Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Blaðsíða 17
16 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 33^- íþróttir Bland i poka Helgi Kjartansson, HSK, sigraði með yfirburðum og fékk hæstu einkunn keppenda á Þorramóti GLl í glímu sem fram fór í íþróttahúsi Kennaraháskól- ans um helgina. Helgi hlaut 25 stig og einkunnina 8,33. Ólafur H. Kristjúns- son, HSÞ, varð annar með 5 stig og Pét- ur Eyþórsson, Víkveija þriðji með 2 stig. Dagar David Platts í starfi þjáifara ítalska A-deildarliðsins Sampdoria eru taldir. Platt gerði þriggja ára samning við félagið í desember. Honum tókst ekki að stýra liöinu til siprs í þeim leikjum sem hann stjómaði því og eftir tap um helgina er liðið í næstneðsta sæti. Þetta sættu forráðamenn Uðsins sig ekki við og því var Platt látinn víkja. islenska landsliöiö i snóker tekur þátt í sterku alþjóðlegu snókermóti sem fram fer í Lyon i Frakklandi dagan 4.-7. febrúar. 12 þjóðir senda lið á mótið en Frakkar eru með fjögur liö svo þátt- tökuUöin eru 16 taisins. Lið íslands skipa: Jóhannes B. Jóhannesson, Brynjar Valdimarsson og Jóhannes R. Jóhannesson. Mörg liðin eru skip- uð toppatvinnumönnum og verður íróðlegt aö sjá hvemig okkar mönnum reiðir af. Liðunum hefúr skipt í fjóra riðla og em íslendingar meö Hollend- ingum, þriðja liði Frakka og einni þjóð tU viðbótar sem ekki er vitað hver er. Siguröur Sigurðarson hestamaður, i hestamannafélaginu Herði, hefur verið kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar 1998. í öðra sæti varð Nina B. Geirs- dóttir, kylfingur i Golfklúbbnum KiU og Rafn Árnason, frjálsíþróttamaður varð i þriðja sæti í kjörinu sem íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar stóð fyrir. Þess má geta að Sigurður var einnig kjörinn hestaiþróttamaður árs- ins 1998 og þykir mikiU afreksmaður í hestamennskunni. Þórey Edda Elísdóttir náði sínum besta árangri i stangarstökki innan- húss á móti í Svíþjóð um síðustu helgi. Hún stökk 4,14 metra, jafhhátt og Vala Flosadóttir sem sigraði á færri tilraun- um. Þórey Edda á best 4,21 metra utan- húss. Guörún Arnardóttir náði mjög góðum tíma í 400 metra hlaupi innanhúss, 53,22 sekúndum, á fyrsta móti sínu i Bandarikjunum á þessu tímabUi. ís- landsmet hennar er 53,08 sekúndur og hún hefur ekki áður byrjaö timabU svona vel. Hiltnar Ingi Rúnarsson, 18 ára knatt- spymumaður úr Leiftri, er genginn í 1. deUdar lið Þróttar úr Reykjavík. Hiim- ar lék einn leik með Leiftri í úrvals- deUdinni i fyrra. Bjarni Jóhannsson, ÍBV, var útnefnd- ur þjálfari ársins í meistarafiokki karla og Jörundur Áki Sveinsson, Breiða- bliki, í meistaraflokki kvenna á aðal- fundi Knattspymuþjálfarafélags ís- lands um síðustu helgi. Þá tók Sigurö- ur Þórir Þorsteinsson við sem formað- ur félagsins af Bjarna Stefáni Kon- ráðssyni. Chris Jackson, sem lék með ÍR í úr- valsdefidinni í knattspyrnu síðasta sumar, tryggði C-deUdarliði Stirling Albion óvæntan sigur, 2-1, á toppliði B-deUdar, Hibemian, í skoska bik- arnum í gærkvöld. Jackson var seld- ur frá Hibernian til Stirling 1 haust. Ólafur Gottskálksson var aö vanda í marki Hibemian en átti enga mögu- leika 1 mörkunum tveimur. Queen’s Park, sem leikur í skosku D-deUd- inni, gerði markalaust jafntefli við Sigurö Jónsson og samherja hans i Dundee United í bikamum. Siguröur Örn Jónsson og Bjarni Þorsteinsson léku loks með varaliði enska félagsins Watford í fyrrakvöld en leikjum þess hafði verið frestað tvær vikur i röð. Sigurður Öm lék aUan leUíinn og Bjami í 75 mínútur þegar varalið Watford sigraöi utan- deUdaliðið Royston, 4-0, 1 svæðisbik- arkeppni. -VS/GH/SK/JKS íkvöld 1. deild kvenna í handknattleik: Fram-ÍR ...................18.30 FH-Valur ..................18.30 Grótta/KR..................18.30 Stjaman-ÍBV (frestað í gær) . . 18.30 KA-Víkingur................20.00 1. deild karla i handknattleik: Stjarnan-KA................20.30 FH-lBV.....................20.30 Selfoss-lR ................20.30 Grótta/KR-HK...............20.30 Valur-Fram.................20.30 Afturelding-Haukar.........20.30 Hlynur Birgisson: Ekki samningur að svo stöddu - Dundee vill fá hann aftur í sumar Forráðamenn skoska knatt- spymufélagsins Dundee ákváðu í gær að bjóða ekki Hlyni Birgissyni úr Leiftri samning að svo stöddu en hafa hug á að fá hann aftur til sín í sumar með næsta tímabil í huga. Hlynur var til reynslu hjá Dundee í síðustu viku eins og fram kom í DV. Hann lék í fyrrakvöld með liðinu í æfingaleik gegn Fal- kirk. Heimildarmaður DV hjá Dundee sagði að ljóst væri að Hlyn- ur væri mjög sterkur varnarmaöur, en hann væri greinilega ekki í leik- formi, sem væri eðlilegt því hann spilaði síðast i Svíþjóð í nóvember- byrjun. Það tæki of langan tíma fyr- ir hann að komast í form til að raunhæft væri fyrir Dundee að hafa full not af honum á yfirstandandi tímabili. Dundee þyrfti varnarmann sem gæti byrjað að spila strax. Hlynur gekk í vetur til liðs við Leiftur eftir að hafa leikið í fjögur ár með Örebro í Svíþjóð. -VS 8-liða úrslit meistaradeildar Evrópu í handbolta: Kiel tapaði heima - Veszprem og Barcelona skildu jöfn Þýska stórliðið Kiel tapaði fyrri leiknum fyrir spænska liðinu San Antonio Portland í 8-liða úrslitum meistaradeildar Evrópu í hand- knattleik. Spánverjamir komu Kiel í opna skjöldu strax í byrjun og höfðu frumkvæðið alla leikinn en í hálfleik var staðan, 11-12. í síðari hálfleik breikkaði bilið og lyktir leiksins urðu, 21-24, og því er ljóst að róðurinn veröur erfiður fyrir Kielar-liðið í síðari leiknum á Spáni um næstu helgi. Perunicic og Peter- sen skoruðu 5 mörk hvor fyrir Kiel og Jillaldes skoraði 8 mörk fyrir Portland. Fotex Veszprem og Barcelona gerðu jafntefli, 29-29, í Ungverja- landi en í hálfleik var staðan, 14-15, Enski bikarinn: Tottenham í 5. umferð Tottenham komst í 5. umferð ensku bikarkeppninnar í gær- kvöld með því að leggja Wimbledon að velli á White Hart Lane með þremur mörkum gegn engu. Andy Sinton skoraði fyrsta markið strax á 3. mínútu en í síðari hálfleik fylgdu tvö mörk í kjölfarið frá Allan Niel- sen. Tottenham mætir Leeds í næstu umferð sem leikinn verð- ur laugardaginn 13. febrúar. Hermann Hreiðarsson og sam- herjar í Brentford gerðu jafntefli við Carlisle, 1-1, í D-deildinni. -JKS fyrir Barcelona sem varð Evrópu- meistari í fyrra. Það þykir nokkuð öruggt að spænska liðið fari áfram en Börsungar hafa ekki tapað leik á heimavelli í nokkur ár. Josep Eles, sem íslenskir handboltaáhugamenn þekkja vel, var í essinu sínu í þess- um leik og skoraði 10 mörk fyrir Fotex. Slóvenska liðið Celje ætti að eiga góða möguleika á að komast áfram eftir útisigur á rússneska liðinu Volgograd, 18-22. Aouskov skoraði 6 mörk fyrir Rússana og Pongartnik skoraði 6 mörk fyrir Celje. Loks sigraði Badel frá Zagreb úkraísnka liðið Zaporozhje, 21-22, á útivelli og á heimaleikinn inni næsta sunnudag. -JKS Birkir lík- legast til Eyja - gaf Fram afsvar Flest bendir til þess að Birkir Kristinsson, landsliðsmarkvörð- ur í knattspymu, gangi til liðs við ÍBV fyi'ir komandi tímabil - nema honum verði boðinn nýr samningur hjá Bolton. Hann samdi sem kunnugt er við enska félagiö til 17. mars. Birkir hefur átt í viðræðum við Framara en í gær gaf hann þeim endanlegt afsvar. -VS Glenn Hoddle gerði stuttan stans á blaðamannafundinum í London í gærkvöld. Hann gaf út stutta yfirlýsingu og hélt síðan á brott. Howard Wiikinson mun stjórna enska landsliðinu í vináttuleiknum gegn heimsmeisturum Frakka. Reuter Glenn Hoddle rekinn í gær: „Nornaveiðar" - Wilkinson tekur við í bili - óvíst hver verður ráðinn Howard Wilkinson tók í gærkvöld við stjórn enska landsliðsins í knatt- spyrnu eftir að Glenn Hoddle var vikið úr starfi sínu sem landsliðsþjálfari. Hann stýrir liðinu gegn Frökkum í næstu viku en óvíst er hvort hann heldur áfram með liðið eða hvort ann- ar maður verður ráðinn. í viðtali við blaðið The Times um síðustu helgi var haft eftir Hoddle að fatlað fólk væri að taka út refsingu fyr- ir syndir á fyrri tilverustigum. Hoddle segir að skoðanir sínar hafi verið afbakaðar af blaðamanni The Times en bað í gærkvöld fatlað fólk af- sökunar á þeim sársauka sem þetta hefði valdið því síðustu daga. Ljóst er að enska knattspymusam- bandið var tvístígandi í afstöðu sinni til málsins en almenningsálitið í Bret- landi og þrýstingur stjórnmálamanna réð greinöega úrslitum um að Hoddle var rekinn. Sú ákvörðun var tilkynnt laust fyrir klukkan 7 í gærkvöld. „Það vom fjölmiðlarnir sem hröktu Hoddle úr starfl. Þetta vom hreinar nornaveiðar. Hann er greinilega of góð- ur til að starfa í þessu landi,“ sagði Eileen Drewery, læknamiðillinn um- deildi, sem hefur aðstoðað Hoddle um árabil. Bryan Robson hjá Middlesbrough var talinn líklegsti eftirmaður Hoddles en hafnaði því alfarið í gær. Bobby Robson, fyrrum landsliðsþjálfari sem nú þjálfar PSV Eindhoven, bauð í gær fram krafta sína en þykir ekki líklegur eftirmaður. Terry Venables, sem var með liðið á undan Hoddle, hefur einna helst verið nefndur ásamt Kevin Keeg- an hjá Fulham og John Gregory hjá Aston Villa. -VS Lasse Kjus kemur í markið í gærkvöld og deildi gullinu með Hermann Maier. Reuter Heimsmeistaramótiö í alpagreinum: Tveir hnífjafnir Sá einstæði atburður átti sér stað í gærkvöld í fyrstu grein heims- meistaramótsins í alpagreinum skíðaíþrótta að tveir keppendur fengu sama timann upp á sekúndu- brot í risasvigi karla. Þetta voru þeir Norðmaðurinn Lasse Kjus og Austurríkismaðurinn Hermann Maier og skiptu þannig með sér gullinu. í risasvigi fara skíðamennimir aðeins eina ferð og fengu þeir Kjus og Maier tímann 1:14,53 mínútur. Sá sem kom i þriðja sætinu, að- eins 1/100 úr sekúndum á eftir, var Hans Knauss frá Austurríki. í Colorado verður í dag keppt í risasvigi kvenna en fresta varð keppninni í fyrradag vegna snjó- komu. íslensku keppendumir koma til Colorado á föstudag en Kristinn Bjömsson kemur á laugardag. Þeir hefja síðan keppni eftir helgina. -JKS Jacques Rogge í framkvæmdanefnd Alþjóöa Ólympíunefndarinnar: í lagi að múta Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, hefur ákveðið að hætta við rannsókn á vinnubrögðum Ástrala við að fá Ólympíuleik- ana á næsta ári tU Sydney. Fulltrúar í IOC frá Kenýa og Úganda hafa viðurkennt að hafa þegið milljónir króna frá Áströlum skömmu áður en at- kvæði voru greidd árið 1993 um staðarval leikanna árið 2000. Þá hefur forseti Ólymp- íunefndar Ástraliu viður- kennt ofangreindar mútu- greiðslur. í síðustu viku lýstu Juan Antonio Samaranch, forseti IOC, og Jacques Rogge, belgískur meðlimur í fram- kvæmdanefnd IOC, því yfir að Rogge væri á fórum tfl Sydn- ey til að fara ofan í saumana á málinu. Nú hefur þessum heiðurs- mönnum skyndilega snúist hugur. „Það er engin þörf fyr- ir IOC að rannsaka þetta mál. Frá okkar sjónarhorni hafa Ástralar ekki gert neitt sem stangast á við reglur,“ sagði Rogge i gær. Þar með hefur hann staðfest að IOC leggur blessun sína yflr mútugreiðsl- ur og hlýtur það að teljast til tíðinda. Reyndar koma þessi við- brögð ekki á óvart ef mið er tekið af þeirri spUlingu sem búið er að draga fram í dags- ljósið. Fulltrúi Kenýa í IOC, Charles Mukora, hefur sagt af sér. Hann hefur ekki getað gefið fullnægjandi skýringar á því í hvað miUjónirnar frá Áströlum fóru. IOC getur ekk- ert gert frekar í málinu þar sem svissnesk lög leyfa ekki rannsóknir á athæfi manna sem sagt hafa af sér. I gær hófst tveggja daga ráðstefna IOC um lyfjamál innan íþróttahreyflngarinnar í Lausanne í Sviss. Skuggi spUlingar og siðleysis með- lima IOC hvílir yfir ráðstefn- unni og látlausar kröfur þess efnis að Samaranch segi af sér. -SK Juan Antonio Samaranch, forseti IOC, setur ráðstefnu um lyfjamál innan íþróttahreyfingarinnar í Lausanne í Sviss í gær. Samaranch er enn hvattur til að segja af sér um víða veröld. Reuter íþróttir Eggert Magnússon, formaður KSÍ, um úthlutun Afreksmannasjóðs: Fáum allt of lítið - kallar á breytt vinnubrögð og áherslur í störfum sjóðsins, segir Eggert Afreksmannasjóður ÍSÍ og Ólymp- íufjölskyldan hafa ákveðið 30 millj- óna króna styrkveitingu til íþrótta- manna og sérsambanda á þessu ári. Knattspyrnusambandið fær 1 milljón króna vegna A-landsliðs kvenna en umsókn KSÍ um styrk vegna A-landsliðs karla var hafnað. „Okkur sem stöndum að knatt- spymunni, vinsælusu íþrótt heims, fannst úrslitin hjá karlalandsliðinu í haust, jafntefli gegn heimsmeistur- um Frakka og sigurleikur gegn stór- þjóð á borð við Rússa, standa ansi mikið upp úr í íslensku íþróttalífi á liðnu ári. Ég bjóst kannski alveg við þessum úrslitum en það kallar þá bara á að það þarf breytt vinnu- brögð og breyttar áherslur í starfl Afreksmannasjóðs," sagði Eggert Magnússon, formaður Knattspymu- sambands íslands, í samtali við DV. Á meðan KSÍ fær 1 milljón króna fær Handknattleikssambandið 3 milljónir vegna undirbúnings þátt- töku á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 og Frjálsíþróttasambandið ásamt afreksmönnum innan frjálsí- þrótta fá samtals 8,7 milljónir. Það verður að viðurkenna starf okkar „Það verða átök um afreksmálin í íslensku íþróttalífi, sérstaklega eftir sameiningu ÍSÍ og Óí, í nánustu framtíð. Eftir þvi sem peningamir aukast er ljóst að átökin um þá aukast og við í knattspymuhreyf- ingunni teljum okkur fá allt, allt of litið af þeim peningum sem eru til úthlutunar í íþróttalífinu miðað við okkar starf, umfang og flölda iðk- enda. Við erum að eyða miklu fé í landsliðin okkar. Ég er ekki að telja það eftir en það er alveg ljóst að það verður að viðurkenna það starf.“ „Ég er auðvitað mjög ánægður með að kvennaliðið skuli fá viður- kenningu og það gerist einmitt þeg- ar við eram að bæta við einu kvennalandsliði, u-18 ára liði,“ sagði Eggert. - Fyrst styrkur fékkst ekki núna fyrir frábæran árangur karlaliðsins hvenær fæst hann þá? „Það era vitlausar reglur sem eru settar út frá sjónarmiðum ein- staklingsíþróttanna. Þeim verður að breyta og við verðum að vinna að því. Það er erfltt að setja út á úthlut- unina á meðan reglurnar era svona. Á sama hátt er ég ánægður með körfuboltinn skyldi fá smá úthlutun (800.000) núna. Þar er verið að vinna mjög gott starf en KKÍ er í sömu vandamálum og við í KSÍ að fá við- urkenningu," sagði Eggert að lok- um. -GH ENGIAND John Scales, varnarmaður Totten- ham, leikur líklega ekki meira með á þessari leiktíð. Hann gekkst undir að- gerð í kálfa en meiösli þar hafa verið að plaga hann í tvö ár. Bryan Robson, stjóri Middlesbrough, og Steve Gibson, stjórnarformaður fé- lagsins, voru á Spáni í gær að freista þess að að fá Brasilíumanninn Junin- ho aítur til Boro en hann fór frá félag- inu til Atletico Madrid fyrir 18 mán- uðum. Aston Villa hefur ekki gefið upp alla von um að fá Juninho en hann átti fimd með Villa-mönnum í Englandi í síðustu viku. Fréttir frá Middlesbrough herma að búið sé að semja um að fá Juninho, en forráða- menn Atletico harðneituðu því í gær- kvöld og sögðu að hann færi hvergi. t Kevin Campbell gæti verið á leiðinni til Nottingham Forest á nýjan leik en hann seldur með látum frá félaginu í sumar til tyrkneska liðsins Trabzon- spor. Nú eru Tyrkirnir reiðubúnir að láta Campbell til baka fyrir 250 millj- ónir eða sömu upphæð og þeir keyptu hann frá Forest. FYamherjanum sterka líkar ekki vistin í Tyrklandi og þá hef- ur harrn ekki verið sáttur við að launa- greiðslur til hans hafa dregist. Colin Todd, knattspymustjóri Bol- ton, hefur verið útnefndur stjóri janú- armánaöar í ensku B-deUdinni í knattspyrnu. Bolton vann alla þrjá leiki sína í deildinni í janúar og er komið upp i 3. sæti deildarinnar. Þá var Kevin Keegan útnefndur knatt- spyrnustjóri C-deildarinnar. Undir hans stjóm er Fulham efst í deildinni og sló út tvö A-deildarlið í bikarnum, Southampton og Aston Villa. Tore Andre Flo, Norðmaðurinn snjalli hjá Chelsea, er byrjaöur að æfa á ný, fyrr en áætlað var, en hann gekkst undir aðgerð á ökkla fyrir fjór- um vikum. Þetta era ánægjulegar fréttir fyrir Chelsea enda hafa mikil meiðsli herjað á leikmenn liösins á undanfornum vikum. Síðastur til að fara sjúkralistann var varnarmaður- inn sterki Michael Duberry sem tognaði í læri í leiknum gegn Arsenal. -GH ENGIAND Colin Todd, framkvæmdastjóri Bol- ton Wanderers, notaði Arnar Gunn- laugsson óvænt um liðna helgi i sig- urleik Bolton gegn Norwich. Amar lék þá síðustu 15 mínútur leiksins. Eitthvað virðist Todd vera að mýkj- ast í afstöðu sinni til Arnars. Fyrir nokkrum vikum sagði Todd að Amar væri gráðugur eftir að Amar neitaði nýjum samningi við Bolton sem átti að tryggja honum 690 þús- und krónur í laun á viku. I gær sagði Todd hins vegar að þrátt fyrir að Amar væri á sölulista stæði hann heils hugar með íslendingnum. Enn hefur ekkert tilboð borist í Am- ar, hvað sem síðar verður. Það skýrist í þessari viku hvort áhugi Leicester er fyrir hendi en félagið bráðvantar sóknarmann. Todd segir að Martin O’Neill, stjóri Leicester, hafi talað við sig um Arnar í síðustu viku, en síðan hafi hann ekkert heyrt frá honum né öðrum. Taliö er víst að bakvörðurinn Rob Jones gangi frá samningi við West Ham í þessari viku og fari þar með frá Liverpool. Talað er um 4 milljón- ir sem kaupverð. Arsenal og Celtic hafa einnig haft augastað á kappan- um. Dennis Irwin, bakvörður Manchest- er United, hefur verið látinn vita af því að nærvera hans sé óskað á Old Trafford i framtíðinni. Martin Ed- wards, stjómarformaður United, sagði í gær að gengið yrði frá nýjum samningi við Irwin á næstu vikum. Gerard Houllier, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur lýst því yfir að hann muni á næstu vikum styrkja lið sitt verulega. Eric Meijer, leikmaður Bayer Leverkusen, er sagður skrifa undir hjá Liverpool í þessari viku en hann þykir mjög öflugur leikmaður. Þá hafa forráðamenn Liverpool gefið i skyn undanfama daga aö fleiri leik- menn kynnu að vera á leið til félags- ins. Kasey Keller, markvörður Leicester og bandaríska landsliðsins, gæti ver- ið á fóram frá liðinu eftir timabilið í vor. ítalska liðið Udinese hefur fylgst með Keller um tima og hrifist mjög af honum. Samningur Kellers rennur út hjá Leicester i vor og hefur Keller lát- ið uppi aö hann vilji leika á Ítalíu. -SK/VS/JKS Næstu leikir í þýsku úrvals- DEILDINNI Á BREIÐBANDINU: 10.02 Essen - Nordhom (Patrekur Jóhannesson og Páll Þórólfsson) 17.02 Schwartau - Eisenach (Róbert Duranona) 24.02 Lemgo - Nettelstedt Nú býðst öllum þeim sem tengdir era breiðbandinu eða kapalkerfi Hafnarfjarðar að fylgjast með þýsku úrvals- deildinni í handbolta í beinni útsendingu næstu átta vikurnar. Margar af okkar bestu handboltahetjum leika með úrvalsliðunum í Þýskalandi og í kvöld kl. 19:25 spila í beinni útsendingu Frankfurt og Íslendingaliðið Wuppertal, með þá Geir, Valdimar og Dag innanborðs. Þýski handboltinn er sýndur beint í opinni dagskrá á Sýnishornarás breiðbandsins á miðvikudögum. Öllum leikjunum er lýst af margreyndum íþróttafrétta- mönnum Sjónvarpsins. yfir 25.OOO HEIMIXI EIGA ÞBSS NÚ KOST AS TENGIAST BREIDBANDINU Á HÖFUÐBORGAR- SVÆÐINU OG 800 HEIMILI Á HÚSAVÍK. Hringdu strax og kynntu »ÉR MÁLID! HTíTn 7474 1» iiON—ai_____ BREIÐVARPIÐ SJÓNVASPSMÓNUSTA SÍMAIJS V Opið allan sólarhringinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.