Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Síða 1
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1999 Ágúst Gylfason: Tilboð Stórsigur Hauka í bikarnum - bls. 22 Þorbjörn Jensson: jj Hellmg- ur í boði “ en ræöir fyrst viö HSÍ Þorbjörn Jensson, landsliösþjálf- ari i handknattleik, mun á næstu dögum setjast niður meö meö stjórn HSí og ræða um framtíð sína en þjáifarasamningur hans við sambandið rennur út í vor. „Ég er ekki búinn að ganga frá neinu en ég reikna með aö ræða málin við HSÍ mjög fljótlega. Ég er svo sem alveg tilbúinn að halda áfram mínu starfi. Það er helling- ur annað í boði en ég er búinn að lofa Guðmundi Ingvarssyni, for- manni HSÍ, því að fyrst ræði ég við hann. Mér finnst það sanngjarnt hans vegna og ég ætla að standa við það,“ sagði Þorbjöm í samtali við DV í gær. Næsta verkefni íslenska lands- liðsins verður 14.-21. mars þegar það keppir í svokallaöri heimsbik- arkeppni en þær þjóðir sem urðu í 8 efstu sætunum í HM i Kumamoto á síðasta ári verða þar. Þorbjöm segist hafa verið að fylgjast með leikmönnum hér heima og sjá hvaða leikmenn eiga erindi í hóp- inn sem kemur saman í Svíþjóð rétt áður en heimsbikarmótið hefst. í maí leikur svo íslenska liðið við Svisslendinga og Kýpurbúa í forkeppni fyrir undankeppni Evr- ópumótsins. Þá mun U-21 árs liöiö leika i apr- ílmánuði í undankeppni fyrir heimsmeistaramót unglinga sem fram fer í Sádi-Arabíu í ágúst. ís- land er í riðli með Slóvakm, Grikk- landi og einni annarri þjóð sem á þessari stundu er ekki Ijóst hver er og verður riðillinn spilaður í Slóvakíu. Efsta þjóðin í und- ankeppninni kemst í úrslitin. -GH komið fer líklega til Norrköping Agúst Gylfason knatt- spymumaður kemur til landsins síðdegis í dag með tilboð í farteskinu frá sænska A-deildar liðinu Norrköping. Ágúst hefur dvalið við æfingar hjá sænska lið- inu í viku- tíma og í gær- kvöldi fékk hann í hendumar tilboð frá forráða- mönnum félagsins. Gangi hann að tilboðinu verða tveir íslend- ingar í herbúðum liðsins en Þórður Þórðar- son, markvörður ÍA til margra ára, gekk i raðir félagsins í haust. Félag sem ætlar sér stóra hluti „Ég ætla að skoða samninginn heima í rólegheit- um og mun gefa Norrköping svar í vikunni. Mér leist mjög vel á allar aðstæður og klúbbinn almennt. Það er fullt af ungum efnilegum leikmönnum í lið- inu og mér sýnist að félagið ætli sér stóra hluti í framtíðinni,“ sagði Ágúst í samtali við DV. Ágúst hefur leikið síðustu 4 árin með Brann í Noregi. Félagið bauð honum að framlengja samninginn mn eitt ár en Ágúst hafnaði því og í kjölfarið kom hann heim eftir að hafa reynt fyrir sér hjá enska B- deildar liðinu Tranmere. Flest félög- in í íslensku úrvalsdeildinni settu sig í samband við Ágúst með það fyr- ir augum að fá hann til liðs við sig en nú bendir flest til þess að hann gangi til liðs við Norrköping -GH Hópur Leiftursmanna stækkar Leiftursmenn frá Ólafsfirði hafa enn stækkað leikmannahóp sinn fyrir knattspyrnuvertíðina í sumar. Þeir fengu enn einn Þórsarann frá Akureyri til liðs við sig á dögunum. Það er Örlygur Helgason, sem er lengst tii hægri á myndinni, en með honum eru hinir nýju Þórsararnir í Leiftri, Hlynur Birgisson og Ingi Hrannar Heimisson. Þá hafa Ólafsfirðingar samið við færeyska landsliðsmanninn Sámal Joensen en hann er 24 ára miðjumaður sem kemur frá GÍ í Götu. -VS/DV-mynd HJ Blatter skammaður Lennart Johansson, forseti UEFA, Knattspymusambands Evr- ópu, veitir Sepp Blatter, forseta FIFA, Alþjóða knattspyrnusam- bandsins, alvarlega ádrepu í viðtali í þýska blaðinu Der Spiegel sem kom út í morgun. Johansson gagnrýnir harkalega hugmynd Blatters um að halda heimsmeistarakeppnina á tveggja ára fresti í stað fjögurra og kallar hana hreina dellu. „Við megum ekki skemma stærsta íþróttaviðburð heims af ásettu ráði. Þá gæti farið fyrir knattspymunni eins og ishokkíinu, þar sem haldin em heimsmeistara- mót á hverju ári, sem fáir hafa áhuga á. Við megum ekki láta græðgina í meiri peninga stjórna okkur. Leikjaálagið hjá knatt- spymumönnum í Evrópu er orðið svo mikið að ef HM verður á 2ja ára fresti er hætt við að Evrópuþjóðim- ar yrðu aðeins með í annað hvert skipti," segir Johansson. Hann bætti því við að Blatter ætti ekki aö haga sér eins og einræðis- herra í embættinu. „Forseti á að hlusta á allar skoðanir og stjóma út frá því,“ segir Svíinn aösópsmikli. -vs Jóhann í Keflavík Jóhann R. Benediktsson, unglingalandsliðsmaður í knattspymu frá Eskifirði, er genginn til liðs við úrvalsdeildarlið Keflvíkinga. Jó- hann er 18 ára og vakti talsverða athygli í leikjum sínum með KVA í 1. deildinni síðasta sumar. Annar efhilegur Austfirðingur, Hjálmar Jónsson úr Hetti, er væntanlega einnig á leið til Keflavíkur. -VS Gunnar Örn Ólafsson úr Ösp vann besta afrekið á hinu árlega Ný- árssundmóti fatlaðra barna og unglinga sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur á laugardaginn. Gunnar fékk fyrir það Sjómannabik- arinn til varðveislu en hann var á sínum tíma gefinn til mótsins af Sigmari Ólasyni, sjómanni á Reyðarfirði. -VS/DV-mynd HH Tími Arnar hefði dugað Á heimsbikarmóti í sundi í 25 metra laug sem fram fór í Hong Kong um helgina sigraði Þjóð- verjinn Steve Thelok í 200 metra baksundi. Hann kom í mark á 1:55,52 mínútu. Þetta er lakari timi en hjá Emi Amarsyni þeg- ar hann tryggöi sér Evrópu- meistaratitlinn í þessari grein en sigurtími hans var 1:55,16 mínúta. -GH Einvígi íslend- ingaliðanna íslendingaliðin Dormagen og Willstátt héldu áfram sigur- göngu sinni í þýsku B-deildinni í handknattleik um helgina. Gúst- af Bjarnason skoraði 3 mörk fyr- ir Willstatt sem vann Múlheim, 27-24, og Dormagen vann Saar- brúcken á útivelli í gær, 18-23. Dormagen og Willstátt era með 34 stig hvort og síðan kemur Leutershausen með 29 stig. -VS Naumur sigur SR Skautafélag Reykjavíkur vann Bjöminn, 6-5, í hörkuleik á Is- landsmótinu í íshokkí í Skauta- höllinni I Laugardal á laugar- dagskvöldið. Heiðar Ingi Ágústs- son 2, Sigurður Sveinn Sigurðs- son 2, Sigurbjöm Þorgeirsson og Jónas Stefánsson skoruðu fyrir SR en Jónas Breki Magnússon 2, Marteinn Sigurðsson, Ragnar Hlöðversson og Agnar Stefáns- son fyrir Björninn. -VS Lottó: 15 20 22 32 33 B: 14 Enski boltinn: xx2 llx xll xxll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.