Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1999, Page 32
Wi Ltm FRETTASKOTIÐ SfMiNN SEM ALDREI SEFUR mw PPF ■j-r ' . , , ,s f&m* I .ijymJíL jý i djt:j Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJALST, OHÁÐ DAGBLAÐ MIÐViKUDAGUR 3. FEBRUAR 1999 n - m ft § i M II ÍI ■n. i'—** A » Alllr hafa sitt hlutverk. í Ráðhúsinu ræða menn þjóðþrifamál en þessi þrífur Tjörnina og það skiptir ekki minna máli. DV-mynd Hilmar Þór Samskipti karlmanns á fertugsaldri og unglingsstúlku: Þjálfari rekinn vegna sambands við stúlku - taldi barniö öruggt í íþróttafélagi, segir móöirin Þjálfara þriðja flokks kvenna í handbolta hjá íþróttafélagi í Reykja- vík hefur nýlega verið vikið frá störfum vegna sambands hans síð- ustu mánuði við stúlku í liðinu sem er nýorðin 16 ára. Maðurinn er á fertugsaldri. Málsaðilar sem DV hefur rætt við, þjálfarinn sjálfur, móðir stúlkunnar og formaður handknatt- leiksdeildar félagsins, eru í raun öll sammála um að það hafi verið rétt málalok að þjálfarinn myndi víkja. Málinu er hins vegar ekki lokið á milli móður og dóttur enda var stúlkunni gert að flytja úr foreldra- húsum á meðan hún væri enn í sambandi „við þennan mann“. Hún dvelst nú á sjálfseignarstofnun en leggur eftir sem áður stund á hand- bolta hjá íþróttafélaginu. Þrátt fyrir að stúlkan hafl margoft dvalið næturlangt hjá þjálf- aranum þvertekur maðurinn fýrir að hér hafi verið um kynferðislegt samband að ræða - einungis trúnað- arsamband og vinskap. Hann vildi að öðru leyti ekki ræða málið opin- berlega. „Ég hélt að maður gæti verið ör- uggur með bömin sín hjá íþróttafé- lögum,“ sagði móðirin í samtali við DV. „Þetta hefur kostað að dóttir mín féll á öllum prófum og við urð- um að láta hana fara að heiman. Þessi maður hefur haft mikla stjóm á stúlkunni. Ég óska þess bara að böm geti verið óhult hjá íþróttafé- lögunum. Fólk verður að fá að vita hvar það stendur. Hvort sem þama er bara um vinskap að ræða eða ekki þá er þetta samband í hæsta máta óeðlilegt," sagði móðirin. Svavar Kristinsson er talsmaður íþróttafélagsins: „Aðalástæðan fyrir því að ég lét þjálfarann fara var sú að hann var kominn inn á verksvið foreldranna. Þetta var orðinn hálfgerður feluleik- ur,“ sagði Svavar. -Ótt Nýr stjórnmálaflokkur Samfylkingar: Arni og Bryndís vilja nýjan flokk en Margrét ekki „Ég tel öllum það fyrir bestu að stofha stjómmálasamtök Samfylk- ingarinnar hið sjötmda sætið á lista Samfylking- arinnar í Reykjavík, er sama sinn- is. Hann telur fyrsta þótt það sé kannski ekki endilega nauð- synlegt að gera það fyrir kosn- ingar," sagði Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Al- þýðubandalags- ins og þriðja manneskja á lista Samfylkingarinnar i Reykja- vik, í samtali við DV nú i morgun. Ámi Þór Sigurðsson, sem hreppti Ámi Þór Sigurðsson. Bryndís Hiöðversdóttir. rétt að huga að stofnun nýs flokks strax eftir kosningamar. Margrét Frí- mannsdóttir, for- maður Alþýðu- bandalagsins og fyrsti maður á lista Samfylking- arinnar í Suður- landskjördæmi, sagði í morgun viö DV að ekki stæði til af hálfu flokkanna sem að Samfylkingunni standa að stofna sérstakan stjómmálaflokk. Ljóst væri þó að í flestum kjördæmum landsins væri mikill áhugi fyrir því að til verði einhver sameiginlegur samráðsvett- vangur án þess þó að um flokksstofnun yrði að ræða. Hún kvaðst spá því að sá sam- ráðsvettvangur Margrét Frímannsdóttir. gæti orðið til á þessu ári eða því næsta. Sjá nánar á www.visir.is. -SÁ Guðný fær áskoranir um aö fara fram: Ihugar aö hætta við að hætta Guðný Guðbjörnsdóttir kann að hætta við að hætta í pólitík. Hún hafði tilkynnt í fjölmiðlum strax að lokinni talningu í prófkjörinu að hún mundi ekki taka öðm sæt- inu í hólfi Kvennalistans og átt- unda sætinu á lista samfylkingar- innar í vor, það mundi hún ekki gera þar sem hún keppti að fyrsta sæti i hólfi Kvennalistans en fékk það sæti ekki. „Ég vil átta mig á stöðunni. Hér er stanslaust hringt til mín af fólki úr öllum flokkum og ég hef ekki lokað á eitt eða neitt eða tilkynnt um neitt formlega. Ég hef líka fengið undir- skriftir frá ungliðum hjá Kvenna- listanum. Ég hef sagt við fólk að ég ætla að hlusta eftir þessum við- brögðum og meta þau. Ég vil eng- um bregðast," sagði Guðný í morg- tm. Hún segist munu tilkynna kjörstjóm næstu daga hver endan- leg ákvörðun sín verður. -JBP GÓÐ ÍÞRÓTT- GULLI BETRI! Veðrið á morgun: Hvassviðri eöa stormur Á morgun verður allhvöss norðvestlæg átt en hvassviðri eða stormur norðaustan- og austan- lands. Snjókoma eða él verða á landinu, einkum norðaustan til. Lægir mikið síðdegis og léttir til sunnanlands. Kólnandi veður. Veðrið í dag er á bls. 45. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.