Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Qupperneq 28
28
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
Mimússtæðustu atburðir á árinu 1998 dv
Vala Flosadóttir:
Heimsmetin tvö
í stangarstökki
„Mér er minnistæðast heimsmet-
in tvö í stangarstökki sem ég setti á
árinu. Þetta var reynsluríkt ár. Það
gekk allt í haginn hjá mér innan-
húss en sumarið reyndist mér erfið-
ara.
Ég vona að á nýju ári verði ég
bæði frísk og heil og nái að öðlast
enn meiri reynslu og bæta mig í
íþróttinni. Þetta verður stórt ár
enda heimsmeistaramót bæði inn-
anhúss og utanhúss." -GH
Arnar Gunnlaugsson:
Endurheimti
landsliðssætið
„Mér er efst í huga að ég náði að
vinna mér sæti í landsliðinu að nýju
og tók þátt í velgengni landsliðsins.
Fyrri part ársins gekk ekki nógu vel
hjá Bolton. Liðið féll úr úrvalsdeild-
inni en það hefur gengið vel hjá mér
seinni hlutann á árinu og það er
mér er auðvitað ofarlega í huga.
Ég vona að að velgengnin haldi
áfram á nýju ári og að Bolton vinni
sér sæti í úrvalsdeildinni. Þá vona
ég að landsliðið fylgi eftir þeim góða
árangri sem það hefur náð á þesssu
ári.“ -GH
Sigurður Sveinsson:
Vinna titilinn
með HK
„Þetta var gott íþróttaár á flestum
sviðum og mér er efst í huga frábær
frammistaða Jóns Arnars í frjáls-
um, Kristins á skíðunum og Arnar í
sundinu. Hvað varðar handboltann
þá voru mikil vonbriði með lands-
liðið að það skyldi ekki tryggja sér
sæti á HM og þar kenni ég klaufa-
skap um.
Ég vona aö ég og mínir menn í
HK vinnum Islandsmeistaratitilinn
í handboltanum á nýju ári. Við
þurfum að koma handboltalandslið-
inu á þann stall sem það á heima og
ég vona að frjálsíþróttamennnimir
og knattspyrnulandsliðið haldi
áfram að gera góða hluti sem og
Kristinn skíðakappi og Öm sund-
maður.“ -GH
Kristinn Björnsson:
Annað sætið í
Veysonnaz
„Hjá mér stendur uppúr heimsbik-
armótið í Veysonnaz í Sviss í janúar
þar sem ég náði öðm sætinu. Það var
geysilega mikilvægt fyrir mig upp á
framhaldið í heimsbikamum. Að
öðm leyti er heimsmeistarakeppnin í
knattspymu minnisstæðust frá árinu
en ég var mjög ósáttur við niðurstöð-
una þar því mínir menn, Þjóðveijar,
fóm halloka.
Fyrstu mánuðir komandi árs verða
mjög strangir hjá mér og ég vona fyrst
og fremst að ég verði heill heilsu og í
góðu formi. í janúar era fjögur heims-
bikarmót og síðan er heimsmeistara-
mótið í Colorado og stefnan er að
standa sig sem best.“ -VS
Bjarni Bjarnason:
Annasamt ár
„Árið hefur verið gríðarlega
annasamt. Það jákvæðasta var
ákvörðun um að stækka verksmiðj-
una og byggja nýjan ofn sem er mik-
ið verkefni," segir Bjarni Bjarna-
son, forstjóri íslenska járnblendifé-
lagsins á Gmndartanga.
„Það erfiða á árinu var hins veg-
ar að þurfa að lenda í því að loka
tímabundið verksmiðju sem verið
er að stækka og byggjá upp. Á
næsta ári hlakka ég til að hafa þá
erfiðleika að baki og geta tekist á
við það spenandi verkefni að koma
nýja ofhinum í gagnið og þær breyt-
ingar i fyrirtækinu sem af stækkun
leiða.“ -gk
Sverrir Hermannsson:
Landsbanka-
farganið
„Landsbankafarganið er minnis-
stæðast," segir Sverrir Hermanns-
son, stofnandi Frjálslynda flokksins
og fráfarandi bankastjóri Lands-
banka Islands um minnisstæðustu
atburði ársins sem er að líða.
„Ég vona að íslenska þjóðin nái
áttum á komandi ári og hrindi frá
völdum frjálshyggjunni og attani-
ossum hennar." -rt
Snorri Björn
„ Sigurðsson:
Ogleymanleg
Taílandsferð
„Hvað mig snertir persónulega
verður án efa ógleymanlegust frá ár-
inu ferð sem ég fór til Taílands til
að heimsækja dóttur mína en þar
dvaldi ég í mánuð, ég á varla eftir
að upplifa neitt slíkt aftur,“ segir
Snorri Björn Sigurðsson, bæjar-
stjóri í Skagafirði.
„Sameining 11 sveitarfélaga í
Skagafirði er líka nokkuð sem ekki
mun gleymast. Málaferli vegna sam-
einingarkosninganna voru mjög
leiðinleg og lauk ekki fyrr en með
dómi Hæstaréttar og ég neita því
ekki að sú niðurstaða sem þar
fékkst var mjög ánægjuleg.
Á næsta ári geri ég mér vonir um
að breyting verði á hinni óheilla-
vænlegu íbúaþróun sem átt hefur
sér stað á landsbyggðinni. Ég vona
að við höfum náð botninum hvað
þetta varðar og landsbyggðin fari að
rétta sinn hlut að nýju.“ -gk
Thor Vilhjálmsson
Andlát tveggja
stórmenna
„Það snart alla okkar þjóð þegar
forsetafrúin okkar, Guðrún Katrín,
féll frá sem hafði borið svo hátt okk-
ar sameiginlega merki með sínum
töfrum, látleysi og ljúfmennsku.
Hitt var fyrirsjáanlegra að Halldór
Laxness kveddi þennan heim og þaö
finnur hver maður á sjálfum sér í
hug og hjarta hver hann var okkur
og verður um alla tíð. Þá vil ég láta
glitta í fognuðinn þegar mér tókst
að ljúka þeirri smíð sem ég fékkst
við um hríð, að koma saman Morg-
unþulu í stráum. Einnig vil ég
minnast þess þegar allur þingheim-
ur í Háskólabíói fullskipuðu reis og
fagnaði erindi Guðmundar P. Ólafs-
sonar til þess að vekja okkur til að
standa vörð svo við týnum ekki
þeim náttúrudjásnum sem við eig-
um og allan heiminn varða og ég
vona að það sé vitni um breytt við-
horf og allsherjarvakningu." -SÁ
Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson:
Fráfall Halldórs
Laxness
„Minnistæðasti atburður ársins að
mínu mati er án efa fráfall Halldórs
Laxness. Ég veit að þessa árs mun
ávallt verða minnst fyrir þann at-
burð. Hvað mig varðar stendur það
upp úr að ég var kosinn formaður Rit-
höfundasambandsins, sem markaði
ákveðna breytingu í minu lífi á árinu.
Ég vænti þess að næsta ár verði
gott og gjöfult. Ég vona jafnframt að
árið 1999 verði ekki einungis undir-
búningsár fyrir árið 2000 og menn
setji ekki strax í einhvern ákveðinn
gir fyrir aldamótin. Ég vona að mönn-
um takist að halda ró sinni þrátt fyr-
ir hin væntanlegu tímamót." -KJA
Kristján Þór Júlíusson:
Nýr starfsvett-
vangur
„Fyrir mig persónulega ber
hæst á árinu að skipta um starfs-
vettvang og flytja með fjölskyld-
una til Akureyrar," segir Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri.
„I sveitarstjórnarmálunum ber
aðdraganda kosninganna hæst,
þar var unnið gott og mikið starf
og uppskeran varð eins og til var
sáð. I landsmálunum er sterk
staða ríkisstjórnarinnar undir öfl-
ugri forustu Davíðs Oddssonar og
staða landsmálanna tekur mið af
því. Miklar umræður um fisk-
veiðistjórnarkerfið hafa sett mark
sitt á þjóðfélagið og munu gera
áfram, og þá hefur geysileg vinna
verið lögð í gagnagrunnsfrum-
varpið. Annað sem er ofarlega í
hugum fólks er að línur milli suð-
vesturhorns landsins og lands-
byggðarinnar era skarpari en ver-
ið hefur sem endurspeglast á
margan hátt í umræðunni um
helstu landsmálin." -gk
Indriði Þorláksson:
Tek við heillandi
starfi
„Á því sviði sem ég starfa hefur yf-
irstandandi ár ekki verið mjög við-
burðaríkt. Engin stórmál hafa verið
í gangi og árið í heild rólegra en oft
áður,“ segir Indriði Þorláksson í fjár-
málaráðuneytinu og verðandi ríkis-
skattstjóri.
„Árið hefur þó verið mjög ánægju-
legt á margan hátt og ánægjuleg þró-
un í mörgum málaflokkum. Innan
skamms hætti ég störfum í ráðuneyt-
inu eftir langan starfsferil þar og
mim kveðja með söknuði, hér hefur
verið góður tími þrátt fyrir svipting-
ar oft á tíðum. Ég er að fara að taka
við heillandi starfi í stofnun sem
gegnir mjög mikilvægu hlutverki og
þar bíða verkefni sem eru ögrandi og
gaman verður að takast á við.“ -gk
Árni Sigfússon:
Slagur sem
endaði illa
„Borgarstjómarkosningamar era
mér minnisstæðastar frá árinu sem
er að líða. Það var slagur sem
lyktaði ekki eins og ég vildi. Jafn-
framt stendur upp úr í því sam-
bandi að mín varnaðarorð um raun-
verulegan halla á rekstri borgarinn-
ar og lausnir R-listans á þeim
vandamálum í formi skattahækk-
ana reyndust sönn. I raun kom
þessi vandræðagangur fym í ljós en
ég hafði búist við. En því miður
gerðist það þó ekki nógu snemma,
því R-listanum tókst að fela ástand-
ið fram yfir kosningar. Á næsta ári
vænti ég áframhaldandi góðæris og
spamaði hjá almenningi sem mun
viðhalda góðærinu. Ég vænti jafn-
framt endurnýjaðs umboðs ríkis-
stjómarinnar og góðrar heilsu og
hamingju minna nánustu." -KJA
Undur oq stormerkl... + + 5 -+ ' -+
www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR