Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 Spurningin Tekurðu lýsi/vítamín? Bent Andersen, 9 ára: Ég gerði það einu sinni. Lilja Rut Þórarinsdóttir, 14 ára: Já, ég tek lýsi. Ásdís Elva Kristinsdóttir, 14 ára: Ég tek stundum C-vítamín. Björn Sigurðsson, vinnur á Reykjalundi: Ég tek stundum vítamín. Garðar H. Garðarsson, vinnur á Reykjalundi: Ég geri það sjaldan. Vignir Bjamason nemi: Nei. Lesendur Samkeppni í utanlandsflugi - lægri fargjöld er krafan íslendingar eru mun verr settir en íbúar nágrannalandanna að því er flugfargjöld og sumarleyfisferðir snertir. Krafan er lægri fargjöld, segir m.a. í bréfinu. Gunnar Kristjánsson skrifar: Við Islendingar rembumst eins og rjúpan við staurinn að leita á þau mið í ferðaþjónustu sem bjóða lægstu fargjöldin. Einkum til útlanda þar sem möguleikar á ódýrari þjónustu bjóðast og úrval- ið er margfalt á við það sem fólk á völ á hér. Ég rakst á svör veg- farenda í DV sl. mánudag þar sem spurt var: Viltu samkeppni í ut- anlandsflugi? Fimm af sex að- spurðum svöruðu játandi. Einum var sama og svaraði ekki spurn- ingunni beint. - Yrðu fargjöldin héðan til útlanda almennt ódýrari væri hægur vandi fyrir íslenska ferðamenn að ganga inn í hvaða ferðir sem er í borgum á megin- landinu eða í Bretlandi og greiða jafnframt mun lægri gjöld en hér bjóðast. í breskum dagblöðum má lesa daglega tilboð um ferðir og flug frá Bretlandi vitt og breitt um heiminn og í flestum tiivikum blöskrar manni verðmunurinn á þeim ferðum og þeim er hér bjóðast. - Ég tek dæmi um auglýsingu í bresku blaði í síðustu viku. Þar eru auglýstar ferðir til Florida með flugi, bílaleigubíl og gistingu á mis- munandi hótelum (3, 4 og 5 stjörnu) í 14 nætur á 279 sterlingspund og hæst 389 pund. - Auglýsing um flug og bíl er þar einnig að finna á 189 ensk pund. Allt er þetta í samræmi við það sem t.d. Flugleiðir hf. bjóða útlend- ingum á markaössvæði sínu, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Ég hef haft af því spurnir að t.d. I Lúxem- borg, þangað sem Flugleiðir hættu nýlega að fljúga, bjóðist farþegum að taka KLM flug til Amsterdam og þaðan til Bandaríkjanna fyrir eitt- hvað ámóta fargjald og hér er tekið dæmi um frá Bretlandi. - Og dæm- in um lág fargjöld milli heimsálfa (Evrópu og Ameríku) eru óteljandi. Á meðan sætum við íslendingar því að þurfa að greiða ofurgjöld til og frá landinu. Um þetta hefur ver- ið kvartað, bæði af farþegum sem hefur verið neitað um sömu fargjöld (t.d. íslendingar sem búa vestanhafs eða austan) er þeir ætla að notfæra sér hið auglýsta verð Flugleiða. Enginn aðili hér á landi, hvorki Ferðamálaráð né ráðuneyti (sem hafa þó eftirlit með flugþjónustu héðan til útlanda), tekur upp hansk- ann fyrir landsmenn að þessu leyti. Ég er hissa á að samgönguráðuneyt- ið skuli ekki láta þessi mál til sín taka eða sjálfur samgönguráðherra sem er áhugamaður um hvers kon- ar samgöngubætur hér innanlands og ræður raunar ferðinni í flugsam- göngum líka. En eitt er víst; það verður að mæta kröfum landsmanna um lægri fargjöld til og frá landinu og lægri verðtilboð í svokallaðar pakkaferðir sem fjölskyldur eru að vinna fyrir hörðum höndum mánuðum saman og dreifa kostnaðinum á allt að 36 mánuði eins og dæmi eru um. Bein hlustendalína í sjónvarpi Árni Björnsson hringdi: Ég hef fylgst nokkuð með þýsku sjónvarpsstöðvunum sem senda út um gervihnattasamband, sem mað- ur nær vel hér á landi með loftnets- diski. Þarna er um að ræða úrvals dagskrár og m.a. er ein stöðin, WDR, sem býður upp á beina hlust- endaþjónustu sem er mikið horft á. Líkist einna helst þjóðarsálarþætt- inum á Rás 2, en með öðru sniði að sjálfsögðu. Þetta ættu íslensku sjónvarps- stöðvamar að kanna og bjóða upp á svona þjónustu. Þýska stöðin er með þáttinn frá miðnætti til kl. 2 að nóttunni og held ég að það hentaði íslenskum áhorfendum vel einnig. Hér er ekki um að ræða neinn „kjat- faskaþátt" ef menn hcdda það. Þetta er eldklár maður sem svarar í þýsku sendingunni og bíður eftir hringingu um mál sem varða við- komandi einstakling, en ekki ætlað sem kvartana- eða deiluþáttur af neinu tagi. Menn bera upp spum- ingar um hvaðeina án þess beinlín- is aö ætlast til að fá fullt svar. - Þeir sem þekkja þáttinn ættu að tjá sig um þetta. Ljótar eru fréttirnar, lagsi „Og tíu þingmenn hafa ráðherraembætti sem aukabúgrein, en þingsetan er þó talin fullt starf,“ segir Haraldur m.a. í bréfinu. Haraldur Guðnason skrifar: „Ljótar eru fréttimar, lagsi“, var haft eftir karli í Landeyjum, sem kom sunnan frá sjóbæjum og frétti að Eyjamenn væm famir að tvíróa undir Sand, en Landeyingar komust ekki á sjó vegna brims. Og ljótar þóttu skrifara líka frétt- imar af bágum kjörum alþingis- manna okkar. Hafa þeir þó, með minnstu fríðindum, fjórföld laun verkamanna. Þóttust „verkalýðsfor- ingjar" allvel hafa samið. Þá eru ýmsir þingmenn í störfum utan þings. - Og tíu þingmenn hafa ráð- herraembætti sem aukabúgrein, en þingsetan er þó talin fullt starf. En launin em hættulega lág að dómi þingforseta. Samt virðist sem ekki þurfi að óttast að „hæfileika- menn“ fáist til þingsetu vegna hinna bágu kjara. En kannski mætti „flóran" (eins og sagt er á finu máli) vera fjölbreyttari. Til að mynda að fá fleiri „fræðinga", svo sem tölvufræðinga, genafræðinga, snyrtifræðinga, bókasafnsfræðinga, og fleiri og fleiri. Við þurfum líka sægreifa, land- greifa, sálgreina, forstjóra, verð- bréfasala, lifeyrisbjóða og vixlara. Þrátt fyrir bágu kjörin er mikið fjör í framboðum og virðist víða mann- v£d. Þeir sem fara í prófkjör kosta til æmu fé, hverjir sem svo borga fyrir láglaunafólkið. Skyldi vera að samfylkingar- klúðrið hafi stafað af því að tígul- kóngamir í spilinu hafi verið of margir? Vantar rými fyrir þá mörgu sem vilja vera efstir? - Eitt er víst: „Ekki komast allir á kirkju- garðsballið í haust sem langaði til þess í vor“. Samfylkingin dauð samtök Guðjón Einarsson skrifar: Mér sýnist listi Samfylkingarinn- ar, sem nú er sem mest fjaðrafokið um, vera til afar litilla afreka. Með því að líta á nöfn þeirra sem hlutu efstu sætin em ekki mikil líkindi til að þessi listi hljóti atkvæði að neinu marki í komandi kosningum. Svo- kallaður uppgangur í þessu prófkjöri er í mesta lagi tii að sanna og sýna að A-flokkamir, Alþýðuflokkur og Al- þýðubandalag, eru liðnir undir lok að fúllu og öllu. Kvennalistann talar enginn um. Leifar hans eru Samfylk- ingunni fremur til trafala en hitt. Ég myndi ekki veðja á nöfn Samfylking- arinnar sem ráðherraefni. Guð hjálpi þjóðinni ef það gerðist. - Það var allt ljótur leikur, það sannast brátt. Borghildur í Þjóðarsálinni Njáll hringdi: Ég hlustaði á Þjóðarsálina á rás 2 sl. mánudag. Þar hringdi inn m.a. kona að nafni Borghildur og gagn- rýndi Sjónvarpið harölega fyrir að halda Spaugstofunni inni sem skemmtiatriði fyrir landsmenn. Hún fordæmdi réttilega klámið og ofbeldið í síðasta þætti. Vildi að Spaugstofan yrði sett í ævilangt frí og reyndar Sjónvarpið líka. Undir þetta skal tek- ið hér. Sjónvarpið virðist stjórnlaust og geta dembt hverju sem er yfir þjóðina. Sjónvarpsstjóri, útvarps- stjóri og útvarpsráð virðast enga ábyrgð taka. Ferðaþjónusta eða stóriðja Hulda skrifar: í sjónvarpsfréttum rétt nýlega var borið saman hagræði af ferðaþjón- ustu annars vegar og orkufrekum iönaði, svo sem stóriðju, hins vegar. Þar var því haldið fram að laun i ferðaþjónstunni væru ekki siður vænleg en í stóriðjunni. Þessu mót- mæli ég harðlega. Spyrjið starfsfólkið á hótelum og veitingahúsunum um launin. Þau eru þau lægstu sem um getur í landinu. Kannski hafa „stjór- amir“ og þeir í skipulagningunni og markaðssetningunni það dágott. Það á ekki við um almenna starfsmenn sem eru uppistaðan i þjónustunni sjálfri. Síður en svo. í orkufreka iðn- aðinum (t.d. í Álverinu í Straumsvík og á Grundartanga) eru sómasamleg laun og þar eru allir ánægðir. Það á ekki við um ferðabransann. Úr hásæti hrokans Elín Jónsdóttir skrifar: Ég vil lýsa óánægju minni með hrakfarir Kvennalistans. Mér hefur fundist undanfarið, gagnstætt því sem var í upphafi, að hrokinn hafi verið yfirþyrmandi í öllum viðtölum við þessa forsvarsmenn Kvennalist- ans á síðustu mánuðum. Ekki síst hjá Guðnýju Guðbjömsdóttur sem datt niður i 8. sætið í prófkjörshólfunum, sem þær sjálfar kröfðust. Hefðu þessi hólf ekki verið til staðar, þá hefði Kvennalistinn líklega komið betur út. En nú hefur Kvennalistinn dottið úr hásæti hrokans og við því er ekk- ert að gera. Hann er liðinn undir lok sem stjórnmálaafl, ásamt fleiri flokk- um. Kannski best fyrir alla. Slagur í Sjálf- stæðisflokki? Eiríkur hringdi: Ekki ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að sleppa viö innanmeinin frekar en hinir flokkarnir. Nú er það varafor- mannsembættið sem steytir á. Ef flokkurinn ætlar að losa um foryst- una með því að þurrka út stöðu vara- formanns, þá er stutt í upplausnina. Eitthvert ráð eða framkvæmdastjórn nær aldrei að koma fram í forfóÚum formanns eða taka við í millibilsá- standi. Varaformannsstaða í Sjálf- stæðisflokknum er sterk pólitísk staða og án hennar veikist flokkur- inn vemlega. Er það kannski orðin samræmd stefna allra íslensku stjórnmálaflokkanna?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.