Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Qupperneq 40
4- 40
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
Afmæli
Stefán Aðalsteinsson
Stefán Aðalsteinsson, fyrrv. búfjár-
fræðingur og tölfræðingur, Suður-
götu 24, Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist á Vaðbrekku i Jök-
uldalshreppi en ólst upp í Hrafnkels-
dal á Jökuldal.
Stefán lauk stúdentsprófi frá MA
1950, búfræðiprófi frá Bændaskólan-
um á Hólum 1951, var við verknám
við landbúnað i Noregi 1952, lauk bú-
fræðikandídatsprófi frá frá Land-
búnaðarháskólanum í Ási í Noregi
1955, stundaði framhaldsnám við ull-
arrannsóknir, tölfræði og kynbóta-
fræði við háskólana í Leeds, Edin-
borg og Cambridge 1956-57 og lauk
Ph.D.-prófi frá tölfræðideild Edin-
borgarháskóla 1969.
Stefán var aðstoðarmaöur við bún-
aðardeild Atvinnudeildar HÍ 1955-56
og sérfræðingur þar 1957-70, deildar-
stjóri búfjárdeildar Rannsóknarstofn-
unar landbúnaðarins 1970-91, ullar-
matsformaður hjá landbúnaðarráðu-
neyti 1960-86, ritstjóri Búnaðarblaðs-
ins 1962-66, stundakennari við fram-
haldsdeild Bændaskólans á Hvann-
eyri 1969-70 og 1971-72, við Tækni-
skóla íslands 1971-74 og við verk- og
raunvísindadeild HÍ 1971-85, og við
læknadeild HÍ 1976-86, töl-
fræðiráðgjafi hjá Krabba-
meinsfélagi Islands
1985-87 Og 1990-91, og
framkvæmdastjóri Nor-
ræns genabanka fyrir bú-
fé 1991-96.
Stefán var formaður Fé-
lags íslenskra náttúru-
fræðinga 1969-70, formað-
ur Félags íslenskra bú-
fræðikandídata 1969-71,
sat í Tilraunaráði land-
búnaðarins 1970-86 og for-
maður þess 1974r-86, í
Rannsóknarráði ríkisins 1987-91 og
var forseti Vísindafélags íslendinga
um skeið frá 1990. Þá hefur hann ver-
ið félagi í The Biometric Society, í
The American Genetic Association,
The British Society of Animal Prod-
uction, í Rotaryklúbbnum Reykjavík-
Breiðholt frá 1983 og forseti hans
1985-86.
Meðal ritverka Stefáns má nefna
doktorsritgerð hans, Colour inherit-
ance in Icelandic sheep and relation
between colour, fertility and fertil-
ization, í ritinu íslenskar landbúnað-
arrannsóknir, 1970, og ritin Sauð-
kindin, landið og þjóðin, 1981; Hús-
dýrin okkar, 1982; Fuglarnir okkar,
1987; Islenski hesturinn - Litafbrigði,
ásamt Friðþjófi Þorkels-
syni, 1991, auk fjölda rit-
gerða um fræðilegt efni í
innlend og erlend tímarit.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 2.10. 1954
Ellen Sætre, f. 3.2. 1935,
húsmóður og verslunar-
stjóra. Hún er dóttir
Karsten Ingvald Sætre, f.
7.2.1900, d. 8.5. 1973, húsa-
smíðameistara í Oppegárd
í Noregi, og k.h., Signe
Kristine Sætre, f. 24.12.
1900, d. 11.11. 1967, verslunarstjóra.
Stefán og Ellen skildu.
Böm Stefáns og Ellen eru Gunnar,
f. 9.8. 1955, tölfræðingur, Ph.D. frá
Ohio State University, aðstoðarfor-
stjóri Hafrannsóknastofnunar,
kvæntur Kristínu Rafnar, hagfræð-
ingi og starfsmannastjóra við Lands-
banka íslands og eru börn þeirra
Bjami, f. 17.6.1981, og Stefán Bjöm, f.
12.4. 1988; Ragnar, f. 17.10. 1957,
myndlistarmaður og BA í sálfræði,
nú í kandídatsnámi í sálfræði í Árós-
um, kvæntur írisi Elvu Friðriksdótt-
ir myndlistarmanni og em böm
þeirra Sóley, f. 15.12.1991, Bergsteinn
Gauti, f. 10.6. 1993, og Axel Logi, f.
13.8. 1996; Stefán Einar, f. 23.4. 1963,
líffræðingur, Ph.D. frá University of
Toronto, sérfræðingur hjá íslenskri
erfðagreiningu en unnusta hans er
Ranie Sahadeo frá Kanada; Kjartan,
f. 2.6.1964, stærðfræðingur, tölvunar-
fræðingur, Ph.D. frá Cornell Uni-
versity, sérfræðingur hjá Caliper
Corporation í Boston við hugbúnað-
arhönnun fyrir landupplýsingakerfi;
Halldór Narfi, f. 6.10 1971, stærðfræð-
ingur og tölvunarfræðingur, nú í
doktorsnámi við University of
Wisconsin, Madison, en sambýlis-
kona hans er Masako Atake tungu-
málakennari, nú í MA-námi í
japönsku við University of Wiscons-
in-Madison.
Systkini Stefáns: Guðrún, f. 25.5.
1923, matráðskona; Jóhanna, f. 15.8.
1924, gæslukona; Guðlaug Ingibjörg,
f. 18.8. 1925, d. 21.12. 1991, verkakona;
Jón Hnefill, f. 29.3.1927, prófessor við
HÍ; Sigrún, f. 29.7. 1930, húsvörður;
Aðalsteinn, f. 26.2. 1932, bóndi; Ragn-
hildur, f. 3.3. 1933, d. 1939; Hákon, f.
13.7. 1935, skógarbóndi; Ragnar Ingi,
f. 15.1. 1944, kennari.
Foreldrar Stefáns voru Aðalsteinn
Jónsson, f. 6.12. 1895, d. 3.2. 1983,
bóndi, og k.h., Ingibjörg Jónsdóttir, f.
10.3. 1901, d. 17.12. 1987, húsfreyja.
Stefán verður erlendis á afmælis-
daginn.
Stefán
Aðalsteinsson.
Franch B. Michelsen
Franch Michelsen úrsmíðameist-
ari, Stóragerði 8, (áður Álftamýri 65),
verður áttatíu og fimm ára á gaml-
ársdag.
Starfsferill
Franch fæddist á Sauðárkróki og
ólst þar upp. Hann lauk prófi frá
Unglingaskóla Sauðárkróks 1931, Iðn-
skólanum í Reykjavík 1936, lærði úr-
smíði hjá fóður sínum 1929-34, stund-
aði nám á danska úrsmiðaskólanum
1938-39 og lauk sveinsprófi í úrsmíði
við Den Danske Urmagerskole
Teknologisk Institut 1 Kaupmanna-
höfn 1939, sótti endurmenntunar-
námskeið í Sviss 1978 í elektronísk-
um úrum og stóð fyrir sliku nám-
skeiði hér á landi 1981 og hefur auk
þess tekið þátt í nokkrum endur-
menntunarnámskeiðum í Reykjavík
og Sviss.
Franch var úrsmiðasveinn hjá foð-
ur sínum 1934-35 og 1936-37, hjá
Guðna A. Jónssyni í Reykjavík
1935-36, hjá Axel Hansen í Kaup-
mannahöfn 1937-38 og hjá Carl
Jonsén, konunglegum hirðúrsmið, í
Kaupmannahöfn 1939-40.
Hann rak eigin úrsmiðavinnustofu
á Sauðárkróki 1940-43 og síðan í
Reykjavík og hefur verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins Franch
Michelsen hf. frá stofnun 1943.
Franch var einn af stofnendum Tó-
baksbindindisfélags Sauðárkróks
1929 og ritari þess 1935, stofnaði Frí-
merkjasafnarafélagið ísland 1936 og
sat síðar í stjórn Félags frímerkja-
safnara í Reykjavík, einn af stofnend-
um Iðnaðarmannafélags Sauðár-
króks 1942, var einn af stofnendum
Víkings, félags ungra sjálfstæðis-
manna á Sauðárkróki og einn af
stofnendum Félags ungra sjálfstæðis-
manna í Skagafirði, er í fulltrúaráði
sjálfstæðismanna í Reykjavík og hef-
ur verið fulltrúi á landsfundum
flokksins, starfaði í fimm ár í
stúkunni Gleym mér eigi, nr. 35 á
Sauðárkróki, sat i mörg ár í stjórn
Umf. Tindastóls, hefur setið í stjórn
Almenns stofnlánasjóðs Kaupmanna-
samtaka Islands frá 1974, þar af vara-
formaður 1980-87 og formaður
1987-89 og setið í fulltrúaráði Kaup-
mannasamtaka íslands, lengst af frá
1976.
Franch iðkaöi frjálsíþróttir af
kappi á sínum yngri árum og keppti
þá m.a. í hlaupum og glímu.
Franch var einn af stofnendum
skátafélagsins Andvarar á Sauðár-
króki 1929 og varð foringi þess 1931,
stofnaði skátafélögin Fálkar í Staðar-
hreppi og Fjallbúar á Hofsósi 1934,
var skátaforingi í Reykjavík 1935-36
og frá 1943, í varastjórn BÍS 1936-38
og 1948-50 og í aðalstjóm 1950-64,
stofnaði skátafélagið ísland í Kaup-
mannahöfn 1939 og var
foringi þess, var foringi
danskrar skátasveitar
1940, einn af stofnendum
og í foringjaliði Gilwell-
skátaskóla á íslandi, vann
að stofnun gamalla skáta,
St. Georgsgildanna og
undirbjó stofnun lands-
samtaka þeirra 1963 og sat
í stjórn þeirra til 1975 og
var landsgildismeistari
1971-75. Hann er heiðursfé-
lagi skátafélagsins Eilífs-
búar á Sauðárkróki. Þá
hefur hann verið ritstjóri ýmissa
skátablaða.
Fjölskylda
Eiginkona Franch er Guðný Guð-
rún Jónsdóttir, f. 11.3. 1921, verslun-
arstjóri við Franch Michelsen hf.
Hún er dóttir Jóns Sigurðssonar, f.
8.1. 1879, skrifstofustjóra, og Ingi-
bjargar Eyjólfsdóttur, f. 14.11. 1895,
húsmóður.
Böm Franch og Guðnýjar em Ingi-
björg Ásthildur Michelsen, f. 27.11.
1938, fyrrv. kaupmaður; Guðrún Rósa
Michelsen, f. 24.12. 1944, verslunar-
stjóri; Lilja Dóra Michelsen, f. 17.1.
1948, fóstra; Frank Michelsen, f. 29.2.
1952, d. 16.5. 1954; Frank Úlfar
Michelsen, f. 26.4. 1956, úrsmiður;
Hlynur Jón Michelsen, f. 9.12. 1961,
starfsmaður við Tollvöru-
geymsluna hf.; Anna
Bima Michelsen, f. 15.6.
1963, leiðsögumaður.
Systkini Franch: Karen
Edith Michelsen, f. 2.8.
1910, d. 20.2. 1965, prjóna-
kona; Pála Elinborg
Michelsen, f. 24.8. 1911,
prjónakona; Hulda Ester
Michelsen, f. 26.11.1912, d.
29.8. 1985, ljósmyndari;
Rósa Kristín Michelsen, f.
5.3. 1915, d. 25.12. 1917; Ge-
org Bernharð Michelsen,
f. 20.5. 1916, bakarameistari; Paul
Valdimar Michelsen, f. 17.7. 1917, d.
27.5. 1995, garðyrkjumaður; Aðal-
steinn G. Michelsen, f. 28.10. 1918, d.
9.12. 1994, bifvélameistari; Ottó Al-
freð Michelsen, f. 10.6. 1920, forstjóri;
Elsa María Michelsen, f. 12.5.1922, d.
6.2. 1976, húsmóðir; Kristinn Pálmi
Michelsen, f. 5.3. 1926, verslunar-
stjóri; Aage Valtýr Michelsen, f.
14.10. 1928, bifvélameistari og for-
stjóri.
Foreldrar Franch voru Jörgen
Frank Michelsen, f. 25.1.1882, d. 16.7.
1954, úrsmiður og kaupmaður á
Sauðárkróki, og Guðrún Pálsdóttir
Michelsen, f. 9.8. 1886, d. 31.5. 1967,
húsmóðir.
Franch Bertholt
Michelsen.
Hjörtur Einarsson
Hjörtur Einarsson,
fyrrv. bóndi í Gröf í Dala-
byggð, verður áttræður á
gamlársdag.
Starfsferill
Hjörtur fæddist að
Neðri-Hundadal í Suður-
dalahreppi og ólst þar
upp. Hann fékk kennslu í
farskóla eins og þá tíðk-
aðist. Hjörtur tók við bú-
skap í Neðri-Hundadal af
föður sínum. Nú er Sigur-
steinn, sonur Hjartar, tekinn við
jörðinni en sama ættin hefur búið
þar í beinan karllegg í marga ætt-
liöi.
Hjörtur sat í hreppsnefnd Miö-
dalahrepps í þrjátíu ár, hefur setið í
stjóm Búnaðarfélags Miðdala um
árabil og var formaður þess i fjölda
ára, sat i stjórn Búnaðarsambands
Dalamanna og í stjórn
Kaupfélags Hvamms-
fjarðar í fjölda ára, hefur
setið í stjóm Veiðifélags
Miðdæla um árabil og
var meðhjálpari í
Kvennabrekkukirkju í
mörg ár.
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 1.9.1956
Lilju Sveinsdóttur, f. 1.6.
1925, fyrrv. kennara og
organista. Hún er dóttir
Sveins Guðmundssonar, forstjóra
ÁTVR í Vestmannaeyjum, og Krist-
ínar Einarsdóttur, verkakonu í
Reykjavík. Lilja ólst upp hjá hjón-
unum Sigríði Hróbjartsdóttur hús-
móður og Magnúsi Magnússyni,
smið í Vestmannaeyjum.
Böm Hjartar og Lilju em Sigríð-
ur, f. 9.2. 1958, skrifstofumaður í
Reykjavík, gift Helga Reynissyni
rafeindavirkja og eru börn þeirra
Reynir Örn, Hjörtur Már og Berg-
lind Dögg; Sigursteinn, f. 10.9. 1959,
bóndi að Neðri-Hundadal og lög-
reglumaður, kvæntur Maríu Lindal,
ráðunaut og bónda og er dóttir
þeirra Sigurdís Elísa Lilja en dóttir
hans er Sigríður Hjördís og sonur
Maríu er Guðmundur Líndal; Krist-
ín Lára, f. 2.10. 1965, húsmóðir í
Reykjavík, gift Jóhanni Hreggviðs-
syni, starfsmanni hjá málninga-
verksmiðjunni Hörpu og eru synir
þeirra Daníel og Tómas Ingi; Signý
Harpa, f. 13.1. 1970, sjúkraliði og
sagnfræðingur á Selfossi en sambýl-
ismaður hennar er Axel Grímsson
vélvirki.
Systkini Hjartar: Vigdís húsmóð-
ir, gift Hirti Jónssyni, fyrrv. lager-
manni hjá Vegagerð ríkisins og eiga
þau fjögur börn; Guðmundur Hans,
læknir í Gautaborg, kvæntur Elísa-
betu Einarsson og eiga þau tvö börn
auk þess sem hann á son frá því áð-
ur; Kristín húsmóðir, gift Sigurði Þ.
Guðmundssyni stýrimanni og eiga
þau ijögur böm; Áslaug Birna hús-
móðir, gift Björgvin Magnússyni og
eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Hjartar voru Einar
Jónsson, f. 3.7. 1886, d. 2.3. 1966,
bóndi í Neðri-Hundadal, og k.h„
Lára Lýðsdóttir, f. 27.6. 1896, d. 25.3.
1986, húsfreyja.
Einar var sonur Jóns Einarsson-
ar, b. í Neðri-Hundadal, og Vigdisar
Jónsdóttur.
Lára var dóttir Lýðs Illugasonar,
b. að Litla-Langadal og viðar, og
Kristín Hallvarðsdóttir.
Hjörtur fagnar gestum á heimili
sonar síns og tengdadóttur laugar-
daginn 2.1. n.k. milli kl. 16.00 og
19.00.
Hjörtur Einarsson.
DV
Til hamingju með afmælið 30. desember
95 ára
Daðína M. Guðjónsdóttir, Kleppsvegi 64, Reykjavík. Gestur Sæmundsson, Ægisgötu 31, Akureyri.
85 ára
Jóhanna Guðjónsdóttir, Dvalarh. Höfða, Akranesi.
80 ára
Ingibjörg Sæmundsdóttir, Hjallabraut 21, Hafnarfirði. Arndis Þorsteinsdóttir, Borgarbraut 70, Borgamesi. Hjalti Pétursson, Miðvangi 22, Egilsstöðum.
75 ára
Tryggvi Þorsteinsson, Hraunhólum 10, Garðabæ. Guðni Ingimundarson, Garðbraut 41, Garði. Þorbergur Sveinsson, Nesbakka 15, Neskaupstað.
70 ára
Anna Örnólfsdóttir, Langholtsvegi 20, Reykjavík. Anna Laufey Stefánsdóttir, Snælandi 2, Reykjavík. Torfhildur Steingrímsd., Arnarhrauni 4, Hafnarfirði. Ólafur Guðmundsson, Miðvangi 14, Hafnarfirði. Þórólfur Þorgrímsson, Móabarði 24b, Hafnaiiirði.
60 ára
Sigurbjörg F. Jónsdóttir, Langholtsvegi 99, Reykjavík. Halldór J. Guðmundsson, Haðalandi 10, Reykjavík. Elsa Pálsdóttir, Möðrufelli 13, Reykjavík. Hún er að heiman. Guðbjartur Herjólfsson, Torfufelli 18, Reykjavík. Jón Dahlmann, Torfufelli 6, Reykjavík. Pétur K. Pétursson, Miðhúsum 1, Reykjavík. Konráð Guðmundsson, Víðigrund 7, Kópavogi. Magnús Sigursteinsson, Vesturgötu 13, Ólafsfirði.
50 ára
Stefán Einarsson, Boðagranda 6, Reykjavik. Matthildur Sverrisdóttir, Lindarseli 2, Reykjavik. Róbert Sigurjónsson, Seljabraut 84, Reykjavík. íris Sigurðardóttir, Miðbraut 10, Seltjamarnesi. Ólöf Hilmarsdóttir, Fögrubrekku 33, Kópavogi. Gunnar Guðmundsson, Víðihvammi 9, Kópavogi. Albert L. Albertsson, Lyngmóa 8, Njarðvik. Þórdís Jeremíasdóttir, Grundargötu 55, Grundarfirði. Þórlaug Þorleifsdóttir, Traðarstíg 7, Bolungarvík.
40 ára
Kristján Ari Arason, Hofsvallagötu 18, Reykjavík. Jóhann Gíslason, Ljósheimum 18, Reykjavík. Sigurður Kenneth Reed, Eskihlíð 22, Reykjavík. Dagbjört Nanna Jónsdóttir, Kambaseli 60, Reykjavík. Helgi Reynisson, Dofraborgum 2, Reykjavík. Elin Þóra Albertsdóttir, Akurgerði 14, Vogum. Helgi Már Halldórsson, Hrísmóum 7, Garðabæ. Hlín Sigurðardóttir, Espigi-und 2, Akranesi. Óðinn Gunnarsson, Hverfisgötu 19, Siglufirði. Hugrún S. Hermannsdóttir, Helgamagrastr. 2, Akureyri.