Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 I>V nn Ummæli veikjan að öllu 1 „Ég var tólf ára strákur og þurfti að halda langa einræðu á miðju sviðinu. Með henni og leiknum þetta kvöld flutti ég skilaboð Victors | Hugos. Þetta hlut- verk var kveikjan að öllu sem ég hef gert síðan.“ Ómar Ragnarsson skemmti- kraftur, í Degi Hugsa ekki eins og aðrir „Það er hverjum manni ljóst að þeir sem skip og kvóta eiga hugsa allt öðru vísi en kvótalaus- ir menn. Og í reynd búa þeir við allt annan rétt - hvað sem fógr- um mannréttindaskrám og stjórnarskrám líður.“ Árni Bergmann rithöfundur, iDV íslendingar eiga að spara meira „Mér finnst íslendingar mega gera talsvert meira að því að spara. Um hver mánaðamót mættu margir hafa þá til- finningu að eiga sex mánaða laun sem handbæran sparnað í stað' þess að basla við næstu visa-greiðslu.“ Pétur Blöndal alþingismaður, í Degi. Peningar og hlutabréf „Ef maður ætlar að kaupa hlutabréf þarf maður að eiga peninga og til þessa hef ég ekki verið í neinum vandræðum að koma þeim annars staðar fyrir.“ J Guðrún Helgadóttir rithöfundur, i Degi. Lögum breytt í skjóli nætur „Þið skuluð ekki halda að lög I % gegn yfirgangi ráð- herra. Komist dóm- stólar að þeirri nið- urstöðu að ráð- . herra hafi brotið á ykkur með ólög- mætum hætti þá breytum við lög- unum í skjóli nætur." Páll Halldórsson, form. kjararáðs Félags íslenskra náttúrufræð- inga, í Morgunblaðinu. Höfuðborg í vanda „Reykjavík er höfuðborg í vanda: útþynnt byggð, splundruð miðborgarstarfsemi, versnandi almenningssamgöngur, víta- hringur bílanotkunar, skelfilegt ástand umhverfismála og hnign- un miðborgarsvæðis." Örn Sigurðsson arkitekt, í DV. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri stærstu tónleika ársins: Skemmtikraftai hjálpa krabbameinssjúkum börnum „Það gerist ekki á hverjum degi að landsliðið í tónlistar- og skemmtibransanum er saman kom- ið á einum tónleikum. Ég er afskap- lega þakklátur öllu því fábæra fólki sem hefur gert þetta að veruleika með okkur, „ segir Einar Bárðar- son, framkvæmdastjóri stærstu tón- leika ársins sem haldnir verða í Há- skólabíói í kvöld. Ágóði af tónleik- unum, sem DV, íslenska útvarpsfé- lagið og Coca Cola á íslandi standa að, rennur óskiptur til Styrktarfé- lags krabbameinssjúkra barna. Verði húsfyllir, eins og aðstandend- ur gera ráð fyrir, munu 1,5 milljón- ir króna safnast. Á tónleikunum koma fram margir af þekktustu listamönnum þjóðar- innar. Þar má nefna Skítamóral, Sál- ina hans Jóns míns, Helga Björns- son, Land og syni, Buttercup, Pál Óskar og Casino, Radíusbræður, Tví- höfða og Svein Waage. Kynnir á tón- leikunum er mörgum að góðu kunn- ur. Það er enginn annar en Jóhann- es Jónsson, kaupmaður í Bónusi. „Krabbamein, þessi illvígi sjúk- dómur, leggst árlega á fjölda íslend- inga, einnig varnarlaus börn sem sum hver eiga ekki afturkvæmt úr erfiðu og oft löngu sjúkdóms- stríði. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þær andlegu og fjár- ( hagslegu byrðar sem M fjölskyldur krabba- l* *5' meinssjúkra barna verða fyrir. En með ötulu og fórnfúsu starfi hefur Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna veitt þessum fjölskyldum ómetanlegan stuðning. Með tónleikunum viljum við styðja enn betur við bakið á þessu fólki,“ segir Einar. Einar hefur unnið við ýmis mark- aðsmál, þar á meðal fyrir veitinga- húsin Astró og Rex. Á Astró hefur Maður dagsins Einar séð um margar uppákomur, þar á meðal íslandsmeistarakeppn- ina í fyndni sem vakti verulega at- hygli. Þá hefur hann unnið að ímyndarmálum yfir hljómsveitina Skíta- móral, stóð meðal annars að því að allir meðlimir hljómsveitar- innar ækju um i á eins bílum, Volkswagen Golf. Þá hefur hann komið að markaðsmálum hjá ís- lensku óperunni og nú síðast Loftkastalanum. Einar er fæddur og upp- alinn á Selfossi. Þar rak hann auglýs- •ÍW ineastofn út- varpsstöð og sá um skemmtanahald á skemmtistaðnum Inghóli. - Hvað fær þig til halda þessa tón- leika? „Þegar lítill frændi minn veiktist af krabbameini var ég erlendis í námi og gat lítið aðstoðað fjölskyld- una. Þá sór ég þess eið að styðja við bakið á Styrktarfélagi krabbameins- sjúkra bama fengi ég til þess tæki- færi. Stuðningur þeirra við fjölskyld- una í þessum erfiðleikum var ómet- anlegur." Nú er hver að verða síðastur að næla sér í skattaaf- _ með verð- bréfakaupum en í kvöld geta menn fjárfest í góðri v ' sam- visku. -hlh Gamlárshlaup ÍR 31. des. . . 4 km Softjarnarneí 5 kn Eiösgrandi km 2 -------------------- 7 km \ 1 km 10 km Roykjavíkur- fluevöllur ____________b Hið árlega Gamlárshlaup ÍR verður á morgun og hefst kl. 13. í ár er hlaupin ný leið og er farinn frá Ráðhúsi Reykjavíkur tíu kílómetra hringur eins og sýndur er á kortinu. Skráning 'er á morgun frá kl. 11 og er hlaupagjaldið 600 kr. Myndgátan Varaskeifa Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Sigrún Hjálmtýs- dóttir syng- ur í Hall- grímskirkju á gamlárs- dag. Hátíðarhljómar við áramót Listvinafélag Hallgrimskirkju gengst fyrir tónleikum á gamlársdag með yfirskriftinni Hátíðarhljómar við áramót. Óperusöngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrimsson og Eiríkur Öm Pálsson og Douglas Brotchie, org- anisti Hallgrímskirkju, flytja aríur eftir Handel og Scarlátti, hið þekkta Adagio eftir Albinoni/Giazotto og verk fyrir trompeta og orgel eftir Giovanni Frescobaldi. Auk þess leik- m- Douglas orgelverkið „Tu es Petra“ eftir Mulet. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og lýkur stundarfjórðungi áður en hefðbundinn aftansöngur er sunginn í ~ ' “ Hallgrímskirkju Tonleikar u. is. Þetta er í fimmta skiptið sem áramótum er fagnað með trompet og orgelleik i HaUgrímskirkju. Hin þekkta óperusöngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir bætist núna við í hóp- inn og flytur hún glæsilegar aríur með undirleik trompets og orgels, meðal annars Let the bright Seraphim eftir Georg Friederich Handel. Dýrlingur íslands 1198-1998 Sönghópurinn Voces Thules heldur miðnæturtónleika í Hallgrimskirkju i kvöld kl. 23. Eru tónleikarnir haldnir í tilefni átta hundruð ára dýrlingshá- tíðar Þorláks helga og hafa tónleik- arnir yfirskriftina Dýrlingur íslands 1198-1998. Voces Thules munu flytja valda kafla úr Þorlákstíðum auk fomra trúarlegra söngva. Bridge Arlegt minningarmót Harðar Þórðar- sonar fór fram sunnudaginn 27. desem- ber á vegum Bridgefélags Reykjavíkur. Þátttaka var góð, 68 pör mættu til leiks. Spilaformið var Monrad-baró- meter. Bræðurnir Ragnar og Rúnar Magnússynir voru í forystu bróðurpart mótsins og höfðu sigur með talsverð- um yfirburðum. Þeir skoruðu 337 stig í plús en næstu pör voru Her- mann Friðriksson-ísak Sigurðsson (259) og Jak- ob Kristinsson-Ásmund- ur Pálsson (222). Hér er spil úr þriðju umferð mótsins. Punktarnir á höndum AV eru 25 og flestir láta þann fjölda punkta nægja til að fara í game. Spiluð voru enda 3 grönd á 20 borðum af 34 í mótinu, en aöeins einn sagnhafanna fékk 9 slagi í þeim samningi. Hinir fóru allir einn niður og NS fengu fyrir það 46 stig af 66 mögulegum. Hins vegar eiga AV möguleika á þvi að stöðva í bútasamn- ingi og AV pörum á 8 borðum tókst að stöðva í einu eða tveimur gröndum. Þriggja granda samningurinn er ekk- ert sérlega góður og legan þarf að vera góð, til að þau standi: 4 983 m K1084 ♦ K87 * G95 Ragnar Magnússon. 4 754 «* Á93 ♦ ÁD92 * Á74 N 4 ADG6 «* 76 4 G1053 * K103 4 K102 4* DG52 4 64 * D862 Ef til vill eiga þeir sem spila veika grandopnun (12-14) stærsta möguleik- ann á því að stöðva í bútasamningi. Ef vestur opnar á einu grandi gæti austur vel passað, í stað þess að gefa áskorun. Þeir sem nota 15-17 punkta grand myndu opna á einum tígli á hendi vesturs og segja eitt grand við spaðasögn austurs (sem sýnir 12-14 punkta). Austur gefur áskorun með 2 gröndum og þá er það í hlutverki vesturs að passa, því höndin er ekki góð (3-3-4-3 skipting) þó að 14 punkt- ar séu fyrir hendi. Þeir sem voru svo lánsamir að stoppa í 2 gröndum (eða einu) fengu 53 stig fyrir spilið (120). ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.