Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
5
Pizza 67 viö Ráðhústorgið víkur fyrir Kentucky Fried.
Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn:
Kentucky Fried
í stað Pizza 67
Pizza 67 hefur hætt starfsemi við
Ráðhústorgið i Kaupmannahöfn og
er nú unnið að því að opna Kentucky
Fried Chicken stað þar í staðinn. Það
er Fáskrúðsfirðingurinn Sigurður
Þröstur Júlíusson sem stendur fyrir
framkvæmdunum og er þetta flórði
Kentucky Fried-staðurinn sem hann
opnar í Kaupmannahöfh.
„Ég er með einn stað á Amager,
annan í Brönshöj og þann þriðja í
Rödövre," sagði Sigurður Þröstur í
samtali við DV. „Ég ætla að opna á
Ráðhústorginu um miðjan febrúar
og fer þarna inn í húsnæði sem for-
seti íslands opnaði fyrir Pizza 67 með
viðhöfn fyrir nokkrum árum. Það
ævintýri er á enda, þeir voru að selja
síðasta staðinn sinn í morgun hérna
í hliðargötu í miðbænum. Ég held að
einhverjir íranir hafi keypt hann,“
sagði Sigurður Þröstur.
Sigurður sækir vinnuafl sitt til ís-
lands. Múrararnir koma frá Fáskrúðs-
flrði, rafvirki og smiður frá Reykjavík
og handlangari frá Eskifirði.
„Ég er með einkaleyfi á Kentucy
Fried hér í Danmörku og opna tíu
staði á næstu flmm árum samkvæmt
samningi við höfuðstöðvarnar í
Bandaríkjunum," sagði Sigurður
Þröstur. -EIR
Skógaskóli að breytast í reiðskóla:
Fimm kennarar,
fimmtán nemendur
Einn kennari er á hverja þrjá nemendur í Skóga-
Einn kennari er á
hverja þrjá nemendur
í Skógaskóla undir
Eyjafjöllum. Segir
skólastjórinn þetta
gott kerfi en dýrt.
„Við erum með tvo
framhaldsskólabekki
hér og aðsóknin er
einfaldlega ekki
meiri,“ segir Guð-
mundur Sæmundsson
skólameistari. „Við
erum með eina al-
menna braut en flest-
ir eru á hestabraut og
það er nýjung. Þar
læra nemendur allt
um tamningar, fóðrun skóla.
og umhirðu hesta almennt og það
má segja að Skógaskóli sé smám
saman að breytast í reiðskóla."
Skógaskóli er nú rekinn af
heimamönnum sem sjálfseignar-
stofnun og fyrir utan hestabrautina
er stefnt að stofhun umhverfisbraut-
ar sem starfaöi þá í samvinnu við
Garðyrkjuskólann. Telur skóla-
meistari skólann eiga framtið fyrir
sér í slíkri sérhæfingu:
„Þegar mest var voru nemendur
á heimavist hér á annað hundrað
talsins en miðað við nútímaaðbún-
að tekur hún sextíu manns. Nú eru
nemendur fimmtán. Við stefnum að
því að byggja hesthús hér svo hægt
sé að kenna á staðnum en fram til
þessa höfum við þurft að keyra 20
kílómetra til að komast í hross,“
segir Guðmundur Sæmundsson
skólameistari. -EIR
Borgarráð:
Umræða um Reykja-
víkurflugvöll
Borgarráðsfulltrúar Reykjavíkur-
listans lögðu í gær fram tillögu um
að fela borgarverkfræðingi og
skipulagsstjóra að kanna tillögur
sem þegar eru komnar fram um
uppbyggingu íbúðahverfa vestan El-
liðaáa. í tillögunni segir að á undan-
fömum árum hafi komið fram
margar tillögur um þéttingu byggð-
ar í Reykjavík sem beinast að land-
fyllingum í Skerjafirði, norður af
vesturbæ og miðbæ og við Vestur-
höfnina. „Aukin áhersla á eflingu
miðborgarinnar og fyrirhugaðar
endurbætur á Reykjavíkurflugvelli
kalla á að þessir kostir verði metn-
ir og afstaða til þeirra tekin,“ segir
í bókun borgarráðsfulltrúa R-list-
ans.
Tillögurnar sem um ræðir era
fimm talsins og ná aftur til ársins
1985 en sú nýjasta er um flutning
Reykjavíkurflugvallar á landfyllingu
í Skerjafirði og uppbyggingu íbúða-
hverfis í Vatnsmýri. Afgreiðslu til-
lögunnar var frestað. -hb
Fréttir
Hættu aö blekkja
sjálfan þig
- taktu þátt í heilsuátaki DV, Bylgjunnar og íþrótta fyrir alla
„Við ætlum að leggjast á eitt
við að hjálpa þér að feta hina
réttu leið til betra lífs,“ segja
aðstandendur heilsuátaks DV,
Bylgjunnar og samtakanna
íþróttir fyrir alla, en það hefst í
dag. Lögð er áhersla á að
heilsuátakið nái til allrar fiöl-
skyldunnar og að íbúar allrar
landsbyggðarinnar fái að njóta
þess. Verið með frá byrjun, tak-
ið upp holla lifnaðarhætti, lifið
miklu betra lífi en áður og njót-
ið þess. Leiðimar til betra lífs
eru margar og við munum
reyna eftir bestu geta að vísa
ykkur veginn. Byrjaðu strax í
dag að verða annar og betri
maður, hættu að blekkja sjálfan
þig. Og gleymdu því ekki að
þetta er lífstíðarverkefni og að
góðir hlutir gerast hægt.
DV mun daglega á næstu vikum
kynna ýmislegt sem horfir til bættr-
ar heilsu lesenda og Bylgjan mun
færa hlustendum sitthvað sem
hjálpar upp á heilsuna í sérstöku
Heilsuhorni kl. 15.10 mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga. Með DV
í dag fylgir stimpilkort sem við biðj-
um lesendur að geyma. Þar er safn-
að stimplum í hvert sinn sem menn
fara í sund eða efla heilsuna hjá lík-
amsræktarstöðvum átaksins. Sam-
starfsaðilar verkefnisins eru Weeta-
bix, 1944-réttimir, Leppin, Hreyfing,
Iþrótta- og tómstundaráð, Body
Pump, Nicorette og Hress í Hafnar-
firði. Þegar þátttakendur hafa feng-
ið tíu stimpla á kortið sitt má skila
kortinu til DV og fá að gjöf bókina
Betri línur, en börn fá óvæntan
glaðning. Um leið og korti er skilað
fer nafn viðkomandi í pott, sem
dregið verður úr. Glæsilegir vinn-
ingar era í boði frá samstarfsaðilum
átaksins, en aðalverðlaunin eru ferð
fyrir tvo með Samvinnuferðum-
Landsýn til Lundúna. -JBP
Kæliskápur RG 1145
- Kælir 114 Itr.
- Klakahólf 14 Itr.
• Orkunýtni D
• Mál hxbxd: 85x50x56
Kr. 26.900.- stgr.
Kæliskápur RG2190
• Kælir 134 Itr.
• Frystir 40 Itr.
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
Orkunýtni C
• Mál hxbxd: 117x50x60
Kr. 37.900.- stgr.
Kæliskápur RG 2250
• Kælir 184 Itr
• Frystir 46 Itr • Orkunýtni C '-^5*
• Sjálfvirk afþýðing í kæli • Mál hxbxd: 139x55x5
Kr. 39.900.- stgr.
Kæliskápur RG 1285
• Kælir 232 Itr.
• Frystir 27 Itr. ŒS
• Halfsjálfvirkur
• Orkunýtni F
• Mál hxbxd: 147x55x60
Kr. 37.900.- stgr.
Kæliskápur RG 2255
a Kælir 183 Itr.
• Frystir 63 Itr. IEZ3
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Orkunýtni C
• Mál hxbxd: 152x55x60
Kr. 45.900.- stgr.
Kæliskápur RG 2330
• Kælir 258 Itr.
• Frystir74 Itr. P*-**!
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Orkunýtni C
• Mál hxbxd: 170x60x60
Kr. 49.900.- stgr.
Kæliskápur CG1275
• Kælir 172 Itr.
• Frystir 56 Itr. HE*3
•Tværgrindur
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Orkunýtni C
• Mál hxbxd: 150x55x60
Kr. 53.900.- stgr.
Kæliskápur RG2290
• Kælir 2111tr.
• Fiystir 63 Itr. H**3
* Sjálfvirk afþýöing í kæli
* Orkunýtni C
•Mál hxbxd: 164x55x60
Kr. 48.900.- stgr.
Kæliskápur CG 1340
• Kælir 216 Itr.
• Frystir 71 Itr. H**3
• Tvær grindur
• Sjálfvirk afþýðing í kæli
• Orkunýtni B
• Mál hxbxd: 165x60x60
Kr. 59.900.- stgr.
Sími 533 2800