Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
23
Fréttir
Kísilduftverksmiðjan til Noregs:
Gunguskapur
ráðuneytisins
- segir bæjarstjórinn á Húsavík
DV, Akureyri:
„Eg lýsi yfir sárum
vonbrigðum mínum
með gunguskap iðnað-
arráðuneytisins í þessu
máli, að þeim mögu-
leika aö koma kísil-
duftverksmiðju hingað
á svæðið skuli hafa
verið klúðrað," segir
Reinhard Reynisson,
bæjarstjóri á Húsavík,
en nú liggur fyrir að
bandarískt fyrirtæki,
sem hafði sýnt áhuga á
að hefja kisilduftfram-
leiðslu hér á landi, hef-
ur snúið sér til Noregs
með þau áform.
Bandaríska fyrirtækið sýndi því
m.a. áhuga að koma þessari fram-
leiðslu á fót hér á landi í tengslum
við Kísiliðjuna í Mývatnssveit og
átti viðræður við iðnaðarráðuneytið
þar að lútandi að sögn Reinhards.
„Samkvæmt þeim upplýsingum sem
ég hef fóru þessar viðræður fram en
ráðuneytið sleit þeim viðræðum og
stöðvaði þannig málið. Erlenda fyr-
irtækið horfir því nú til Noregs með
að reisa tilraunaverksmiðju þar,“
segir Reinhard.
Hann segir að ef það verði niður-
staðan að reist verði tilraunaverk-
smiðja í Noregi séu Þingeyingar
Reinhard Reynisson:
„Sár vonbrigði með
gunguskap ráðuneytis-
ins.“
endanlega búnir að
missa af þessum mögu-
leika. „Ef að þvl kæmi
að slík verksmiðja yrði
reist frá grunni í fram-
tíðinni hér á landi skilst
mér að Reykjanesið sé
talið hafa vinninginn
hvað varðar arðsemi en
augu þessara manna
höfðu beinst að þeim vél-
búnaði sem til er hér á
svæðinu í Kísiliðjunni
og ekki síður að þeirri
verkþekkingu sem er
fyrir hendi í Mývatns-
sveitinni. Þó ekki sé um
sömu vinnslu að ræða
og í Kísiliðjunni er um
svipað ferli að ræða sem
verið tilvalið að reyna að
hefði
nýta.“
Reinhard segist helst draga þá
ályktun að fyrst ráðuneytið sleit
þessum viðræðum sé verið að segja
að tryggja eigi framtíðarrekstur
Kísiliðjunnar. Hann segist hins veg-
ar líta svo á að kísilduftframleiðsla
í Mývatnssveit hefði ekki þurft að
hefta í neinu starfsemi Kísiliðjunn-
ar. Þetta tvennt hefði að sínu mati
getað styrkt hvað annað. „Vinnslu-
ferlin eru áþekk en kísilduftfram-
leiðslan er þó á hærra tæknistigi
eins og það er orðað af þeim sem til
þekkja" segir Reinhard. -gk
Norðurland:
Háskólinn á Akureyri
fékk Fjölmiðlabikarinn
DV, Akureyri:
Háskólinn á Akureyri hlaut fjöl-
miðlabikar Norðurlandsdeildar
Blaðamannafélags íslands sem af-
hentur var í fyrsta skipti i gær. Bik-
arinn hlaut Háskólinn á Akureyri
fyrir framlag sitt til byggðaáætlrm-
ar og fjarkennslu.
Sérstök nefnd innan Norður-
landsdeildar Blaðamannafélagsins
tilnefndi átta fyrirtæki og stofnanir
sem að mati nefndarinnar sköruðu
á einhvern hátt fram úr á yfirstand-
andi ári og kusu félagsmenn deild-
arinnar síðan milli þessara aðila.
Þeir aðilar aðrir en Háskólinn á
Akureyri sem hlutu tilnefningu
Gíróseðlar liggja frammi í
öllum bönkum, sparisjóðum
og á pósthúsum. Spl
Þú getur þakkað fyrir þitt hlutskipti
Gefum bágstöddum von
voru: Aldin á Húsavík fyrir nýjung-
ar í atvinnustarfsemi, Hestamanna-
félögin Funi og Léttir vegna skipu-
lags Landsmóts hestamanna, Hvala-
safnið á Húsavík vegna hvalasafns-
ins og uppbyggingar í ferðaþjón-
ustu, Kaupfélag Eyfirðinga vegna
skipulagsbreytinga og útþenslu-
stefnu, Landsbjörg vegna björgun-
arstarfa, sérstaklega þegar sleða-
menn frá Dalvík týndust, Verk-
menntaskólinn á Akureyri vegna
frumherjastarfs í fjarkennslu og
Vesturfarasetrið á Hofsósi vegna
framlags til varðveislu á sögu
landsins. -gk
Tískuverslunin
Smart
HÆTTU BARA!
__ _ PAÐ ER ENGINN VANDI
—
Valgeir Skagfjörð
Pétur Einarsson
Allen Carr's EASYWAY á Islandí.
Símar: 899 4094
898 6034 • 653 9690
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra kynnti nýlega bækling um mengun hafsins sem gefinn hefur verið út í til-
efni af ári hafsins 1998. Bæklingurinn, sem ber heitið Mengun á íslandsmiðum, fjallar um helstu uppsprettur meng-
unar, ástandið á íslandsmiðum og aðgerðir gegn mengun hafsins, jafnt heima fyrir sem og á alþjóðavettvangi.
Bæklingnum verður dreift í alla skóla landsins. DV-mynd Hilmar Þór
Betri nýting - meiri
sparnaður
Nýtt fyrirkomulag í sorphirðumálum
Frá og með áramótum verður tekinn upp nýr háttur á sorphirðu Reykvíkinga.
Innheimt verður sérstakt sorphirðugjald en á móti lækka fasteignagjöld
svo heildarálögur á borgarbúa hækka ekki.
Upphæð sorphirðugjaldsins verður kr. 6.000 á 240 1 tunnu sem tæmd er vikulega.
Þessi nýji háttur hefiir marga kosti í för með sér:
i/ Nú greiða borgarbúar aðeins fyrir þá þjónustu sem þeir nota.
✓ Haegt er að ná sparnaði með fækkvrn sorptunna.
y/ Tunnurnar má nýta betur með hirðusamlegri umgengni.
Minnka má rúmtak umbúða með því að rífa niður pappa og koma
sorpinu vel fyrir í tunnunum.
Dagblöð og samanbromar mjólkurfernur skal setja í sérstaka gáma.
Munið að grjót, garðaúrgangur, bylgjupappi, spilliefni og stærri
munir sem henda á, eiga ekki heima í almennum sorpílátum heldur
í endurvinnslustöðvum Sorpu.
Fyrstu tvo mánuðina
efitir upptöku sorphirðugjaldsins
má skila tunnum eða fá aukatunnur
án greiðslu flutningsgjalds.
Um mitt ár verður gerð tilraun með sorphirðu á 10 daga fresti í íbúðarhverfum í austurhluta
borgarinnar og mun sorphirðugjald lækka í þeim hverfum í kr. 5.500,- á ári.
Allar nánari upplýsingar veitir Hreinsunardeild gatnamálastjóra í síma 567 9600, fax 567 9605.
Kynningarbæklingi um efnið verður dreift til borgarbúa með fyrsta álagningarseðli.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Hreinsunardeild gatnamálastjóra