Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 *mennmg *★★ 19 Að þekkja þurs frá mönnum Ljóðleikur Henriks Ibsen um æringjann Pétur Gaut hefur flogið víða um lönd frá fyrstu frumsýningu fyrir meira en 120 árum. Lifsmáti aðalpersónunnar hefur gjarnan sett mark sitt á uppsetningar verksins í þá veru að líkt og Gautur tekur sér algjört frelsi til þess að fara og vera það sem honum sýnist í lífinu, eins hafa leikhús- menn valið sér áherslur í þessu margræða verki, sem sjaldnast er sýnt í fullri lengd. Pétur Gautur er einstök persóna mögnuð upp í sagna- heimi. Hann er galgopi og heimspekingur í senn, tillits- laus sjarmör sem fær enga eftir- þanka þó að hann misnoti sitt fólk og það liggi í valnum eftir samskipttn við hann. Pétur heldur sína leið og stígur yfir líkin með bros á vör. Þó að hann beri víða á vegferð sinni, allt frá norskri sveit inn í myrka jötunheima og suður í ríki soldána, þá liggur leiðin að síðustu afhir heim. Og innst inni fjallar leikritið um leitina að sjálfum sér, kjaman- um, sem einhvers staðar hlýtur þrátt fyrir allt að leynast þegar hisminu hefúr verið svipt burt. Sveinn Einarsson leikstjóri lýsir þessari veg- ferð I leiftrandi skemmilegri sýningu þar sem ævintýrið er höndlað í eftir- minnilegum atriðum um leið og heimspekilegur grunnur verksins fær sitt rúm. Um nýja f verksins Helga Leiklist Auður Eydal þýðingu gerða af Hálfdanar- mér að vitna í orð leik- stjórans: hún er svo vel kveð- in, að eins og frum kveðið sé. Kristin Bredal kem- ur frá Noregi og hannar verkinu stilhreina umgjörð, sem bæði hækkar og víkkar sviö- ið í Samkomuhúsinu. Margar sviðs lausnimar voru snilldarlegar og væri hægt að skrifa um þær sér pistil. Næg- ir að nefna að þegar grindur á geð- veikrahæli renna burt stendur eftir borðstokkur skips fyrir næsta atriði með bylgjandi haf í bakgrunni, og það verður siðan svið fyrir „loft- mynd“ af drukknandi mönnrnn Ógleymanlegt. Lýsingin er óaðskiljanlegur hluti , leikmyndarinnar og búningar Huldu Kristínar Magnúsdóttur eru heilt æv- intýri út af fyrir sig, hvort sem það era hversdagsleg ígangsföt, afmán- arleg gervi fordæða og trölla eða glæsibúningar í soldáns höll. í þessari umgjörð koma fram leikarar þar sem fremst- ur fer Jakob Þór Einarsson í hlutverki Gauts. Textinn er firnamikill og í fyrri hlutanum reynir á fimi og þrek hins fjörmikla æringja. Jakob skilaði hlutverkinu með prýði og óx ásmegin eftir því sem á leið. Bestum tökum náði hann í lokin, þegar Gautur snýr heim á ný, saddur lífdaga. Þórann Magnea Magnúsdóttir vann hjörtu áhorf- enda í hlutverki Ásu móður hans, sem þarf að takast á við þá miklu mæðu að eiga þennan óútreiknanlega son. Þá túlkaði Pálína ekki síður hlutverk Sólveigar og gaf ________________því bæð dýpt og innileika. Og söng vel. Fjöldi leikara kemur fram og margir í fleiri en einu hlutverki. Of langt er að telja þá alla upp en , ---- allir skiluðu sínu vel, jafnt lærðir sem leikir, og heildar- svipur var ákaflega vel mótaður. Minnast má á Hákon Waage í hlutverki stúlku, nomar og prófessors og Þráin Karlsson, sem lék hlutverk hnapparans af inn- sæi og dýpt. Hljóðfæraleikaram- ir Daníel Þorsteinsson og Stefán Örn Amarson bættu enn einni vídd við þessa vönduðu og skemmti- legu sýningu á stórveldi Ib- sens. Leikfélag Akureyrar sýnir í Samkomuhúsinu: Pétur Gautur. Ljóðleikur eftir Henrik Ibsen Þýðing: Helgi Hálfdanarson Tónlist: Guðni Franzson og Edvard Grieg Dansar: Pálína Jónsdóttir Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir Lýsing og leikmynd: Kristin Bredal Leikstjórn: Sveinn Einarsson Jakob Þór Einarsson skilaði hlutverki Péturs Gauts með prýði og óx ásmegin eftir því sem á leið sýninguna. Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. janúar 1999 er 26. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 26 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.318,20 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1998 til 10. janúar 1999 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 12. janúar 1999. Reykjavík, 30. desember 1998 SEÐLABANKIÍSLANDS Á * \ A TT***«*. / \ /] f Risa-flugeWasýn,n9 R,S“atóaratm*lisanKR 3. januar W. á KR-ve"'num RISASKOTKÖKUR - VulcÁn Fyrir stórskotaliðið, 64-100 skot, öflugri en aðrar skotkökur. 9.000-16.000 KR. RISASKOTKÖKUR - PEKING Fyrir sprengjuliðið, 36-400 skot, kraftmiklar og ógnvekjandi. 9.000-23.000 kr. SKOTKÖKUR - \Á£cÁh Fyrir fjölskylduna, 19-140 skot, öflugar og traustar fyrir alla. 200-4.500 kr. SKOTKÖKUR - PEKING o.fl Fyrir tjölskylduna, 70-90 skot, sígildar sprengikökur. 500-1.500 kr. Afmælistertur Kveiktu á þessum! Söluborðin okkar svigna undan glæsilegum afmælistertum. Fagnaðu hundraðasta afmælisári KR með glæsibrag. Það er bjart fram- undan - nú tökum við þá í bakaríið! 'íg£§. Veglegir fjölskyldupakkar fyrir skotglaðar fjölskyldur Það eru skotgleraugu í öllum fjölskyldupökkunuml 7. Barnapakkinn 7.500 kr. 2. Sparipakkinn 2.500 kr. 3. Bæjarins besti 3.500 kr. 4. Nýr og stærri Trölli 6.500 kr. Nýjar risarakettur Tertutilboð 2.900 kr. Sími: 5115515 Sölustaðir • KR-heimilinu, Frostaskjóli • Bílasölunni Skeifunni 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.