Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1998, Blaðsíða 48
V I K I N C
L#TT#"j'
mMSÉá
JyrbJík i±rd(tí
FRETTASKOTIÐ
SlMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
Sprengjur um áramót:
PÓSt-
, kassar
læstir
Sérstök læsing hefur verið sett á
póstkassa á höfuðborgarsvæðinu
þannig að i þá er ekki hægt að
koma nema alminnstu bréfum. Er
þetta gert vegna sprengjufaraldurs
í póstkössum um áramót en í fyrra
voru fimmtán póstkassar sprengd-
ir í loft upp á svæðinu. Póstkass-
arnir eru danskir og kosta um 100
þúsund krónur stykkið.
„Áður fyrr tókum við póstkass-
ana niður fyrir áramót en nú höf-
um við fengið þessar nýju dönsku
læsingar. Við bindum miklar von-
< kir við þær,“ sagði Hannes Guð-
mundsson, deildarstjóri hjá ís-
landspósti.
Póstþjónustan tekur ekki
ábyrgð á pósti sem eyðilagður er
með eldi í póstkassa. Fólk setur
póst í póstkassa á eigin ábyrgð.
„Með læsingunni erum við bæði
að vernda póstinn og kassana
sjálfa sem eru rándýrir. Það virðist
litlu skipta hvar póstkassarnir eru
staðsettir, þeir eru sprengdir engu
að síður. Það er helst að póstkass-
inn við Borgarspítalann sé látinn í
< _ Ýriði og hann verður ólæstur um
áramótin," sagði Hannes.
Póstkassamir verða opnaðir aft-
ur strax eftir áramót en á meðan er
viðskiptavinum bent á pósthúsin
sjálf.
-EIR
Blaðaafgreiðsla DV er opin í dag
frá kl. 9-20. Fimmtudaginn 31. desem-
ber, gamlársdag, er opið frá kl. 9-12.
Föstudaginn 1. janúar, nýársdag, er
^lokað. Laugardaginn 2. janúar er op-
' ið frá 9-14.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
dag frá kl. 9-22. Opið er 31. desember,
gamlársdag, frá kl. 9-12. Lokað verð-
ur á nýársdag. Opið verður laugar-
daginn 2. janúar, frá kl. 9-14 og
sunnudaginn 3. janúar, frá kl. 16-22.
Ritstjóm er lokuð á gamlársdag,
en vakt verður frá kl. 14-21 fóstudag-
inn 1. janúar, nýársdag. Einnig verð-
ur vakt frá kl. 14-23 sunnudaginn 3.
janúar.
Tekið er á móti fréttaskotum allan
sólarhringinn í síma 550 5555.
Fyrsta blað eftir áramót kemur út
laugardaginn 2. janúar. Lesendur at-
hugi að Helgarblaðið verður heldrn:
seinna á ferð en venja er.
Gleöilegt nýár!
<,fc
Undrandi pennavinur við læstan póstkassa. DV-mynd GVA
Uppsagnir hjá Básafelli vegna rækjuskorts:
Annarri verk-
smiðjunni lokað
Hætta er á að grípa þurfi til upp-
sagna á starfsfólki hjá Básafelli hf. á
ísafiröi um áramótin. Skortur á rækju
til vinnslu er ástæðan. „Það er verið
að vinna að því að auka aðra vinnslu
á móti þannig að ekki þurfi að koma
til neinna uppsagna, en það kemur í
ljós í dag,“ sagði Arnar Kristinsson,
framkvæmdastjóri Básafells hf. á ísa-
fírði, í morgun.
Arnar segir að trúlega verði rækju-
vinnslunni í Sindragötu 7 á ísafirði,
gömlu Rækjustöðinni, lokað. „Við höf-
um verið að fara yfir þetta með fólki
og mér sýnist stefna í það að verði lít-
ið um uppsagnir, ef það verður bara
nokkuð," sagði Amar.
„Eftir því sem mér skildist á þeim
þá verður um litla fækkun á mann-
skap að ræða frá því sem nú er, eða
um 10 manns,“ sagði Pétur Sigurðs-
son, formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða, í samtali við DV i morgun. Pét-
ur segir að framkvæmdastjóri og
rekstrarstjóri Básafells hafi gert sér
grein fyrir því að ætlunin væri að
leggja niður starfsemi í annarri
rækjuverksmiðju fyrirtækisins og
framleiða úr því hráefni sem fyrir-
tækið fær í stærri verksmiðjunni. Á
fundi þeirra í gær hefði endanleg
ákvörðun ekki legið fyrir en hann
vænti hennar fljótlega, jafnvel síðar í
dag. Til standi I framhaldinu að bjóða
upp á störf við saltfiskvinnslu Bása-
fells á Flateyri og verði fólkinu ekið
þangað til vinnu að morgni og heim
til ísafjarðar að kvöldi.
Básafell er nú ásamt öðru íslensku
fyrirtæki í sjávarútvegi að koma upp
stórri, fullkominni rækjuverksmiðju í
Kanada í samstarfi við þarlenda.
Tæknimenn frá ísafirði eru að sögn
Péturs að smíða og setja upp tæki í
verksmiðjuna samkvæmt nýgerðum
samningi upp á um 100 milljónir
króna.
Pétur sagði að ástand rækjustofns-
ins og hversu illa spár um veiðanlegt
magn hefðu ræst væru áfall fyrir at-
vinnulífið á Vestfjörðum eins og víð-
ar. Hann sagði það viss vonbrigði fyr-
ir ísfirðinga að þegar útgerðarfyrir-
tæki sameinuðust og mynduðu Bása-
fell í núverandi mynd , þá hafi dregið
úr starfsemi á ísafirði. Vöxturinn hafi
orðið í bolfiskvinnslu á Suðureyri og
saltfiskvinnslu á Flateyri.
Hjá Básafelli starfa um 200 manns í
landi, við sameininguna við Freyju á
Suðureyri fjölgaði um 60 manns hjá
fyrirtækinu. -JBP/SÁ
Dalvík:
Uppsagnir
DV, Akureyri:
Samherji hf. hefur sagt upp 32
starfsmönnum sínum í rækjuverk-
smiðju félagsins á Dalvík, uppsagnim-
ar taka gildi um áramót en eru með
þriggja mánaða fyrirvara.
Ástæða uppsagnanna er mikill sam-
dráttur í rækjuveiðum en á siðari
helmingi ársins hafa borist 2.800 tonn
af hráefni miðað við 4.600 tonn á sama
tíma í fyrra. -gk
Steingrímur
kvænist danskri
Steingrímur St. Th. Sigurðsson list-
málari hyggst kvænast 26 ára gamalli
danskiú stúlku á gamlársdag. Stein-
grímur flýgur utan í dag til að sækja
væntanlega brúði sína sem hann
kynntist á Cafe Reykjavík í Kaup-
mannahöfn þar sem hann las upp úr
nýútkominni ævisögu sinni á dögun-
um. Sú danska er blaðakona af
sígaunaættum en sjálfur er Steingrím-
ur kominn á áttræðisaldur. Brúðkaup-
ið verður að kaþólskum sið. -EIR
Helgarblað DV:
Biðin loks á enda
í Helgarblaði DV er opnuviðtal við
Magnús Leópoldsson sem eftir margra
ára bið sér loks fram á að nafn hans
verði hreinsað. Rætt er við Magnús um
Geirfinnsmálið og hvemig hann, sak-
laus maðurinn og ótengdur þeim sem
við málið vom orðuð, dróst inn at-
burðarásina. Birtar em einstakar
myndir af því þegar Magnús „hitti"
Leirfinn í fyrsta sinn.
Kvikmyndaárið 1998 er gert upp og
valdar bestu og verstu myndir ársins
og valdar eru bestu erlendu hljómplöt-
urnar.
í blaðinu er einnig rætt við Friðrik
Friðriksson sem nú leikur Pétur Pan
og við Pál Bergþórsson um veðurhorf-
ur næsta árs.
í innlendu fréttaljósi er fjallað um
annasaman síðasta dag fyrir jólafrí á
Alþingi og í erlendu fréttaljósi er fjall-
að um rússnesku mafíuna. -sm/-þhs
Veðrið næstu daga
Á gamlársdag veröur allhvöss norð-
austanátt norövestan til á landinu en
hægari austlæg eöa breytileg átt ann-
ars staðar. Slydda verður á Norður-
landi og Vestfjörðum en rigning með
köflum sunnanlands. Um kvöldið verð-
ur snjókoma eða él á Vestfjörðum og
úti við norðurströndina en að mestu
þurrt annars staðar. Á nýársdag verð-
ur austanátt, allhvöss við suðurströnd-
ina, en hægari annars staöar. Rigning
eða slydda sunnan- og austanlands. Á
laugardag verður austan- og norðaust-
anátt. Slydda með köflum noröanlands
en rigning eða skúrir syðra. Á sunnu-
dag verður svo norðaustanátt, snjó-
koma eða él á norðanlands en rigning
eða slydda austan til. Kólnandi veður.
Veðriö í dag er á bls. 45.
Gleðilega hátíð
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfba 2
Sími 525 8000
www.ih.is