þeir eru spenntastir fyrir vindóttu, skjóttu og svo mósóttu," sagði Hulda Geirsdóttir. -EIR Pizzakofinn ---------TILBOÐ — Takt’ana heim____________________ 14 16” pizzuveisla aðeins 990 m/4 áleggsteg. J_ Þú kaupir eina pizzu og hvítlauksbrauð og færð aðra pizzu í kaupbæti 15 Heimsend fjölskylduveisla 2x16” pizzur m/2 áleggsteg. 2I. gos og stór franskar í kaupbæti 2090 Fáð’ana heim_____________________ 16 16”pizzam/2áleggsteg. 2I. gos og mið franskar í kaupbæti 1390 17 16” pizza m/3 áleggsteg. og 12“ hvítlauksbrauð Tveir staðir Austurverí Háaleitisbraut 68 Amarbakki Breíðhoiti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.