Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Grænt framboð um allt land:
Ekki bandalag von-
svikinna flokkshesta
- segir Kristín Halldórsdóttir alþingismaöur
Grænt framboð hefur stofnað
kjördæmisfélag i öllum kjördæmum
landsins. Áttunda félagið varð til í
Hafnarfírði í liðinni viku. „Hafi ég
nokkum tfma verið bjartsýim, þá er
það eftir þetta kvöld. Við erum kom-
in í kröftugan gír,“ segir nýr for-
maður kjördæmisfélags Græns
framboðs í Reykjaneskjördæmi,
Jens Andrésson, formaður Starfs-
mannafélags ríkisstoftiana. Jens
segir að þrátt fyrir að fundurinn
hefði ekki verið auglýstur svo heit-
ið gæti, hafi 60 manns komið og
stofnað grænt félag. Slik félög eru
þá í öllum kjördæmum.
„Ég reikna fastlega með þing-
manni úr okkar röðum í Reykjanes-
kjördæmi eftir svo glæsilega byrj-
un,“ segir Jens, sem er nú að hefja
á ný bein afskipti af stjómmálum,
gerði það síð-
ast fyrir 20
ámm á Sauð-
árkróki. „Við
verðum með
skýra stefnu í
verkalýðsmál-
um og jafnrétt-
ismálum,
þama er góður
vettvangur,"
segir Jens.
„Hjá okkur
stendur rautt
fyrir jafhræði
og jöfhuð og
grænt fyrir
umhverfismál og náttúmvemd,"
segir Jens. Hann segir að fljótlega
verði haldin landsráðstefha og í
kjölfarið komi framboðslistar fram
einn af öðrum.
Á stofhfund-
inum í Gaflin-
um í Hafnar-
firði flutti
Kristín Hall-
dórsdóttir al-
þingismaður
ávarp. Hún
segir í viðtali
við DV að
fundurinn hafi
verið hinn
besti. Kristín
var búin að
ákveða að
hætta þátttöku
í stjómmálum. Tilkoma græna
framboðsins varð til þess að Kristín
gaf kost á sér til starfa og er nú orð-
uð við fyrsta sætið á Reykjanesi.
„Mér líst mjög vel á allt þetta
starf. Þama vom kröftugar almenn-
ar umræður þar sem menn höfðu
ýmislegt ffarn að færa. Þetta er góð
byrjun á starfseminni í kjördæm-
inu,“ segir Kristín. Hún segir engan
vafa á að hreyfingin sé óðum að
festast í sessi. Svavar Gestsson hef-
ur látið hafa eftir sér að honum
þyki trúlegt að fyrmm félagar úr
Alþýðubandalaginu komi aftur i
fyrri raðir.
„Þetta er alröng niðurstaða hjá
Svavari, hann mun komast að því.
Þetta er ekki kosningabandalag óá-
nægðra og vonsvikinna flokkshesta.
Óneitenlega em þama ýmsir sem
hafa sagt skilið við Alþýðubandalag
og Kvennalista, því er ekki að
leyna. En þama er líka margt fólk
sem ekki hefur komið nálægt stjóm-
málum áður, fyrst og fremst fólk
sem laðast að þessu stjómmálaafli
vegna græna litarins," segir Kristín
Halldórsdóttir.
í stjóm kjördæmisfélags Vinstri-
hreyfingcu-innar - græns framboðs
vom kjörin: Jens Andrésson, Sel-
tjamamesi, formaður, Gunnsteinn
Gunnarsson, læknir í Kópavogi, Jó-
hanna Harðardóttir, fréttamaður og
bóksali, Mosfellsbæ, Sigtryggur
Jónsson sálfræðingur, Bessastaða-
hreppi, Bergþóra Andrésdóttir,
bóndi á Kiðafelli í Kjós, Hólmar
Magnússon verkalýðsleiðtogi, Kefla-
vík og Ragnhildur Guðmundsdóttir,
Seltjamamesi, framkvæmdastjóri
Póstmannafélags Islands. Til vara
þau Gréta Pálsdóttir Hafnarfirði og
Ólafur Arason Bessastaðahreppi.
-JBP
Jens Andrésson -
mikil bjartsýni ríkj-
andi hjá grænum.
Kristín Halldórs-
dóttir - hreyfing
sem höfðar til
hóps sem áður
kom ekki nærri
pólitík.
Nemendur úr Mýrarhúsaskóla nutu ásamt starfsfólki skólans góða veðursins í Gróttu á Seltjarnarnesi í síðustu viku þegar Ijósmyndari DV rakst á þá.
DV-mynd Hilmar Þór
Nýir hluthafar í Borgey hf.
DV-mynd Jl
DV, Höfn:
Útgerðimar Skinney hf. og Þinga-
nes ehf. á Höfn hafa keypt 62% hlut
Kaupfélags Austur-Skaftfellinga og
Bæjarsjóðs Hornafjarðar í Borgey
hf. Ekki hefur verið gefið upp kaup-
verð en að nafnverði er þessi hluti
um 300 milljónir króna.
Sameinuð verða þessi fyrirtæki
með stærri sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins og samtals gera þau út 8
fiskiskip með 9.700 þorskígilda kvóta.
Skinney gerir út Jónu Eðvalds
SF, Skinney SF og Steinunni SF.
Þinganes gerir út Þóri SF og Þinga-
nes SF og Borgey er með Húnaröst
SF, Akurey SF og Hvanney SF.
Skinney og Borgey hafa hvor tun
sig verið með margvíslega vinnslu á
sjávarafuröum og hefur mikil
áhersla verið lögð á síldar-, loðnu-
og saltfiskvinnslu að ógleymdum
humrinum. Þessi tvö fyrirtæki hafa
verið að mestu með sömu vinnslu
og verður þar mikil hagræðing með
sameiningunni.
Vinnsla á kola hefúr verið mikil
Húsnæði fyrirtækisins og eitt skipanna.
hjá Borgey eftir að hætt var að
vinna þorsk og ýsu í frystingu. Síð-
ustu tvö ár hafa verið Borgey erfið
þar sem síldarvertíðir bmðgust og
loðnuvertíð gekk ekki vel. Um
15.000 þorskígildiskvótar era hjá út-
gerðarfyrirtækjum á Höfh.
Framkvæmdastjóri Borgeyjar,
Halldór Ámason, mun hætta störf-
um hjá fyrirtækinu 1. apríl þegar ný
stjóm tekur við sameinaða útgerð-
arfyrirtækinu. -Júlía Imsland
BorgarQörður:
Leitaö að
heitu vatni
DV, Vesturlandi:
Samþykkt var í bæjarstjóm
Borgarbyggðar að vísa tillögu
Borgarbyggðarlistans, sem er i
minnihluta í bæjarstjóm, til veitu-
nefndar en hann vill kanna hvort
líkur séu á að afla megi heits vatns
fyrir þau svasði sem era án hita-
veitu. Tillagan hljóðaði þannig:
„Samhhða þeim athugunum sem
nú standa yfir varðandi hagkvæm-
ar lausnir á öflum á heitu og köldu
vatni fyrir orlofsbyggðir BSRB og
næsta nágrenni samþykkir bæjar-
stjóm Borgarbyggðar að fela Veitu-
nefnd og tæknideild að láta kanna
hvort líkur séu á að afla megi heits
vatns með boranum eða á annan
hátt á öðrum svæðum í sveitarfé-
laginu sem era án hitaveitu og
hvort slíkt kunni að vera hag-
kvæmt. í þessu sambandi verði
m.a. kannaðir möguleikar og hag-
kvæmni þess að leggja hitaveitu
frá Borgamesi um næsta nágrenni
í Borgarhreppi og vestur á Mýrar.
Komi í Ijós að hér sé um hag-
kvæma kosti að ræða verði kann-
aður áhugi bænda og sumarhúsa-
eigenda á hugsanlegri þátttöku í
hitaveituframkvæmdum."
Fulltrúar Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins, sem era í
minnihluta, lögðu fram bókun þar
sem kemur fram að á 208. fundi
bæjarráðs var lagt fram fé úr sveit-
arsjóði Borgarhrepps sem ætlar
var til leitar á heitu vatni. Erindi
þessu hefur þegar verið vísað til
veitunefndar og þegar hefur verið
hafist handa um að afla gagna um
þessi mál. -DVÓ
Akranes:
Samvinna eða
sameining
DV, Akranesi:
Undanfarin ár hafa björgunar-
sveitimar á Akranesi, þ.e Björgun-
arsveitin Hjálpin og Hjálparsveit
skáta, fengið rekstrarstyrk frá
bænum við hverja fjárhagsáætlun.
Við gerð fjárhagsáætlunar bæjar-
sjóðs Akraneskaupstaðar fyrir árið
1999 er þessi styrkur bundinn skil-
yrðum. Gert er ráð fyrir því í fjár-
hagsáætluninni að báðar sveitim-
ar fái styrk en að greiðslu styrkj-
anna verði ffestað þar til viðræður
þessara aðila og bæjarráðs um
aukna samvinnu eða sameiningu
sveitanna hefur farið fram. -DVÓ