Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
Hönnuðirnir Björk Baldursdóttir, Ásta Guðmundsdóttir, Guðrún Kristín
Sveinbjörnsdóttir og Heiðdís Jónsdóttir fyrir utan Gallerí Mót.
DV-myndir Teitur
Sextán hönnuðir undir sama þaki:
Gaman að hanna föt
á íslenskar konur
Við höfum fengið mjög góð við-
brögð frá því við opnuðum í
nóvember. Hér sýna sextán
hönnuðir vörur sínar en okkur gæti
fjölgað því hingað eru allir vel-
komnir. Ég veit ekki til að hér sé
rekið gallerí á borð við þetta og
samvinna svo margra hönnuða er
líklega einsdæmi," sagði Guðrún
Kristín Sveinbjömsdóttir þegar Til-
veran heimsótti
Gallerí Mót á
dögunum.
Það vekur strax
athygli að aðeins
er til eitt eintak
af hverri flík og
segir Guðrún
Kristín það
stefnu verslun-
arinnar. „Allar
flíkur era mód-
elflíkur og þar
sem við höfum
allar mjög ólík-
an stíl verður fjölbreytnin mikil.
Við leggjum áherslu á að hver
og einn viðskiptavinur geti
fundið eitthvað við sitt hæfi,“
segir Guðrún Kristín.
Á hraðri uppleið
Samkvæmiskjólamir eru vin-
sælir úm þessar mundir og
þær segja að nær undantekn-
ingarlaust vilji konur síðkjóla.
Þær segjast fylgjast vel með
tískustraumum í Evrópu og
taka mið af þeim við eigin
hönnun.
„Gráir og vínrauðir tónar hafa
verið ráðandi i tískunni í vetur
og það má sjá á mörgum kjól-
anna hér. Ein breyting virðist
líka vera að eiga sér stað en
hún er sú að pilsin era að
víkka eftir að hafa verið mjög
þröng undanfarin ár. Það er
mun þægilegra að ganga í viðu
Glæsilegur samkvæm-
iskjóli úr dimmrauðu
teygjutafti. Jakkinn yfir
er úr organsaefni sem
hefur þann eiginleika
að vera þunnt en
mjög strft. Kjóllinn er
hönnun Guðrúnar
Kristínar Svein-
björnsdóttur. Perla
Egilsdóttir skartar
kjólunum frá Gallerí
Móti.
pOsi þannig að konur ættu að fagna
þessari breytingu. Kjólar með hlýr-
um virðast einnig vera mjög vinsæl-
ir og sam-
settir kjól-
ar,“ segir
Ásta Guð-
mundsdótt-
ir.
Þær eru
sannfærðar
um að ís-
lensk hönn-
un sé á hraðri uppleið. „Við höfúm
flestar búiö og starfað erlendis og
finnum mikinn mun á því að hanna
föt á íslenskar konur. íslenskar kon-
ur vilja vera öðruvísi en aðrar og
hafa persónulegan stíl. Þess vegna
er svo gaman að hanna fót á ís-
landi,“ segir Heiðdís Jónsdóttir og
með þeim orðum lýkur heimsókn í
Gallerí Mót. -aþ
Grátt og glansandi er
einkenni þessarar
glæsilegu sparidragt-
ar. Tjullið er hneppt á
pilsið þannig að
hægt er að taka það
af. Hönnuðurinn er
Björk Baldursdóttir.
Hann er ekki mjög hlýlegur - en þeim
mun glæsilegri - kjóllinn hennar Heiðdís-
ar Jónsdóttur. Efnið hefur afar sérstaka
áferð og er nokkurs konar glithúðað kakí-
efni.
Samsettur kjóll í Ijósum lit.
Pilsið að neðan er úr hrásilki
sem er hálfgegnsætt. Ásta
Guðmundsdóttir á heiðurinn af
hönnun þessa kjóls.
Buxnadragtir njóta
mikilla vinsælda í
samkvæmisfatnaði
þeirrar Bjargar og
\/a!i ■
Það er alltaf mikið að gera í
samkvæmisklæðnaði á þessum
árstíma en í raun er sam-
kvæmistíminn allt árið hjá okkur. Nú
era það árshátíðimar og þorrablótin,
síðan taka við fermingar og útskriftir
og yfír sumarið eru það brúðkaupin
þannig að alltaf er nóg að gera,“ seg-
ir Björg Ingadóttir fatahönnuður sem
á og rekur fyrirtækið Spaksmanns-
spjarir ásamt Valgerði Torfadóttur.
Þær Vala og Björg hafa síðustu sex
árin rekið Spaksmannsspjarir og eru
fyrir löngu búnar að skapa sér sér-
stöðu í fatahönnun hérlendis.
„Við fylgjum tískustraumum að
ákveðnu marki en auðvitað er okkar
hönnun með ákveðnu yfirbragði og
stíl. Við leggjum mesta áherslu á
klassískan fatnað og hjá okkur er ný
fatalína alltaf framhald af síðustu
línu. Þannig geta konur haldið áfram
að bæta við sig einni og einni flík,“
segir Vala.
Flauel og glitefni
Galabuxnadragtir eru eitt af
sérkennum Völu og Bjargar i vet-
ur og þær eru sammála um að
þær séu bæði þægilegur og
praktískur samkvæmisklæðnað-
ur. „Konur kunna að meta gala-
buxur enda ágæt tilbreyting frá
sfðkjólimum. Okkkur hefur alltaf
fundist að buxur séu á margan
hátt praktískari klæðnaður og
náttúrlega miklu þægilegri að
vera í. Ef kona er í falleg-
um skóm við buxnadragt
er hún ekkert síður fín en
ef hún væri í síðkjól. Við
erum langt frá því hættar
að vera með kjóla enda
henta þeir sumum konum
betur,“ segir Vala.
„Flauel og glitefni eru
gegnumgangandi í sam-
kvæmisklæðnaði vetrar-
ins og við erum með þau í
mörgum fallegum litum.
Þá eru hálfgagnsæ gjitefni
einnig vinsæl um þessar
mundir og þá oft með gull-
eða silfurþræði," segir
Björg Ingadóttir.
-aþ
Björg og Vala.
DV-mynd Hilmar Þór.
Björg Ingadóttir og Valgerður Torfadóttir:
Buxnadragtir góð
tilbreyting frá síðkjólum