Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 5 Pizza 67 viö Ráðhústorgið víkur fyrir Kentucky Fried. Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn: Kentucky Fried í stað Pizza 67 Pizza 67 hefur hætt starfsemi við Ráðhústorgið i Kaupmannahöfn og er nú unnið að því að opna Kentucky Fried Chicken stað þar í staðinn. Það er Fáskrúðsfirðingurinn Sigurður Þröstur Júlíusson sem stendur fyrir framkvæmdunum og er þetta flórði Kentucky Fried-staðurinn sem hann opnar í Kaupmannahöfh. „Ég er með einn stað á Amager, annan í Brönshöj og þann þriðja í Rödövre," sagði Sigurður Þröstur í samtali við DV. „Ég ætla að opna á Ráðhústorginu um miðjan febrúar og fer þarna inn í húsnæði sem for- seti íslands opnaði fyrir Pizza 67 með viðhöfn fyrir nokkrum árum. Það ævintýri er á enda, þeir voru að selja síðasta staðinn sinn í morgun hérna í hliðargötu í miðbænum. Ég held að einhverjir íranir hafi keypt hann,“ sagði Sigurður Þröstur. Sigurður sækir vinnuafl sitt til ís- lands. Múrararnir koma frá Fáskrúðs- flrði, rafvirki og smiður frá Reykjavík og handlangari frá Eskifirði. „Ég er með einkaleyfi á Kentucy Fried hér í Danmörku og opna tíu staði á næstu flmm árum samkvæmt samningi við höfuðstöðvarnar í Bandaríkjunum," sagði Sigurður Þröstur. -EIR Skógaskóli að breytast í reiðskóla: Fimm kennarar, fimmtán nemendur Einn kennari er á hverja þrjá nemendur í Skóga- Einn kennari er á hverja þrjá nemendur í Skógaskóla undir Eyjafjöllum. Segir skólastjórinn þetta gott kerfi en dýrt. „Við erum með tvo framhaldsskólabekki hér og aðsóknin er einfaldlega ekki meiri,“ segir Guð- mundur Sæmundsson skólameistari. „Við erum með eina al- menna braut en flest- ir eru á hestabraut og það er nýjung. Þar læra nemendur allt um tamningar, fóðrun skóla. og umhirðu hesta almennt og það má segja að Skógaskóli sé smám saman að breytast í reiðskóla." Skógaskóli er nú rekinn af heimamönnum sem sjálfseignar- stofnun og fyrir utan hestabrautina er stefnt að stofhun umhverfisbraut- ar sem starfaöi þá í samvinnu við Garðyrkjuskólann. Telur skóla- meistari skólann eiga framtið fyrir sér í slíkri sérhæfingu: „Þegar mest var voru nemendur á heimavist hér á annað hundrað talsins en miðað við nútímaaðbún- að tekur hún sextíu manns. Nú eru nemendur fimmtán. Við stefnum að því að byggja hesthús hér svo hægt sé að kenna á staðnum en fram til þessa höfum við þurft að keyra 20 kílómetra til að komast í hross,“ segir Guðmundur Sæmundsson skólameistari. -EIR Borgarráð: Umræða um Reykja- víkurflugvöll Borgarráðsfulltrúar Reykjavíkur- listans lögðu í gær fram tillögu um að fela borgarverkfræðingi og skipulagsstjóra að kanna tillögur sem þegar eru komnar fram um uppbyggingu íbúðahverfa vestan El- liðaáa. í tillögunni segir að á undan- fömum árum hafi komið fram margar tillögur um þéttingu byggð- ar í Reykjavík sem beinast að land- fyllingum í Skerjafirði, norður af vesturbæ og miðbæ og við Vestur- höfnina. „Aukin áhersla á eflingu miðborgarinnar og fyrirhugaðar endurbætur á Reykjavíkurflugvelli kalla á að þessir kostir verði metn- ir og afstaða til þeirra tekin,“ segir í bókun borgarráðsfulltrúa R-list- ans. Tillögurnar sem um ræðir era fimm talsins og ná aftur til ársins 1985 en sú nýjasta er um flutning Reykjavíkurflugvallar á landfyllingu í Skerjafirði og uppbyggingu íbúða- hverfis í Vatnsmýri. Afgreiðslu til- lögunnar var frestað. -hb Fréttir Hættu aö blekkja sjálfan þig - taktu þátt í heilsuátaki DV, Bylgjunnar og íþrótta fyrir alla „Við ætlum að leggjast á eitt við að hjálpa þér að feta hina réttu leið til betra lífs,“ segja aðstandendur heilsuátaks DV, Bylgjunnar og samtakanna íþróttir fyrir alla, en það hefst í dag. Lögð er áhersla á að heilsuátakið nái til allrar fiöl- skyldunnar og að íbúar allrar landsbyggðarinnar fái að njóta þess. Verið með frá byrjun, tak- ið upp holla lifnaðarhætti, lifið miklu betra lífi en áður og njót- ið þess. Leiðimar til betra lífs eru margar og við munum reyna eftir bestu geta að vísa ykkur veginn. Byrjaðu strax í dag að verða annar og betri maður, hættu að blekkja sjálfan þig. Og gleymdu því ekki að þetta er lífstíðarverkefni og að góðir hlutir gerast hægt. DV mun daglega á næstu vikum kynna ýmislegt sem horfir til bættr- ar heilsu lesenda og Bylgjan mun færa hlustendum sitthvað sem hjálpar upp á heilsuna í sérstöku Heilsuhorni kl. 15.10 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Með DV í dag fylgir stimpilkort sem við biðj- um lesendur að geyma. Þar er safn- að stimplum í hvert sinn sem menn fara í sund eða efla heilsuna hjá lík- amsræktarstöðvum átaksins. Sam- starfsaðilar verkefnisins eru Weeta- bix, 1944-réttimir, Leppin, Hreyfing, Iþrótta- og tómstundaráð, Body Pump, Nicorette og Hress í Hafnar- firði. Þegar þátttakendur hafa feng- ið tíu stimpla á kortið sitt má skila kortinu til DV og fá að gjöf bókina Betri línur, en börn fá óvæntan glaðning. Um leið og korti er skilað fer nafn viðkomandi í pott, sem dregið verður úr. Glæsilegir vinn- ingar era í boði frá samstarfsaðilum átaksins, en aðalverðlaunin eru ferð fyrir tvo með Samvinnuferðum- Landsýn til Lundúna. -JBP Kæliskápur RG 1145 - Kælir 114 Itr. - Klakahólf 14 Itr. • Orkunýtni D • Mál hxbxd: 85x50x56 Kr. 26.900.- stgr. Kæliskápur RG2190 • Kælir 134 Itr. • Frystir 40 Itr. • Sjálfvirk afþýðing í kæli Orkunýtni C • Mál hxbxd: 117x50x60 Kr. 37.900.- stgr. Kæliskápur RG 2250 • Kælir 184 Itr • Frystir 46 Itr • Orkunýtni C '-^5* • Sjálfvirk afþýðing í kæli • Mál hxbxd: 139x55x5 Kr. 39.900.- stgr. Kæliskápur RG 1285 • Kælir 232 Itr. • Frystir 27 Itr. ŒS • Halfsjálfvirkur • Orkunýtni F • Mál hxbxd: 147x55x60 Kr. 37.900.- stgr. Kæliskápur RG 2255 a Kælir 183 Itr. • Frystir 63 Itr. IEZ3 • Sjálfvirk afþýðing í kæli • Orkunýtni C • Mál hxbxd: 152x55x60 Kr. 45.900.- stgr. Kæliskápur RG 2330 • Kælir 258 Itr. • Frystir74 Itr. P*-**! • Sjálfvirk afþýðing í kæli • Orkunýtni C • Mál hxbxd: 170x60x60 Kr. 49.900.- stgr. Kæliskápur CG1275 • Kælir 172 Itr. • Frystir 56 Itr. HE*3 •Tværgrindur • Sjálfvirk afþýðing í kæli • Orkunýtni C • Mál hxbxd: 150x55x60 Kr. 53.900.- stgr. Kæliskápur RG2290 • Kælir 2111tr. • Fiystir 63 Itr. H**3 * Sjálfvirk afþýöing í kæli * Orkunýtni C •Mál hxbxd: 164x55x60 Kr. 48.900.- stgr. Kæliskápur CG 1340 • Kælir 216 Itr. • Frystir 71 Itr. H**3 • Tvær grindur • Sjálfvirk afþýðing í kæli • Orkunýtni B • Mál hxbxd: 165x60x60 Kr. 59.900.- stgr. Sími 533 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.