Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 Útlönd Arafat sækir bænasamkomu í Hvíta húsinu Yasser Arafat, forseti Palest- ínumanna, sótti svokallaða bæna- morgunverðarsamkomu í Hvíta húsinu í morgun þar sem Bill Clinton Bandaríkjaforseti var meðal þátttakenda. Samkoma þessi er árlegur viöburður. Arafat vísaði á bug gagnrýni ýmissa gyðinga og íhaldssamra kristinna hópa á nærveru hans. Hann sagðist taka þátt í bæna- haldinu fyrir friðarferlið í Miö- Austurlöndum. Búist er við að þeir Arafat og Clinton ræði sam- an. Forseti Palestínumanna hitti Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í gær og þar kom fram að Palestínumenn væru enn að velta fyrir sér að lýsa yfír stofnun ríkis 4. maí. Vill rukka fyrir borgararéttinn Carl I. Hagen, formaður norska Framfaraflokksins, segir það sanngjamt að innflytjendur borgi fyrir að fá norskan ríkisborgara- rétt. Flokkur hans hefur lagt fram tillögu um að gjaldið verði tíu þúsund norskar krónur. Á fréttamannafundi eins for- ystumanna Framfaraflokksins í gær kom fram að kostnaður ríkis- ins við að meðhöndla hverja um- sókn um ríkisborgararétt sé meiri en tíu þúsund krónur norskar. Forraaður dómsmálanefndar Stór- þingsins, sem kemur úr rööum Hægriflokksins, segir þetta ekki nægileg rök fyrir gjaldtöku. Repúblikanar vifja fá vitnin í öldungadeildina Saksóknarar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í málinu gegn Bill Clinton forseta ætla að fara fram á það við öldungadeildina að vitnin þrjú, sem hafa verið yfír- - heyrð fyrir luktum dyrum síðustu daga, verði kölluð fyrir deildina í eigin per- sónu. Lítið eða ' ekkert nýtt - kom fram í yf- irheyrslum yfir þeim Monicu Lewinsky, fyrrum lærlingi í Hvíta húsinu, Vernon Jordan, vini Clintons, og Sidney Blument- hal, starfsmanni Hvíta hússins. Margir repúblikanar sjá ekki nauðsyn þess að þau komi fyrir öldungadeildina en eru ffemur hlynntir því að upptökur af vitn- isburði þeirra verði gerðar opin- berar. Repúblikanar í öldungadeild- inni sendu Clinton bréf þar sem þeir buðu honum aö bera vitni fyrir luktum dyrum þar sem vitn- isburður hans gæti varpað ljósi á misvísandi framburð. Hvíta húsið hefur hins vegar sagt að forsetinn muni ekkí svara spumingum um ákærurnar fyrir meinsæri og hindrun á ffamgangi réttvísinnar vegna sambands hans og Monicu Lewinsky. Serbar líklegir til aö sækja friðarráðstefnu um Kosovo: Milosevic ir ekkert Júgóslavnesk stjórnvöld sögðu í gær að Serbar myndu að öllum lík- indum sækja friðarráðstefnu um Kosovo sem hefst í Frakklandi um helgina. Vesturlönd hafa mjög auk- ið þrýsting sinn á þá að mæta til leiks. Milan Komnenic, upplýsingaráð- herra Júgóslavíu, sagði að þingið í Belgrad hefði lokaorðið og að senni- lega yrðu greidd atkvæði um það í dag, fimmtudag, að senda viðræðu- nefnd til Frakklands. Þegar franskir sjónvarpsmenn spurðu Komnenic hvort þingheimur væri líklegur til að fallast á ffiðar- viðræðumar sagðist ráðherrann nú frekar telja það. „Ég er hóflega bjartsýnn. Þessi ráðstefna gæti orðið til þess að William Cohen, landvarnaráðherra Bandaríkjanna. koma á friði í Kosovo,“ sagði Komnenic. Slobodan Milosevic Júgóslavíu- forseti hefur ekki enn upplýst um afstöðu sína til friðarviðræðnanna sem verða í Rambouillet fyrir utan París. Skæruliðar albanskra aðskilnað- arsinna hafa þegar fallist á að senda fulltrúa á ráðstefnuna og í gær hermdu fregnir að leiðtogar tveggja stærstu borgaraflokkanna í Kosovo hefðu bundið enda á deilur sínar og ákveðið að vera með. William Cohen, landvarnaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að svo kynni að fara að fremur fá- mennur flokkur bandarískra her- manna yrði sendur til Kosovo til að aðstoða NATO við friðareftirlit. f 5 Bloöugar óeiröir héldu áfram í Indónesíu f gær. Aö minnsta kosti þrettán manns týndu lífi í Aceh héraöi, aö sögn mannréttindasamtaka. í höfuðborginnl Jakarta lést aö minnsta kosti einn maöur og nokkrir særöust þegar til átaka kom milli þjóðernisbrota. Ólátaseggirnir kveiktu meöal annars í bílum og húsum nærri umferðarmiöstöð borgarinn- ar. Aö sögn lögreglunnar má rekja átökin í Jakarta til þess aö upp komst um vasaþjóf frá norðurhluta Súmötru í ein- um strætisvagnanna. Símar fjölskyldu Rúss- landsforseta hleraðir Símtöl fjölskyldu Borís Jeltsíns Rússlandsforseta hafa verið hleruð ólöglega. Þetta staðfesti í gær yfir- maður rannsóknardeildar ríkissak- sóknciraembættisins í Rússlandi eft- ir húsleit á um 20 stöðum. Vegna símahlerananna virðist fjármálafurstinn Borís Berezovskíj, sem hingað til hefur verið gífurlega áhrifamikiil, vera að dragast inn í hneykslismál sem ef til vill hefur þegar kostað ríkissaksóknara lands- ins starfið. í gær birtust einnig fréttir þess efnis að fyrrverandi dómsmálaráð- herra Rússlands, Valentin Kovaljov, heföi verið handtekinn. Er hann sakaður um fjársvik og að hafa vopn undir höndum. Lögreglan Borís Jeltsíns fundaöi í morgun á heilsuhælinu, sem hann dvelur á, meö Primakov forsætisráöherra. staðfesti handtökuna en vildi ekki greina 1 smáatriðum frá kærunni. Kommúnistinn Kovaljov var dómsmálaráðherra á árunum 1995 til 1997. Hann var rekinn eftir að rússneska sjónvarpið sýndi mynd- bandsupptöku af manni, sem leit út eins og ráðherrann, i gufubaði með fjölda kvenna. Gufubaðstofan var sögð hafa ver- ið í eigu rússneskra mafíusamtaka og Kovaljov var grunaöur um spill- ingu. Rússneskir fjölmiðlar veltu því fyrir sér hvort Kovaljov væri fómarlamb flárkúgunar. Samkvæmt lögmanni Kovaljovs tengist kæran nú ekki ráðherratíð hans heldur formennsku hans í stofhun. Stuttar fréttir i>v Kallaðir heim frá írak Sameinuðu þjóðirnar hafa skip- að öllum Bandaríkjamönnum og Bretum, sem starfa fyrir stofnun- ina í írak, að yfírgefa landið. Ástæðan er sú að íraska stjómin segist ekki lengur geta tryggt ör- yggi þeirra. Hungursneyð blasir við Dauðsfollum í Sómalíu fjölgar ekki bara vegna átaka stríðandi fylkinga heldur einnig vegna hungursneyöar. Um 700 þúsund manns skortir matvæli. í heimsókn til krónprins Forsætisráðherra ísraels, Benjamin Netanyahu, heldur á sunnudag í stutta heimsókn til Jórdaníu til að óska nýút- nefndum krón- prins, Abdailah ibn Hussein, til hamingju. Að sögn jórdansks embættismanns bað ísraelski for- sætisráðherrann um að fá að koma til Jórdaníu til að geta sjálf- ur óskaö krónprinsinum, elsta syni Husseins konungs, til ham- ingju. 86 ára seldi fíkniefni 86 ára gömul kona frá Lipetsk í Rússlandi var gripin þegar hún reyndi að selja 12 ára skólastrák maríjúana. Ellilífeyrisþegar í Rússlandi hafa orðið harðast úti í efnahagskreppunni í landinu. Grindadráp skaðar Þýsk umhverfisvemdarsamtök mæla nú með því við matvöm- verslanakeðjur í Þýskalandi að kaupa ekki vörur frá Færeyjum þar sem Færeyingar drepi grind- hval. í fangelsi fyrir 15 krónur Fjögurra bama móðir í Rúmen- íu var dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa stolið 15 krónum fyrir strætisvagnafar- gjaldi. Fær bréf Díönu Fyrrverandi ástmaður Díönu prinsessu, James Hewitt, hefur fengið aftur í sínar hendur 64 ástarbréf frá prinsessunni. Bréfin voru fjarlægð af heimili Hewitts í mars síðast- liðnum og voru hjá lögmannsstofu þegar Hewitt gerði tilkall til þeirra. Bréfin skrifaði Diana frá desember 1990 til mars 1991 þegar Hewitt gegndi herþjónustu á Persaflóa. Rushdie fær áritun Rithöfundurinn Salman Rushdie hefur fengið vegabréfsá- ritun til Indlands, að þvi er BBC greindi frá. Indland var fyrsta landið sem bannaði bók Rushdies, Söngva Satans. Deilt um skoðanir Tinna Franskir þingmenn deildu í gær hart um það hvort Tinni, teiknimyndahetjan fræga, hefði verið hægri- eða vinstrisinnaður. Umræðan var liður í hátíðarhöld- um vegna 70 ára afmælis Tinna. Holbrooke sektaður Richard Holbrooke, sem var sáttasemjari í Bosníudeilunni, hefur samþykkt að greiöa 350 þúsund króna sekt vegna meints brots á siðareglum. Samkvæmt regl- unum er hátt- settvun embætt- ismönnum bannað að hafa sam- band við fyrrverandi starfsfélaga í 1 ár eftir að þeir fara af launa- lista ríkisins. Starfsfélaginn, sem Holbrooke hafði samband við, segir Holbrooke hafa haft sam- band þegar hann var ólaunaður ráðgjafi Bandaríkjastjómar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.