Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Blaðsíða 6
Fréttir i>v
Verkafólk á Eskifirði:
Samþykkti kauplækkun
- vegna gallaðs samnings var hægt að nota biðtíma til að hækka bónus
Kauplækkun var samþykkt af
þorra verkamanna við Hraðfrysti-
hús Eskifjarðar á fóstudaginn. Sá er
alla vega skilningur þeirra 13, sem
lögðust gegn nýjum samningi um
loðnufrystingu sem fyrir dyrum
stendur i húsinu. Á fundi á föstu-
daginn samþykktu 39 lækkunina, en
8 skiluðu auðum seðlum. En líta má
á gjöminginn sem leiðréttingu á
gölluðum samningi.
Haukur Bjömsson hjá Hraðfrysti-
húsi Eskifjarðar sagði í samtali við
DV í gær að í öllum samnmgum um
bónus sé tiltekið að tafir skuli
greiddar, séu þær vegna bilana eða
annarra óviðráðanlegra orsaka. I
samningnum sem unnið var eftir í
fyrra hafði þetta ákvæði af einhverj-
um ástæðum dottið út. Það þýddi að
hægt var að „búa til“ tafir, tÖ dæm-
is með því að vinna mjög hratt,
þannig að vinnslulínan hafði ekki
undan. Þannig voru búnar til „taf-
ir“ sem hækkuðu bónusinn upp úr
öllu valdi. Haukur segir að þessi
annmarki hafi þarna verið leiðrétt-
ur til samræmis við það sem gildir
I öðrum húsum. Um þetta hafi verið
lítill ágreiningur.
„Auövitað kemur þetta út sem
lækkun, en launin hjá okkur eru
töluvert betri en víðast hvar þrátt
fyrir það. En það sjá allir að það á
ekki að vera hægt að hækka bónus-
inn stórkostlega á þennan hátt,“
sagði Haukur.
Sigurður Ingvarsson, formaður
Árvakurs, verkalýðsfélagsins á
Eskifirði, staðfesti í gærkvöldi að
samiö hefði verið um loðnufrysting-
una á komandi vertíð. Hann vildi
ekki tala beinlínis um launalækkun
og sagði sátt ríkja um málið.
Loðnufrystingin er ábatasöm fyr-
ir verkafólkið, mikil töm eins og
við síldarsöltun fyrri tíma. í fyrra
var fólk að fá allt að 100 þúsund
krónur á viku i launaumslögin.
Frystingin er því kærkomin töm,
sem skiptir sköpum fyrir efnahag
fólksins. -JBP
Body Pump - nýtt form í heilsurækt:
Ekkert kynja- eða kynslóðabil
- árangurinn hefur ekki látið á sér standa
Body Pump er nýjasta nýtt í heilsu-
ræktinni og það er komið um land allt
og vinsælt um allan heim í dag. Lík-
amsræktarstöðin Þokkabót í Frosta-
skjóli í Reykjavík hefur boðið upp á
Body Pump allt frá því að byrjað var
að kenna það á íslandi. Hjá Þokkabót
og víðar em þessar æfingar orðnar
langvinsælastar af því sem í boði er
til að hressa upp á ástand likamans,
segir Jón Halldórsson, Nonni í Þokka-
bót, í viðtali við DV.
- En hvaða aðferð er Body Pump?
„Þessi aðferð er orðin sjö ára göm-
ul og kemur frá Les Mills á Nýja-Sjá-
landi, sama fyrirtækinu og byrjaði
með pallaleikfimina á sínum tíma.
Body Pump náði fljótlega miklum vin-
sældum víða um heim. Þetta er lyft-
ingatími, hóptími með kennara þar
sem lyftingaæfingar eru gerðar í takt
við hvetjandi og skemmtilega tónlist.
Þetta er mjög örvandi form og
skemmtilegt. Kerfið er samansett af
sjúkraþjálfurum, íþróttafræðingum og
fleiri sem hafa hugað að réttri lyft-
inga- og æfingatækni," segir Jón Hall-
dórsson í Þokkabót.
Skemmtilega blandaður hópur
Jón segir að hann sé kominn með
mikla reynslu af Body Pump og hún
sé griðarlega góð. Állir geta verið
saman í tíma, jafnt byrjendur sem
lengra komnir, konur og karlar og
gamlir sem ungir. Hópurinn er því
skemmtilega blandaður. Fólk lyftir
misþungu eftir því hvar það er statt í
þjálfunarferlinu. Jón segir að fólk sé
að ná afar góðum árangri í Body
Pump og mörg dæmi eru um að fólk
Body Pump er nýjasta nýtt í heilsuræktinni.
sem hefur stundað þolfimi undanfarin
ár hafi náð meiri árangri eftir að það
fór að stunda Body Pump.
Mörgum hefur þótt leiðinlegt að
vera í tækjasal og æfa einir og sjálfir
án hvatningar. En þama eru menn í
hópi með kennara og tónlist og allt
verður skemmtilegra. Lyftingarnar
eru grundvallaratriði til þess að ná ár-
angri þegar veriö er að brenna fitu og
byggja upp vöðva. Þetta er í rauninni
sterkasta vaxtarmótun sem þú getur
fengið. En þrátt fyrir að þetta sé lyft-
ingatími þá er engin hætta á að verða
eitthvert vöðvabúnt.
Endurtekingamar eru svo miklar
að þjálfunarfræðilega séð er ekki
möguleiki á að
verða eitt alls-
herjar vöðva-
búnt á að
stimda
BodyPump.
BodyPump er
því leikfimi sem hentar öll-
um, ekki síst konum sem erfitt hefur
verið að fá í tækjasalinn til að lyfta.
Þama eru þær allt í einu byijaðar að
lyfta á fullu og árangurinn er ótrúlega
góður og hvetjandi," segir Jón.
Enginn dans, engin hopp
Body Pump er staðlað, æfingarnar
eru þær sömu alls staðar þar sem það
er í boði. Ekki
sKiptir máli hver er
að kenna eða hvar þú ferð
í tíma. Þú gengur alltaf að
Body Pump sem ömggri og
góðri þjálfunaraðferð. Þú getur
á að æfingamar séu hárréttar
og öruggar. Tónlistin er líka alls stað-
ar sú sama fyrir æfingarnar, popptón-
list, ný og eldri. Tíminn er 45-60 mín-
útur og keyrt á fullu, engin hopp, eng-
in dansskref, þannig að allir geta far-
ið í BodyPump. Eflaust kviknar áhugi
hjá fólki á að prófa þetta nýja form
líkamsræktar og þá er upplagt að
koma við á stöð sem býður upp á tíma
í Body Pump. -JBP
ÚKEYPIS
Þokkabót, Ræktin, Gym 80, Aerobic Sport, Perlan í Reykjanesbæ,
í toppformi í Mosfellsbæ, Hress í Hafnarfirði, Hressó í
Vestmannaeyjum, Vaxtarræktin á Akureyri, Heilsuræktin á Sauðárkróki
og Betrunarhúsið í Garðabæ.
Mjög döpur veiöi
- sögðu skipverjar á netabátnum Geir frá Þórshöfn
DV, Akureyri:
„Veiðin hefur verið ansi döpur að
undanfömu," sögðu þeir Guðmund-
ur Jóhannsson og Hólmgeir Hreins-
son, skipverjar á Geir ÞH-150, þar
sem þeir voru að landa á Þórshöfn.
Geir er 80 tonna bátur og hefur
verið i dagróðmm á netum. Þeir
Guðmundur og Hólmgeir sögðu að
tíðarfariö í vetur hefði verið ákaf-
lega slæmt. Það hefði að visu komið
einn og einn dagur, eins og þeir orö-
uðu það, en varla meira.
„Við erum að sigla í svona fjóra
og hálfan tíma norður eftir héðan og
föram út aftur í nótt,“ sögðu þeir fé-
lagar. Þeir höfðu komið inn
skömmu fyrir kvöldmat og strax
var tekið til við að landa. Síðan stóð
til að sofa smástund áður en aftur
yrði lagt í hann. Það er lítið gefið
eftir þegar sjómennskan er annars
vegar. -gk
Guðmundur Jóhannsson og Hólmgeir Hreinsson að landa úr Geir.
DV-mynd gk
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
Handafl?
Hin vel kynnta þingkona, Guðný
Guðbjömsdóttir, er að átta sig á
áttunda sæti samfylkingarinnar
þessa dagana. Að sögn hefur fjöldi
manns haft sam-
band við hana og
beðið hana að
hætta við að hætta.
Ekki er að vita
hvað kemur út úr
þessum vanga-
veltum Guðnýjar.
Því er þó ekki að
neita að sumir
óttast í alvöru aö grip-
ið verði til sams konar handaflsað-
gerða og hjá Kvennalistanum í
Reykjaneskjördæmi forðum, að
Guðrún Ögmundsdóttir verði „lát-
in“ víkja úr fjórða sætinu fyrir Guð-
nýju. En þá er eins víst að fjandinn
verði laus í dyngju kvenna...
Aðstoðarkona á förum
Það gekk fúllkomlega eftir sem
Sandkom fullyrti í stunar að hin
nýja aðstoðarkona Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur borgar-
stjóra yrði Ámi
Þór Sigurðsson.
Þessi Ámi hampar
nú öruggu þing-
sæti og er þvi á
förum frá borg-
inni. Skilur hann
Ingibjörgu eina
eftir í Ráðhús-
inu. Það sem
mun einkum hafa
ráðið því að Árni Þór var á sínum
tíma valinn tU starfa sem aðstoðar-
maður borgarstjóra var að hann er
í Svavars-arminum í Alþýðubanda-
laginu en Helgi Hjörvar í allt öðr-
um og borgarstjóranum óaði upp-
gangur Helga og félaga. Nú er beð-
ið eftir því með mikilli forvitni að
sjá hver verður næsti aðstoðarmað-
ur Ingibjargar. Heimildir Sand-
koms telja víst að það verði ein-
hver ungliði vinstriflokkanna. En
sjálfur Helgi tekur viö starfi forseta
borgarstjórnar á þessu ári úr hönd-
um eiginkonu Svavars, Guðrúnar
Ágústsdóttur...
Nýliðinn
Furðusvipur hefur komið á
marga sjálfstæðismenn á Suður-
landi vegna fullyrðinga stuðnings-
manna Óla Rúnars Ástþórssonar
um að hann eigi
mesta möguleika í
slagnum við Áma
Johnsen í próf-
kjörinu á laugar-
dag. Sjálfstæðis-
mennimir eru
margir vantrúað-
ir á að maður
sem tilkynnti
um þátttöku í próf-
kjörinu um leið og hann sótti um
inngöngu í Sjálfstæðisflokkinn eigi
mikla möguleika. Er gjarnan bent á
að Árni Johnsen hafi gengið í
Sjálfstæðisflokkinn um svipað leyti
og hann eignaðist fyrsta gítarinn og
þeir Kjartan Ólafsson og Ólafur
Bjömsson, sem einnig gefa kost á
sér í fyrsta sætið, hafi starfað með
flokknum í meira en tvo áratugi. En
menn skulu aldrei segja aldrei...
Seinheppni
í Vefþjóðviljanum segir að örlæti
borgarstjórans í Reykjavik séu lítil
takmörk sett þegar borgarbúum er
gefinn kostur á að greiða nýja og
hærri skatta. En
rausnarskapurinn
eigi sér fleiri hliðar
því fyrir nokkrum
dögum hafi borg-
arstjórinn sent
borgarbúum lit-
prentaðan aug-
lýsingabækling
um skíðasvæðin
við borgina. Fylgdi frímiði í
an dag í lyftumar fyrir alla fjöl-
skylduna. Daginn sem bæklingur-
inn og frímiðinn góði voru bomir í
hús hækkaði hitinn í borginni um
20‘ C og byrjaði að rigna hressilega.
Síðan hefur varla fryst né stytt upp.
Miðinn gildir til 10. febrúar...
Umsjón Haukur L. Hauksson
PPMrHHHIHHHHfHPHNNH
Netfang: sandkorn @ff. is