Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 24
24
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MIÐVTKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
25
Iþróttir
íþróttir
Enski boltinn:
Jafntefli
Tveir leikir voru i ensku A-deild-
inni í knattspymu í gærkvöld. í
Lundúmun gerðu Chelsea og
Manchester United markalaust jafn-
tefli og þar með missti Chelsea af
tækfærinu til aö skjótast í toppsætið.
Heimamenn voru betri aðilinn í fyrri
hálfleik og Norðmaðurinn Tore
Andre Flo fékk nokkur góð færi til að
skora. I þeim síðari jafnaðist leikur-
inn en leikmenn voru ekki á skot-
skónum. Gianfranco Zola var nálægt
þvi að tryggja Chelsea sigurinn en
Peter Schmeichel, markvörður
United, varði skot ítalans 10 mínút-
um fyrir leiklsok.
Á Elland Road gerðu Leeds United
og Wimbledon jafntefli, 2-2. Bruno
Ribeiro og David Hopkin gerðu
mörkin fyrir Leeds en Robbie Earle
og Carl skoruðu mörk Wimbledon
sem lenti tvívegis undir.
Villa á toppnum
Aston Villa er efst í deildinni með
39 stig, Chelsea 37, Manchester
United og Arsenal 35, Leeds 33 og
West Ham 32.
í 1. deildinni gerðu Norwich og
Watford 1-1 jafntefli og lék Jóhann
B. Guðmundsson með Watford.
Tvö jafntefli til viðbótar urðu í
leikjum kvöldsins því í skosku A-
deildinni skildu Aberdeen og
Motherwell jöfn, 1-1, og sama nið-
urstaða varð í leik St. Johnstone og
Dunfermline.
-GH
Örn Arnarson hampar
hér styttunni góðu sem
fylgir nafnbótinni
íþróttamaður ársins.
Ahendingin fór nú fram
í 43. sinn og er Örn
yngstur þeirra íþrótta-
manna sem hafa hlotið
þennan eftirsótta titil.
DV-mynd Teitur
Á myndinni eru sjö af íþróttamönnum sem höfnuðu í 10 efstu sætunum í kjöri íþróttamanns
ársins. Frá vinstri: Guðrún Arnardóttir, Þórður Guðjónsson, Ragnhildur Sigurðardóttir, Örn
Arnarson, Elva Rut Jónsdóttir, Rúnar Alexandersson og Jón Arnar Magnússon. Vala
Flosadóttir, Eyjólfur Sverrisson og Kristinn Björnsson, sem voru á 10 manna listanum, voru
ekki viðstödd afhendinguna. íþróttamennirnir 10 fengu allir glæsilegar bókagjafir frá Máli og
menningu og þau Örn, Jón Arnar og Vala, sem voru í þremur efstu sætunum, fengu
eignabikara.
DV-mynd Teitur
Örn Arnarson, íþróttamaður ársins 1998, er hér með föður
sfnum, Erni Ólafssyni, skömmu eftir að kjörinu hafði verið
lýst á Hótel Loftleiðum og á milli sín halda þeir á styttunni
eftirsóttu. DV-mynd Teitur
Kjör íþróttamanns
ársins 1998:
33 íþróttamenn
fengu atkvæði
1. Öm Amarson, SH, 322
2. Jón A. Magnússon, Tindastóli 313
3. Vala Flosadóttir, ÍR 219
4. Guörún Amardóttir, Ármanni 123
5. Kristinn Bjömsson, Leiftri 116
6. Þóröur Guöjónsson, Genk 95
7. Rúnar Alexandersson, Gerplu 69
8. Eyjólfur Sverrisson, H. Berlin 61
9. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 20
10. Elva Rut Jónsdóttir, Björk 14
11. Einar K. Hjartarson, ÍR 11
12. -13. Amar Sigurðsson, TK 10
12.-13. Sigurður Jónsson, Dundee Utd 10
14. Amar Gunnlaugsson, Bolton 10
15. -16. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar 8
15.-16. Ríkharður Daðason, Viking 8
17.-18. Herdis Sigurbergsdóttir, Stjömunni 7
17.-18. Pétur H. Marteinsson, Stabæk 7
19.-20. Guðmundur Stephensen, Víkingi 6
19.-20. Hlynur Stefánsson, ÍBV 6
21. Rúnar Kristinsson, Lilleström 5
22. Teitur örlygsson, Njarðvík 4
23. -25. Kristján Helgason, snóker 3
23.-25. Sveinn Sölvason, TBR 3
23.-25. Þórey Edda Elísdóttir, FH 3
26.-29. Birgir Leifur Hafþórsson, GL 2
26.-29. Jón Kristjánsson, Val 2
26.-29. Olga Færseth, KR 2
26.-29. Valdimar Grímsson, Wuppertal 2
30.-33. Ásthildur Helgadóttir, KR 1
30.-33. Broddi Kristjánsson, TBR 1
30.-33. Sigríður Þorláksdóttir, Breiðabliki 1
30.-33. Sigurður Valur Sveinsson, HK 1
Blcmd i
Jón Ásgrímsson, FH, setti í
gærkvöldi glæsilegt íslandsmet í
flokki unglinga þegar hann kastaði
karlakúlunni 17,09 m og bætti ís-
landsmetið um 50 sm. Jón hefur þá á
einum mánuði bætt unglingamet
Óskars Jakobssonar um 1,23 m,
Óskar kastaði 15,86 m árið 1975. Þessi
árangur Jóns er annar besti árangur
íslendings á þessu ári.
Jón er efnilegasti spjótkastari
landsins og var meðal annars ung-
lingameistari Noröurlanda í sumar,
hann bætti á árinu unglingametið í
spjótkasti um rúma 6 metra. Þá setti
Iris Svavarsdóttir, FH, telpnamet
13-14 ára i hástökki þegar hún stökk
1,64 m og bætti 23 ára gamalt telpna-
met írisar Jónsdóttur. lris sett i sum-
ar einnig telpnamet í hástökki utan-
húss þegar hún stökk 1,65 m. Má
vænta mikils af báðum þessum FH-
ingum í framtíðinni.
Hermann Meier frá Austurríki sigr-
aöi í bruni í heimsbikarkeppninni á
skíðum i gær en Austurríkismenn
voru mjög atkvæöamiklir og höfnuðu
í sex efstu sætunum. Fritz Strobl
varð annar og Stephan Eberharter
þriðji. Norðmaðurinn Lasse Kjus gat
ekki keppt vegna veikinda en engu að
síður er hann efstur í heildarstiga-
keppninni. Kjus er með 280 stig,
Herman Meier 210 og Werner
Franz, Austurríki, þriöji með 185
stig.
Ashley Ward gekk í gær í raðir
Blackbum en félagiö greiddi Bams-
ley um 500 milljónir fyrir þennan 28
ára gamla framherja. Ward fær
liklega sæti í byijunarliðinu enda
Chris Sutton frá vegna hnémeiösla
næstu 6 vikumar eftir að hafa meiöst
í leiknum gegn Aston Villa á
laugardaginn. -GH
Orn Arnarson
í þróttamaðu r
ársins 1998
- Jón Amar Magnússon í ööru sæti og Vala Flosadóttir í þriðja sæti
Örn Amarson, sundmaður úr
Sundfélagi Hafnarfjarðar, var í gær-
kvöld kjörinn íþróttmaður ársins
1998. Það era Samtök íþróttafrétta-
manna sem standa að kjörinu og
var þetta í 43. sinn sem það fer fram
en því var lýst í hófl á Hótel Loft-
leiðum. Öm er yngsti íþróttamaður-
inn sem kjörinn hefur verið íþrótta-
maður ársins en hann er aðeins 17
ára að aldri.
Þetta er í sjötta sinn sem sund-
maður er þess aðnjótandi að hreppa
þennan eftirsótta titil. Guðmundur
Gislason vann hann tvívegis, 1962
og 1969. Guðjón Guðmundsson var
kjörinn 1972, Eðvarð Þór Eðvarðs-
son 1986 og Ragnheiður Runólfsdótt-
ir 1991.
Það ár sem nú er að líða hefur
verið Erni mjög gjöfult. Frábær
ástundun hefur komið honum á
fremsta bekk sundmanna í Evrópu.
Árangur hans á Evrópumeistara-
mótinu innanhúss í Sheffield í þess-
um mánuði staðfestir það, auk
fjölda íslandsmeta sem hann setti á
árinu.
Öm varð á mótinu Evrópumeist-
ari í 200 metra baksundi og setti að
sjálfsögðu um leið nýtt glæsilegt ís-
landsmet. Öm hitti þar fyrir alla
bestu baksundsmenn Evrópu og
gerði þessi 17 ára Hafnfirðingur sér
lítið fyrir og sló þeim öllum ref fyr-
ir rass. Árangur þessa unga sund-
manns vakti að vonum mikla at-
hygli allra sundmanna í Evrópu
sem og annarra sem fylgjast með
sundinu að staðaldri. í þeim hópi
era íþróttafréttamenn og þeir sem
unnu á mótinu í Sheffield völdu Öm
efnilegasta sundmann ársins í Evr-
ópu.
Öm hafði áður getið sér gott orð
á mótum erlendis á meðal unglinga.
í Sheffield mætti hann sundmönn-
um sem hafa yfir að ráða mikilli
reynslu og era honum eldri. Öm
kom, sá og sigraði og munu eflaust
margir fylgjast spenntir með fram-
gangi hans á nýja árinu.
Ef fram vindur sem horflr á Örn
glæsta framtíð fyrir sér í sundinu.
Hann hefur allt til að bera til að
vera íþróttamaður í ffemstu röð.
Hann er hógværðin uppmáluð, góð
fyrirmynd unga fólksins og frábær
ástundun gefur ríkuiegan ávöxt.
Mikill heiður sýndur
„Þetta er tvímælalaust stærsti tit-
ill sem íþróttcunaður getur unnið á
fslandi og mér er með þessu sýndur
mikill heiður. Ég gerði mér ágætar
vonir um að krækja í þennan titil
eftir sem á undan er gengið. Ég held
að með þessari útnefningu verði
sundið á nýjan leik stór íþrótt á fs-
landi. Sundið er þegar í miklum
vexti í heimabæ mínum, Hafnar-
firði. Þar æfa nú yfir 200 einstak-
lingcir íþróttina. Það liggur mikil
vinna á bak við það að ná árangri
en það er þessi virði að mínu mati,“
sagði Öm Amarson, íþróttamaður
ársins, í samtali við DV eftir kjörið
í gærkvöld.
Þrír skólar boðið skólavist
Öm sagði við DV að þrír banda-
rískir skólar hefðu boðið sér skóla-
vist eftir árangurinn á Evrópumót-
inu.
„Ég ætla ekki utan heldur vera hér
á landi áfram og æfa af fullum krafti.
Mér líður vel að æfa á heimavelli og
borða matinn hjá mömmu. Ég ætla
að einbeita mér að sundinu á næst-
unni þannig að skólanum verður ýtt
til hliðar í bili,“ sagði Öm.
Öm hefur í nógu að snúast á
næstu misserum en honum hefur
verið boðin þátttaka á mörgum mót-
um í Evrópu á nýju ári.
-JKS
4. umferð Norðurlandamóts 16 ára í Hveragerði:
Stoltir þrátt
fyrir tapleik
- Finnar Norðurlandameistarar
Það munaði aðeins örlitlu að
Norðurlandameistaratitillinn yrði
íslendinga í gær. Finnar höfðu
betur, 70-74, eftir að fsland hafði
leitt með 10 stigum, 42-32, í leik-
hléi og haft forustuna mestan
hluta þessa æsispennandi leiks.
Finnar höfðu meiri kraft i lokin
og tryggðu sér sigurinn með góð-
um lokakafla en þeir fengu líka
góðan stuðning norska dómarans
sem dæmdi óíþróttamannslega
villu á óskiljanlegan hátt 15 sek-
úndum fyrir leikslok. Það slökkti
vonina í örþreyttum íslenskum
leikmönnum sem höfðu annars átt
frábæran leik og gátu gengið stolt-
ir af velli þrátt fyrir tapleik.
Frábær árangur
Annað sætið á Norðurlanda-
móti er frábær árangur og tilburð-
ir íslenska liðsins fengu oft fjöl-
marga áhorfendur í Hveragerði til
að rísa úr sætum í gær. Finnar
era með mikla breidd sem skilaði
þeim Norðurlandameistaratitlin-
um að þessu sinni en framlag Jóns
Arnórs Stefánssonar, sem nú spil-
ar i háskóla í Bandaríkjunum við
góðan orðstír, hefði reynst dijúgt í
þessum leik. Án þess að draga
neitt úr framlagi þeirra stráka
sem stóðu sig svo frábærlega á
þessu móti er ekki hægt annað að
láta sig dreyma um hitt en Jón
Arnór hefúr tvisvar verið valinn
leikmaður mótsins í þessum ár-
gangi á Norðurlandamóti félags-
liða. ísland er með frábært fimm
manna byrjunarlið en það fékk að-
eins 17 mínútna hvíld (framlag frá
bekk) í leiknum í gær sem fór að
telja á erfiðum lokamínútum.
Hlynur Bæringsson, sem tók 17
fráköst, gerði 16 stig og gaf 5
stoðsendingar. Ólafur Sigurðsson
og Jakob Sigurðarson fóra fyrir ís-
lenska liðinu í gær.
Hlynur með flest fráköst
Þessi 17 fráköst Hlyns, en 12 af
þeim komu í fyrri hálfleik, skil-
uðu honum í efsta sætið yfir flest
fráköst á mótinu en Hlynur sem
leikur með Skallagrími í úrvals-
deildinni hefur tekið 13 að meðal-
tali í leikjunum fjórum. Jakob Sig-
urðarson hefur gert 20,5 stig að
meðaltali, mest íslendinga, og er
hann í 3. sæti í stigaskorun en
jafnframt því i öðru sæti í stolnum
boltum, á eftir félaga sínum Ólafi
Sigurðssyni sem hefur stolið 18
boltum í leikjunum fjórum. Ólafur
er hæstur Islendinga í stoðsend-
ingum í 5. sæti með 4,3 í leik.
Stig íslendinga gegn Finnum: Jakob
Sigurðarson 18, Hlynur Bæringsson 16,
Ólafur Sigurðsson 14, Helgi Margeirs-
son 10, Hreggviður Magnússon 8, Helgi
Magnússon 4.
Úrslit hinna leikjanna í gær:
Danmörk-írland.............79-60
Svíþjóð-Noregur............103-63
Staðan þegar ein umferð er eftir:
Finnland 4 4 0 +61 8
ísland 4 3 1 +50 7
Danmörk 4 2 2 +7 6
Svíþjóð 4 1 3 +8 5
Irland 4 1 3 -35 5
Noregiu- 4 1 3 -91 5
-ÓÓJ
Örn 4. á heimslistanum
Á nýútkomnum lista, sem Alþjóða sundsambandið hefur gefið út, er Öm
Amarson í 4. sæti á heimslistanum í 200 metra baksundi í 25 metra laug og
í 10. sæti í 100 metra baksundinu. Listinn gildir ffá 1. júní 1997 til 31. maí
1998. -GH
i ARAMÓtAGJÖF
I FramaransT
Hlutabréf í Fram - Fótboltafélagi Reykjavíkur hf.
eru tilvalin gjöf fyrir alla velunnara félagsins.
Bréfin veita rétttil skattaafsláttar. Greiiba má
me& bo6~ eba ra&grei6s]usamningum VISA og
Eurocard. Einnig veitir Landsbanki Islands,
Múlaútibú, lán til kaupa á hlutabréfunum.
Sölua&ilar hlutabréfanna eru Kaupþing hf. og
Verbbréfastofan hf. Avísun á hlutabréf eru til
afgreibslu hjá söluabilum.
Fram óskar landsmönnum öllum
Velfarnabar á nýju áril
FÓTBOltAFELAG
REykjAVÍkUR kf