Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1999, Qupperneq 7
að eiga krónu og þá bara til að
horfa á stelpur og drekka vatn.
En hvað meö vœndið, Geiri?
„Ef ég á að segja þér alveg eins
og er þá held ég að það sé ekki
vændi á neinum svona stað á ís-
landi. Enda hefur lögreglan sagt að
það verði tekið harðar á því en ella
ef einn af þessum stöðrnn sé að
stunda vændi. En auðvitað eru
alltaf til menn sem hafa uppi dóna-
lega tilburði. Það er verið að bjóða
í konur á Kaffi Reykjavík og á
Hafnarkránni var jafnvel verið að
bjóða í einhverjar herfur. En stelp-
umar héma era góðar stelpur og
þær eru líka varar um sig. Eru i
ókunnu landi og þetta er andskot-
ans ekkert hórerí hjá þessum stelp-
um.“
Halli dyravörður kemur þá með
bjór handa mér, ég er að bíða eftir
ljósmyndaranum og ákveð að stúta
einum stórum fyrst hann er ekki
mættur, helvískur, og ég nota tæki-
færið til að spyrja hvort hann
kunni við breytinguna.
„Þær em meiri háttar en ég er
nú búinn að vera í þessum bransa í
tólf ár og er öllu vanur."
Eru þetta viðráðanlegri kúnnar
sem koma núna?
„Já. En þetta var ekkert erfitt á
Hafnarkránni. Ég er meira í því að
tala fófk til ef það er með læti og
hef alltaf litið á dyravörslu sem
mannleg samskipti. Frá upphafi
hefur það verið minn stíll að gefa
mér góðan tíma til að tala fólk til.“
Ertu fjölskyldumaöur?
„Já, já. Þetta er bara aukavinna
hjá mér. Ég á þrjú börn og vinn í
Ölgerðinni á daginn."
Hvaó segir konan við breytingun-
um?
„Henni er alveg sama. Þetta er
bara vinna, verkefni sem maður
þarf að leysa.“
Henni finnst þú ekkert vera
minna tilkippilegur þegar þú kemur
heim eftir erfiðan vinnudag á eró-
tískum strípiklúbbi?
„Nei, nei,“ svarar Halli og flissar.
Stoltar stelpur og Stalín
Dansinn er ekki enn byrjaður og
ljósmyndarinn ekki kominn. Geir
sendir tyær stelpur í betri stofuna
til mín. Ég kynni mig og þær kynna
sig sem Jönu og Viktoríu, sú síð-
amefnda viðurkennir að hún sé að
ljúga til um nafn.
Hvaðan eruði?
„Við komum frá dansskóla í Tall-
inn,“ segir Jana og bætir því við að
Tallinn sé höfuðborg Eistlands.
Jana er með ljósa hárkollu, eða
ég held að þetta sé hárkolla. Hárið
í henni er það þykkt og gervilegt að
það getur ekki verið hennar eigið
hár. Maður kann samt aldrei við að
spyrja, það gæti orðið of vandræða-
legt. Hún er miklu minni en Viktor-
ía, vinkona hennar, sem er með
dökkt hár sem er örugglega hennar
eigið. Þær eru báðar pínulítið var-
ar um sig, þá sérstaklega Viktoría,
enda er hún 29 ára en Jana bara 22
og því líklega ekki jafnmikil heims-
manneskja.
Hvernig dansskóli er þetta?
Viktoria: „Þar em kenndir alla
vega dansar og á milli túra forum
við í danstíma á hverjum degi, alla
daga vikunnar."
Og er kennt aó strippa í honum?
„Já, líka,“ svarar Viktoría undir
folsku nafni.
Stelpumar segja mér að þær hafi
verið hér i einn mánuð og Jana er
komin með pínu heimþrá. Hún á
finnskan kærasta og saknar hans
líka svoldið. Talar við hann á hverj-
um degi og hann segir henni að
hann elski hana. Hún er samt alveg
opin fyrir því að verða ástfanginn í
íslendingi. í lífinu gerist bara það
sem gerist.
„Ég keypti mér bók um ísland og
er búin að lesa mig til um landið,"
segir Viktoría þegar ég spyr hana
hvort hún viti eitthvað um land og
þjóð. „Ég er líka búin að sjá eitt-
hvað af þessum helstu stöðum og
bossinn [Geiri] er búinn að lofa að
fara með okkur allar í bíltúr til að
sina okkur helstu staðina áður en
við förum
heim.“
Það er eitt-
hvað við þessar
stelpur sem
gerir þær of
menntaðar.
Þetta er ömgg-
lega bara eitt-
hvað í mér og
af þeirri stað-
reynd að ég
veit að þær
ólust að hluta
til upp í Sovét
og það er alltaf
svona uppstríl-
aður Laxness-
keimur af minningum um Sovéttið.
Var Eistland ekki partur af Sovét-
ríkjunum?
„Jú, en landið okkar er ekki eins
og Rússland. Við höfum alltaf gert
hlutina eins og okkur sýnist,“ segir
Viktoría og er nærri því reið.
„Landið okkar, Eistland, vex mjög
hratt núna og við eram miklu nær
Finnum hvað menningu varðar en
Rússum og Sovétríkjunum fyrrver-
andi.“
En voruöi ekki öll kommar á tím-
um Sovétríkjanna?
„Ekki ég,“ segir Viktoría. „For-
eldrar mínir vora kommúnistar en
nú hafa þeir aðlagast nýjum tímum
í Eistlandi. Þeir fæddust líka í
Rússlandi og fluttu mjög ungir til
Eistlands."
Jana: „Foreldrar mínir vora ekki
kommúnistar vegna þess að Stalín
sendi afa minn í fangabúðir fyrir
að spila bönnuð lög á harmóníku á
torgi í smábæ í Eistlandi."
Spólið til baka
„Eistland er mjög dýrt og við
erum hér til að drýgja tekjumar,"
segir Jana, aðspurð af hverju hún
sé komin hingað til að dansa.
Stelpumar fara síðan í kerfi þeg-
ar ég spyr þær hve mikið almennur
verkamaður hefur í laun í Eist-
landi. Það er ekki vegna þess að
þær telji upplýsingamar trúnaðar-
mál. Þær era bara stoltar og vilja
ekki gera lítið úr sinni fósturjörð.
Þær halda langan fyrirlestur um
hversu ungt landið sé og að það sé
mikil uppbygging í gangi. Ég hlusta
og kinka kolli og fæ loksins að vita
að þær þéna 2-3.000 dollara á ein-
um mánuði hér en það era hátt í
tífold meðallaun í Eistlandi.
En hvernig eru islenskir kúnnar í
samanburði við þá sem þiö hafið
kynnst?
Viktoría: „Mér líkar vel við ís-
lendinga. Þeir eru vinalegir og
miklu kurteisari en þeir finnsku."
Era þeir ekki lélegir í þjórfénu?
„Nei, nei,“ segir Jana og er þá
kölluð upp á svið.
í sömu andrá mætir Teitur Ijós-
myndari. Hann tekur strax upp
myndavélina og fer að mynda aUa í
bak og fyrir. Ég geng út úr betri
stofunni og horfi á Jönu strippa.
Hún virðist vera virkUega góð í því
sem hún er að gera. Það er samt
eitthvað við konu sem nuddar á sér
brjóstin uppi á sviði sem fær mann
tU að hugsa um hvað Jesú myndi
gera stæði hann við barinn og
drykki bjór á kostnað Geira á Hafn-
arkránni. Þessi biskup okkar kem-
ur líka upp í hugann. Hvar er hann.
Jana stendur á sviðinu og heldm-
utan um bert klofíð á sér. Tónlistin
er frönsk og einhver ótrúlegur evr-
ópskur fílingur yfir öUu. Edith Pi-
ath gólar og mér líður eins og ég sé
staddur með Sigm-ði Pálssyni á
listamannabar í París. Eða að ég sé
á klúbbi í Manchester og sé að
hlusta á endinn á lagi sem ég vU
heyra aftur. En það er tíska þar að
öskra „Rewind!" „Spólið tU baka!“
Og ef plötusnúðurinn hlýðir ekki
þá tekurðu upp skambyssu og skýt-
ur upp í loftið, öskrandi: „Spólið til
bcika!“ „Spólið tU baka!“
Mikael Torfason
myndlist
Opnanir
Gallerí Ingólfsstrætl
8, Reykjavík. I gær,
fimmtudaginn 14.
janúar, var opnuð
sýning á verkum Ás-
gerðar Búadóttur
veflistakonu. Gallerí-
ið er opið fimmtu-
daga til sunnudaga
kl. 14-18.
Síðustu forvöð
Listasafn íslands. Sýningin 80/90 Speglar
samtímans frá Museet for samtidskunst !
Ósló verður tekin niður eftir sunnudaginn. Þeir
sem enn hafa ekki rennt sér I gegnum þetta
sýnishorn af samtlmalist ættu því að skella
sér um helgina.
Gallerí Hornlð, Hafnarstræti 15. Sýningu á
verkum eftir Dæsus, öðru nafni Ólafur Jökull,
lýkur á fimmtudaginn. Hún er opin alla daga
kl. 11-24, en sérinngangur aðeins kl. 14-18.
Aðrar sýningar
Llstasafn Kópavogs, Gerðarsafn. I vestursal:
Lýsing '99, olíumálverk og þrívíð verk eftir
Nobuyasu Yamagata. Á neðri hæð safnsins
sýnir Slgríður Rut Hrelnsdóttlr þrettán olíu-
málverk. í austursal er Haukur Haröarson
með skúlptúrsýningu sem nefnist Frelsi og
fjötrar. Sýningarnar eru opnar alla daga nema
mánudaga frá 12-18.
KJarvalsstaðlr, Flókagötu. KJarvalssýnlngln
„Af trönum meistarans" með verk frá síðari
æviárum Kjarvals. Málverkið „Sjón er sögu
ríkari" sem er í eigu danska ríkisins er á sýn-
ingunni. Á Kjarvalsstöðum sýnir Elnar GarF
baldl einnigverktengd Imynd Kjarvals og Brltt
Selvær sýnir textílverk.
Hallgrímsklrkja. Þorbjörg Höskuldsdóttlr hef-
ur opnað sýningu í anddyri kirkjunnar.
Mennlngarmlðstöðln Gerðubergl. Myndlistar-
maðurinn Alan James er með sýningu á verk-
um sínum á neðri hæð Geröubergs.
Kringlan. Sýning á grafík og grafíkvlnnu-
brögðum. Sýningin verður í sýningarrými Gall-
erí Foldar og Kringlunnar á annarri hæð gegnt
Hagkaupi.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14. Samsýnlng 15
listamanna í baksal. Sýningin ber nafnið Frost
og funi.
Nýllstasafnlð, Vatnsstíg 3B, Reykjavík. Fysta
sýning Nýlistasafnsins á árinu er samsýning
fimm þýskra listamanna og eins listamanns
frá Frakklandi. Sýningin ber yfirskriftina Nord
Sud fahrt eða Norðurleið - Suðurle(ð. Sýning-
in er opin daglega nema mánudaga frá kl.
14-18.
Mokka. Sýning á verkum Haraldar Karlssonar.
Hann sýnir kristallaðar hveramyndir unnar úr
íslenskum hveraefnum. En á sýningunni er
einnig að finna hljóðverk sem unnið er út frá
hveramyndunum og hlusta má á úr heyrnartól-
um.
Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn-
arfiarðar. Sýning á bútasaumsteppum Kaffe
Fassett.
Llstasafn ASÍ, Freyjugötu 41. Helga Egllsdótt-
Ir er með sýningu í Ásmundarsal. Elnar Már
Guðvarðarson sýnir Ijósmyndir og höggmyndir
I steini í Gryfju. Ný aðfóng Listasafns ASl! Ar-
instofu. Safnið er opiö þriðjudaga til sunnu-
daga kl. 14-18.
Imexara. á.1
www.visir.is
Fááu þér gómsætan Waterboy borgara á Hard Rock
og þú færd frían mida á myndina í kaupbæti!
Waterboy borgarinn ermed
beikoni, osti, iceberq,
tómötum og steiksósu og
kostaraóeins 990.-
LOYE ALL
SERYE ALL
REYKJAVIK
KRINGLU
15. janúar 1999 f Ókus
7