Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Side 13
MIÐVKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
13
Fréttir
Fiskmarkaður Breiðafjarðar:
7 prósenta aukning
á seldum afla
DV, Snæfellsbæ:
Um 7% aukning var á seldum
afla á síðasta ári hjá Fiskmarkaði
Breiðafjarðar sem er með útibú í
Grundarfirði, Stykkishólmi, Amar-
stapa, Rifi og Ólafsvík.
í Grundarfrrði voru seld 3.208
tonn árið 1997 á móti 3.378 tonnum
árið 1998, á Rifi 5.850 tonn árið 1997
á móti 6.045 tonnum árið 1998, á
Amarstapa 1.515 tonn árið 1997 á
móti 1.421 tonni árið 1998, í Ólafsvík
4.392 tonn árið 1997 á móti 4.675
tonnum árið 1998 og í Stykkishólmi
2.319 tonn 1997 á móti 2.983 tonnum
áriö 1998. Alls vom því seld 17.285
tonn árið 1997 á móti 18.504 tonnum
árið 1998.
Meðalverð árið 1997 var 91,05
krónur miðað við 105,80 árið 1998
sem er um 16% aukning. Heildar-
verðmæti selds afla var 1.583 miflj-
ónir árið 1997 á móti 1.957 milljón-
um árið 1998 sem er um 400 milljóna
króna aukning.
„Árið byrjar vel og við erum með
mikla aukningu í verðmætum.
Reksturinn kom vel út á síðasta
ári,“ sagði Tryggvi Óttarsson, fram-
kvæmastjóri markaðarins. „Á vor-
mánuðum munum við taka í notk-
un nýtt húsnæði á Rifi og er byrjað
að endurbæta það húsnæði. Við
höldum okkar striki og erum ekki í
þeim hugleiðingum að færa starf-
semina út fyrir svæðið. Við viljum
einbeita okkur að heimasvæðinu og
sinna þeim markaði vel. Það er okk-
ar markmið í dag.“
-DVÓ
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í heimsókn á Fiskmarkaði Breiðafjarðar. DV-mynd Jón Eggertsson
Stykkishólmur:
Átta ný störf
Fram-
sækin
vefsmiöja
í Borgar-
firði
DV, Vesturlandi:
Nýlega hóf Vefsmiðjan
Andakíll starfsemi og veitir
Bjarki Már Karlsson vefsmiðj-
unni forstöðu. „Vefsmiðjan var
stofnuð í október 1998. Ég hafði
þá um þriggja ára skeið annast
umsjón tölvukerfa Samvinnu-
háskólans á Bifröst og Bænda-
skólans á Hvanneyri. Meðal
þess sem ég vann fyrir skólana
var að setja upp vefi þeirra.
Það leiddi svo tfl þess að ýmsir
aðrir aðilar leituðu til mín
vegna vefsmíði og Intemetráð-
gjafar. Ég mat stöðuna sem svo
að verkefrii væru næg til að
standa undir rekstri vefsmiðju.
Auðvitað hafði ég áhyggjur af
því að þetta væri rangt mat og
að ég væri að fara úr góðu
starfi í verkefnalítinn rekstur.
En sem betur fer ætlar reyndin
að verða allt önnur. Fyrsta
stóra verkefni Andakíls var
Vesturlandsvefurinn og vef-
smiðjan er i dag með mörg
verkefni í vinnslu, bæði stór og
smá. Þar á meðal er vefur
Borgarbyggðar," sagði Bjarki
Már viö DV.
-DVÓ
DV.Vesturlandi:
Guðbrandur Björgvinsson útgerð-
armaður hefur fest kaup á nýjum
bát. Kom hann til heimahafnar upp
úr miðjum janúar og fékk nafnið
Amar. Nú er verið að gera á honum
smávægilegar breytingar í Skipavík
áður en hann fer á netavertíð. Guð-
brandur reiknar með að farið verði
út upp úr 7. febrúar.
Báturinn er 147 brt. og var hann
keyptur kvótalaus en á sama tíma
festi Guðbrandur kaup á 50 tonna
þorskkvóta. í staðinn lét hann einn
eldri báta sinna, Arnar, og með hon-
um skelkvóta. Kaupandi er Þórsnes.
Með þessu hefur kvótinn í bænum
aukist um 50 tonn og fært 8 ný störf
í bæjarfélagið. Þetta em því með
ánægjulegri fréttum sem Stykkis-
hólmsbúar hafa fengið i nokkum
tíma.
-DVÓ/ÓJ
Arnar í heimahöfn. DV-mynd ÓJ
I>V
Vesturlandsvef-
urinn á ensku
DV, Vesturlandi:
Vesturlandsvefurinn, sem ný-
lega var opnaður á slóöinni vest-
urland.is, hefur fengið frábærar
viðtökur frá opnun hans að sögn
Bjarka Más Karlssonar tölvu-
fræðings, sem sá um hönnun
vefjarins. „Ég hef fengið mikil
viðbrögð og öll góð. Það er
greinilegt á viðbrögðunum að
þetta var þjónusta sem vantaði.
Nú stendur yfir gerð Vestrn:-
landsvefjar á ensku, en hann
verður nokkuð frábrugðinn
þeim íslenska þar sem markhóp-
urinn er allt annar. Tilkynning-
ar um nýtt efni hafa jafnt og þétt
borist og svo verður áfram, en
mér er kunnugt um nokkum
fjölda vefja sem eru I vinnslu
bæði á vegum Andakíls og ann-
arra aðila. Á síðunni „á döflnni"
era birtar tilkynningar um
fundi, samkomur og mannamót
hvers konar í fjórðungnum; þær
upplýsingar era uppfærðar dag-
lega. Héraðsfréttablaðið Skessu-
horn birtir fréttir á Vestur-
landsvefnum í hverri viku, en
margar fréttanna birtast á vefn-
um áður en blaðið kemur út.
Loks er þess að geta að Vestur-
landsvefurinn velur vikulega
„síðu vikunnar“. Hugmyndin
með henni er að sýna dæmi um
gróskuna í netmálum á Vestur-
landi og jafnframt að hvetja
menn til dáða á því sviði."
-DVÓ
Nýr fréttavefur
í Borgarf irði
DV, Vesturlandi:
fbúar í Borgarfirði, sameinaða
sveitarfélaginu norðan Skarðsheið-
ar, og aðrir sem hafa aðgang-að ver-
aldarvefnum era vel upplýstir um
gang mála í sveitarfélaginu eftir að
nýr fréttavefur var opnaður - anda-
kill.is - sem Bjarki Már Karlsson
tölvufræðingur hefur umsjón með.
„Fréttavefur Andakíls opnaði 1. des-
ember ‘98. Ég var í sumar kosinn í
hreppsnefnd sveitarfélagsins Borg-
arfjarðar og varð þess fljótt var
hversu lítið íbúar hér vissu um
gang hreppsmála. Ég tel að það sé
vegna þess að eftir sameiningu fjög-
urra hreppa er fámenni hér ekki
lengur slíkt að fréttir berist frá
manni til manns, en fjölmennið
heldur ekki slíkt að málefni hrepps-
ins veki áhuga stóra fjölmiðlanna.
Úr þvi að ég hef í fóram mínum
fréttir úr sveitarfélaginu, pistla og
fundargerðir; og aðstöðu til að birta
þetta efni á netinu þá ákvað ég að
setja upp fréttaveflnn. Hann gefur
mér líka kost á að koma mínum eig-
in sjónarmiðum á framfæri, því
þetta er ekki vefur á vegum sveitar-
félagsins, hann er alfarið á minn
kostnað og mína ábyrgð," sagði
Bjarki Már við DV. -DVÓ
SKEIFUNN117 • 108 REYKJAVÍK
SÍIVII 581-4515 • FflX 581-4510
Kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn
3. febrúar kl. 20.30 að Sogavegi 69,108 Reykjavík
STJÓKNUNARSKÓI .INN
KonráO Adolphsson - Einkaumboð d tslandi
581-2411
FJÁRFESTING ÍMENNTUN
SKILAR ÞÉR ARÐl ÆVILANGT!
Hafa meiri tru a hæfileikum þinum.
Virkja eldmóðinn.
Verða betri í mannlegum samskiptum
Losna við áhyggjur og kvíða.
Láta í Ijós skoðanir þínar.
Hjálpar þér að:
Markvissan árangur,
V styrkur og meiri hæfni í
L leik og starfi hefur
7 námskeið Dale
Camegie® skilað mér.
J Því get ég sagt: „Dale
Wi Camegie® nýtist þér til
EinarH. Brídde góðs“
Sigrun Jóna
Sigurðardóttir
Meira sjálfstraust og
jákvæðari mannleg samskipti
er meðal annars það sem ég
fékk út úr mjög svo
skemmtilégu Dale
Camegie® námskeiði.
Hópurinn í heild sinni var
frábær!
Ég er afslappaðri og öruggari með
sjálfan mig við aðra. Ég hef ekki það
lengur á tilfinningunni.að eitthvað
misheppnað komi uppúr mér svo að
betra sé að þegja. í dag nýt ég þess að
tjá mig og njóta dagsins.
Lúðvíg Arni Sveinsson
Dale Camegie® námskeiðið gaf mér
aukinn eldmóð.meira öryggi og
sjálfstrausL í dag er ég betri ræðumaður.
Benedikta Jónsdóttir
Námskeiðið hjálpaði mér að víkka
sjóndeildarhringinn og gaf mér betri
innsýn í mannleg samskipti.
Ég öðlaðist meira öryggi og sjálfstraust
í daglegu lífi.
Oddný Árnadóttir