Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Page 22
22
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
Minnisstæðustu atburðir á árinu 1998
Jón Kr. Gíslason:
Ferðin til Bosníu
er ót
„Þegar éífiít um öxl hvað wafu-
boltann varðar eru leikimir í Evr-
ópukeppninni ofarlega í minning-
unni. Að koma til þjóðcir eins og
Bosníu, sem er búin að standa í
stríði og er í sárum, verður mér
alltaf ógleymanleg. Hvað persónu-
lega þáttinn áhrærir það varð ég
fyrir áfalli i nóvember þegar ég
missti bróður minn. Fráfall hans,
sorgin og söknuðurinn mun koma
upp í huga manns yfir jólin. Annars
er nóg að gera í körfuboltanum og
ljóst að landsliðið situr ekki auðum
höndum. Liðið mun fara í forkeppni
í maí til að komast aftur inn í riðla-
keppni Evrópumótsins." -JKS
Jón Arnar Magnússon:
Verkefnin ærin
á næsta ári
„Sigurinn á mótinu í Talance var
mjög sætur og það er hiklaust mitt
stærsta afrek á árinu. Einnig var ár-
angurinn í Götzis góður en þar náði
ég þriðja sætinu. Verkefnin verða
ærin á næsta ári en þá verða tvö
heimsmeistaramót, innanhúss í Jap-
an í mars og utanhús í Sevilla í ágúst.
Stefhan verður að halda sínu striki,
æfingar ganga vel og ég lít bara björt-
um augum fram á veginn.“ -JKS
Arthur Bogason:
Stanslaus slagur
„Minnisstæðast er að hafa upplifað
það hversu mikið á skjön við alþjóð-
lega umræðu íslensk sjávarútvegs-
mál hafa þróast. Hér stöndum við í
stanslausum slagsmálum við að
verja réttindi þeirra veiðimanna sem
nota veigaminnstu veiðarfærin og
nýta auðlindina með sem hógværust-
um hætti. Á sama tíma eru fjölmarg-
ar þjóðir að liðka til og hvetja til
slíkrar útgerðar.
Batnandi þjóð er best að lifa og ég
trúi ekki öðru en sú þróun, að mest-
ur styrinn standi um strandveiði-
flotnann, snúist við og fiskveiðikerf-
inu verði breytt á þann veg að hvat-
ar verði settir inn fyrir þessa útgerð.
Þannig gætum við með sanni státað
af því á alþjóðavettvangi að vera fyr-
irmynd fiskveiðiþjóða." -rt
Örn Arnarson:
EM-titillinn
í Sheffield
„Sigurinn í 200 metra baksundinu
á Evrópumótinu í Sheffield stendur
að sjálfsögðu upp úr hjá mér. Nýja
árið leggst vel í mig og það verður
nóg að gera hjá mér. Mér sýnist í
fljótu bragði að ég keppi á einu móti
í hverjum mánuði frá janúar til
ágúst. Ég er tilbúinn í slaginn og
ætla að reyna mitt besta. Æfmgarn-
ar hjá mér ganga vel og ég er bara
bjartsýnn á framhaldið." -JKS
Alda Björk:
Hefur gengið vel
„Fyrsta smáskífulagið kom út í
ágúst og það gekk mjög vel. Ég söng
á Wembley og var það mjög spenn-
andi. Viðbrögð við plötunni hafa
verið mjög góð. Annað lagið mitt
kom út núna í desember. Þetta er
búið að ganga ótrúlega vel og er
náttúrlega mjög skemmtilegt.
Á næsta ári, í lok febrúar eða í
marsbyrjun, kemur stóra platan
mín út. Síðan kemur hún út í Japan
og allri Asíu og í Ameríku seinni
hluta næsta árs. Það verður rosa-
lega spennandi að sjá hvernig það
gengur. Ameríka og Japan eru nátt-
úrlega stærstu markaðirnir í
Gísli Gíslason:
Draumur rættist
„Á þessu viðburðaríka ári, sem er
að líða, gnæflr eitt mál yfir önnur
hvað mig varðar, en það er opnun
Hvalfjarðarganga. Við erum nokkrir
sem áttum okkur þennan draum og
byrjuðum að vinna í málinu fyrir um
10 árum og það er engu líkt þegar
draumar rætast - að ég tali nú ekki
um verkefni eins og Hvalfjarðargöng.
Nú styttist í aldamótin og ég held
að það sama eigi við nú og fyrir um
100 árum þegar Hannes Hafstein orti:
Starfið er margt, en eitt er bræðra-
bandið, / boðorðið, hvar sem þér i
fýlking standið, / hvemig sem striðið
þá og þá er blandið, / það er: Að elska,
byggja og treysta á landið.“ -SJ
Kolbrún Sverrisdóttir:
Barátta
fyrir réttlæti
„Baráttan fyrir því að ná fram
réttlæti hvað varðar Æsrma, þar sem
eiginmaður minn og faðir fórust, hef-
ur tekið mestan tíma minn og stend-
ur upp úr. Þá finnst mér kvótadóm-
ur Hæstaréttar vera mjög merkileg-
ur og vekur vonir um að böndum
verði komið á sægreifana.
Ég vona að það takist að ljúka
Æsumálinu fyrir dómstólum. Þá
vona ég að Sjóslysanefnd verði skap-
aður grundvöllur til óháðra rann-
sókna. Ég vænti þess einnig að Sigl-
ingastofnun standi sig betur en hing-
að til. Loks vona ég að árið verði öll-
um farsælt og góðærið skili sér líka
til öryrkja og gamalmenna." -rt
Guðjón A. Kristjánsson:
Endalaust nei
„Kjaradeilurnar á árinu eru
minnisstæðastar. Við sömdum ekki
um eitt einasta mál og fengum enda-
laust nei frá útgerðarmönnum.
Þetta endaði í lögum og frumvörp-
um og enn sér ekki fyrir endann á
því hvert það skilar okkur. Þá er
kvótadómur Hæstaréttar merkileg-
ur og mun seint gleymast.
„Ég bind vonir við að menn setj-
ist yfir kvótamálið í heild sinni og
skoði út frá þeim forsendum að rétt-
arstaða fólksins sem vinnur við
veiðar og vinnslu verði tryggð. Von-
andi tekst að gera sáttargjörð,
grundvallaða á byggðasjónarmiðum
og atvinnréttindum fólksins." -rt
Árni Johnsen:
Mannbjörg
„Mér er efst í huga mannbjörg sem
varð á Mardísi frá Vestmannaeyjum í
marslok. Skipveijamir tveir, sem eru
vinir mínir, urðu að yfirgefa bátinn
skammt utan Reykjaness og ég fýlgd-
ist grannt með björgunaraðgerðum
allan tímann," segir Ámi Johnsen
þingmaður. „Koma Keikós til Vest-
mannaeyja var líka skemmtilegur at-
burður. Það var svolítið sérkennilegt
að fýlgjast með því og dálítið út úr
kortinu ef svo má segja. Ég á ekki
von á öðra en að næsta ár verði gott
enda er góður taktur í þjóöfélaginu
um þessar mundir og margir hlutir á
réttri leið ef rétt er á haldið. “ aþ
Ögmundur Jónasson:
Hræringarnar eft-
irminnilegastar
„Hræringar á vettvangi stjórnmál-
anna eru mér eftirminnilegastar.
Þar á ég við stofnun Stefnu, félags
vinstrimanna, og atburði sem fyrir-
sjáanlegt er að munu leiða til þess
að vinstri menn og umhverfissinnar
fylki sér saman í nýjum stjórnmála-
flokki, Vinstrihreyfingunni - grænu
framboði.
Þegar horft er til framtíðar finnst
mér skipta miklu máli fyrir þróun
stjórnmála á íslandi hvernig til
tekst í komandi kosningum hjá
þessari nýju hreyfingu. Annars eru
aðstæður góðar til að taka ýmis
átakamál með þjóðinni til gagngerr-
ar endurskoðunar, kvótadómurinn
gefur þannig tilefni til að endur-
skoða stjórnkerfi fiskveiða og finnst
mér miklu máli skipta að okkur tak-
ist að treysta eignarhald þjóðarinn-
ar á auðlindum sjávar.“ -SJ
Flosi Helgason:
Strandamaðurinn
er rétt kominn
í gang
„Mér er minnisstæðust umönn-
un Sindra Snæs Einarssonar, 11
ára, sem kom til okkar á Lands-
spítalann í lok ágúst eftir að hafa
brennst illa á Eskifirði. Mér er það
einnig ofarlega í huga þegar ég og
konan mín, Friðbjörg Blöndal, trú-
lofuðum okkur um verslunar-
mannahelgina, á Arnarstapa á
Snæfellsnesi. Það var virkilega
gaman. Við vorum þá með tengda-
móður minni og höfðum ekið Hval-
fjörð á meðan engin umferð var
um þjóðveginn. Ég verð einnig að
nefna þann heiður sem mér var
sýndur þegar ég fékk viðurkenn-
ingu fyrir störf mín á Landsspítal-
anum í byrjun desember enda er
þetta stærsti vinnustaður lands-
ins,“ segir Flosi Helgason, vakt-
maður á Landspítalanum.
„En Strandamaðurinn er rétt
kominn í gang. Ég verð sterkari
eftir áramótin og mun halda
ótrauður áfram. Ég lít björtum
augum á næsta ár og mun reyna að
gera enn þá betur. Ég sendi öllum
mínum vinum og ættingjum jóla-
og nýárskveðju um land allt og ber
starfsfólki Landsspítalans sérstak-
ar þakkir fyrir góða samveru, sér-
staklega starfsfólki skurðstofu,
gjörgæslu, bamadeildar og vakt-
manna.“ -Ótt
Ásta Möller:
Samstaðan í
kjarabaráttunni
„Það sem er eftirminnilegast í mín-
um huga er vinna og árangur i kjara-
málum hjúkrunarfræðinga. Stéttin
brást við áralöngu launamisrétti með
uppsögnum og kom frábær samstaða á
meðal hjúkrunarfræðinga vel í ljós i
þeirri baráttu. Almenningur og fjölmiðl-
ar sýndu baráttunni einnig stuðning
sem var okkur mikils virði. Þá er ekki
síður gleðilegt hversu stefnumótunar-
vinna hjúkrunarfræðinga er augljóslega
farin að skila sér,“ segir Ásta Möller,
formaður Félags hjúkrunarfræðinga.
„Það er óumdeilt að hjúkrunarfræð-
ingar náðu verulegum kjarabótum á ár-
inu en enn er langt í land með að launa-
misrétti verði með öllu eytt. Þangað til
heldur baráttan áfram. -aþ
Kristinn H. Gunnarsson:
Pólitískt uppgjör
„Hvað mig sjálfan varðar verður
árið minnisstæðast vegna þess póli-
tíska uppgjörs míns að ganga úr Al-
þýðubandalaginu og ganga í nýjan
flokk í framhaldinu.
Það er að eiga sér stað mikil gerj-
un í pólitíkinni. A-flokkarnir verða
lagðir niður innan skamms og nýr
flokkur stofnaður, Kvennalistinn
mun lognast út af væntanlega og
kjósendur þurfa að raða sér upp á
nýtt. Min trú er sú að kjósendur
raði sér meira inn á miðjuna en ver-
ið hefur, en þróunin sem hafin er
mun taka nokkur ár. -gk
Elín R. Líndal:
Öfugþróun í
byggðamálum
„Sameining sveitarfélaganna í V-
Húnavatnssýslu og að hafa fengið tæki-
færi til að vinna að henni er minnis-
stæðast frá árinu sem senn er liðið. Það
var krefjandi en jafnframt gefandi starf
í jákvæðu umhverfi," segir Elin R. Lín-
dal, formaður sveitarstjómar í nýja
sveitarfélaginu í sýslunni. „Annað er að
öfúgþróun í byggðamálum hefur haldið
áfram og veldur kvíða. Varðandi næsta
ár hef ég þær væntingar að takist að
auka tiltrú fólks á landsbyggðinni og
stjómvöld snúi frá orðum til athafna í
byggðamálum því þannig mun okkur
famast betur sem heild“. -gk