Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Side 33
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 33 Fréttir Áramótabrennur 1998 Valhúsahæð kl. 21 % ' # V 4 ■ Mm Ægislöa kl. ki mjsmiíffi Laugarásvegur kl. 21.30 Skildinganes kl. 21 Vatnsmýri kl. 20.30 áf Við Strandveg kl. 21 Gelrsnef k# SS|kl. 20.45 Suðurhlíðar kl. 20.30 Fylkisvöllur Ártúnsholt kl. 20.30 kl. 20.30 ifii Kópavogsvöllur kl. 20.30 Vestan Breiðumýrar kl. 21 fíl®! Hafnarfjörður Suðurhöfn kl. 20 Við Arnarvog, vestan Sjávargrundar Leirubakki kl. 21 m Áramótabrennur víða á höfuðborgarsvæðinu: Aðgát í fyrirrúmi Aö venju veröur nóg af brenn- um á gamlárskvöld. Undirbúning- ur þeirra fer nú senn að hefjast en leyfilegt var að byrja að safna í bálköst í gær. Skarphéðinn Njáls- son, varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir mikilvægt að fólk hafi aðgát í fyrirrúmi í öllu sem við kemur brennum. Hann segir nauðsynlegt að fólk hafi ekki flugelda meðferðis í nánd við brennuna og hvatt sé til þess að fólk skilji áfengi eftir heima þegar það heldur á brennu. Mikilvægt er að þeir sem ætla sér að hlaða bálköstinn fylgi leiðbeiningum frá lögreglu og slökkviliði um hvers kyns efni má fara í brenn- una. Ekki má hafa nein gúmmí- efni, svo sem dekk eða plast. Og alls ekki má nota pappír eða ann- að eldfimt efni sem fokið getur úr brennunni. Þá brýnir lögreglan fyrir umsjónarmönnum brenna að nota ekki mjög eidfima vökva til þess að kveikja í með. Nokkur breyting hefur orðið á brennustöðum firá síðasta ári. í Grafarvogi er ein brenna í stað tveggja í fyrra. Sú brenna verður við Strandveg í Grafarvogi. í Hafnarfirði verður sú nýbreytni að brennan verður í uppfyllingu við Suðurhöfnina en Haukar og FH standa sameiginlega að þeirri brennu en ekki hvort í sínu lagi eins og áður. Lögreglan vill koma því á framfæri að bílastæði fyrir gesti verða á Suðurbakka. í Garðabæ verður brenna við Arn- arvog vestan Sjávargrundar en blysför verður frá Stjörnuheimili og bílastæði þar og í Flataskóla. Og á Álftanesi verður brennan á Bökkum vestan Breiðumýrar en ekki í Tröð eins og undanfarin ár. -hb JÍAN^ Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000 GKR. 1979-1.fl. 25.02.99 kr. 7.827,10 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00 1981-l.fl. 1986-l.fl. B 1989-1.fl. A 2,5 ár 25.01.99- 25.01.00 10.01.99 - 10.07.99 10.01.99- 10.01.00 kr. 289.005,30 kr. 26.591.00 kr. 23.746,90 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 30. desember 1998 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.