Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
7
Fréttir
Réttarhöldunum 1 e-töflumáli Bretans frestað um óákveðinn tíma - óvissa um framhald:
Lögreglan segir vitni
hafa rofið trúnað
Kio Alexander Briggs í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Hann heldur fram sakleysi sínu í málinu -
segir íslending á Spáni hafa komið e-töflunum fyr-
ir í tösku sinni. DV-mynd E.ÓI.
„Þú veist að Gummi setti efnin í
töskuna mína. Ég veit að þú veist
það. Þið hin héma inni vitið það
líka. Ég kom bara hingað til að fá
pláss á flskibáti. Takið þið manninn
sem gerði þetta og leyfið mér að fara
heim.“
Þessi orð mælti Bretinn Kio Alex-
ander Bambele Briggs í talsverðri
geðshræringu í dómsal Héraðsdóms
Reykjavíkur í gær. Kio hafði beðið
Pétur Guðgeirsson héraðsdómara
um að fá orðið í lok framhaldsrétt-
arhalds vegna innflutnings hans á
rösklega 2 þúsund e-töflum. Orðum
sínum beindi hann að Ragnheiði
Harðardóttur, sækjanda af hálfu
ríkissaksóknara, sem sat gegnt sak-
borningnum í dómsalnum. Kio hef-
ur haldið því fram að hafa enga vit-
neskju haft um að e-töflurnar hefðu
verið í tösku hans þegar hann kom
til landsins.
Pétur frestaði réttarhöldunum
um ótiltekin tima að ósk Ragnheið-
ar I gær. Þá höfðu tveir lögreglu-
menn verið yfirheyrðir - lögreglu-
menn sem vitni í málinu sagðist
hafa haft samband við frá Spáni
áður en Kio lagði af stað með efnin
til íslands. Vitnið er maður á þrí-
tugsaldri sem segist hafa samið við
lögregluna. Hann viðmkenndi í
samtali við DV á þriðjudag að hafa
„fórnað Bretanum" til að fá frið fyr-
ir eigin innflutning á jafn-
miklu magni.
Samband lögreglu
við vitnið
Spenna ríkti í dómsalnum í
gærmorgun þegar Ásgeir
Karlsson, yfirmaður í fíkni-
efnadeild lögrelgunnar, mætti
í vitnastúkuna. Ástæðan er
sú að í síðasta réttarhaldi, í
vikunni áður, upplýsti fram-
angreint vitni að það hefði
gert samkomulag við lögregl-
una áður en Kio fór til ís-
lands.
Ásgeir sagði að stefna lög-
reglunnar væri að ræða ekki
um aðila sem tengjast upplýs-
ingagjöf við lögregluna í
fiknefnamálum. Hann kvaðst
engu að síður ætla að svara
spurningum fyrir dómi um
þetta mál eftir besta mætti
þar sem framangreint vitni,
maðurinn á Spáni, heföi rofið
trúnað í síðustu viku.
Annar lögreglumaður, sem
gjarnan hefur starfað í Grafarvogi
og Breiðholti, sagði að vitnið hefði
haft samband við sig í júní. Þá þeg-
ar hefði það leitast eftir því að fá
umbun gegn því að upplýsa um inn-
flutning á fikniefnum. Lögreglu-
maðminn kvaðst hafa komið mann-
inum í samband við Ásgeir Karls-
son. Engu að síður svaraði hann því
játandi að hafa a.m.k. þrívegis rætt
um samningsmálin við manninn -
hann sagðist hafa sagt við vitnið að
hann hefði enga heimild til að gera
slíkt. Ásgeir hafði sagt hið sama
skömmu áður.
Lögreglumaðurinn sagði að
daginn áður en Kio kom til fs-
lands hefði umrætt vitni
hringt í sig, síðdegis. „Hann
sagði að maður væri að koma
til landsins með ecstasy. Ég
sagði honum að ég vildi að
hann talaði beint við Ásgeir
Karlsson,“ sagði lögreglumað-
minn sem kom síðan á beinu
sambandi á
milli Ásgeirs og
vitnisins.
Þessar stað-
reyndir sýna
svo ekki verður
um villst að
vitnið á Spáni
hafði verið í
sambandi við
lögregluna í
nokkur skipti á tæplega
þriggja mánaða timabili áður
en Kio Briggs kom með efnin
til íslands. Reyndar lét verj-
andi Kios, Helgi Jóhannesson,
að því liggja, að vitnið hefði
verið eins konar heimilisköttm á
lögreglustöðinni í Grafmvogi.
Ég hef aldrei átt svona buxur
Dómarinn í málinu lagði áherslu
á að fá að sjá hvemig taska Kios leit
út þegar hann kom með hana til
landsins. I því skyni vom hann og
lögreglan fengin til að sýna öll þau
fot sem hann kom með og sakborn-
ingurinn látinn pakka þeim niðm.
„Ég kannst ekki við þennan bol,“
sagði Kio þegar lögreglumaðm tók
fram eina plastpakkningu úr tösk-
unni. Kio sagðist heldur ekki kann-
ast við joggingbuxur sem fikniefnin
voru falin í. „Ég nota ekki svona
stórt númer. Ég hef aldrei átt svona
buxm,“ sagði
hann. Kio
kvaðst jafn-
framt hafa talið
að hann hefði
haft greiðslu-
kort meðferðis í
tösku sinni. „En
lögreglan hefur
alltaf sagt að
það hafi ekki
verið í töskunni," sagði hann.
Eins og fram kom i DV í gær
sagðist framangreint vitni hafa
„fórnað Bretanum". í raun stóð til í
gær að málið yrði flutt og það tekið
til dóms. Sækjandinn bað hins veg-
ar um að málinu yrði frestað. Þvi er
framhald málsins óljóst - t.a.m.
hvort framkvæmd verði frekari
rannsókn í því skyni að varpa Ijósi
á sekt annarra í málinu, eða fleiri
vitni verði kölluð til.
Toyota Carina E Catsy 1996, ek. 61
þús. km, 5 d., ssk.
Verð 1.370.000
Suzuki Jimmy 1999, ek. 4 þús. km,
3 d., beinsk.
Verð 1.490.000
Frábær greiðslukjör:
Engin útborgun og lán til allt að 48 mánaða Fyrsta afborgun getur verið eftir
allt að 3 mánuði. Visa/Euro- raðgreiðslur til allt að 36 mánaða.
éíL
HÚ
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) • Sævarhöfða 2 • Reykjavík
Símar: 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf: 587 7605
Mazda 323F 1992, ek. 60 þús. km,
5 d., beinsk.
Verð 630.000
Subaru Legacy 1996, ek. 28 þús.
km, 5 d., ssk.
Verð 1.670.000
Suzuki Swift 1993, ek. 70 þús. km,
4 d., ssk.
Verð 620.000
Nissan Maxima QX1996, ek. 49 þús.
km, 4 d., ssk.
Verð 2.150.000
Nissan Micra 1,3 1998, ek. 7 þús.
km, 5 d., ssk.
Verð 960.000
Alfa Romeo 1,6 16v 1998, ek. 7 þús.
km, 4 d., beinsk.
Verð 1.790.000
Opel Vectra 1,6 1998, ek. 4 þús. km,
4 d., ssk.
Verð 1.650.000
Opel Omega 2,0 1996, ek. 56 þús.
km, 4 d., beinsk.
Verð 1.890.000
Nissan Patrol 2,8 td 1998, ek. 12
þús. km, 5 d., beinsk.
Verð 3.520.000
Nissan Patrol 2,8 td 1996, ek. 60
þús. km, 5 d., beinsk.
Verð 2.990.000
Nissan Micra 1997, ek. 42 þús. km,
5 d., beinsk.
Verð 860.000
Saab 9000 CS 1996, ek. 35 þús. km,
5 d., ssk.
Verð 2.150.000
Arctic Cat Thundercat 1995, ek.
3 þús. km, ssk.