Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Side 13
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
13
r>v
Prófkjör Samfylkingarinnar á Norðurlandi vestra:
Fréttir
Anna Kristín og Krislján Möller
talin sigurstranglegust
DV, Akureyri:
Prófkjörsbarátta Samfylkingar-
innar á Norðurlandi vestra er nú í
fullum gangi en í prófkjörinu, sem
fram fer 13. febrúar, verður kosið
milli átta einstaklinga úr Alþýðu-
flokki og Alþýðubandalagi. Eins og
á Norðurlandi eystra á Kvennalist-
inn ekki frambjóðendur í prófkjör-
inu, ekki vegna ágreinings um fyrir-
komulag prófkjörsins eins og í aust-
urkjördæminu, heldur mun engin
kvennalistakona á Norðurlandi
vestra hafa verið tilbúin að skella
sér i baráttuna. Kvennalistinn á þó
formlega aðild að prófkjörinu.
Þeir sem gefa kost á sér eru Anna
Kristín Gunnarsdóttir, Sauðár-
króki, Björgvin Þór Þórhallsson,
Blönduósi, Jón Bjamason, Hólum,
Pétur Vilhjálmsson, Hvammstanga,
og Signý Jóhannesdóttir, Siglufirði,
úr röðum Alþýðubandalagsins, og
Jón Sæmundur Sigurjónsson, Siglu-
firði, Kristján Möller, Siglufirði, og
Steindór Haraldsson, Skagaströnd,
úr röðum krata. AUir frambjóðend-
ur gefa kost á sér í efsta sætið nema
Steindór sem vill verða í 2.-3. sæti.
Prófkjörið fer þannig fram að
kjósendur merkja við fjögur nöfn af
þessum átta og verða úrslit próf-
kjörsins bindandi hvað varðar tvö
efstu sætin. Frambjóðendur eru all-
ir í „einu hólfi“ sem þýðir að hægt
er að merkja við nöfn úr báðum
flokkunum og engar „girðingar" eru
uppi.
Klögumál ganga á víxl
Miklum sögum fer af harðri bar-
áttu frambjóðendanna átta og á
milli stuðningsmanna þeirra ganga
klögumál á víxl. Þannig hefur því
verið haldið mjög á lofti, t.d. af
stuðningsmönnum Önnu Kristínar,
að Hjálmar Jónsson, oddviti sjálf-
stæðismanna í kjördæminu, leggi
hart að mönnum að styðja Jón
Bjamason en Jón er mágur Hjálm-
ars. Einnig er fullyrt að Kristján
Möller, krati á Sigluflrði, hafl gert
eins konar samkomulag við fram-
sóknarmenn á Sigluflrði sem á að
hafa gengið út á það að stuðnings-
menn Kristjáns á Siglufirði hafi
kosið hinn 19 ára framsóknarmann,
Birki J. Jónsson, í bænum í próf-
kjöri Framsóknarflokksins á dögun-
Anna Kristín Gunnarsdóttir. Leiðir
hún lista Samfylkingarinnar?
um gegn því að framsóknarmenn
bregði sér á kjörstað um aðra helgi
og veiti Kristjáni þar brautargengi.
Geysimikil þátttaka var í prófkjöri
Framsóknarflokksins á Siglufirði,
miklu meiri en kjörfylgi flokksins
hefur verið þar en það er skýrt
þannig að Siglfirðingar almennt
hafi viljað styðja Birki sem hlaut 4.
sætið hjá Fram-
sókn. Frambjóð-
endur í samfylk-
ingarprófkjörinu,
sem DV hefur
rætt við, segja að
orðrómur um
„smölun" Hjálm-
ars Jónssonar og
samkomulag
Kristjáns við
framsóknarmenn
eigi ekki við rök
að styðjast. Einn
þeirra orðaði það
þannig að þetta væri „stormur í
vatnglasi" en bætti við að auðvitað
tækjust menn á.
Anna og Kristján efst?
Hvað sem því líður er ljóst að bar-
áttan er hörð, enda er keppnin ekki
einungis á milli flokkssystkina
heldur á milli einstaklinga úr
tveimur flokkum sem til þessa hafa
I
«*»
Kristján Möller. Er af mörgum talinn
geta náð 1. sætinu.
tekist á í þessu kjördæmi sem öðr-
um. Sé litið til Alþýðubandalagsins
er mikil undiralda milli stuðnings-
manna Önnu Kristínar og Jóns
Bjamasonar sem eru af flestmn tal-
in líklegust til að verða í efstu sæt-
um af alþýðubandalagsfólkinu og
kratanna Jóns Sæmundar og Krist-
jáns MöUer sem eru taldir hafa
mestu möguleik-
ana á að hreppa
efstu sætin af
krötunum þegar
upp verður stað-
ið. Það vita svo
flestir að kærleik-
ar era litlir með
Sauðkrækingum
og Siglfírðingum
og það gæti auð-
vitað sett strik í
reikninginn þeg-
ar upp verður
staðið.
„Landslagið" er þannig að mjög
erfitt er að spá fyrir um hver loka-
niðurstaðan verður. Þó hallast
margir að því að Anna Kristín og
Kristján muni hreppa tvö efstu sæt-
in en þau hafa bæði verið áberandi
í starfi flokka sinna i sveitarstjóm-
armálum. Jón Bjamason og Jón Sæ-
mundur verða þó að mati þessara
sömu aðila ekki langt undan. Einna
Jón Sæmundur Sigurjónsson. Mikil
óvissa um hvaða árangri hann nær.
verst er að átta sig á stöðu Jóns Sæ-
mundar sem er fyrrverandi þing-
maður krata í kjördæminu en hefur
undanfarin ár starfað í heilbrigðis-
ráðuneytinu og ekki tekið þátt í
pólitísku starfi.
Ef kosningaúrslitin frá kosning-
unum 1995 era skoðuð kemur ýmis-
legt forvitnilegt í ljós. Þá leiddi Jón
Hjartarson, skólameistari á Sauðár-
króki, lista Alþýðuflokksins og
flokkurinn tapaði 6,7% atkvæða
sinna frá kosningunum 1991 og fékk
ekki nema 5% sem dugði ekki fyrir
þingmanni. Þá bauð Þjóðvaki fram
og fékk 6,8% sem er nánast það
sama og kratamir töpuðu, og
Kvennalistinn, sem bauð einnig
fram, fékk 3,2% og tapaði 2% frá
kosningunum 1991.
Alþýðubandalagið, sem þá var
undir forustu Ragnars Amdals al-
þingismanns, fékk 15,6% sem nægði
til að halda Ragnari inni þrátt fyrir
3,6% tap atkvæða. „Risaflokkarnir"
tveir í kjördæminu unnu báðir á,
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 30,8%,
bætti við sig 2,7% atkvæða og hélt
sínum tveimur þingmönnum, og
Framsóknarflokkurinn, sem var
hinn ótvíræði sigurvegari, fékk
38,7%, bætti við sig 6,4% og fékk tvo
menn kjöma.
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
Bifreiöaskoðun á Dalvík
DV, Daivík:
Frá og með fimmtudeginum 4.
febrúar geta bifreiðaeigendur fengið
bíla sína skoðaða á bifreiðaverk-
stæðinu Kambi á Dalvík. Leifur
Harðarson, eigandi Kambs, hefur
fest kaup á búnaði til bifreiðaskoð-
unar og mun lYumherji hf. (Bif-
reiðaskoðun íslands) annast bif-
reiðaskoðunina.
Skoðað verður fyrsta og fjórða
fimmtudag í hverjum mánuði frá kl.
9.00-18.00 og mun maður frá Bif-
reiðaskoðun íslands á Akureyri
annast skoðunina.
Leifur segir að viðbrögðin lofi
góðu, upppantað sé fyrsta daginn og
nánast upppantað 25. febrúar þegar
næst verður skoðað. Hann segir
vonandi að þetta sé ekki bara nýj-
ungagimi heldur muni fólk notfæra
sér þessa þjónustu áfram.
Leifur vonast til að þetta verði til
að auka atvinnu á Kambi vemlega
þar sem oft þurfi að yfirfara og gera
við bíla bæði fyrir og eftir skoðun.
-hiá
Fylgið 1995 yfir 30%
Sumir em þeirrar skoðunar að
Samfylkingin geri ekki meira í
kosningunum í vor en að halda sæti
Ragnars Amdals sem nú lætur af
þingmennsku. Aðrir segja aö til tíð-
inda muni draga í vor og þar komi
tvennt til. Annars vegar það að
staða Vilhjálms Egilssonar, annars
manns á lista Sjáifstæðisflokksins í
kjördæminu, hafi veikst og hins
vegar sé listi Framsóknarflokksins
mun veikari nú. Fyrir því séu aðal-
lega tvær ástæður, V-Húnvetningar
eigi engan mann í efstu sætunum og
þar hafi reyndar heyrst raddir um
sérframboð og margir séu ósáttir
við að hafa Áma Gunnarsson, fyrr-
um aðstoðarmann Páls Péturssonar
í félagsmálaráðuneytinu, í 2. sæti á
eftir ráðherranum.
Tvö efstu sætin í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar gætu því hugsanlega
verið þingsæti að loknum sjálfum
alþingiskosningunum í vor. Saman-
lagt hafi flokkamir sem að Samfylk-
ingunni standa fengið 30,6% at-
kvæða í kosningunum 1995 og skili
óánægjufylgi úr Framsókn og Sjáif-
stæðisflokki sér til Samfylkingar-
innar í vor gætu stórtíðindi gerst og
annaðhvort Vilhjálmur Egilsson
eða Ámi Gunnarsson úr Framsókn
ekki náð kjöri. Það gæti því verið að
öðm að keppa fyrir þátttakendur í
prófkjöri Samfylkingarinnar en
bara 1. sætinu.
-gk
Yarmaskiptar
fyrir heimili og iðnoð
Tæknileg ráðgjöf um val
ÍIP SwrtwÉUCaiM
Borgartúni 28, sími 562 2901 og 562 2900.
VW Gotf Joker 1400, 5. d. ‘98, vínr.,
ek.18 þ. km, bsk., hvítir mælar.
V.1.300.000.
Grand Cherokee Laredo 4x4 4000, 4 d.
’94, grænn, ek. 71 þ. km, ssk.
Limited pakki (-leður), upph. 30.“
V. 2.300.000.
Honda Civic LSI 1500 VTEC, 3 d. ’98,
hvítur, ek. 3 þ. km, bsk., abs, sóll.,spoiler.
V. 1.590.000.
Nissan TeiTano II 4x4 SLX 2400Í ‘95,
hvítur, ek.128 þ. km, bsk., 7 manna.
V. 1.650.000.
Jeep Wrangler 4x4 4200 3 d., ‘90,
rauður, ek. 96 þ. míl., bsk., ný kúpl.,
dekk og felgur, 170 hö. V. 950.000.
Tilboð 790.000.
Gott úrval bíla é skrá
og á staðnum
Opið virka daga 10-12 og 13-18, laugardaga 13-17.
m m I^ÍLASAUNÍ
nöldur ehf.
B í L A S A L A
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020 - 461 3019
SsangYong Musso 4x4 2900 dísil,
5 d. '98, ssk., turbo interc., abs, leður
o.fl. V. 3.050.000.
MMC Space Wagon 4x4 GLXI 2000
‘98 grænn, ek. 6 þ. km, ssk., álf.,
krók. 0.11. V. 2.190.000.
I