Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1999, Side 36
FRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRUAR 1999
Suðurland:
Margréti
stillt upp í
efsta sæti
Lúðvík í öðru sæti
„Við ætlum okkur stóran hlut og
erum með sigurstranglegan lista.
En umfram allt er Samfylkingin á
landsvísu með mjög
Plr** öfluga verkefnaskrá
* til næstu fjögurra
ára. Við hlökkum til
kosningabaráttunn-
ar. Núna er tími fé-
lagshyggjufólks á
landinu kominn,"
sagði Margrét Frí-
mannsdóttir í gær-
Margrét Frí-
mannsdóttir.
kvöldi. Hún leiðir lista Samfylking-
arinnar á Suðurlandi.
‘ Samfylkingin sleppir prófkjöri á
Suðurlandi, en hefur stillt upp
framboðslista vegna alþingiskosn-
inganna í vor. Alþýðubandalagið,
Alþýðuflokkurinn og Kvennalisti
hafa gengið frá framboðslista á
Suðurlandi og luku flokkarnir
þeirri vinnu með símafundi 9
manna kjördæmisráðs í gærkvöld.
Margrét Frí-
mannsdóttir, for-
maður Alþýðu-
bandalagsins, skip-
,ar efsta sæti listans,
en Lúðvík Bergvins-
son, alþingismaður
Alþýðuflokksins,
verður í öðru sæti.
Kvennalistinn teflir
Líðvík
Bergvinsson.
fram Katrínu Andrésdóttur, dýra-
lækni í Reykjahlíð á Skeiðum, hún
er óháð en er studd af Kvennalista
og er frambjóðandi hans og tekur
þriðja sætið, sem verður baráttu-
sæti, að sögn Margrétar.
í fjórða sæti verður Björgvin Sig-
urðsson nemi, í funmta sæti Guð-
jón Sigurjónsson, lögfræðingur á
Selfossi, og í sjötta sæti Elínbjörg
Jónsdóttir, formaður félags opin-
berra starfsmanna í Þorlákshöfn.
-JBP
Vinnuslys á Akureyri:
Spónaplötur
hrundu yfir mann
DV, Akureyri:
Vinnuslys varð á Akureyri í gær
þegar verið var að afferma bifreið
við Nýja bíó.
Spónaplötur voru á palli flutn-
ingabilsins og maður að störfum
þar þegar svo vildi til að plötumar
runnu til og féllu á manninn. Hann
var fluttur á slysadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins og var talsvert mar-
.inn en fékk þó að fara heim að lok-
-gk
' ^inni skoðun
MA EKKI TENGJA
SAMAN JÓLA- OG
PÁSKAFRÍIO?
Norðurland eystra:
Kristín fer
í framboð
DV, Akureyri:
s
i
i
Kjörstjóm Samfylkingarinnar á
Norðurlandi eystra hefur ákveðið að
Kristín Sigursveinsdóttir, Akureyri,
komi í hóp frambjóðenda vegna próf-
kjörs. Samfylkingarinnar sem frarn
fer 13. febrúar.
Kristín kemur þarna inn sem full-
trúi Alþýðubandalagsins, en aðeins
einn aðili hafði boðið sig fram fyrir
hönd Alþýðubandalagsins, en af hálfu
krata eru fjórir í framboði. Kjörstjóm
segir að með því að bæta Kristínu við
þátttakendalistann sé verið að jafna
að nokkru hlut flokka og kynja í próf-
kjörinu og að aðrir frambjóðendur
geri ekki athugsasemdir við þessa
ráðstöfun. -gk
Sandbylur
Óveður var viða um land i nótt.
Þeir voru kampakátir gömlu menningarjaxlarnir, Hörður Agústsson og Thor Vilhjálmsson, á Bessastöðum í gær þeg-
ar þeir tóku við íslensku bókmenntaverðlaununum úr hendi Ólafs Ftagnars Grímssonar forseta. Sjá nánar um þá og
verðlaunabækurnar á bls. 11. DV-mynd Teitur
Slæmt veður var í Þrengslum í
morgun og ófært um Hellisheiði þar
sem voru tíu vindstig. Þá var sand-
bylur á Mýrdalssandi og spáð var
versnandi veðri þegar liði á daginn
á Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði,
Bröttubrekku og á Vestfjörðum.
Er heilsuveill og fer í málarekstur viö ríkiö eftir að hafa afplánað fikniefnadóm:
Franklín laus og
krefst miskabóta
telur lögreglu hafa framkvæmt ólögmæta handtöku aö 3ja ára syni ásjáandi
Franklín Kr. Steiner hefur lokið
afplánun sinni á Litla-Hrauni fyrir
20 mánaða flkniefnadóm sem hann
hlaut árið 1997. Afplánunin hófst í
ársbyrjun 1998 en lauk þann 8. janú-
ar síðastlinn. Afþlánunin átti reynd-
ar að hefjast rétt fyrir jólin 1997 -
nokkuð sem Franklín mótmælti án
árangurs á sínum tíma - og hvarf
sakborningurinn um stund.
Síðustu vikur afplánunarmnar
hefur Franklin að hluta til legið á
sjúkrahúsi vegna veikinda sem
hann hefur átt við að stríða. Frank-
lín telst nú hafa lokið tveimur
þriðju hlutum afplánunarinnar -
þeim tíma sem dómþolar eru látnir
taka út ef um fikniefnabrot er að
ræða. Hann er því kominn á
reynslulausn.
Barnið skelfingu lostið við
handtöku föður
Héraðsdómur Reykjavíkm- tók fyr-
ir bótamál í gær þar sem Franklín
Kr. Steiner stefnir íslenska ríkinu til
greiðslu einnar milljónar króna
miskabóta - fyrir ólöglega handtöku
og líkamsleit rúmum tveimur mánuð-
um áður en hann hóf afplánun fram-
angreinds dóms. Það mál var allsend-
is óskylt sakamálinu.
Föstudaginn 3. október 1997 fór
Franklín í bíl sínum í heimsókn í
Lækjarsmára í Kópavogi. Þriggja ára
sonur hans var með i bílnum. Þegar
feðgamir komu á staðinn kom lög-
reglan og handtók fóðurinn vegna
gruns um að hann hefði fikniefni á
sér.
Litli drengurinn varð skelfingu
lostinn. Einn lögreglumannanna fór
með barnið til vinafólks Franklíns og
skildi það eftir þar. Fólkinu tókst að
ná sambandi við ættingja feðganna.
Engin fikniefni fundust á Franklín.
í stefnu sinni á hendur ríkinu er því
haldið fram að lögreglan hafi hand-
tekið hann á grófan og harðneskjuleg-
an hátt. Lögreglumenn hefðu ekki
sýnt ungum syni hans nærgætni,
barni sem hafði engan skilning á því
sem var að gerast. Faðir hans var
færður harkalega í burtu í handjám-
um.
Miskabótakrafan hjóðar upp á rétt
rúma milljón króna. Búist er við að
aðalréttarhöld í málinu fari fram
áður en langt um líður. -Ótt
Alþingi saman aftur
- Qárhagsvandi og heilsugæsla
Alþingi kemur saman á ný í
dag eftir jólaleyfi. Farið hefm- ver-
ið fram á tvennar utandag-
skrámmræður. Guðmundur Árni
Stefánsson spyr heUbrigðisráð-
herra um málefni heilsugæslunn-
ar í Hafnarfirði og Svanfríöur Jón-
asdóttir spyr félagsmálaráðherra
um fjárhagsvanda sveitarfélag-
anna. -EIR
Veðrið á morgun:
Snjókoma
eðaél
* * *
* _2° * *
* |ggL *
* * *
=): -=7s(: sf: s):
' * *
Á morgun verður allhvöss suð-
vestanátt og snjókoma eða él en
hægara og víða bjart veður norð-
austan- og austanlands. Hiti
verður nálægt frostmarki sunn-
anlands en frost verður 1-5 stig
norðan til.
* *
* *.g° *
-2°
*
* * ^ * st: %
sg 1° * * *
* Sg sg sþ sg sg
* sg sk o *
=*= sk s* ^j^* * 9
* * * * ~=r *
Veðrið í dag er á bls. 37.
Ingvar
Helgason hf.
ScQvarhiiföa 11
Simi 525 '8000
uuvw. ih. is
i
i
i
I